Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ nú trú á því sem við erum að gera. | Peir sem höfðu tækifæri á sínum p tíma en kusu að halda að sér hönd- um eru núna sjálfsagt að skoða þessi mál í nýju ljósi. Við vitum ósköp lítið hvað menn eru að spá. En aukin samkeppni er hið besta mál. Þegar við fórum af stað var ætlunin ekki að slíta úr viðskipta- grunni annarra, heldur að stækka markaðinn, auka þjónustuna og , vera með í örri framþróun marg- miðlunar í heiminum. Ekki er endalaust hægt að láta fyrirtæki vaxa á því einu að selja síma í fámennu þjóðfélagi? „Nei, vitanlega ekki, en skoðum tölui'nar. Við höfum selt 12.000 síma og erum með 16.000 áskrif- endur. Það hefur ekkert slegið á eftirspurnina. Farsímaeign Islend- inga nemur nú 35-40% og sem dæmi þá hefur Finnland vinning- | inn með 60%. Þar er ekkert lát á nýskráningum og má því segja að það sé óþekkt stærð hve lengi er hægt að halda áfram. Svo má búast við því að þegar vissu marki er náð þá hljóti þjónustu- og endumýjun- arþátturinn að aukast að því ógleymdu að símarnir sjálfir eru sem óðast að breytast, tækninni fleygir svo gi-íðarlega ört fram og Islendingar hafa sýnt sig vera afar nýjungagjarna og fljóta að tileinka í; sér tækninýjungar." Þórólfur heldur áfram og ræðir | um tæknimálin og segir síðan frá því með hvaða hætti umhverfið hér á landi stuðlar að öflun þekkingar sem þegar er orðin útflutningsvara og stendur sem slík sem gott dæmi um þá vaxtarbrodda sem geta sprottið út úr starfseminni og gefið fyrirheit um vöxt og viðgang í framtíðinni. Vegna þess hve ísland er smátt, | segir Þórólfur, hefur Tali tekist að I hanna og setja upp kerfi sem I byggja á sértækri þjónustu, svo sem Talhólf, textaskilaboð, tölvu- pósttengingu, FarTal, auk skipu- lagningar á fræðslu fyrir notendur. Með þessa sértæku þekkingu í farteskinu hefur Tal verið beðið um að setja upp Talfrelsiskerfl, sem byggir á fyrirframgreiddu símakorti, á Haiti, og er Þorleifur t Jónasson verkefnisstjóri tæknis- viðs Tals á leið utan á næstu dög- | um til að stýra þeirri vinnu sem * þar er framundan. Þorleifm- hefur átta ár að baki sem verkefnis- og tæknistjórí hjá Eriesson í Svíþjóð og segir Þórólfur hann gott dæmi um þann mannauð sem Tal hafi að geyma. „Fyrirtækið væri ekki mik- ið án þessa frábæra hóps,“ segir forstjórinn Þórólfur segir markmiðið á Haiti j vera 10.000 áskrifendur á fyrsta árinu. Það sé heldur minna átak 1 heldur en hér var staðið fyrir, en á eyjunni búi 9 milljónir manna og því séu möguleikarnir miklir. „Þetta er hins vegar nokkuð van- þróað og það þarf að kenna eyjar- skeggjum að nota fjai’skiptamögu- leikana. Mér finnst þessi tenging okkar við Haiti annars kristalla hvað best að heimurinn er bara eitt fjarskiptasvæði," bætir Þórólfur f; við. Annan vaxtarbrodd segir Þórólf- f ur vera fólginn í þeirri hröðu þróun þar sem farsíminn virðist vera að gleypa í sig tölvurnar ef þannig mætti að orði komast. „Það fer fram þjöppun á gögnum, svo mikil, að gagnaflutningsgeta GSM er núna um 9,6 kílóbit á sekúndu. En innan þriggja ára munum við sjá þriðju kynslóðina í GSM sem verð- , ur með flutningsgetu 2 megabit á sekúndu. Þá erum við að tala um lifandi mynd, tal og tón. Það má 1 segja að tölvan sé orðin að farsíma og nú þegar erum við byrjaðir að bjóða ýmsar lausnir á þessu sviði. „Ytra er þetta gjarnan kallað „the big squeeze", eða stóra þjöppunin þar sem verið er að þjappa mörg- um af þáttum Netsins inn í farsím- ana. Þar er stórkostleg og hröð þróun í gangi, einmitt þróun sem j hentar Tali vel að fylgja eftir og í því skyni festi fyrirtækið kaup á fyrirtækinu Islandia Internet fyrir skömmu. Það er eitt af stærri Net- þjónustufyrirtækjum landsins og Morgunblaðið/Golli FJARSKIPTAKERFI Eftir Guðmund Guðjónsson Talsmenn", eins og for- stjórinn orðaði það, miða afmælið við daginn sem fyrirtækið „fór í loftið,“ en fyrirtækið sem slíkt var annars stofnað 26. mai-s 1997, því augljós- lega þurfti að inna af hendi mikla og flókna undirbúningsvinnu til þess að koma fyrirtækinu af stað og standast þær kröfur sem stjórn- völd gerðu til væntanlegra fyrir- tækja sem vildu reyna sig á þessu sviði. Þórólfur kom ekki að fyrirtæk- inu fyiT en undirbúningsvinna var langt komin. Hann er fæddur árið 1957 og alinn upp á Snæfellsnesi til 15 ára aldurs. Hann er stúdent fi’á MH 1975 og vélaverkfræðingur frá HÍ 1979. Meistaragráðu í iðnaðax-- og rekstrarverkfræði tók hann við Danmarks Tekniske Hojskole árið 1981. Þórólfur vann að ýmsum störfum sem verkfræðingur og rekstrarráðgjafi. I sjö ár var hann markaðs- og framleiðslustjói-i hjá Marel og síðustu fímm árin áður en hann gekk til liðs við Tal var hann ft'amkvæmdastjóri markaðssviðs Olíufélagsins hf. Hann hefur auk þess verið í stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga frá 1985 og foxmaður tvö síðustu árin og í stjórnum Is- lenska járnblendifélagsins hf. og Marel hf., auk þess að vera formað- ur markaðsnefndar Knattspyrnu- sambands Islands. Þórólfur segir frá því, að í upp- hafi hafi hérlendir áhugamenn um stofnun fjarskiptafyrirtækis verið í nokkrum vandræðum að finna fjár- fesoa sem treystu sér út í ævintýr- ið, það hafi ekki hvað síst stafað af mjög miklum kröfum sem stjórn- völd settu sem skilyrði fyrir stofn- un slíks fyrirtækis, en þar var kveðið á um að ný fyrirtæki næðu í upphafi til 70% landsmanna og fyr- ir árið 2002 skyldu þau vera búin að hífa töluna upp í 80%. „Fjölda fjárfesta leist ekkert á þetta, en svo komu til skjalanna fyrirtækin Westeru Wireless International og The Walter Group, sem bæði hafa höfuðstöðv- ar í Seattle. WWI er dótturfyrir- tæki Westem Wireless Cor- uppsveitir Suðurlands og þai' með taldar stórar sumarhúsabyggðir víða á svæðinu. Aður höfðum við náð höfuðborgai'svæðinu og Suður- nesjum. Ekki má heldur gleyma að við erum að taka í notkun nýjan sendi í Borgarnesi sem stækkar enn svæði okkar. Tæknilega erum við með mjög íúllkomið kerfi.“ Hvernig standið þið í samkeppni við fyrirtæki með forskot? „Það er rétt, Landssíminn hefur fjöguiTa áx'a forskot og hefur byggt á og í aðstöðu Pósts og síma. Þeir hafa notað möstur, mannvirki og landspildur P&S. Við höfum hins vegar iðulega lent í seinkun- um við að koma sendum okkar þar sem best færi að hafa þá. Það var t.d. ótrúlega erfitt verk að fá leyfi til að setja sex metra hátt mastur á Þorbjamarfell fyrir ofan Grinda- vík. Eg held að hugarfarið sé miklu jákvæðara hjá öllum aðilum í dag.“ Getið þið ekki nýtt ykkur að- stöðu hvor annars? „Það er ekkert tæknilegt í vegin- um fyrir því. Núna sé ég ákveðin tímamót og er viss um meira sam- starf í fi’amtíðinni til að bi'egðast jákvætt við sjónarmiðum heima- manna á hverjum stað.“ Nú þekkja allir þessi „dauðu svæði“ þar sem GSM-símarnir draga ekki. Hvenær verðið þið komnir hringveginn ? „Þessu get ég ekki svarað og annað er, að það þarf að skoða út- breiðslumálin mjög vandlega frá markaðslegu sjónarmiði. Hjá mínu gamla fyrirtæki, Olíufélaginu, vor- um við meðal annars að kljást við erfiðan rekstur á sumum fámenn- ari svæðum þar sem greinilegt var að engin arðsemi var fyrir tvo eða fleiri reksti-araðila. Hvað okkm- hjá Tal vai'ðar, þá er stefnan að dekka nánasta umhvei'fi höfuðborgar- svæðisins, fara svo í stæi'stu kjarn- ana úti á landi. Eftir það sjáum við hvað setur. Aukiii samkeppni - sóknarfæri Eru menn núna að naga sig í handarbökin yfír að hafa ekki tekið þátt íævintýrinu? „Við finnum það vissulega að nú vilja margir vera með. Það byggist á góðum viðtökum og menn hafa VlÐSIflPn AIVINNULtF ÁSUNNUDEGI ► Tal á eins árs afmæli um þessar mundir, en fyrirtækið er fyrsta einkarekna fjarskiptafyrirtækið á Islandi eftir að sam- keppni á símamarkaði var gefín frjáls 1. janúar 1998. Umsvif fyrirtækisins hafa farið fram úr björtustu vonum þeirra sem að því standa og menn huga að nýjum markmiðum mun fyrr en reiknað hafði verið með. Þórólfur Árnason er forstjóri fyrirtækisins og hann ræddi við Morgunblaðið á afmælisdag- inn, miðvikudaginn 5. maí. FYRIR ári. Halldór Blöndal samgönguráðheri'a og Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra klippa á vígsluborða hins nýja farsímafélags, Tals, en á milli þeirra stendur Brad Horwitz, forsljóri Western Wireless. poration sem á og starfrækir þráð- laus fjarskiptakerfi í Bandaríkjun- um. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í að setja á stofn GSM farsímakerfi um allan heim og má þar nefna Lettland, Ghana, Georgíu, Haiti og Irland. The Walter Group er al- þjóðlegt ráðgjafafyrirtæki á sviði fjarskiptatækni og hefur víðtæka reynslu af hönnun, þróun og starf- rækslu farsímakerfa víða um heim. Fyrirtækið hefur m.a. staðið að uppbyggingu farsímakerfa í Mexíkó, Hong Kong, Lettlandi, Georgíu, írlandi, Þýskalandi, Ind- landi og Brasilíu. Síðast en ekki síst kom til skjalanna Islenska út- varpsfélagið. Þessi þrjú fyrirtæki eiga í dag langstærsta hlut í Tal, WWI á 48%, íslenska útvarpsfé- lagið á 34,5% og WG á 16%. Þetta eina og hálfa prósent sem eftir eni eigum við Ragnar Aðalsteinsson, ég á eitt og hann hálft. Mikill hraði - stækkandi svæði Pið hafíð þá náð þessum 70% eða hvað? „Já og gott betur. Utbreiðslan hjá okkur hefur verið mun hraðari heldur en nokkurn óraði fyrir. Nú stefnir í að útbreiðslusvæðið nái til 80% landsmanna í sumar er við tökum nýja senda í notkun, m.a. í Eyjafirði og á Suðurlandi, senda sem ná Eyjafjarðarsvæðinu, þ. m.t. Akureyri, Suðurlandi allt að 25 kílómetra austur fyrir Hvolsvöll og HEIMURINN ER EITT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.