Morgunblaðið - 05.03.1999, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 05.03.1999, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ fP 9^zturga[inn Smiðjuvegi 14, ‘Kópavogi, sími 587 6080 í kvöld og laugardags- kvöld leikur hinn frábæri Hilmar Sverrisson ásamt Önnu Vilhjálms Opió frá kl. 22—3 Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Næturgalinn þar sem stuðið er og alltaf lifandi tónlist ............ i SPORW Heildsöludreifing casall SUMAR '99 UTILIF Glæsibæ, sími 581 2922 Tea Tree olía... unnin úr náttúrulegri lækningajurt Tea Tree húðsnyrtivörurnar frá Australian Bodycare eru sýkladrepandi og jafnframt græðandi Tea Tree 100% hrein olía (Nahiral Antiseptic Oil) Notist gegn frunsum, bólum, fótasveppum, skordýrabiti og kvefi. Einnig gott til sótthreinsunar. SölustaSir: Apótekin FÓLK í FRÉTTUM Gjörningur á vinnustofu Birgis Arnar Mamma og pabbi eru al- \eg í skýjunum EF VEL er að gáð sést Birgir Örn einhvers staðar í miðri dreiðunni á vinnustofunni. „ÉG ER bara safnari,“ segir Birgir Örn Thoroddsen og lítur mæðulega í kringum sig í vinnustofu sinni í Fjarð- arási 26 í Arbænum, sem er yflrfull af gítörum, kössum, gömlum segul- bandstækjum, plakötum af Marilyn Monroe og öllu mögulegu drasli. Það er sem ævisaga hans sé skráð í hverjum litlum hlut í herberginu og hann hefur ekki týnt niður neinu, hvorki punkti né kommu. En það er vonarglampi í augunum á Birgi því á morgun ætlar hann að hefja gjörning sem felst í því að taka til og gera upp vinnustofuna. Ætli það verði ekki að teljast nokkurs konar uppgjör við fortíðina. Og í stað þess að mynda og skjalfesta gjörn- inginn sjálfur ætlar hann að láta fjölmiðla um skrásetninguna. Her- legheitin hefjast kl. 16 á morgun og lýkur þeim laugardaginn 27. mars með freyðivíni og tilheyrandi. En hvers vegna er svona mikið drasl í vinnustofunni? „Ég er fortíðarfíkill," svarar Birgir hreinskilnislega. „En nú stendur til að gera skurk í þessum efnum. Ég ætla að tæma herbergið, mála, laga gólflð, steypa nýjan vegg og gera skápa.“ Pað verður væntaniega mikið af skájjum... „Ég ætla gera mjög stóra hillu," svarar Birgir og brosir. „Svo er að raða hlutunum aftur inn og henda öðrum. Ætli það verði ekki erfiðast að flokka allt draslið. Ég verð að gera það smám saman. Hérna ægir saman allskonar hlutum eins og gamalli antíkborðplötu frá vini mín- um og fyrstu gítarsnúrunni minni.“ Ekki æfírðu héma? „Ég verð að viðurkenna að það hefur verið erfítt upp á síðkastið," svarar Birgir hæverskur. „Það hef- ur reyndar alltaf verið dálítið drasl- aralegt á vinnustofunni. Það hefur aldrei mátt hrófla við neinu vegna þess að þrátt fyrir óreiðuna veit ég hvar ég geymi hlutina, jafnvel smá- hluti eins og penna. En nú er svo komið að ég hef ekki getað trommað í hálft ár vegna þess að myndlistarverkefnin mín eru geymd á sama stað og trommusett- ið. Og mamma og pabbi eru auðvit- að alls ekki ánægð með þetta. Þetta hefur farið í pirrurnar á pabba í þrjú ár. Það er foreldrum mínum því mikill léttir að ég ætli að búa til hentugt vinnusvæði. Þau eru alveg í skýjunum yfir þessu.“ Listin er þá til einhvers nýt. „Hún bætir fjölskyldumynstrið og gerir líf mitt betra,“ svarar Birg- ir og kinkar kolli. „Listamenn leggja gjarnan mikið upp úr því að losa sig við það sem safnast hefur upp og tiltektin hefur alltaf verið rík í mannskepnunni.“ Almenningi stendur til boða að mæta á opnunina og lokunina og einnig að fylgjast með framþróun gjörningsins alla virka daga frá kl. 13 til 16 og um helgar frá kl. 12 til 18. Morgunblaðið/Arnaldur BREIÐSKÍFA Lands og sona er í 6. sæti Tónlistans. Naskir á vinsæl lög EFTIR fjórar vikur á lista trónir Era enn á toppnum og rokksveitin Creed situr einnig sem fastast í öðru sætinu. Lauryn Hill, sem fékk ijölda verðlauna á nýafstaðinni Grammy-verðlaunahátíð, er komin í finnnta sætið með breiðskífu sína Miseducation of Lauryn HHI. I sjötta sæti er ís- lenska hijómsveitin Land og synir eftir 12 vikur á lista sem telst fremur óvenjulegt af ís- lenskri hljómsveit að vera að sögn Höskuldar Höskuldssonar hjá Spori hf. „Land og synir eru vinsæl hljómsveit núna. Þeir hafa verið mjög duglegir að spila og hafa markvisst náð þessum vinældum. Þeir eru líka mjög naskir á að semja vinsæl lög,“ segir Höskuldur aðspurður um vinsældir sveit- arinnar. Nr.; vor vikur Diskur Flytjandi Útgefandi l. i (1) 4 Era Era Polygram 2. i (2) 2 My Own Prison Creed Sony Music 3. : (1) 2 Americana Offspring Sony 4. : (3) 12 You've Come A Long Woy Baby Fotboy Slim Sony 5. : (8) 14 Miseducation of Louryn Hill Lauryn Hill Sony 6. i (5) 12 Alveg eins og þú Land og synir Spor 7. i (4) 14 Best of 1980-1990 U2 Polygram 8. i (15) 11 Sehnsucht Rammstein Polygram 9. i (10) 9 Garage Inc. Metollica Polygram 10. i (20) 8 One's Morioh Carey Sony 11. i (16) 3 Pétur Pan Ýmsir Erkitónlist 12.: (13) 6 Berrössuð ó tónum Anno Pólína og Aðalsteinn Dim 13.: (21) 13 Ladies and Gentlemen George Michael Sony 14.; (35) 1 South Park Chef Aid-Extreme Ýmsir Sony Music 15.; (34) 1 Believe Cher Worner i6.; 09) 2 Ávaxtnkarfan Ýmsir Spor 17.; (23) 19 Never Sny Never Brandy Warner 18. i (22) 2 Songs from Ally McBeol F. Vonda Shepard Sony 19.! (14) 13 Söknuður: Minning um Vilhjálm V. Ýmsir Skífan 20.: (26) 3 Gran Turismo Cardigans Polygram 21.! (37) 5 Follow the Leader KORN Sony 22. : (12) 13 Gullna hliðið Sólin hons Jóns míns Spor 23.i (17) 8 Five Five BMG 24.i (33) 4 Up REM Warner 25.i (29) 3 Ray of Light Madonna Warner 26. i (11) 7 My Love Is Your Love Whitney Houston BMG 27. i (28) 5 This Is My Truth Tell Me Yours Manic Street Preachers Sony 28.: (38) 1 Herzeleid Rammstein Polygram 29.: (52) 19 Hello Nasty Beastie Boys EMI 30.: (6) 11 Pottþétt 14 Ýmsir Spor/Skífan Unn of PricewaterhouseCoopers í somstorfi við Somband hljómplötuframleiðenda 09 Morgunblaðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.