Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 2/5 - 8/5 II lutafj ár au kning' Islandssíma ► ÁSKRIFENDUM símafyr- irtækisins Tals fjölgaöi um 6-700 á miðvikudaginn en í tilefni eins árs afmælis þess voru símar seldir á eina krónu. Áskrifendur Tals voru fyrir um 16 þúsund, en farsímanotendur í GSM- og NMT-kerfi Landssi'mas eru nú um eitt hundrað þúsund. ► FULLTRÚARÁÐ sjó- mannadagsins hefur sent Reykjavíkurborg erindi þar sem falast er eftir lóð SVR við Kirkjusand til að byggja hjúkrunarheimili og íbúðir fyrir aldraða. Formaður ráðsins telur að Reykjavík- urborg eigi að afhenda sam- tökunum lóðina án endur- gjalds í þakklætisskyni fyrir störf þess í þágu aldraða Reykvíkinga. ► REKSTRI Flugleiða hefur verið skipt upp í sex afkomu- einingar og verður hver og ein með sjálfstætt uppgjör og rekstur innan móðurfé- lagsins. Stærsta einingin er millilandaflugið með um 18 milljarða króna velt.u og fer Sigurður Helgason forsijóri með daglegan rekstur henn- ar. ► ORKUVEITA Reykjavík- ur hefur farið þess á leit við iðnaðarráðherra að hann gefi út leyfi til stækkunar raforkuversins að Nesjavöll- um úr 60 megavöttum í 76. Einnig er farið fram ú að ráðherrann heiji undirbún- ing að lagafrumvarpi sem heimili stækkun í 10 MW þar sem taldar eru líkur á því að svæðið geti staðið undir þeirri viðbót. Talsverður hluti varmaorkunnar nýtist ekki í núverandi 60 MW orkukerfi. EIGNARHALDSFÉLÖGIN Burðarás og Hof eru stærstu aðilarnir í hópi nýrra hluthafa í Islandssíma eftir hluta- fjáraukningu. Fyrirtækið vai- stofnað á síðastliðnu ári af tölvufyrirtækinu Oz og einstaklingum í viðskiptalífinu. Aðrir í hópi nýiTa hluthafa era Eignarhaldsfé- lag Valfells fjölskyldunnar, Tölvubank- inn og Radíómiðun. Unnið er að því að ráða starfsfólk og er gert ráð fyrir að fyrirtækið hefji sölu á þjónustu sinni síððar á þessu ári. Svik vegna bílainnflutnings EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hefur undanfarna mánuði sent rannsóknar- lögreglumenn efnhagsbrotadeildar til Evrópu og Norður-Ameríku til að rann- saka svik í tengslum við innflutning bif- reiða. Umrædddar rannsóknir beinast að innflutningi á vel á annað hundrað bifreiðum og hafa sakamál þegai’ sprottið upp erlendis vegna þessara rannsókna. Banaslys við Reykjanesbraut BANASLYS varð við gatnamót Öldu- götu og Reykjanesbrautar í Hafnarfirði á þriðjudaginn og er það hið þriðja sem verður á sama stað frá árinu 1977. Stefnt er að þvi að setja upp umferðar- ljós á gatnamótunum í sumar og að færa Reykjanesbrautina innan 3-6 ára. Umræður táknmálstúlkaðar STJÓRNMÁLAUMRÆÐUR í sjón- varpssal daginn fyrir kjördag voru í fyrsta sinn táknmálstúlkaðar beint í út- sendingu Sjónvarpsins í kjölfar dóms Hæstaréttar. Stöð 2 sendi einnig út með táknmálstúlkun. Héraðsdómur hafði 17. mars sl. sýknað Ríkisútvarpið af kröfu Félags heyrnarlausra þessa efnis. Fyrstu skref friðaráætlunar Á FUNDI utanríkisráðherra vestur- veldanna og Rússlands á fimmtudag var komist að samkomulagi um fyrstu skref sem miða að því að leysa deiluna um Kosovo og gera þúsundum flótta- manna kleift að snúa aftur til héraðs- ins. Viktor Tsjernómýrdin, sérlegur sendifulltrúi Rússa í Kosovo-deilunni, fundaði með Slobodan Milosevic Jú- góslavíuforseta á mánudag. Þá komu utanríkisráðherrar átta helstu iðni’íkja heims saman í Bonn í Þýskalandi og var fundurinn hinn íyrsti síðan loft- árásir NATO á Júgóslavíu hófust. Á fundinum var komist að samkomulagi um að hersveitir Milosevics Júgóslavíu- forseta færu frá Kosovo og að alþjóð- iegt friðargæslulið yrði sent tíl héraðs- ins. Loftárásir NATO héldu áfram alla vikuna og fóru þær harðnandi sem á leið. Á fóstudagskvöld var hermt að sprengja hefði lent við kínverska sendi- ráðið í Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu. Þá hefur árásum verið haldið uppi í borgunum Nis og Pristina, auk annarra hemaðarlega mikilvægra skotmarka. Harðar loftárásir hafa einnig verið gerðar gegn hersveitum Serba á jörðu niðri og er talið að þær getu sig lítið hreyft. ► DONALD Dewar, leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi, er talinn munu verða fyrsti forsætísráðherra skoskrar heimastjómar í samsteypusljórn Verka- mannaflokksins og fijáls- lyndra demókrata í Skotlandi. Verkamannaflokk- urinn kom best út í kosning- unum í Skotlandi í vikunni. Þá hlaut Skoski þjóðarflokk- urinn (SNP) mun minna fylgi en gert hafði verið ráð fyrir að hann fengi. ► SÖGULEG sátt um hugsan- legt sjálfstæði Austur-Tímor var undirrituð f höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York á miðvikudag. Snýst samningurinn um áform að efna til atkvæðagreiðslu með- al íbúa Austur-Tímor í ágúst nk. þar sem kosið verður um hvort hin fyrrverandi portú- galska nýlenda eigi að fá víð- tæka sjálfsljóm innan Indónesíu. Hefur Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fagnað þróun mála en jafnframt bent á nauðsyn þess að halda frið- samlega á málum. Tugir farast í náttúruhamförum ÖFLUGIR skýstrókar sem gengu yfir ríkin Oklahoma og Kansas í Bandaríkj- unum á þriðjudag urðu a.m.k. 43 manns að bana og olli eyðileggingu sem metin var á andvirði 73 milljarða króna. Heilu hverfin jöfnuðust við jörðu og gátu björgunarsveitarmenn þess sér til að um tvö þúsund heimili hefðu beðið bana I óveðrinu. Fólk sem missti heim- ili sín í hamföranum hefur safnast sam- an í neyðarskýlum Rauða krossins og hafa gjafir streymt tíl þeirra sem verst urðu úti. ►JACQUES Chirac, forseti Frakklands, skoraði á vinstristjórn Lionels Jospins forsætisráðherra á miðviku- dag að koma á lögum og reglum á eyjunni Korsíku og komast að því sem fyrst hver beri ábyrgð á að franska rík- isvaldið á eyjunni er virt að vettugi. Hefur stjórnin skorið upp herör gegn glæpum á Korsíku en varð fyrir miklu áfalli í vikunni er sex lög- reglumenn játuðu á sig íkveikju sem yfirmaður þeirra hafði fyrirskipað. FRÉTTIR SH endurvekur beint flug með fískafurðir til Belgíu Flogið með 16 tonn af ferskum fiski DÓTTURFÉLAG Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. í Belgíu, Icelandic Benelux NV, hefur endur- vakið vikulegt fraktflug með fersk- an fisk tíl Oostende í Belgíu. Icelandic Benelux NV hefur leigt Boeing 737-300-þotu frá Flugleiðum sem mun flytja fisk til Oostende á hverjum laugardegi og koma til baka með almenna frakt frá Oostende tíl Keflavíkur. Fyrsta flugið milli Kefiavíkur og Oostende var í gærmorgun, þegar flogið verður með u.þ.b. 16 tonn af ferskum fiski frá Keflavíkurflug- velli. Fiskinum er síðan dreift til Belgíu, Frakklands, Englands og Holiamls. Sæmark, dótturfyrirtæki SH á íslandi, sér um skipulagshlið mála hér á landi. Tíu ár eru síðan reglulegt frakt- flug hófst fyrst frá Keflavík til Oostende. Fluginu var hins vegar hætt um mitt ár 1997 þegar Flug- leiðir hófu flug á nýja áfangastaði, fyrst tíl Brussel og síðan til Kölnar, og þar með var orðið flóknara en fyrr að flytja ferskan fisk inn til Belgíu. Icelandic Benelux NV hefur Morgunblaðið/Björn Blöndal FLUGLEIÐIR fóru fyrstu ferðina með ferskan fisk frá Keflavíkur- flugvelli í gærmorgun. einnig leigt flugvélar til að flytja ferskan Nílarkarfa frá Afríku til Oostende og liefui: því öðlast reynslu ákveðna reynslu í „fiski- flugi“. Fyiirtækið hét áður Super- ior Salmon Express og var stofnað til að flytja inn ferskan fisk frá Is- landi. Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hf. tók fyrirtækið yfir árið 1989 og var nafni þess breytt í Icelandic Benelux NV. Fyrirtækið hefur flutt inn ferskan fisk frá Is- landi síðan og selur afurðirnar til Belgíu, Hollands og Frakklands. Olíuslysið í Seyðisfjarðarhöfn Ekkert borið á fugladauða EKKERT hefur borið á fugla- dauða enn sem komið er vegna ol- íuslyssins í Seyðisfjarðarhöfn á fimmtudag þegar um 500 lítrar af hráolíu fóru í sjóinn þegar verið var að dæla olíu milli tanka á kolmunnaveiðiskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70. Þó eru ekki öll kurl komin til grafar þar sem áhrifa olíumengun- arinnai’ fer ekki að gæta fyrr en þegar lengra líður frá, að sögn lög- reglunnar á Seyðisfirði. Hreinsunarstarfi var hætt á föstudag um klukkan 17, en þá hafði bindiefnum verið dælt ofan á olíuna í þeirri von að hún botnfélli og að sögn Óskars Friðrikssonar hafnarvarðar virtist mikið af olí- unni sökkva. „Mér sýndist þetta bera tölu- verðan árangur," sagði Óskar, en örþunn olíubrák var eftir sem áður á sjónum, sem að sögn Óskars brotnar niður og gufar upp með tímanum. „Eg fór út í morgun [laugardagsmorgun] og sá smá- bletti og tauma en það var erfitt að sjá brákina þar sem komin var gára á sjóinn og rigning. I gær [fóstudag] var logn og þá sást þetta vel.“ Aðallega þurrmjöl frá SR-mjöli Um svipað leyti og olían lak í sjó- inn fór grútur í sjóinn frá verk- smiðju SR-mjöls, en í ljós hefur komið að þar var aðallega um að ræða þurrmjöl, sem góðu heilli var ekki fitumikið. Nokkuð hefur náðst upp af mjölinu en ekki hefur verið mælt hversu mikið magn þar um ræðir. Að sögn Óskars á eftir að hleypa sjó undan mjölinu til að unnt sé að átta sig á hversu mikið hefur raunverulega náðst upp. „Það er ekki mikið magn sem hefur náðst, en það er samt til bóta að það sé sem mest,“ sagði hann. Breyting á deiliskipulagi Hafnarfjarðar kynnt Nýtt hús rís við Fjarðargötu TILLAGA um breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjarðar er í kynn- ingu, en lagt er til að á lóðinni við Fjarðargötu 19 muni rísa þriggja hæða 600 fermetra bygging. SKIPULAGS- og umhverfis- deild Hafnarljarðarbæjar hefur undanfarið kynnt tillögu um breytingu á deiliskipulagi mið- bæjar Hafnarfjarðar, en fyrir- hugað er að reisa þriggja hæða byggingu á Fjarðargötu 19. Byggingin myndi rísa á lóð í eigu Þorgils Óttars Matthiesen, en í byggingunni er gert ráð fyrir verslun og þjónusturými á jarðhæðinni, en átta íbúðum á hinum tveimur hæðunum. Helstu breytingarnar felast í því að grunnflötur byggingar- innar stækkar úr 420 fm í 600 fm og húshæð er breytt úr tveimur hæðum og risi í 3 hæð- ir. Þá er einnig gert ráð fyrir skábraut fyrir hugsanlegan bfikjallara, ef sá möguleiki er nýttur og bakgarð á að útfæra sem hluta af torgmynd. Einnig eru felld niður áform um að Hamarskotslækur liðist í gegn- um svæðið og út í sjó. Breyting- artillagan var samþykkt af bæj- arstjórn Hafnarfjarðar 23. mars síðastliðinn. Hafdís Hafliðadóttir, skipu- lagsstjóri Hafnarfjarðarbæjar, sagði að þó byggingin, sem nú væri verið að kynna, væri hærri en sú sem upphaflega átti að byggja, þá tæki hún meira tillit til byggðar- mynstursins á svæðinu. Hún sagði byggingnuna ekki skapa skugga umfram það sem hin byggingin hefði gert og skyggði ekki meira á útsýni. Hafdís sagði að almennur borgarafundur um málið yrði lialdinn næstkomandi mánudag, en að athugasemdum bæri að skila skriflega eigi síðar en 21. maí næstkomandi. Hún sagði að ef allt gengi eftir mætti gera ráð fyrir að nýtt deiliskipulag öðlaðist gildi í júlí nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.