Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 76
KOSTA
rff
með vaxta þrepum
www.bi.is
@ BUNADAKBANKINN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVTK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Smyrii Line ákveður smíði nýrrar Norrænu
Kostnaðurinn nem-
ur 5-6 milljörðum
Dularfullt
arnarhvarf
rannsakað
GRUNUR leikur á að haförn hafí
verið skotinn á Hrífunesheiði í
Skaftártungum fyrr í þessari viku
og hefur lögreglan í Vík málið nú
til rannsóknar, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Tveir
bændur sem lagt höfðu æti fyrir
ref urðu öðru hvoru varir við haf-
örn á sveimi þar í kring og sótti
fuglinn að ætinu. Þegar bændurn-
ir komu hins vegar þar að sl.
þriðjudagskvöld sáu þeir blóð og
vængjaför í snjónum sem talin eru
eftir örninn. Einnig voru sjáanleg
bílför og ummerki eftir manna-
^ ferðir á svæðinu. Orninn hefur
hins vegar ekki sést upp frá
þessu.
Lögreglunni tókst að hafa uppi
á mönnunum sem skildu eftir sig
ummerki á svæðinu og sögðu þeir
erindið hafa verið að mynda
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
HAFÖRNINN á flugi við Vík
snemma 1 janúarmánuði.
rjúpu. Kváðust þeir hafa séð örn-
inn og tekið af honum ljósmyndir
en neituðu því að hafa skotið fugl-
inn. Ekki er talið með öllu útilok-
að að örninn hafi farið í ætið og
flögrað niður í gil sem er þarna
skammt frá en leit að fuglinum
hefur engan árangur borið. Verð-
ur rannsókn málsins haldið
áfram.
STJÓRN Smyril Line, útgerðar
farþegarferjunnar Norrænu, hefur
tekið ákvörðun um að hefja undir-
búning að byggingu nýs farþega-
skips í stað Norrænu sem nú er
orðin 30 ára gömul. Nýja skipið
verður 155 metra langt, 27 metra
breitt og um 30 þúsimd brúttótonn
að stærð. Skipið mun geta tekið
1.500 farþega og 500-1.000 bíla, eft-
ir því hve mikil fragt er tekin með.
Norræna sem nú er í notkun tekur
1.050 manns og 300 bíla. Jónas
Hallgrímsson, stjómarformaður
SmyrO Line, segir í samtali við
Morgunblaðið að nú þegar verði
hafinn undirbúningur að smíði
skipsins og stefnt sé að því að það
verði tekið í notkun vorið 2002.
Hann segir erfitt að meta kostnað
við smíðina en hann sé ekki undir
5-6 milljörðum króna.
Jónas segir að ekki hafi verið
unnt að kaupa notað skip sem upp-
fyllti kröfur um heils árs siglingar í
norðurhöfum. Norræna standist
kröfur út árið 2001 og því hafi verið
ákveðið að láta smíða nýtt skip.
Nú hefur verið ákveðið að Nor-
ræna sigli allt árið milli Færeyja
og Danmerkur og siglingar skips-
ins til Islands standi nú í 18 vikur
yfir sumartímann eða lengur en
nokkru sinni áður. I upphafi stóðu
þessar siglingar aðeins yfir í 12
vikur. I vor verður Norræna í
fyrsta skipti á Seyðisfirði 20. maí
og síðasta ferð hennar frá Seyðis-
firði verður 14. september. Nor-
ræna flutti á öllum siglingaleiðum
á síðasta ári um 70 þúsund manns
en 16 þúsund farþega til og frá Is-
landi. Reksturinn á síðasta ári skil-
aði 140 milljóna króna hagnaði eftir
30 miOjóna króna skattgreiðslu en
þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem
félagið greiðir skatt. Aðalfundur
félagsins var haldinn í gær í
Færeyjum, var öll stjóm þess end-
urkjörin og gegnir Jónas Hall-
grímsson því stjórnarformennsku
áfram en framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Færeyingurinn Oli
Hammer.
Morgunblaðið/Rax
Hagnaður Eimskipafélags fslands hf. jókst um 110% milli ára
Hagnaðurinn
nam 1.355 millj.
HAGNAÐUR af rekstri Eimskipa-
félags Islands og dótturfélaga þess
nam 1.315 milljónum króna á árinu
1998, samanborið við 627 milljónir
árið á undan. Rekstrartekjur sam-
stæðunnar námu 16.573 milljónum
ki-óna á síðasta ári en voru 16.287
milljónir árið 1997.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélagsins, segist þokka-
lega ánægður með afkomu síðasta
árs. Hann segir óvenjulega stóran
hluta hagnaðar félagsins vera til-
kominn vegna sölu eigna þar sem
sala skipsins Vegu í fyrra ræður
mestu. Hann bendir jafnframt á
^iuntalsverðan hagnað af sölu hluta-
^^hréfa Burðaráss en Hörður áætlar
að fjárfestingarfélagið sé nú um
40% af heildarverðmæti Eimskipa-
félagsins.
I frétt frá félaginu kemur fram
að ákveðið hafi verið að dótturfé-
lagið Maras Linija Ltd. hætti
skiparekstri fyrir lok marsmánað-
ar. Að sögn Harðar mun félagið þó
áfram veita flutningaþjónustu á
hafnir í Eystrasaltsríkjunum og
Rússlandi með því að kaupa flutn-
ingarými í skipum annarra fyrir-
tækja.
Að sögn Andra Sveinssonar,
verðbréfamiðlara hjá Búnaðarbank-
anum, var ljóst að samdráttur yrði í
starfsemi félagsins í Eystrasalts-
ríkjunum og hefur félagið lýst yfir
að gripið hafi verið til aðgerða í
þeim efnum. Andri bendir á að
hagnaður af reglulegri starfsemi
lækkar um 40 milljónir króna á milli
ára og að meginástæðuna fyrir
þeirri lækkun megi finna í óhag-
stæðari gengisþróun. „Hafa ber í
huga að þarna er um reiknaða
stærð að ræða sem sést á því að
veltufé frá rekstri eykst um tæpar
100 milljónir. Hins vegar vekur
mikil hækkun á gengi hlutabréfa
Eimskips spurningar um hluta-
bréfamarkaðinn hér á landi. Hluta-
bréf félagsins hafa hækkað um 30-
35% undanfarin ár á meðan arðsemi
eigin fjár hefur að jafnaði verið um
10-15% og vöxtur af flutningastarf-
semi lítill undanfarin þrjú ár,“ segir
Andri.
■ Hætta rekstri/20
Veiðarfærin
í viðgerð
ÚTLENSKIR togarar hafa á und-
anförnum árum í auknutn mæli
látið gera við veiðarfæri sín hér á
landi og er það góð búbót fyrir
ýmis fslensk fyrirtæki sem því
sinna. Að sögn hafnsögumanna í
Reykjavíkurhöfn eru það til dæm-
is portúgalskir, rússneskir og
spænskir togarar sem nota þjón-
ustu Islendinga. Þessir sjómenn
voru að hífa troll upp á vörubíl,
sem sennilega hefur farið með
þau í Hampiðjuna sem er einna
umsvifamest í þessum viðskiptum.
-------------
911 m.kr.
hagnaður
Lands-
bankans
HAGNAÐUR Landsbanka íslands
hf. nam 911 milljónum króna á árinu
1998 samanborið við 326 milljónir ár-
ið 1997 og jókst hagnaður bankans
því milli ára um 584 milljónir króna,
eða 179,2%. Þessi afkoma er betri en
gert var ráð fyrir í útboðslýsingu
vegna hlutafjárútboðs bankans, en
þar var hagnaður ársins áætlaður
rösklega 700 milljónir.
Halldór Rristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, sagðist í sjálfu sér
vera ánægður með útkomu bankans
og ljóst væri að markaðurinn hefði
tekið henni sem jákvæðu skrefi í
áframhaldandi uppbyggingu bank-
ans. „Þetta er góð útkoma á fyrsta
heila árinu sem hlutafélag," sagði
Halldór.
Þorsteinn Víglundsson, forstöðu-
maður gi'einingadeildar Kaupþings
hf., segir ánægjulegt að sjá að
Landsbankinn skilar beti'a uppgjöri
en áætlanir hans höfðu gert ráð fyr-
ir. Spá Kaupþings hafi gert ráð fyrir
um 900 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári en í henni hafi ekki verið
gert ráð fyrir innkomnum áður af-
skrifuðum lánum upp á 58 milljónir
króna. Þrátt fyrir þetta sé afkoma
bankans óviðunandi og það valdi
vonbrigðum að sjá hversu iUa bank-
anum vegnaði á síðasta ári í saman-
burði við hina viðskiptabankana.
■ Hagnaðurinn jókst/18