Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 36

Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Steinrunnar staðreyndir Ragnars Arnalds RAGNAR Arnalds stingur niður penna í Morgunblaðinu þann 23. feb. s.l. og svarar grein minni sem birtist þann 18. feb. Ragnar heldur því fram að hann sé að bera fram fyrir lesendur nokkrar alþekktar staðreyndir. Eg hafi einungis fram að færa persónulegar skoðanir og óskhyggju. Uthlutun aflaheimilda Það er rétt hjá Ragn- ari að úthlutun veiði- Úlfar heimilda til ESB-ríkja Hauksson fer fram í ráðherraráðinu og að regl- an um jafnan aðgang er ein af megin reglum sjávarútvegsstefnunnar. Jafn aðgangur er hins vegar ekki það sama og óheftur aðgangur. Við út- hlutun veiðiheimilda er stuðst við hlutfallslegan stöðugleika sem trygg- ir þjóðunum fasta aflahlutdeild í kvót- um ESB. Þegar þessi aðferð vai- tek- in upp var aðallega stuðst við veiði- reynslu ríkja. Ríkin geta ekki sótt kvóta sína hvar sem er heldur eru þeir bundnir við ákveðin svæði. Þetta er staðreynd, ekki persónulegt mat. Ég er fullkunnugur um hvaða þjóðir stunduðu hér veiðai' fytr á öld- inni. Mér er líka vel kunnugt að ESB hafnaði kröfu Spánverja um að miðað yrði við veiðireynslu þeirra fyrir út- færslu fískveiðilögsögunnar í 200 míl- ur. Slíkt hafí aðeins átt við um upp- haflega úthlutun kvóta eftir að sjáv- arútvegsstefnan var samþykkt. ESB hefur því enga viðm-kennda veiði- reynslu á Islandsmiðum. Það er ekki óskhyggja heldur staðreynd. Kvótakröfur ESB „gífurlegt mikil- vægi fiskveiða fyrir Is- land“ og viðurkennir að sjávarútvegur sé „grundvöllur efnahags- starfseminnar". Það er mín skoðun að engin ástæða sé tfl að ætla að sambandið snúi við blað- inu hvað þetta varðar ef til aðildarviðræðna kæmi. Ragnar hefur þá skoðun að nágrannar okkar í ESB bíði ein- ungis eftir tækifæri til að sölsa undir sig físki- miðin og gera okkur að þurfalingum • í ESB. Þessi ágreiningur verð- ur ekki leystur á síðum Morgunblaðs- ins. Við verðum að sækjast eftir aðild til að fá úr þessu skorið. Eftirlit með veiðum Ragnar heldur sig við það að fána- ríki fari með eftirlit sinna skipa í lög- sögu annarra ríkja og vitnar í grein- argerð sjávai’útvegsráðuneytisins. Ég er fullkunnugur því sem þar er Evrópusambandið Ragnar hefur þá skoð- un, segir Ulfar Hauks- son, að nágrannar okk- ar í ESB bíði einungis eftir tækifæri til að sölsa undir sig fískimið- in og gera okkur að þurfalingum í ESB. Ragnar víkur máli sínu að EES- samningnum og telur íslendinga hafa verið grátt leikna í þeim samn- ingi. Þar á Ragnar sér ekki marga skoðanabræður. Samkomulagið sem gert var er ekki hægt að túlka sem tollaíríðindi í skiptum fyrir veiðiheimildir. I samn- ingnum gerðu Islendingar samkomu- lag við ESB um gagnkvæm fískveiði- réttindi og hefur ESB rétt til að veiða allt að 3.000 tonn af karfa í íslenskri lögsögu. A móti fá Islendingar að veiða 30 þúsund tonn af loðnu. ESB féll frá öllum kröfum um veiðiheimild- ir við ísland í skiptum fyrir aðgang að mörkuðum. ESB gerði kröfu um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum fyrir tollafríðindi. Þetta tvennt er ólíkt. í EES-samkomulaginu staðfesti haldið fram. Þetta er sorglegur vitn- isburður um rangfærslur um ESB og hefði Ragnar því betur leitað fanga víðar því þetta er einungis „alþekkt staðreynd“ á Islandi. I 2. grein reglu- gerðar um eftirlit innan sjávai-út- vegsstefnunnar frá 12. okt. 1993 (Council Regulation (EEC) No 2847/93) stendur: „Til að tryggja að reglum sé framfylgt skal hvert aðild- am'ki um sig bera ábyrgð á eftirliti með öllum aðgerðum sem tengjast sjávarútvegi innan síns svæðis og þeirrar lögsögu sem er undir þess fullvalda stjórn eða efnahagslögsögu, sérstaklega eftirliti með veiðum, um- skipun, löndun, sölu, flutningi og geymslu sjávai-afurða ásamt skrán- ingu við löndun og sölu.“ I 4. grein segir ennfremur: „Eftirlit og skoðun sem gi’eint er frá í 2. grein skal fram- kvæmd af viðkomandi aðildam'ki á þess kostnað og samkvæmt því kerfí sem það ákveður.“ Ragnar hefði einnig getað nálgast réttai- upplýs- ingar í einhverjum þeiira bæklinga sem framkvæmdastjórnin gefur út. I bæklingi fastanefndar framkvæmda- stjómai’ ESB fyi’h’ Island og Noreg um stjórn fískveiða í ESB sem kom út á íslensku í haust segir: „Aðildar- ríki ESB bera sjálf ábyrgð á eftirliti með veiðum" og „öllum aðildaiTÍkj- um er frjálst að setja strangari regl- ur [um vernd fiskistofna] innan sinn- ar lögsögu.“ I nýjasta bæklingi aðal- skrifstofu framkvæmdastj órnarinnar fyi-ir sjávarútveg stendur: „Aðildar- ríkin bera ábyrgð á að framfylgja reglum um stjórn fiskveiða innan sinnar lögsögu." (The Common Fis- heries Policy. DG XIV Directorate- General for fisheries. 1998.) Viðskiptasamningar standa Ragnar bendir á að ESB sé tolla- bandalag. Mikið rétt. Samkvæmt 133. grein Amsterdam-sáttmálans (113. gr. Maastricht-sáttmálans) semm- fram- kvæmdastjóm ESB um viðskiptakjör við önnur ríki fyrir hönd aðildarríkj- anna. Framkvæmdastjómin fær samningsumboð frá ráðhemai’áðinu og aUii- viðskiptasamningar þurfa að fá samþykki aukins meirihluta aðild- arríkjanna. ESB er tollabandalag þannig að aðildarríkin standa saman að viðskiptasamningum og samningar sem gerðir eru ná til allra ríkjanna. Þegar ríki gengur í ESB tekur sam- bandið efnislega yfii’ þá viðskipta- samninga sem viðkomandi líki heíúr gert við önnur ríki. Þetta fer þannig fram að nýja ríkið segir viðskipta- samningum sínum fonnlega upp. Síð- an er gerður nýr samningur á milli ESB og þeirra ríkja sem nýja ríkið hafði samninga við. Þeir samningai’ innihalda a.m.k. þau sérkjör sem nýja aðfldaníkið naut gagnvai’t samnings- aðfla sínum. Þessi réttm’ er tryggður með 307. grein Amsterdam-sáttmál- ans (234. gr. Maastricht-sáttmálans) og 28. grein GATT-samkomulagsins. Dæmi um þetta eru tvíhliða samn- ingar Islands við Finnland og Sví- þjóð frá 1972 sem fólu m.a. í sér lægi’i tolla vegna innflutnings sjávar- afurða frá Islandi til viðkomandi ríkja. Þegar Finnar og Svíar gengu í ESB ái’ið 1995 samdi framkvæmda- stjórn ESB við íslendinga um áframhaldandi tollaívilnanir fyrir ís- lenskar afurðfr til samræmis við samningana frá 1972. Það er því efnislega rangt hjá Ragnari að samningar íslands við önnur ríki myndu falla niður við inn- göngu í ESB. Eina breytingin væri sú að samningarnir yrðu formlega á milli ESB og viðkomandi ríkja í stað þess að vera tvíhliða samningar Is- lands og viðkomandi ríkja. Þetta er ekki persónulegt mat né óskhyggja heldur staðreyndir. Höfundur stundur nám í stjórnimíla- fræði við Katholieke Universiteit Leuven í Beigiu. í tilefni kæru níu íbúa til ríkislögreglustj óra HYAÐ vakir fyrir kærendum? Málið er upplýst. Fyrrverandi oddviti greiddi fjögurra og hálfrar milljónar króna ábyrgð úr eigin vasa; hefur greitt skuld sína við sveitarsjóðinn. Nú virðast, í hinni nýju kæru, hafa samein- ast sökunautar og kærendur í Vestur- Landeyjahreppi frá því fyrir nokkrum árum. Þá kom upp erfítt mál í bókhaldi Njálsbúðar, þar sem húsvörður hafði tvöfalt bókhald og hélt hundruðum þúsunda króna utan við hið eðlilega bókhald. Eftir að upp komst hafði oddviti í trúnaði samband við skattstjóra og sýslumann. Málið var athugað og leyst í kyrrþey með greiðslu nokkrum hundruðum þúsunda króna virðis- aukaskatts og viðurlaga. Félagsheim- ilið Njálsbúð greiddi upphæðina. Húsvörður var ekki krafínn um greiðslu og bauðst held- ur ekki tU að greiða upphæðina, þótt hann ætti sökina. Þáverandi minnihluti hreppsnefndar kærði málið, 25. október 1993, tfl lögreglunnar í Rang- árvallasýslu, sem sendi það áfram tfl ríkislög- reglustjóra. Hann end- ursendi kæruna tU föð- urhúsanna, 8. nóvem- ber, s.á. eða hálfum mánuði síðar, enda var málið upplýst. Meðal kærenda þá og nú var for- maður sóknarnefndar og safnaðar- fulltrúi. Ég hef hvergi séð það í hinni helgu bók, haft eftir Kristi, að hann hafí lagt það fyrir lærisveina sína að vera sífellt að kæra náungann. Hins vegar mun þai- vera að fínna leið- Kærumál Ég hef hvergi séð það í hinni helgu bók, haft eftir Kristi, segir Egg- ert Haukdal, að hann hafi lagt það fyrir læri- sveina sína að vera sí- fellt að kæra náungann. beiningu um hver ætti að kasta fyrsta steininum. Hvers vegna endurkæra nímenn- ingarnir ekki fyrrverandi húsvörð nú, þegar réttlætiskenndin rekur þá, enn einu sinni, til að koma lög- um yfir misgjörðir náungans? Höfundur er fv. alþingisnmður. Eggert Haukdal Dýralæknar og stjórnsýsla landbúnaðar- ráðuneytis AÐ Undanförnu hefur talsvert verið fjallað í fjölmiðlum um slaka stjórnsýslu í ráðuneyti landbúnað- armála. Þótt eflaust megi skoða fram- göngu formanns land- búnaðarnefndar, Guðna Agústssonar, í ljósi baráttu þeiiTa framsóknarmanna um stólinn sem losnar þegar Guðmundur Bjarnason hættir ráð- herradómi, voru um- mæli hans engu að síður orð í tíma töluð. Má segja að bragð sé að þá samflokksmaðurinn finnur. Vinnubrögð ráðuneytisins hafa reynt mjög á þolrif dýralækna undanfarið ár. Rétt fyrir þingslit sl. vor voru samþykkt ný lög frá Alþingi um dýralækna og heil- brigðisþjónustu við dýr. Lögin áttu að taka gildi um áramótin 1998/1999 og boðuðu talsverða uppstokkun og breytingar á dýi’a- læknaþjónustu, einkum á lands- byggðinni. Meðal annars gera lög- in ráð fyrir að tólf embætti héraðs- dýralækna verði lögð niður í nú- verandi mynd. Fljótlega að loknum sumarleyf- um vakti dýralæknafélagið at- hygli landbúnaðarráðuneytisins á því að hnýta þyrfti ýmsa lausa enda ef hrinda ætti lögunum í framkvæmd á tilsettum tíma. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar félagsins og fundi með ráðherra var lítið lífsmark með ráðuneyt- inu. I lok nóvember, mánuði áður en lögin áttu að taka gildi, og allt komið í óefni, sá ráðuneytið sér þann kost vænstan að leggja til að gildistöku þess hluta laganna er varðaði héraðsdýralækniskerfið og almenna dýralæknaþjónustu yrði frestað um nær heilt ár. Var gengið frá því með lögum frá Al- þingi hinn 20. desember. Ráðu- neytið hefur borið því við að frest- un laganna sé tilkomin vegna hug- mynda dýralæknafélagsins um vaktagreiðslur, sem hafi farið langt út fyrir fjárhagsramma Yfirdýralæknisembættisins. Ef menn hefðu kynnt sér nýju lögin og áttað sig á þeim breytingum sem þar er gert ráð fyrir á fyrir- komulagi vakta, hefðu tillögur fé- lagsins þó ekki átt að koma nein- um á óvart. Frestun laganna kom sér að sjálfsögðu ákaflega illa fyrir marga dýralækna, sem sumir hverjir voru farnir að búa sig und- ir starf í nýju starfsumhverfi eða á nýjum starfsvettvangi. Aðrir hugðust nýta það svigrúm sem biðlaun gáfu til endurmenntunar. Dýralæknar létu þetta þó yfir sig ganga og stjórn félagsins vildi leggja sitt af mörkum til að málið fengi farsæla lausn. Lagði hún fram ítarlegar tillögur og verká- ætlun um það sem ganga þyrfti frá og semja um svo hrinda mætti lög- unum í framkvæmd. Jafnframt fengum við góð orð frá ráðherra um að leyst yrði með viðunandi hætti úr málum einstakra dýra- lækna sem lentu í vanda vegna þessarar frestunar á gildistöku laganna. Það dugar hins vegar skammt að fá aðeins klapp á kollinn ef ekk- ert gerist frekar. Reyndar hafa starfsmenn Yfirdýralæknisemb- ættisins reynt að þoka málum eitthvað áfram. Fyrir liggja viðunandi tillögur um niður- greiðslur á aksturs- og ferðakostnaði dýra- lækna en það er mikið hagsmunamál fyrir bændur sem búa langt frá aðsetri dýralæknis. Þessar tillögur eru þó alfarið tilkomnar að frumkvæði dýralækna- félagsins og unnar í góðu samstarfi við Bændasamtökin og Yfirdýralæknisemb- ættið. Af ráðuneytisins hálfu gerist hins vegar allt ofurhægt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þetta hefur svo sann- arlega reynt á langlundargeð dýralækna. Er nú svo komið að ekki verður lengur við þennan seinagang unað. Dýrahald Frestun laganna, segir Eggert Gunnarsson, kom sér ákaflega illa fyrir marga dýralækna. Dýralæknar hafa lagt áherslu á að allri undirbúningsvinnu að gild- istöku laganna verði lokið nú í marsbyrjun þannig að hægt sé að gera ráð fyrir þeim kostnaði, sem af breytingum hlýst, við gerð fjár- lagatillagna fyiir næsta ár. Ráð- herra hverfur brátt frá störfum, framundan eru þingslit, kosningar og stjórnarskipti. Verði ekki geng- ið frá málum næstu vikurnar er hætt við að sama staða komi upp næsta haust og það síðastliðna og gildistöku laganna verði enn frestað. Nú eru starfandi liðlega sextíu dýralæknar hér á landi. Erlendis starfa um þrjátíu íslenskir dýra- læknar. Dýralæknar óttast enn meiri atgevfisflótta úr stéttinni. Ungt fólk fæst heldur ekki til að koma heim frá námi í þá óvissu og óreiðu sem ríkir í þessum mál- um. Stéttarfélagið hefur engin svör þegar spurt er um atvinnu- horfur. Málið snertir ekki einvörðungu dýralækna heldur einnig alla dýra- eigendur og þó sérstaklega bænd- ur. Margir telja að framtíð ís- lensks landbúnaðar felist í fram- leiðslu og markaðssetningu hollra og heilnæmra landbúnaðarafurða. Það verður ekki gert nema hér sé vel uppbyggt og skipulagt dýra- lækniskerfi. Þá má búast við að umhverfi íslenskrar búfjárræktar og dýrahalds breytist mikið á næstu árum vegna aðildar okkar að alþjóðlegum fríverslunarsamn- ingum og aðlögunar að reglum Evrópusambandsins. Þessu fylgir aukinn innflutningur landbúnaðar- vara og jafnvel búfjár, aukin hætta á smitsjúkdómum, auknar smit- sjúkdómavamir og rannsóknir og kallar á skilvirkt heilbrigðiskerfi á þessu sviði. Það er því mikilvægt að það ráðuneyti sem fer með yfir- stjórn þessara mála sé vandanum vaxið og láti ekki allt reka á reið- anum. Höfundur er forniaður Dýralækna- félags Islands. Eggert Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.