Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 56
*56 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Róandi stuð! Snoðaða söngkonan gerir kraftaverk ERLENDAR vesturbæinn er tilfinning mín sú að þetta sé sexý og dáleiðandi stuð- popptónlist sem rói mann niður! Þetta hljómar fremur mótsagna- kennt, en þetta er samt rétt, ef við lítum á myndina sem kom nokkuð oft upp í huga mér: Þetta er svona tónlist til að spila í partíi í New York, á 20. hæð í há- hýsi, en það eru fáir í partíinu, og drekka bara pínulítið kampavín, og eru mikið úti á svölum að horfa yfir borgina, og konumar eru í drögtum og mennimir í jakkafótum!! Það má með sanni segja að partíin sem ég fari í þessa dagana samræmist ekki alveg þessari lýsingu, en ég á heldur ekki dragt og vinahópurinn vill frekar drekka mikinn bjór en lítið af kampavíni. Það er því eins og ég hafi, við hlustun þessa disks, álpast inn í ókunn- ugt partí með fólki sem ég þekki ekkert, setið úti í homi og virt fyrir mér stemmninguna í dágóða stund, líkað mjög vel og jafnvel eignast nýja vini; en þakkað svo fyr- ir mig og kíkt aftur til rokkaranna í partíinu mínu sem „headbanga" við The Stooges! Ragnheiður Eiríksdóttir. ÞEGAR ég kom heim til mín um daginn, beið mín geisladiskur í póst- kassanum. Það er alltaf gaman að fá eitthvað jafn skemmtilegt og nýjan geisladisk í pósti og það var því með töluverðri eftirvæntingu sem ég skellti gripnum í silfurlitaða ferða- spilarann minn. Eg hef aldrei hlustað á neitt með hljómsveitinni Texas áður og því var fyrsta hlustun eins og að hitta ókunnuga manneskju á kaffihúsi og hlæja að sumu sem hún segir, kinka kolli af áhuga út af öðm, en geta ekki verið sammála öllu. Til að geta einbeitt mér bet- ur að lögunum ákvað ég að fara út að hjóla, með jákvætt hugarfar, silfurspilarann góða, og stuð í hjarta í farteskinu. Það þarf ekki að hlusta lengi til að heyra að Sharleen Spiteri, söngkona hljómsveitarinnar, hefur eitthvað hlustað á kyntröllið dverg- vaxna, „listamanninn sem áður var þekktur undir nafninu Prince", og það notfærir hún sér óspart í raddútsetningum plötunnar, með stórfínum árangri. Algengt er að heyra hátt í aðalröddinni sem er fremur djúp miðað við kvenmanns- rödd, en svo bakrödd, áttund ofar, fylgja sönglínunni eftir í bakgrann- inum, og þetta þrælvirkar. Djúpa röddin er mjög sexí og hefur fremur mildandi áhrif á hlustandann, og hin skærari á bakvið er dáleiðandi og virkar stuðhvetjandi í alla staði. Aðrar útsetningar era líka ofsa fín- ar, lögin auðvitað misgóð, en mörg hver svolítið dul- mögnuJ. "“'■"‘"-Te**. eins og mitt uppáhaldslag á plötunni, titillagið „The Hush“. Einnig er Donnusummerlegi diskó- smellurinn „Summerson“ grípandi og góður, mikil sól og sandur í gangi. Sem sagt, eftir nokkrar hlustanir og hjólreiðar þvers og krass um Sinéad O’Connor, sem reif mynd af Jóhannesi Páli páfa II í beinni út- sendingu í sjónvarpinu, er orðin prestur. Sinéad hefúr mikið verið í fréttum á Irlandi vegna baráttu sinnar til að halda forræðinu yfir þriggja ára dótt- ur sinni Roisin, sem hún á með írska blaðamanninum John Waters. Hún hefur tvívegis þurft að fara á sjúkra- hús vegna þessa. Fyrst var hún að niðurlotum komin andlega og líkam- lega, hafði lést um 14 kíló og var að- eins 52 kíló að þyngd. I seinna skiptið skolaði hún niður 20 valíumtöflum með þremur glösum af vodka til að sýna Waters hversu nærri sér hún tæki málið, en hann kærði hana m.a. til bama- vemdamefiidar fyrir van- rækslu á baminu. ing við guð þess efhis að ef hann kæmi henni heilu og höldnu út úr misþyrm- ingum bamæskunnar, myndi hún þegar hún yrði stór gera allt sem í hennar valdi stæði til að snúa fólkinu til hans. Irar era hins vegar frekar á því að hún sé bara klár kona sem kunni að notfæra sér fjölmiðla. Þegar Móðir Bemadette Mary var innt eftir því að hafa rifið mynd af páf- anum sagðist hún hafa verið að tjá þann sársauka sem hún hefur þurft að þola í lífínu, en það hafi bitnað á röng- um aðila. „Eg biðst afsökunar á þessu og ég veit að það hljómar klikkað, en þetta átti alls ekki að vera niðrandi fyrir kaþólikka og páfann. Ég hef aldrei hitt hann, hann er öragglega yndislegur maður. Ég var frekar að tjá vonbrigði og gremju í garð kirkj- unnar sem margir Irar fundu fyrir á þeim tíma.“ „MEÐ minni hjálp hefur kaþólska kirkjan risið upp frá dauðum, ég hef bjargað lífi hennar og vona að stofn- unin sé nógu sterk til að skilja það,“ segir hinn nývígði prestur, Sinéad O’Connor, sem hvorki þurfti að undir- búa sig sálarlega né vitsmunalega fyr- ir vígsluna. Sinéad, sem er 33 ára, heitir nú Móðir Bemadette Mary. Hún hefur keypt sér hús í krafta- verkabænum Lourdes í Frakklandi og segist aldrei ætla að koma aftur hvorki til Englands né Ir- lands til að búa þar. Vildi drepa poppstjörnuna „Þegar ég fer að messa mun fólk verða mun áhuga- samara um að koma til kirkju en það hefúr verið hingað til. Jafnvel þótt fólk komi bara __ nl, fyrir forvitni sakir, þá kemur ,t mea prestakraga það að minnsta kosti og heyrir u þá kannski eitt orð sem getur haft áhrif á það. Sæmilega gáfað fólk hlýtur að gera sér grein fyrir hversu frábært þetta er fyrir kaþólsku kirkj- una, sem árum saman hefur reynt öll ráð til að fá fólk til messu,“ segir söng- konan sem áleit kirkjuna í dauðaslifr- unum áður en hún tók í taumana. „Ég er góð og elskuleg manneskja að taka á mig þá krossfestingu sem þetta mun reynast mér, bara til að fá fólk aftur til kirkju." Sinéad hefur lýst prestvígslurmi sem „dauða og endurfæðingu“. „Ég vildi drepa þetta poppstjömuíyrir- bæri sem nýttist mér ekki í þörf minni fyrir tilgangi og kölluninni til að hjálpa fólki. Ég mun starfa við prest- þjónustu sem söngvari og verð alltaf fýrst og fremst listamaður sem nú öðl- ast tilgang sem hann hafði ekki áður.“ Hún segist fimm ára hafa gert samn- með mömmu sinni. Waters hefúr nú fengið forræðið yfir Roisin og segir Sinéad að Biblían hafi hjálpað henni að láta undan í því máli. „Það er saga í Biblíunni sem segir frá þegar tvær konur komu með bam til Salómons konungs sem þær sögðust báðar eiga. „Rífið bamið í tvennt,“ sagði Salómon þá. Önnur þeirra var tilbúin að sneiða krakkann en hin lét frekar undan. Þannig leið mér, ég gat ekki haldið þessu áfram.“ Roisin flutti því til fóður síns í Dyflinni, og Sinéad, sem einnig á 11 ára soninn Jake af fyrra sam- bandi, sagðist ætla að kaupa hús þar í borg til að geta verið með dótturinni hveija helgi. Fyrir tveimur vikum fékk móðirin svo Roisin að láni og stakk strax af upp í flugvél til London, og er nú með hana í felum nálægt kraftaverkabæn- um. Þar hefur hún ráðið til sín vakt- menn allan sólarhringinn svo að faðir- inn geti ekki endurheimt hana. „Hún gaf honum aldrei forræðið skriflega," segir vinur kvenprestsins, „og hefur því ekki brotið nein lög með því að taka Roisin aftur til sín.“ Ragnheiður Eiríksdóttir Söngkona fjallar um geisladisk hljóm- sveitarinnar Texas „The Hush“ sem kemur út 10. maí næstkomandi hjá Mercury útgáfunni. GUERLAIN dagar í Andorru Mánudag 10. maí kl. 12-18 Þriðjudag 11. maí kl. 12-18 Miðvikudag 12. maí kl. 12-18 Gréta Boða, Helga og Rósa kynna og farða, pantið tíma í síma 555 2615. Glæsileg kynningartilboð og gjafir mmíid snyrtivöruversíun STRANDGÖTU 32, HAFNARFIRÐI, SÍMI 555 2615 Augnlæknastöðin ehf., Kringlunni 8-12, sími 570 0950. Höfum flutt augnlæknastofur okkar í Augnlæknastöðina í suðurhluta Kringlunnar á annarri verslunarhæð. Elínborg Guðmundsdóttir, augnlæknir, sími 568 0717 Brynhildur Ingvarsdóttir, augnlæknir, sími 568 0737 Eiríkur Þorgeirsson, augnlæknir, sími 568 0757 Kristján Þórðarson, augnlæknir, sími 568 0797 Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 1999 Á þessu ári veitir Norðurlandaráð Umhverfisverðlaun sfn f flmmta sinn. Verðlaunin eru 350 þús. danskar krðnur og eru veitt fyrirtæki, einstaklingi eða hópi manna f efnkageiranum eða hjá hinu opinbera sem hefur tátið sérstaklega að sér kveða á sviði umhverflsmála. Viðfangsefnið á árinu 1999 er „Staðbundið starf I anda Staðardagskrár 21.“ Umhverfisverðlaunin koma í hlut þess sveitarfélags eða byggðar sem kynnir besta starfið á sviði umhverfisverndar. Öllum er heimilt að gera tillögu að verðlaunahafa og skal tillagan vera vel rökstudd. Starfsemin skal einkennast af faglegum gæðum og skipta máli fyrir breiðan hóp einstaklinga. Gera skal grein fyrir tillögunní á tveimur A-4 blaðsíðum hið mesta. Dómnefnd sem skipuð er fulltrúum Norðurlandanna fimm ásamt fulttrúum Færeyja, Grænlands ogÁlandseyja ákveður hver verðlaunin hlýtur. Tillögum skal skila til skrifstofu Norðurlandaráðs á sérstökum eyðublöðum, í síðasta lagi föstudaginn 28. ma? 1999. Utanáskriftin er: Nordisk Rád, Den Danske Delegation, Christiansborg, DK-1240 Kobenhavn K. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást hjá umhverfisráðuneytinu, Vonarstræti 4,101 Reykjavfk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.