Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 23
heim og deildin fékk aukið fjármagn
hafa rannsóknir eflst. Eitt dæmið
um árangurinn er að lyfjaútflutning-
ur hefur margfaldast á undanfömum
árum, en margir þeir sem hafa byggt
upp þessi lyfjafyrirtæki og starfs-
menn í þeim hafa fengið menntun
sína hér. Kennararnir við lyfjafræð-
ina eru frekar ungir. Fólk er mest
skapandi á árunum 40-50 ára og
flestir kennarar við deildina eru á
þeim aldri. Við komum heim þegar
farið var að veita einhverja peninga
til þessara rannsókna. Eldri kynslóð-
in var hins vegar kaffærð. Hún hafði
ekki tækifæri til að stunda rann-
sóknir og flestir úr þeim hópi festust
í nefndarstörfum og við stjórnun.
Við hinir yngri komum í annað og
uppbyggilegra umhvei-fi.“
Gjörólíkt rannsóknum ÍE
Nú hafa rannsóknir Islenskrar
erfðagreiningar á MS-sjúkdómnum
verið mikið í sviðsljósinu. Erað þið í
samkeppni?
„Þetta eru gjörólíkar rannsóknir.
Við erum að rannsaka ákveðna efna-
blöndu sem hugsanlega getur slegið
á sjúkdóminn. Hjá IE er verið að
leita að geninu sem stjórnar sjúk-
dómnum og hugsanlega þegar það er
fundið verður hægt að þróa lyf til að
lækna sjúkdóminn. Það gleymist oft
í umræðu um lyfjarannsóknir hvað
þetta er langt ferli. Fyrir hvert 5-10
þúsund nýrra efnasambanda sem
rannsökuð eru með tilliti tO lyfjaá-
hi'ifa eru aðeins 250 þeirra prófuð á
fólki og aðeins eitt þeirra verður að
nothæfu lyfi og markaðssett. Það er
ekki óalgengt að það taki um 15-20
ár að þróa nýtt lyf. Það eru fjölmörg
fyrirtæki sem eru að leita að lyfjum
gegn þessum sjúkdómum og það rík-
ir mikil samkeppni á þessum mark-
aði. Það má búast við að eitt eða
fleiri lyf komist á markaðinn.
Kannski verðum við fyrstir með það,
hver veit. Rannsóknir á genum eru
enn lengra ferli og ekki ólíklegt að
það geti tekið IE langan tíma að
finna genið og þróa lyf út frá þeim
rannsóknum. Rannsóknir á gena-
lækningum eru ennþá skammt á veg
komnar og óvíst hvað hægt verður
að gera þegar genið er fundið.“
Þorsteinn segir ekki óhugsandi að
samstarf verði milli hans og ís-
lenskrar erfðagreiningar.
„Það er vel hugsanlegt og við höf-
um talað saman. Kári var fyrstur til
að senda mér heillaóskaskeyti þegar
fréttin um samninginn birtist, sem
mér þótti mjög vænt um.“
Meira samstarf æskilegt
Þorsteini verður tíðrætt um sam-
vinnu íslenskra vísindamanna.
„Það er mikili akkur að samstarfí
ólíkra rannsóknarhópa. Hið nána
samstarf sem hefur verið milli okkar
Einars Stefánssonar, prófessors, og
okkar rannsóknarhópa hefur skilað
mjög miklu. Oft er of litil samvinna
milli manna og of mikið um að menn
séu að bauka hver í sínu horni.
Þannig verða til smákóngaveldi. Það
eru hins vegar auknai' líkur á árangri
þegar menn leggja saman.“
Hvernig er hægt að hvetja til
frekara samstarfs?
„Rannsóknarráð íslands gæti gert
meiri ki'öfur um samstarf þegar sótt
er um styrki og fjölmargt mætti gera
til að fá fólk til að starfa saman. Eg
held að það hafi verið gerð mikil mis-
tök þegar rannsóknarstofnanir voru
teknar út úr Háskólanum eins og
gert var við rannsóknarstofnanir at-
vinnuveganna. Það er miklu meiri
styrkur að slíkum stofnunum innan
HÍ.“
Þrátt fyrir að bylting hafí orðið í
rannsóknaraðstöðu undanfarin ár
kvartar Þorsteinn undan því að há-
skólamenn eigi ekki nógu greiðan að-
gang að gagnabönkum.
„Það er mjög erfítt að vinna heim-
ildarvinnu hér enda er lítið til af bók-
um og tímaritum. Hægt væri að gera
mikla bragarbót á þessu ef ríkið
keypti aðgang að erlendum gagna-
söfnum, sem heimilaði okkur notkun.
Slíkt hefur tií dæmis verið gert á hin-
um Norðurlöndunum. I stað þess
verðum við helst að leita út fyrir
landsteinana við heimildaleit."
Og það er einmitt það sem Þor-
steinn ætlar að gera. Hann er á leið
til Flórida eftir nokkrar klukku-
stundir en þar ætlar hann að dvelja
og leita í gagnasöfnum háskólans.
Starfi vísindamannsins er aldrei lok-
ið.
■
fhtpuint
Kilbec nr
TL52PE HOTPOINT ÞURRKARI
5 kg •m/barka »veltir í báðar áttir.
GeneralBecthc
TFG20JRX GENERAL ELECTRIC
AMERÍSKUR ÍSSKÁPUR með
klakavél og rennandi vatni
•h: 170, b: 80,d: 77,5 »491 lítra.
Hotpuint
mbei lir
lii(>cÍ Itr.
/ lutpumt
WWH7109T GENERAL
ELECTRIC ÞVOTTAVÉL
•4,5 kg «1000 snúninga.^
TC72PE HOTPOINT ÞURRKARI
•6 kg »barkalaus »m/rakaskynjara
•veltir í báðar áttir.
DF23PE HOTPOINT UPPÞVOTTAVEL
•12 manna «8 kerfi •b:60,h:85,d:60.
ELECTRIC
RAFTÆKJAV E R S LU N
HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5770
AÐRIR SÖLUAÐILAR: Heimskringlan Kringlunni •Rafmætti Miðbæ, Hafnarfirði *K Á Selfossi Austurvegi 3, Selfossi *Verslunin Vík Egilsbraut 6,
Neskaupstað *Reynisstaðir Vesturvegi 10, Vestmannaeyjum *K.Þ. Smiðjan Garðarsbraut 5, Húsavík *Jókó Furuvöllum 13, Akureyri ‘Verslunin Hegri
Sæmundargötu 7, Sauðárkróki «Verslunin Straumur Silfurgötu 5, Isafirði *Rafstofan Egilsgötu 6, Borgarnesi •Hljómsýn Stillholti 23, Akranesi.