Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 45
VILHJALMUR HANS
VILHJÁLMSSON
+ Vilhjálniur Hans
Vilhjálmsson
stórkaupmaður
fæddist a Sæbóli í
Aðalvík 12. júlí 1914.
Hann lést á Hrafnistu
í Reykjavík 30. apríl
síðastliðinn og fór út-
för hans fram frá
Fossvogskirkju Fóstu-
daginn 7. maí.
Ég heyrði það í út-
varpinu á fóstudag að
hann Villi í Hólmi væri
dáinn og þó að það
kæmi ekki á óvart þá hrekkur maður
alltaf við. Vilhjálmur sem alla jafna
var kenndur við fyrirtæki sitt Heiid-
verslunina Hólm var búinn að búa
hér á Seltjamarnesi frá 1955 og við
höfum alltaf haft gott samband og
unnið saman í pólitíkinni alla tíð.
Þegar við sem þá vorum ungir ákváð-
um að bjóða hér fram pólitískan lista
1962 þá var Villi að sjálfsögðu á þeim
lista og í kjallaranum hjá Aðalheiði
og Villa í Hólmi vom kosningaskrif-
stofurnar fyrstu árin. Margt var
brallað í kjallaranum að Skólabraut
17, á þessum árum þegar við vorum
að undii'búa kosningar og mjög var
gestkvæmt en þau hjónin lánuðu
okkur alltaf allan kjallarann. Vil-
hjálmur var mikill Aðaivífcingur og
fór á hverju sumri til dvalar á æsku-
stöðvunum og þá oft ásamt börnum
sínum sem kunnu líka vel að meta
Aðalvíldna. Fyrir um 10 árum keypti
Vilhjálmur íbúð í elliíbúðum við
Skólabraut og dvaldi þar þar til hann
fór á DAS en þar var hann heimilis-
fastur 2-3 síðustu árin. Ég vil með
þessum línum þakka Vilhjálmi, frá
konu minni og mér, góða samfyigd og
sendi ennfremur kveðjur frá Sjálf-
stæðisfélagi Seltirninga sem kveður
góðan stuðningsmann.
Sigurgeir Sigurðsson,
bæjarstjóri Seltjarnarnesi.
Við Ieiðarlok Iangar mig að kveðja
Vilhjálm H. Vilhjálmsson, sem svo
sannarlega gaf lífi þeirra lit er kynnt-
ust honum. Aðrir munu sjá um að
rekja æviferil Vilhjálms, en mín
minningabrot eru mörg. Skal þökkuð
sú hugulsemi er ungum dreng voru
færðar gjafir við heimkomu frá út-
löndum, það gleymist ekki. Skemmst
er að minnast ferðar okkar hjónanna
í Aðalvík sumarið 1997 á heimaslóð-
imar, þar sem við Vilhjálmur röltum
saman um hvönnina á milli húsanna
eins og gömul hjón öðrum til mikillar
skemmtunar.
Heiisan var þá farin að bila en
kjarkurinn og viljinn óbugaður, en
eins og margir vita er ferðalag til Að-
alvíkur nokkuð strembið. Hann
fræddi mig um helstu kennileiti á
siglingunni til Aðalvíkur og einnig
var fróðlegt að hlusta á frásagnir
hans frá æskuárunum. Helst hefði
hann viljað dvelja áfram í Aðalvík-
inni. Minnisstætt er mér kvöld eitt er
ættingjum úr nálægu húsi var boðið í
heimsókn til að taka lagið eins og Að-
alvíldngum einum er lagið. Þá hóf
Vilhjálmur upp raust sína og söng
margar vísur sem borgarbamið ég
hafði aldrei heyrt og jafnvel ekki
heldur gestir mér eldri og reyndari.
Kynni mín af Vilhjálmi voru
skemmtiieg og fróðleg og er ég og
fjölskylda mín þakklát fyrir þau.
Börnum Vilhjálms og öðrum að-
standendum sendi ég mínar hlýjustu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
Viihjálms H. Vilhjálmssonar.
Guðrún ína.
Elsku afi minn.
Þótt ég eigi erfitt með að sætta
mig við þá staðreynd að þú sért far-
inn, þá reyni ég að hugga mig við það
að nú situr þú í himnaríki með ömmu.
Ég veit að þér iíður vel og þú fylgist
með og passar uppá okkur, sem eftir
lifum.
Þú spurðir mig oft hvað mig hafði
dreymt um nóttina, en ég gat ekki
alltaf svarað þér. Nú langar mig að
segja þér draum sem mig dreymdi
nóttina sem þú kvaddir. Mig dreymdi
að ég hefði verið að tala við þig í sím-
ann og að ég hefði sagt þér að mér
þínum og
þætti vænt um þig. Svo
um morguninn þegar ég
vaknaði við þá hræði-
legu frétt að ég fengi
aldrei að sjá afa Villa
aftur, uppgötvaði ég að
þetta var ekki draumur.
Þú komst til mín til þess
að kveðja.
Ég á þér svo margt
að þakka, elsku afi
minn, og hef svo óend-
anlegar margar minn-
ingar að velja úr. T.d.
gleymi ég aldrei þegar
þú komst heim úr einni
af Taílandsferðunum
gafst mér og Möggu
prinsessunáttkjóla eins og ég kallaði
þá. Þeir vöktu mikla lukku og í leið-
inni öfund hjá vinkonum mínum.
Endalaust varstu á flakkinu bæði ut-
anlands og innan og svipinn sem kom
upp á andlit þitt þegar ég bjó um
rúmin okkar eftir að við tvö höfðum
gist á Hótel Örk, mun ég geyma svo
lengi sem ég lifi. í ótalmörg skipti
minntistu á þennan atburð og sagðir
að við yrðum að endurtaka þetta ein-
hvem daginn.
Ekki hef ég tölu á öllum Aðalvíkur-
ferðunum okkar og þá allrar fjölskyld-
unnar og ávallt yngdist þú um mörg
ár þar sem þú naust þín vel í hvönn-
inni og dundaðir þér við hina ýmsu
hluti. Svo sem setja upp hengirúm á
pallinum, syngja því þú kunnir heilan
helling af lögum eða spila við okkur
krakkana og alltaf gastu kennt okkur
ný og ný spil. Aldrei fengum við nóg
af að rifja upp söguna þegar mamma
pg pabbi fóru í fjallgöngu í Aðalvík og
þú áttir að passa. Þú fórst með okkur
út í bát og Guðbjörg sofnaði í bátnum.
Alltaf hlógum við jafn mikið.
Ég man eitt skipti þegar ég átti að
hjálpa þér við að þrffa íbúðina þína
og mér brá heldur betur þegar þú
sýndir mér hvar þú geymdir skúr-
ingaáhöldin, því ég hafði aldrei
skúrað áður. Þá tókst þú þig til og
kenndir mér að skúra. Svo sagðirðu
alltaf eftir að ég hjálpaði þér, „svo
þegar þú ert orðin gömul kona get-
urðu sagt bamabömunum þínum að
þú hafir alltaf hjálpað afa gamla.“
I einni af þessum heimsóknum
mínum til þín þegar þú bjóst á Nes-
inu, spilaði ég á biokkfiautu fyrir þig.
Þú varst svo glaður og ánægður að
þér fannst að allir ættu að heyra í
mér, sVo þú sagðir mér að fara út á
verönd og spila þar. Þrátt að mikið
hafi verið hlegið að mér þegar ég
mætti svo í tónlistarskólann, þá var
mér alveg sama. Ég gerði þetta fyrir
þig-
Elsku afi! Á laugardaginn þegar ég
fór til þín í heimsókn og keyrði þig út
í gai'ð í hjólastólnum, datt mér ekki
tii hugar að þetta yrði okkar seinasta
samverustund. Ekki datt mér í hug
að þetta væri í seinasta skipti sem þú
færir út og þegar ég kyssti þig biess
vissi ég ekki að þetta væri seinasta
kveðjustundin. Ég ætlaði að fara að
heimsækja þig aftur á fóstudaginn,
en þá var það orðið of seint.
Afi minn, þú varst mikill maður og
ég lærði margt af þér. Nú mun minn-
ingin um þig, sem lífsreyndan, örlát-
an og yndislegan mann, lifa áfram, en
samt sem áður verður tómlegt án þín
og þá sérstaklega í Aðalvíkinni.
Sofðu rótt, afi minn, og við hitt-
umst aftur næst þegar ég kem í
heimsókn.
Þín
Arna Dröfn.
Elsku afi minn.
Ég trúi því varla enn að þú sért dá-
inn. Kannski er það vegna þess að ég
á svo ótal margar og góðar minning-
ar um þig að þú ert enn ljóslifandi í
huga mér.
Þú varst svo ofboðslega góður við
mig og varst alltaf að segja að ég
væri alveg jafn dugleg og hún amma
Aðalheiður nafna mín. Og þegar ég
sagði þér hvernig mér gekk í prófun-
um spurðir þú alltaf, „og varstu ekki
hæst?“ Oft þegar ég kom í heimsókn
til þín tókst þú myndina af okkur þar
sem þú hélst mér undir skírn og
spurðir hvort ég myndi ekki hvað
presturinn héti. Svo sagðir þú mér að
ég ætti sko að vera stolt af þessu
virðulega nafni sem ég bæri.
Fyrstu minningarnar sem ég á um
okkur tvö eru þegar ég var hjá þér á
Heilsuhælinu í Hveragerði. Ég hef
örugglega ekki verið miklu eldri en 5
ára og þú sast með mér og kenndir
mér lagið „Ó Jesú bróðir besti“. Við
sungum það saman aftur og aftur og
tókum það meira að segja upp á seg-
ulband og spiluðum það.
Eitt skipti fór ég með þér til Þórs-
merkur og ég man hvað mér þótti
gaman því ég mátti gera næstum allt.
Skemmtilegast þótti mér þó að renna
mér niður brekkumar, en mamma var
nú ekkert alltof glöð þegar við komum
heim því að nýja, hvíta ullarpeysan,
sem hún var nýbúin að prjóna var
ónothæf því hún var öll í mosa.
Fasteignaþj ónustan
Skúlagötu 30, 3. h., 101 Reykjavík
sími: 552 6600 - fax: 552 6666
Asparfell: Tveggja herbergja vel
skipulögð íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi.
Nýtt parket. Áhv. 3,3 millj. langtímalán.
Verð 5,3 millj.
Suðurhlíð: Nýleg 2ja herbergja 53
fm íbúð á 1. hæð (jarðhæð) I fjölbýli.
Geymsla innan íbúðar. Áhv. tæpl, 4.0
millj. húsbréf. Verð 5,5 millj.
Vesturbær: 2ja herbergja snyrtileg
íbúð á 3. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi.
Suðvestursvalir, endurnýjað gler og
gluggar, nýtt rafmagn. Verð 5,2 millj.
Flétturimi: Góð 3ja herbergja íbúð á
jarðhasð í nýrri blokk ásamt stæði í bíl-
geymslu. Selst tilbúin undir tréverk ásamt
uppsettum fataskápum, eldhús- og bað-
innréttingum (tæki vantar).
Bárugata - Vesturbær! 150
fm sérhæð á þessum vinsæla stað í
gamla miðbænum. Nýstandsett! Ásett
verð 16,9 millj.
írabakki: Góð 3ja herbergja íbúð á 1.
hæð í nýlega viðgerðri blokk. Aukaher-
bergi í kjallara með geymslu inn af.
Áhvilandi húsbréfalán 3,8 millj.
E
tvinnuhúsnæði:
Sunnuflöt Garðabæ.
Tveggja íbúða hús: Faiiegt 256
fm einbýlishús á þessum frábæra stað.
Tvöfaldur bllskúr, stór lóð. Ásett verð 23
millj., áhvílandi 8,7 millj.
Hraunteigur: Góð 4ra herb. 81 fm
kjallaraíbúð I tvíbýlishúsi. Sérinngangur.
Húsið er í góðu ástandi og nýlega klætt
að utan. Áhvíl. ca 2,5 millj. húsbréfÁsett
verð 7,2 millj.
Lokastígur laus! 2ja herb. huggu-
leg íbúð á 2. hæð í góðu steinhúsi. Ásett
verð 5,9 millj. Áhvilandi 3 millj. húsbréf.
Faxafen Framtíðin, 670 fm:
Til sölu stórglæsilegt verslunarhúsnæði á
jarðhæð í Skeifunni við Faxafen. Einn sal-
ur og miklir gluggar. Hægt að skipta upp í
fleiri einingar. Til afhendingar strax.
Ármúli, til sölu verkstæðis-
pláss 700 fm: 700 fermetra verk-
stæðispláss til sölu, mikil lofthæð, skrif-
stofa og kaffistofa m.m. Frábær stað-
setning.
Skemmuvegur: 320 fm. iðnað-
arpláss til sölu, góð staðsetning. Verð:
22,6 millj. Innkeyrsludyr, hitalögn I plani.
Kársnesbraut: 88 fm lager- og
iðnaðarpláss til sölu. Verð 6 millj.
Þegar ég var svona 7 ára fórum þú,
ég, Finnur og Raggi saman til Aðal-
víkur. Við fórum að hausti, með síð-
ustu ferð Fagranessins og vorum ein
í víkinni. Á kvöldin varð ég alveg
rosalega hrædd og fékk heimþrá, en
þú, afi minn, varst fljótur að kippa
því í lag og lést mig sofa hjá þér í
eins manns beddanum þínum, þó að
það væri ekkert pláss þar fyrir okkur
bæði. Hjá þér var ég örugg en ég
held að þér hafí ekki þótt þetta verra
en mér, allavega varst þú farinn að
hrjóta áður en um langt var liðið.
Þegar ég var yngri fórum við oft
saman í húsið þitt í Höfnunum. Þar
varst þú búinn að útbúa heitan pott úr
risastóru keri og rólur fyrir okkur
krakkana. Sérstaklega þótti mér þó
gaman að fara niður í fjöru. Þar sáum
við borð og stóla úr steinunum og
fylgdumst með sjóræningjaskipunum,
því að við vorum viss um að möstrin
hinum megin væru segl á sjóræn-
ingjaskipum. Þú tókst alveg fullan
þátt í þessum leikjum og þótti þér al-
veg jafn gaman og okkur börnunum.
Eitt skipti þegar við vorum á leið-
inni úr Höfnunum þá varð mér svo
mál að pissa að þú stoppaðir og lést
mig pissa á lítinn hól hjá veginum.
Þegar ég var búin sagðir þú: „Jæja,
Magga, nú skírum við þennan hól
Möggu Heiðu-hól.“
Þú varst alltaf á ferðalögum og
vildir helst ekki vera lengi á sama
staðnum. Þú áttir alltaf útlenskt
nammi og þegar þú bjóst hjá okkur á
Eiðistorginu þótti vinkonum mínum
þú alveg svakalega góður því þú
gafst þeim alltaf nammi í „sárabót"
þegar ég var ekki heima.
Þegar ég var 17 ára fórst þú, ég og
mamma saman til Glasgow með eldri
borgurum. Þá keyrðum við mamma
þig um alla borgina í hjólastól og við
þrjú skemmtum okkur alveg konung-
lega. Við fórum meira að segja í spila^j*
víti sem þú hafðir verið meðlimur Y
fyrir mörgum árum og þar flettu þeir
þér upp í gömlum bókum svo að við
fengjum inngöngu. Næstu páska fór-
um við svo með allri fjölskyldunni til
Kanarí, en það var síðasta af mörgum
ferðalögum sem ég fór í með þér.
Síðustu ár höfum við bara farið
saman í styttri ferðalög. Eftir að ég
fékk bílpróf kom ég oft til þín og við
keyrðum saman og stoppuðum svo á
Kaffivagninum og fengum okkur
kaffi og pönnsur. Þú varst alltaf jafn
óhress með það að það væri ekki
hægt að fá pönnsu með púðursykri
þar. Á þessum dögum spjölluðum viír
saman og það var hreint ótrúlegt
hvað þú mundir mikið af alls konar
sögum og vísum. Alltaf var jafngam-
an að tala við þig og fá sögur um
liðna tíð.
Fyrir rúmlega viku, eða síðasta
skóladag, kom ég til þín. Ég sagði
þér frá því að nú væri erfiður tími
framundan því að ég væri að fara að
byrja í stúdentsprófum. Svo sagði ég
við þig: „Og svo kemur þú auðvitað í
stúdentsveisluna mína í vor,“ og þú
sagðir: „Þú verður fyrst að bjóða mér
því ég kem ekki nema að mér sé boð-
ið.“ Þá sagði ég við þig: „Auðvitað er
þér boðið og ég býð þér hér með.“
Elsku afi minn, ég vil þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gefið mér og^.
kennt mér og eitt veit ég fyrir víst og
það er að þú mætir í stúdentsveisl-
una mína í vor, því að ég var búin að
bjóða þér.
Þín
Margrét Aðalheiður.
Söluturn
Á söluskrá er mjög öflugur og þekktur söluturn með meiru í aust-
urbæ Rvík. Fyrirtækið er með mikla íssölu, gott grill sem slegið
hefur í gegn ásamt myndbandaleigu þar sem nýtt og eldra efni er
í öndvegi. Fyrirtækið er rekið í leiguhúsnæðið. Lottó og spilakass-
ar eru á staðnum. Verð 15,0 m.
Skipholti 50b
Sfmi 55 194 00
Fax 55 100 22
«U tT 533 4800
©MIÐBORG
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Opíð virka daga frá kl. 9-18, sunnudaga frá kl. 12-15
Laugavegur - verslunarhúsn. Erum
komnir meö í sölu nýbyggingu viö Laugaveg.
Eignin er um 400 fm á þremur hæðum, góö
staðsetning. Nánari upplýsingar veita Karl og
Þröstur á skrifstofu. 2295
Líkamsræktarstöð. Vorum að fá I sölu
eina vinsælustu líkamsræktarstöö landslns.
Upplýsingar aöeins á skrifstofu. 2296
Vesturbær - einbýli. Höfum fengið í
sölu glæsil. einb. á góöum stað í vesturbænum.
Nánari uppl. aðeins veittar á skrifstofu. 2290
Kleifarás. Vandaö og gott einbýli með
möguleika á tveimur íbúöum á frábærum
útsýnisstað. Á efri hæö er u.þ.b. 188 fm íbúð
m. glæsil. stofum og 4 svefnherb. Neðri hæðin
er í dag tengd efri hæöinni, en þar er m.a.
mögul. á að útbúa 100 fm aukaíb. Góður u.þ.b.
40 fm bílskúr. V. 23,0 2271
Sævargarðar - Seltj. Gullfallegt u.þ.b.
230 fm einbýlishús á einni hæð með innb.
bílskúr. Tvö til þrjú svefnherbergi. Góðar stofur
með arni. Glæsileg vinnustofa/skrifstofa með
frábæru útsýni. Stór sólverönd með heitum
potti. Verðlaunalóð. V. 23,0 2229
Fossvogur - útsýni. Höfum fengið f
einkasölu góöa 90 fm íbúð á fystu hæð við
Kelduland. 3 svefnherbergi með skápum.
Rúmgóð og björt stofa með útgangi á suður-
svalir. Lögn fyrir þvottavél í íbúð. V. 8,7 m.
2292
Hrfsrimi - falleg. Glæsileg 105 fm íb. á 3.
hæð í góðu húsi ásamt 31 fm stæði í bílag.
Merbau-parket, mahóní-innihurðir og vandaðar
innréttingar. Suðursvalir. Sérþvottahús f ib.
Áhv. 5,5 millj. V. 9,8 m. 2235
Rangársel - falleg. Glæsileg 137,9 fm íb.
sem er hæð og ris ásamt nýjum 26 fm bílskúr.
Sérinngangur og sérgarður með fallegri sól-
verönd. Á neðri hæð er forst., snyrting, stórar
stofur og stórt eldhús. Á efri hæð eru 3 góð
svefnherb., hol og baðherb. Suðursvalir.
Glæsil. útsýni. Áhv. 5,3 m. byggsj. V. 13,5 m.
2279
Kleppsvegur - fjallasýn Snyrtileg og fal-
leg 100 fm íbúð (góðu fjölbýli. Björt og rúm-
góð stofa. Gott eldhús. Þrjú svefnherb. Suður- k
svalir. Áhv. 3,9 m. V. 7,9 m. 2232
Hraunteigur. Vorum að fá í sölu fallega 3ja-
4ra herb. nýuppgerða u.þ.b. 100 fm kjíb. á
þessum eftirsótta stað. Nýtt eldhús og bað.
Sérinng. og fallegur garður. V. 8,9 m. 2294
Reykjavík - miðbær. Mjög gott 1200 fm
skrifstofu- og iðnaðarhús í traustri útleigu á
góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Byggingar-
möguleiki á lóð. Allar nánari upplýsingar veita
Karl G. og Pétur Örn á skrifstofu Miöborgar. V.
75,0 m. 2043
iiMliii«»iiainiil.lii»niiiiiiitiiii.»»———rnmmmmm