Morgunblaðið - 09.05.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 09.05.1999, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Rannsóknir eins og þær gerast bestar Mikil gróska er í vís- indarannsóknum hér- lendis. Til marks um það er tækifæri sem hafa opnast erlendis. Rannsóknarhópur Þorsteins Loftssonar, prófessors í lyíjafræði, er eitt dæmið um þessa grósku en hann gerði nýlega samning við sænska lyfjafyrirtækið Astra-Zeneca um rann- sóknir á lyfjum við MS sjúkdómnum og Alzheimer. Salvör Nordal hitti Þorstein að máli en þessi viður- kenning á rannsóknar- starfi hans er enn ein fjöður í hatt íslenskra vísindamanna. Ég held að líftæknirannsókn- irnar eigi á næstu árum eftir að skila þessu fjármagni margfalt til baka. í rannsókn- um er það svo að árangurinn getur komið mörgum áratugum seinna. Þetta eru langtíma- verkefni sem krefjast mikillar þolinmæði. RANNSÓKNIR í lyfja- fræði hafa átt allan hug Þorsteins Loftssonar, prófessors, á undanförn- um árum. Til marks um það er langur listi íræðigreina og einkaleyfa sem hann hefur komið að. Nú síðast hefur Þorsteinn fengið samning við sænskt lyfjafyrirtæki um rannsóknir á þróun lyfja gegn MS sjúkdómnum og Alzheimer, sem kemur til með að efla enn frekar rannsóknarstarf hans næstu árin. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Þorstein og rannsóknarhóp hans sem hefur síðustu 14 ár unnið að rannsóknum á sýklódextrínum. Mikil viðurkenning „Það er auðvitað mikill fjárhags- legur ávinningur af svona samningi en fyrst og fremst er þetta viður- kenning á okkar starfi,“ segir Þor- steinn Loftsson, prófessor, þegar hann er spurður um samninginn. Þorsteinn lauk doktorsprófi í lyfjafræðum frá Kansas háskóla í Bandaríkjunum árið 1979 og stund- aði síðan rannsóknir á forlyfjum en það eru efnasambönd sem breytast úr líffræðilega óvirkum efnasam- böndum í virk í líkamanum. Nokkr- um árum síðar hóf Þorsteinn hins vegar rannsóknir á sýklódextríni og þær rannsóknir eru nú að skila mikl- um árangri. „Sýklódextrín eru náttúruleg efnasambönd, sykur- eða sterkju- sambönd. Þau eru eins konar hringir í uppbyggingu og mjög heppileg til að flytja önnur efni. Þannig hafa rannsóknir sýnt að hægt er að auka vatnsleysanleika margra lyfja með því að koma þeim fyrir í sýklódextrín sameindunum. Okkar rannsóknir hafa meðal annars beinst að augn- lyfjum og þá er markmiðið að tengja þau sýklódextrín sameindum til að geta flutt þau til augans. Sýkló- dextrín-efnasamböndin hafa verið þekkt nokkuð lengi en þau myndast þegar ákveðin tegund baktería melt- ir sterkju. Með líftækninni er hins vegar hægt að framleiða þau í stór- um stíl og því hafa rannsóknir á þeim aukist mjög að undanförnum árum. Mest hafa þau verið notuð í matvælaiðnaði en einnig í þvottaefni og sólvamarefni. Þróun þessara efnasambanda er hins vegar skemmra á veg komin í lyfjaiðnaði en til dæmis í matvælaiðnaði og þar hafa verið gerðar meiri kröfur til notkunar nýrra efna. Á síðasta ári samþykkti hins vegar Food and Drug Administration í Bandaríkjun- um sveppalyf sem innihalda þessi efni. Þetta varð til þess að lyfjafyrir- tækin tóku við sér og fóru að leita að hópum sem hefðu stundað rannsókn- ir á þessum efnasamböndum til lyfjagerðar.“ Og það var leitað til ykkar? „Síðastliðið haust komu fulltrúar írá Astra-Zeneca í Svíðþjóð í heim- sókn, en Astra á íslandi hafði vitað af þessum rannsóknum okkar. Eftir að hafa rætt við fulltrúa þeirra sendi fyrirtækið okkur tvö efnasambönd og gáfu fyrstu rannsóknir á þeim góða raun. Þeir óskuðu svo í mars eftir frekara samstarfi. Með svona samstarfi er lyfjafyrirtækið að nýta sér ákveðna þekkingu sem við höfum aflað okkur á löngum tíma í stað þess að byggja hana upp frá grunni innan fyrirtækisins." Rannsóknir á MS og Alzheimer Þorsteinn segir að rannsóknirnar með Astra-Zeneca muni fyrst og fremst beinast að lyfjum gegn Alzheimer og MS-sjúkdómnum. „Astra hefur fundið upp tvö efna- sambönd sem þeir telja að geti kom- ið að gagni í baráttunni við þessa sjúkdóma. Vandinn hefur hins vegar verið sá að finna leiðir til að gera þessi efnasambönd virk í líkamanum og flytja þau til miðtaugakerfisins. Forrannsóknimar á sýklódextríni benda til að þar sé að finna lausnir á þessum vandamálum. Rannsóknir okkar á lyfjum til augna nýtast við að koma þessu til heilans." Hvemig verður samstarfinu hátt- að á næstunni? „Við munum nú skipta rannsókn- unum í ákveðna verkþætti. Sumir þættir verða framkvæmdir í Svíþjóð en aðrir hér heima. Við munum veita ákveðna þekkingu en þeir veita okk- ur aðgang að ákveðinni tækni en þeir em mun betur tækjum búnir en við. Þessi samningur hefur mikla fjár- hagslega þýðingu. Við getum sent námsmenn út til að vinna hjá lyfja- fyrirtækinu og getum kostað laun og tækjabúnað. Þetta kemur því til með að virka mjög örvandi fyrir þessar rannsóknir. Afrakstur þessarar vinnu verður væntanlega í formi greina í fagtímarit og hugsanlega einkaleyfi á okkar niðurstöðum. Eg get vel séð að þetta verði þriggja ára samvinna og kannski lengri ef vel tekst til.“ Þorsteinn er greinilega stoltur af árangrinum. „Það var mjög gaman að fá svona viðurkenningu á því sem við höfum verið að gera,“ segir hann, „og heyra frá þeim að okkar rannsóknir séu sambærilegar við það besta sem gert er annars staðar.“ Aðstaðan engin í upphafi Þorsteinn bætir við að árangur 1 rannsóknum komi ekki af sjálfu sér og rifjar upp þróun rannsókna hér frá því hann kom heim frá námi 1979. .Áðstaðan í lyfjafræði á þessum tíma var nánast engin. Námsbrautin var í kjallara aðalbyggingar í hús- næði sem einhvem tíma hafði verið notað sem líkhús. Þama var nánast enginn tækjakostur eða nokkur að- staða til rannsókna. Þá áttu nemend- ur ekki þess kost að ljúka nema fyrri hluta BS-náms hér en flestir nem- endur luku því í Danmörku. Ég var svo heppinn að komast inni í rann- sóknarhóp í Flórída og var þar hluta af ári við rannsóknir. Með því móti gat ég haldið mér við efnið þrátt fyrir aðstöðuleysið hér heima. I Flórída tók ég meðal annars þátt í rannsókn- um á forlyfjum sem em notuð til að koma lyfjum inn í heila og auga. Síðar komu rannsóknir á sýklódextrínum." Smátt og smátt byggðist upp rannsóknaraðstaða hér og Þorsteinn setti upp sinn eigin rannsóknarhóp. „Það þurfti að byggja upp rann- sóknaraðstöðu frá granni, kaupa tækjabúnað og ráða aðstoðarfólk. Eg fór til Þórs Sigþórssonar hjá Lyfja- verslun ríkisins og við sóttum um styrk hjá Tæknisjóði. Eftir að lyfja- fræðin fékk aðstöðu í nýju húsnæði í Haga við Hofsvallagötu hefur að- staðan gjörbreyst og nú era stund- aðar hér öflugar rannsóknir. Núna höfum við ekki bara tök á að mennta lyfjafræðinga til BS-náms heldur er- um við farin að taka við mastersnem- um og doktorsnemum. Það hefur því orðið algjör bylting á starfseminni frá því ég kom heim.“ Þorsteinn hefur um nokkurt skeið verið í samstarfi við Einar Stefáns- son, prófessor í augnlækningum, og þeir reka meðal annars lyfjaþróun- arfyrirtækið Cyclops ehf. „Þegar kom að því að prófa lyf sem við vorum að vinna að leitaði ég til Einars Stefánssonar, prófessors, sem var mjög áhugasamur. Hann hafði stundað rannsóknir á augnlyfj- um um nokkurt skeið og uppúr þessu varð mjög skemmtilegt sam- starf. Rannsóknarhópar okkar hitt- ast reglulega og bera saman bækur sínar og hefur samstarfið verið mjög gefandi fyrir alla aðila. Með mér starfa núna um átta manns. Minn nánasti samstarfsmaður er Már Másson, dósent, en að auki era tveir mastersnemar, einn doktorsnemi, einn útskrifaður lyfjafræðingur og tveir lyfjafræðinemar. Rannsóknir eru langtímafjárfesting Þorsteinn segist hafa komið heim í mun betra starfsumhverfi en forver- ar hans því uppúr 1980 vora íslend- ingar að vakna til vitundar um mikil- vægi rannsóknarstarfs. ,Á þessum tíma vora Tæknisjóð- ur, Vísindasjóður og Rannsóknar- stjóður HÍ efldir og nú era þeir fjár- munir að bera ávöxt. Frá því um 1980 hefur verið veitt um 500 millj- ónum í líftæknirannsóknir. Af þess- um fjármunum höfum við líklega fengið um 20 milljónir í styrki. Sum- um hefur fundist lítið hafa komið út úr þessu rannsóknarstarfi en nú er þetta farið að skila sér til baka og menn gera sér grein fyrir að eftir allt saman þá var þetta ekki svo vit- laust. Ég held að líftæknirannsókn- irnar eigi á næstu áram eftir að skila þessu fjármagni margfalt til baka. I rannsóknum er það svo að árangur- inn getur komið mörgum áratugum seinna. Þetta era langtímaverkefni sem krefjast mikillar þolinmæði. Við megum ekki gleyma því að stór hluti þessa fjármagns hefur faiáð í að mennta fólk og starfsfólk Islenskrar erfðagreiningar hlaut mai-gt þjálfun fyrir þessa peninga.“ Uppbygging lyfjafræðinnar er auðvitað gott dæmi um þær breyt- ingar sem hafa orðið á síðustu áram í rannsóknarstarfi. „Eftir að námið var flutt alfarið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.