Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Níræður hugsar dr. Friðrik Einarsson, fyrsti yfírlæknir skurðdeildar Borgarspítal- ans, af meiri framsýni um uppbyggingu spítalanna en margir eftirkomenda hafa gert. Það heyrði Elín Pálmadóttir á ummælum hans um að vandi mundi ekki steðja að uppbyggingu spítalanna nú, ef skammsýni og frávik frá langtímaáætl- unum hefðu ekki sett þá í spennitreyju. Morgunblaðið/Asdís FRIÐRIK og Ingeborg í stofunni sinni við Hæð- argarð með víðu útsýni til allra átta. DR. Friðrik Einarsson og Inge- borg byrja á að afsaka tómar hillur í stofunni sinni í Hæðar- garði. Grænlensku munimir þeirra eru á sýningu niðri í fé- lagsmiðstöðinni, þar sem Friðrik ætlar daginn eftir að segja áheyrendum frá kynnum sínum af Grænlandi, þegar hann fór marga flugferðina þangað eftir sjúklingum og leysti lækna af í sumarleyfinu í nokkur ár. Og Ingeborg hefur samið greinargerð um gi-ænlenska list. Er við horfum út um gluggann í átt til Borgarspítalans skammt frá er Friðriki efst í huga hvemig gengið hefur verið á spítalalóðirnar í Reykjavík eins og gert var ráð fyrir þeim, bæði Landspítala og Borgar- spítala, og veldur nú ómældum vandræðum. En til að skýra ákafa hans á sínum tíma í að hrinda af stað byggingu borgarspítala í Reykjavík víkjum við talinu að ástandinu þegar hann eftir stríð haustið 1945 kom heim frá Dan- mörku eftir 9 ára útivist, þrautþjálf- aður skurðlæknir, og var ráðinn að- stoðarlæknir á Landspítala. „Pað var ómögulegt annað en að blanda sér í þetta og leggjast á ár- ar, sjúkrahúsavandræðin vora svo mikil,“ segir Friðrik einfaldlega. Yandræðum sjúklinga kynntist hann vel, því auk starfa á Landspít- alanum á ýmsum deildum varð hann sem heimilislæknir að hafa sjúk- linga úti í bæ til að sjá fyrir fjöl- skyldunni. Þau hjónin komu heim með tvö af fímm börnum sínum. „Þá varð ég var við sjúkrahús- skortinn og fór að láta í mér heyra. Ég hafði til dæmis verið kallaður á lögreglustöðina um nótt og heyrði þá í öðram klefa skelfíleg hljóð. Sá þar sjón sem ég gleymi ekki. Vit- skert stúlka stóð þar nakin í klefa, en þar sem var helgi hafði ekki ver- ið hægt að koma henni á sjúkrahús. En úti fyrir stóð móðir hennar í ör- væntingu. Ég lét Vilhjálm S. Vil- hjálmsson hafa þetta eftir mér í við- tali. Fleiri höfðu talað um að byggja þyrfti spítala fyrir borgina og ég tók kröftuglega undir það í blaða- greinum. „ A þessum árum var gífurlegt álag á þessum fáu skurðlæknum á Land- spítalanum. Sagt var að Friðrik hefði einhvern tíma þurft að standa vaktina í 72 tíma. „Eftir að ég fékk fasta stöðu 1951 á Landspítalanum, þegar Guð- mundur Thoroddsen hætti, voram við skurðlæknarnir tveir til að byrja með. Það er rétt að við stóðum stundum næstum dag og nótt, ef á þurfti að halda. Þessa 72ja tíma törn stóð maður auðvitað ekki allan tímann, gat sest og fengið sér kaffí milli aðgerða. En í þá daga hafði maður líka fullt vinnuþrek. Ég var í góðri þjálfun frá Danmörku, þar sem ég þótti fljótvirkur. Var þar í skurðlækningum í 9 ár og þar stóð maður oft lengi. Ég hafði einhvern tíma skorið upp 3 kviðslit meðan yf- irlæknirinn brá sér frá, honum til mikillar undrunar. Enda réð hann mig strax í fasta stöðu hjá sér. Ég hafði orðið að fara aftur í lækna- deildina í Höfn til að taka danskt próf áður en ég gat fengið fasta stöðu á sjúkrahúsum. Við hjónin lögðum það á okkur til að ég yrði fullgildur í Danmörku." Borgarspítali ræstur Þegar Friðrik kom heim var ástandið svona skelfilegt og hann kveðst hafa verið nokkuð harðorður í blaðagreinum sínum. Var dálítið slæmur með það. En honum þótti gaman að skrifa, gaman að skera og gaman að kenna, eins og hann orðar það. Reykjavíkurborg ákvað að byggja Borgarspítalann. En það dróst úr hömlu, gekk hvorki né rak, enda dró stjórnarnefnd Ríkisspítal- anna lappirnar, þeim Jóni Sigurðs- syni borgarlækni til mikillar furðu. Síðan tók byggingin sjálf alltof langan tíma eftir að loks var ákveð- ið að byggja spítalann. Hún stóð lengi uppsteypt fyrir tugi milljóna. Það vora þá alltof fáir sem hertu á, segir Friðrik. Undirrituð minnist harðrar deilu í blöðum um breidd ganganna í spít- alanum, sem væri mesta bruðl. Friðrik kannast við það, hitti ein- hvem tíma greinarhöfund, sem hafði skriðið inn um glugga á læst- um spítalanum með ljósmyndara til að mynda þessa hneykslanlega breiðu ganga. Friðrik hélt fast við að tvö rúm yrðu að geta mæst á göngum og segir: „Blessaður mað- urinn ætti að sjá gangana núna þeg- ar liggur þar röð af sjúklingum og hjúkrunarkonurnar þurfa að mjaka rúmunum sitt á hvað og komast varla. Þar era menn að tala um það sem þeir hafa ekkert vit á.“ Loks komst spítalinn upp og Friðrik var ráðinn yfirlæknir skurð- lækningadeildar 1963. En fyrsta uppskurðinn gat hann ekki gert fyrr en 24. september 1968, fímm áram eftir að hann var ráðinn. Sjúkrahúsið var ekki tilbúið, vant- aði allt. Hann þurfti til útlanda til að kaupa inn það besta, segir hann. Þarna virðist hafa verið hugsað stórt. En ekki nógu stórt, grípur Friðrik ákafur fram í. Byggt til framtíðar „í Fossvoginum átti að vera hægt að byggja við til langrar framtíðar. Það er löng saga. Við skulum byrja á Landspítalanum, sem kom í gagn- ið fyrir 1930. Þótt menn hefðu bara skjólur til þess að hífa upp steypuna með handafli var hann byggður á mettíma. Þegar Landspítala var valinn staður man ég að almenning- ur sagði: Hvað era menn að hugsa að byggja spítala langt úti í sveit? En samt hafa stjórnvöld látið þrengja að honum með byggingum. Ef nokkur skynsemi hefði verið hefði aldrei átt að byggja frá Sund- höll Reykjavíkur og að Hringbraut- inni. Þetta áttu menn að sjá. En það var síður en svo. Aumingja Land- spítalinn hefur enga lóð og bygging- unum hrúgað þar saman, hverri of- an í aðra. Sömu vitleysuna gera menn svo 30 áram síðar við Borgarspítalann. I bygginganefndinni gerðum við ráð fyrir að Borgarspítalinn hefði lóð al- veg niður að Skógræktinni í dalnum og upp að Grensásvegi í stefhu þar sem nú er Perlan og fylgja svo Hafn- arfjarðarveginum niður á móts við skógræktina. Allt átti að nýtast und- ir þarfir Borgarspítalans í framtíð- inni. Auðvitað átti ekkert að byggja milli Grensásdeildar og Borgarspít- ala. Nú er ekki aðeins komin byggð þar heldur var líka farið að byggja með Sléttuveginum undir starfsemi sem ekkert kemur spítalanum til góða. Þetta er skammsýni og van- hugsað. Nú era þeir búnir að eyði- leggja fyrirhugaða spítalalóð. Ef það hefði ekki verið gert þá væri núna hægt að byggja viðbótarbyggingar Landspítalans þar. Til dæmis Bama- spítalann. Ég vorkenni Landspítal- anum, það er hneyksli hvernig búið er að fara með hann. Það er ómak- legt. Þetta er góður spítali. Mér er vel við Landspítalann, ég vann þar í 17 ár. Nú er hann kominn í þvílíka klemmu. Sporin hefðu átt að hræða.Við hefðum nú átt að eiga nóg pláss við Borgarspítalann fyrir full- komið framtíðarsjúkrahús. I ágætri grein í Morgunblaðinu hefur Auðólf- ur Gunnarsson nýlega skrifað að ætti að taka rými við Vífilsstaði fyrir Landspítalann. Þetta er rétt hjá hon- um, en hann gáir ekki að því að stjómvöld mundu strax leyfa bygg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.