Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 18

Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 18
18 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Jón Leifs heiðraður í Þýskalandi Minningarathafnir í Berlín og Rehbriicke Um síðastliðna helgi var Jóns Leifs minnst með menningarviðburðum í Rehbriicke og Berlín. Rósa Erlingsdóttir kynnti sér dagskrána og spjallaði við að- standendur hátíðarhaldanna. UNDANFARIN ár hefur Jón Leifs sem og tónverk hans notið sívax- andi athygh meðal þýskra tónlist- arunnenda. í Berlín, háborg tónlist- arlífs í Þýskalandi, hefur hin þýsk- skandínavíska sinfóníuhljómsveit æskunnar, undir stjóm Andreas Peer Kahlers, í þrígang flutt verk skáldsins við húsfylli í þýsku Fíi- harmóníunni. Árið 1997 voru verkin Elegie opus 53 og Hekla opus 52, bæði samin 1961, sett upp í þýskum frumflutningi. Á lokatónleikum þýsk-skandínavískrar tónlistarviku í Berlín í janúar síðastliðnum flutti hljómsveitin Sögusinfóníuna. Tón- listarvikunni var fylgt úr garði með íslenskri menningarviku, en á henni voru ævi og störfum Jóns Leifs gerð góð skil ásamt kynningu á sögu og menningarlífi Islendinga. Sívaxandi vinsældir í Þýskalandi í tilefni af 100 ára fæðingaraf- mæli skáldsins, um síðastliðna helgi, kenndi ýmissa grasa á uppá- komum bæði í Berlín og Rehbrúcke. Hátíðarhöldunum var hleypt af stokkunum á laugardagskvöld í Berlín með ávarpi Ingimundar Sig- fússonar, sendiherra Islands í Þýskaiandi. Andreas Peer Kahler sem er stjórnandi þýsk-skandína- vísku sinfóníuhljómsveitarinnar og fróðastur fróðra manna í Þýska- landi um tónverk snillinga norðurs- ins flutti hátíðarræðu og gaf við- stöddum innsýn í verk Jóns Leifs með snilldarlegum píanóleik. Við undirleik hans flutti norska sópran- söngkonan Ann-Ki-istin Sprvág þrjú kirkjulög, opus 12a. í viðtali við fréttaritara sagðist Kahler vera stoltur af því að hljóm- sveit hans hefði frumflutt þrjú stærstu verk Jóns Leifs í Þýska- landi. En tónleikar hljómsveitarinn- ar árið 1997 og í ár marka viss tíma- mót þar sem þeir voru þeir fýrstu síðan nasistar bönnuðu uppfærslu á verkum Jóns á stríðsárunum. Káhler segir jafnframt táknrænt að tónleikarnir voru fluttir í aðeins tuttugu kflómetra fjarlægð frá Sumarvörur í úrvali Stuttbuxur kr. 2.900 Blússur frá kr. 2.800 Toppar frá kr. 990 SA'• ■ •••> ■ ■■• Mýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Rehbriicke þar sem tónskáldið bjó frá 1932-1944 og aðeins 100 metr- um frá aðsetrum ógnarstjómar nas- ista í miðborg Berlínar. Hann segist vona að uppfærslumar sýni vilja þýskra tónlistarmanna til að leið- rétta það óréttlæti sem Jón Leifs varð fyrir á myrkustu tímum sögu Þýskalands. Tónleikar Káhlers hafa vakið feikimikla athygli og í kjölfar þeirra er að finna greinar um ævi og störf Jóns Leifs í flestum stærri blöðum Berlínarborgar. Ljóst er að Káhler hefur unnið ómetanlegt starf í að kynna Þjóðverjum verk hins norræna snillings sem hraktist frá Þýskalandi og virtist með öllu gleymdur þar til fyrir örfáum árum. Tónlistarunnendur heillast einna mest af krafti verkanna sem er sprottinn beint úr nátturu og sögu íslands. Hetjurnar í Sögusinfóní- unni sem Jón Leifs samdi í Rehbrúcke, kuldi norðursins í Eleg- ie sem hvflir þunglamalegur og hreyfingarlaus í rúmi, með melódískan samhljóm í bakgrunni sem virkar eins og frosinn inn í verkið. Á sínum tíma mjög óvana- legt strengjaverk enda sýnir það miskunnarlausan órómantískan stfl skáldsins sem lengi vel mætti litlum skilningi landa sinna. Hekla sem er samið fyrir stóra hljómsveit með sextán slaghljóðfærum hefur vakið mikla hrifningu. Einn gagmýnend- anna talar um snilldarlega túlkun á ofsafengnum sprengingum eldgoss en segir þungamiðju verksins vera fullkomna endursögn á útrás berg- kviku uppúr dularfullum djúpum jarðarinnar. Fyrir miðbik aldarinn- ar hefðu fáir spáð að Jón Leifs myndi verða einn virtasti erindreki íslenskrar menningar á erlendri grundu. Jóns Leifs-torgið í Rehbriicke Skammt frá höfuðborg sam- bandslandsins Brandenburg Pots- dam og aðeins tuttugu kflómetra suðvestur af Berlín er fallegi smá- bærinn Rehbrúcke en þar búa nú FRÁ vinstri sendiherra Islands, herra Ingimundur Sigfússon, kona hans, Valgerður Valsdóttir, Bernd Kahle landslagsarkitekt, Inge- borg Kröner, umsjónarmaður framkvæmdanna, Ánnerose Hamis- ch-Fischer bæjarstjóri og Erika Haenel, formaður íbúasamtaka Rehbrúcke. Morgunblaðið/Rósa JÓNS Leifs-torgið í Rehbrúcke. um sex þúsund manns. Flestir full- vaxta íbúar bæjarins þekkja betur til Jóns Leifs en margur Islending- urinn. í lok september 1992 var torg skammt frá fyrra heimili skáldsins á Liselotte-Hermann- Strasse 9 nefnt í höfuðið á Jóni Leifs. Á því var reist myndarlegt skilti sem hefur að geyma helstu upplýsingar um skáldið. Síðastliðið haust var ákveðið að halda upp á 100 ára afmæli Jóns Leifs og við það tækifæri að vígja torgið opin- berlega. Ekki fengust nægilegir styrkir úr opinberum sjóðum til að framkvæma endurbætur á svæðinu og því voru það íbúar Rehbrúcke sem söfnuðu nauðsynlegu fjár- magni. Landslagsarkitektinn Bernd Kahle sá um útfærsluna og breytti hinu dæmigerða þýska torgi í svæði sem svipa á til ís- lensks landslags. Þar sem fjár- magn var af skornum skammti eyddu ófáir íbúar bæjarins öllum sínum frítíma síðastliðið haust og nú með vorinu í að ljúka verkinu á tilsettum tíma. Torgið skartar nú sínu fegursta, er bugðótt og hæð- ótt, prýtt með hundrað ólíkum plöntum og grófum steinum. Síðastliðinn sunnudag var torgið vígt. Ingimundur Sigfússon sendi- herra og Annerose Hamisch- Fischer, borgarstjóri Rehbrúcke, héldu ræður. Af sama tilefni var opnuð ljósmyndasýning um Island og Andreas Peer Káhler og Ann- Kristin Sprvág endurtóku dag- skrána frá deginum áður. Til hátíð- arhaldanna kom einn elsti íbúi Rehbrúcke, sem er 88 ára kona, og lagði hraunmola sem hún eignaðist á ferð sinni um ísland fyrir fáein- um árum undir einn steininn. Hún sagðist hafa geymt hann fyrir Jóns Leifs-torgið, og að núna væri Is- land einnig komið til Rehbrúcke. falle?ri húð, hár o? ne?lur Ef þú vilt bæta húð þína, hár og neglur reyndu þá Silica Forte - þú finnur stóran mun eftir 3 til 6 mánuöi! BÆTT MEÐ O VÍTAMÍNI Kísill (Silica) er eitt mikilvægasta steinefnið fyrir líkamann. Hann fyrirfinnst meðal annars í elftingu og kísilþörungum. Silica Forte inniheldur einstakt kísilþykkni sem er mjög auðugt af flavóníðum. Silicea Forte er vinsælasta bætiefni sinnar tegundar í Skandinavíu. Éh eilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.