Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 39
MINNINGAR
mænira lífs og dauða. Ráðþrota
glími ég við spyrjandi óvissuna í
huga mér. Eg sé hann fyrir mér
sveifla veiðistönginni, leysa erfiða
stöðu á skákborðinu með fallegri
fléttu eða syngja hljómmikilli
röddu í sumarbústaðnum á kyrr-
látu sumarkvöldi: „Kvöldið er fag-
urt, sól er sest...“ Eldri synir mínir
sögðu við mig þegar þeir fréttu lát
Þóris að þeir hugsuðu til þess með
þakklæti að hafa fengið að kynnast
honum á bökkum Straumfjarðarár
og í veiðihúsinu, þar sem var stund
milli stríða. Það er ómetanlegt að
eiga í huga sér „um ófarið, örstutt
æviskeið“ minninguna um Jóhann
Þóri, bjartsýni hans og baráttu-
vilja. „Og seinna þar sem enginn
telm- ár“ eigum við ef til vill eftir að
ganga saman þar sem áin liðast
með hraunröndinni og laxinn leyn-
ist í hylnum, og láta hugann reika
um framtíðarlendur þegar svipti-
vindar samtímans leika um okkur,
raða upp í skák og taka lagið þegar
sólin roðar vesturhimininn.
Siggu, Kristínu, Hannesi og
Steinari og barnabörnunum, ætt-
ingjum og vinum, færi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guðmundur G. Þórarinsson.
Látinn er vinur og mágur, fjöl-
skyldufaðir og barnavinur. Þannig
þekktum við hann. Aðrir þekktu
hann sem eldhuga sem gaf sig á
vald óbilandi áhuga á skákíþrótt-
inni sem er líka list. Hann stuðlaði
að eflingu hennar í landinu flestum
öðrum fremur. Enn aðrir þekktu
hann af samskiptum í rekstri fyrir-
tækis. Allir þekktu hann að hýr-
legu viðmóti, gamansemi, bjart-
sýni, örlæti og hugmyndaflugi. Kr-
ingum hann var aldrei lognmolla,
heldur líf og fjör. Oft var eins og
um hann sveimaði heilt ský af hug-
myndum, ekki síst um leiðir til að
hjálpa náunganum. Hann var
manneskja.
Ég man óglöggt eftir fýrstu ár-
unum í sambandi Sigríðar systur
minnar og Jóhanns Þóris, því að ég
OSWAJLDS
simi 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐAI.STRÆTI 4B • 101 REÝKJAVÍK
Davíö Inger Ölafur
Útfiirarstj. - Umsjón Utfamrstj..
LÍKKISTUVINNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONÁR
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til ki. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
var þá erlendis við nám. Hitt man
ég að fljótlega sköpuðust góð
tengsl milli Þóris og foreldra
minna. Faðir minn og hann áttu
þetta mikla sameiginlega áhuga-
mál, skákina. Þó að Þórir væri
sterkari skákmaður en pabbi
skyldu þeir alltaf setjast við þegar
færi gafst. Stundum fengust þeir
þó til að taka í bridds þegar menn
til þess voru á staðnum, og víst var
það líka gaman. Hæfilegt og tamið
kapp Þóris í bland við létta lund
gerði þessar íþróttir alltaf
skemmtilegar í návist hans.
Málshættimir segja að „mörgum
bregst mága stoðin“ og „köld er
mága ástin“, og hefur orðið „mág-
ur“ þá víðari merldngu en í nútfma
máli. Þessir málshættir virðast
ekki eiga sér þekktar andstæður
eins og margir aðrir. En við höfum
oft hugsað til þess hvílík öfugmæli
þetta eru í fjölskyldu okkar, ekki
síst þegar Jóhann Þórir átti í hlut.
Sú „mága stoð“ brást sannarlega
aldrei, heldur var hann ævinlega
boðinn og búinn að hjálpa og
styðja, bæði með ráðum og dáð.
Minningarnar hrannast upp frá
samferðinni um áratugina. Þó að
systir mín sé árinu yngri var hún
nokkrum ámm fyrri til að stofna
heimili og þar var gott að koma.
Þegar þau fluttu á Meistaravellina
fannst okkur hinum það eins og
höll. Og á borðum var stundum
matur sem þótti þá nýstárlegur
eins og kjúklingar eða svínakjöt.
En ég man líka þegar við Sigrún
vomm að koma okkur fyrir á Báru-
götunni og Þórir kom að hjálpa
mér að brjóta fyrir dyraopi gegn-
um þykkan steinsteyptan vegg
með loftbor og tilheyrandi. Þá kom
kappið í góðar þai-fir sem oftar.
Um nokkurt skeið héldum við mág-
arnir einnig uppi þeim sið að stór-
fjölskyldan blótaði þorra á veit-
ingastað, og víst held ég við höfum
glatt karl fóður minn með því með-
an hann lifði. Báðum þótti okkur
gott að geta glatt hann. Um leið
ræktuðust ýmsir strengir milli
okkar þó að við væram að öðm
leyti ólíkir.
Síðar áttum við hjónin líka því
láni að fagna að geta boðið Þóri
ásamt fjölskyldunni til okkar á
slóðir Éinars Benediktssonar í
Herdísarvík. Einar var Þóri svo
hugleikinn að hrein unun var að sjá
hvernig hann naut þess að koma á
þennan stað og finna návist skálds-
ins. Meðal annars lét hann það í
ljós með frumsömdum skáldskap.
Þetta vora dýrðarstundir.
Jóhann Þórir var sérlega barn-
góður maður sem hændi að sér
börn hvar sem hann fór. 011 systk-
inaböm Siggu sakna nú vinar í stað
þegar hann er allur. En dreng-
skapur hans og heilindi komu ekki
síst fram í því hvernig hann reynd-
ist Kristínu Maríu, fósturdóttur
sinni. Hann var henni í öllu sem
faðir og systkinin þrjú mynduðu
eina systkinaröð þar sem hvergi
hattaði fyrir. Hann sýndi líka
næman skilning sinn á tengslum
fólks og innri högum með því
lrvemig hann ræktaði á sama hátt
samband við böm mín af fyrra
hjónabandi og við Sigrúnu og syni
okkar. Nú á dögum skilnaða og
tíðra stjúptengsla gætu margir
lært af fordæmum sem þessum.
Jóhann Þórir var alla tíð ham-
hleypa til verka og unni sér sjaldn-
ast hvíldar marga daga í senn. Sú
hugsun er áleitin að leiðarlokum að
hann hafi kannski ekki ætlað sér
af. Svo mikið er víst að reiðarslagið
var þungbært þegar það féll, löngu
fyrir aldur fram. Hann varð fyrir
skyndilegri hjartastöðvun í sept-
ember 1997 og náði sér aldrei síð-
an, hvorki til líkama né sálar. En
augnaráðið og viðmótið var enn
hýi-t sem fyrr og handtakið hlýlegt
og þétt. Éngu að síður var það
þyngra en táram taki að sjá þenn-
an virka og áhrifamikla mann
þurfa að sæta þessum örlögum.
Hann hafði áður alltaf getað mætt
andstreymi lífsins með seiglu og
bjartsýni. Hann réð áfram yfir
þessum vopnum en nú dugðu þau
heldur skammt. Það er líka undar-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn,
ÁSA PÁLSDÓTTIR,
Einihlíð 12,
Hafnarfirði,
er lést af slysförum þriðjudaginn 4. maí, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 12. maí kl. 15.00.
Anna Margrét Pétursdóttir, Páll S. Kristjánsson,
Kristján Pálsson,
Ása Helgadóttir,
Fjóla Gunnarsdóttir, Pétur Valdimarsson.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur sam-
úð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
KRISTJÁNS RÖGNVALDSSONAR
skipstjóra og hafnarvarðar,
Hávegi 58,
Siglufirði.
Lilja Jóelsdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdadóttir og systir,
CAMILLA BJARNASON,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði aðfaranótt
föstudagsins 7. maí.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Garðar Sverrisson,
Hrönn Garðarsdóttir,
Bryndís Garðarsdóttir,
Hörður Garðarsson,
Bryndís Bjarnason,
Hrönn Rasmussen
og systkini hinnar látnu
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GESTUR OTTÓ JÓNSSON,
Ljósheimum 22,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins
2. maí, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 12. mai kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknar-
félög.
Jónína Sigurðardóttir,
Þröstur Gestsson,
Svala Gestsdóttir,
Hreiðar Örn Gestsson,
Halldór Gestsson,
Elísabet Gestsdóttir,
Jón Gestsson,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Bragi Gunnarsson,
Fríða Ólöf Ólafsdóttir,
Halla Halldórsdóttir,
Birgir Kristjánsson,
Ásta Pálmadóttir,
Sæunn Sigríður Gestsdóttir, Baldur Vagnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona' mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
RÓSA JÓNA KRISTMUNDSDÓTTIR,
Álfheimum 68,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 1. maí, verður jarð-
sungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn
11. maíkl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á heimahlynningu Krabbameins-
félagsins og Líknardeild Ríkisspítalanna, sími 560 1300.
Jón Guðmundsson,
Guðmundur Jónsson, Bryndís Jónsdóttir,
Elín Jónsdóttir, Páll Kjartansson,
Áslaug Jónsdóttir,
Hildur, Kjartan og Signý.
+
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÁRNAJÓNSSONAR,
Skipholti 47,
Reykjavík,
verður gerð frá Háteigskirkju á morgun, mánu-
daginn 10. maí kl. 13.30.
Jón Emil Árnason, María Jónsdóttir,
Hjörtur B. Árnason, Unnur Halldórsdóttir,
Páll Ingi Árnason, Margrét Sveinbjörnsdóttir,
Helgi Árnason, Mábil G. Másdóttir,
Hilmar Árnason,
Guðni Árnason, Lilja Loftsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR ÞÓRARINSDÓTTR
frá Hjaltabakka,
síðar húsmóðir á Ytra-Ósi,
Steingrímsfirði,
verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi
miðvikudaginn 12. maí kl. 13.30.
+
Elskuleg fósturmóðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA BENEDIKTSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 12. maí kl. 15.00.
Þóra Magnúsdóttir, Ríkarður Jónatansson,
Marta Magnúsdóttir, Svavar Jónatansson,
Nanna Magnúsdóttir, Hrólfur Guðmundsson,
Þórarinn Magnússon, Sigríður Austmann,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hilmar Viggósson, Auður Guðmundsdóttir,
Gísli Viggósson, Kristín Guðmundsdóttir,
Björn Viggósson, Hallveig Björnsdóttir,
Sigrún V. Viggósdóttir, Ingi K. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.