Morgunblaðið - 09.05.1999, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Seilugranda 6,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku
daginn 10. maí kl. 13.30.
Ragnhildur F. Kjeld, Stanislas Bohic,
Jóna Guðrún F. Kjeld, Fylkir Þorgeir Sævarsson,
Þóra Elísabet F. Kjeld,
Þórður F. Kjeld,
Jens Einar F. Kjeld,
Jóhanna F. Kjeld,
Gunnar Guttormur F. Kjeld
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir og systir,
AUÐUR RÓS INGVADÓTTIR,
Suðurhólum 14,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 2. maí,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaqinn
11. maíkl. 13.30.
Óðinn Snorrason,
Ingvi Rafn Óðinsson, Ester Rafnsdóttir,
Margrét Sigurpálsdóttir, Jón Sæmundsson,
Jón Veigar Þórðarson, Ragnhildur Þórðardóttir,
Jóhanna María Ingvadóttir, Sigursteinn Karlsson,
Linda Ingvadóttir, Guðmundur Helgason,
Ingibjörg Lovísa Jónsdóttir
og aðrir fjölskylduvinir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐBJÖRG RÓSA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Skúlagötu 40,
sem lést mánudaginn 3. maí, verður jarðsung-
in frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. maí
kl. 15.00.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Jón Valgeir Guðmundsson,
Guðjón H. Guðmundsson, Valgerður Hauksdóttir,
Anna Guðmundsdóttir Bjemstál, Ulf Bjernstál,
Lára Guðmundsdóttir, Jón Albert Sigurbjörnsson,
Þuríður Bryndís Guðmundsdóttir, Heimir Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengda-
móðir og amma,
JÓLÍN JÓELSDÓTTIR,
Álftamýri 22,
verður jarðsungin miðvikudaginn 12. maí
kl. 10.30 frá Háteigskirkju.
Bjarni Magnússon,
Halldór Hauksson, Liv Sjomoen,
Jóel Einar Halldórsson,
Árni Óttar Halldórsson.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför systur minnar og frænku
okkar,
LUKKU ÞÓRHILDAR ELÍSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Sjúkrahúsi
Seyðisfjarðar fyrir einstaka umönnun.
Björg E. Elísdóttir
og systkinabörn.
MINNINGAR
JÓHANN ÞÓRIR
JÓNSSON
leg tilfinning að vita ekki hvemig
honum leið í raun og veru.
Að leiðarlokum er okkur og
bömum okkar ljúft að þakka góða
og trausta mága stoð. Hafi mágur
og vinur heila þökk.
Sigrún Júlíusdóttir,
Þorsteinn Vilhjálmsson.
í dag kveð ég kæran mág minn,
Jóhann Þóri Jónsson. Eg var að-
eins sjö ára gömul þegar hann
kvæntist systur minni, Sigríði Vil-
hjálmsdóttur, og hefur hann skipað
stóran sess í mínu lífí síðan. Eg var
mikill heimagangur hjá þeim og
sótti í að passa börnin þeirra,
Kristínu Maríu, Hannes og Stein-
ar, og vera með þeim.
Þórir var afar bamgóður og naut
ég góðs af því, bæði í mínum upp-
vexti og síðar í gegnum bömin mín,
sem virtu hann og dáðu. Margar
góðar minningar koma upp í hug-
ann, þegar ég rifja upp liðnar
stundir sem tengjast Þóri. Hann sá
t.d. alltaf til þess að ég hefði nóg
fyrir stafni, ef ekki við bamapöss-
un þá eitthvað tengt tímaritinu
Skák. Ein skemmtilegasta minn-
ingin er frá heimsmeistaraeinvíg-
inu í skák, sem haldið var í Laugar-
dalshöllinni 1972. Þar fór Þórir á
kostum, gaf út einvígisblað, sem
kom út daglega á þremur tungu-
Crfisdrykkjur
UsitlAgahú/id
GAPt-mn
Sími 555 4477
málum. Við vomm nokkur, sem
unnum við að selja blaðið, á meðan
hann var á þönum allan tímann.
Þessu lauk svo með „veislu aldar-
innar“ þar sem allir skemmtu sér
konunglega.
Eftir að kynni okkar Halldórs
hófust kom fljótt í ljós að hann og
Þórir áttu vel saman. Þórir var sér-
staklega ánægður með að Halldór
var áskrifandi að Skákblaðinu og
kunni mannganginn. Fleiri áhuga-
mál áttu þeir sameiginleg og höfðu
þeir gaman af að hittast og spjalla.
Einnig leituðu þeir oft ráða hvor
hjá öðmm.
Þórir átti afskaplega gott með að
umgangast fólk. Hann lífgaði alltaf
upp á umhverfi sitt með hressilegri
framkomu hvar sem hann kom og
eftirtektarvert var hve böm löðuð-
ust alltaf að honum. Hinn 10. sept-
embér 1997 veiktist Þórir skyndi-
lega og fór þá í hönd afar erfiður
tími. Því miður varð hann aldrei
samur eftir það, en þó hélt hann
sinni léttu lund og jákvæðni. Alltaf
tók hann brosandi á móti okkur
þegar við komum í heimsókn til
hans á Grensásdeildina. Þar dvaldi
hann í rúmlega ár og hlaut þar sér-
staklega góða umönnun, sem við
emm öll þakklát fyrir. Einnig ber
að þakka starfsfólki Sjúkrahúss
Reykjavíkur í Fossvogi, sem ann-
aðist hann þar af mikilli alúð.
Elsku Þórir, ég kveð þig með
djúpum trega og hjartans þökk
Legsteinar
Lundi
v/Nýbýlaveg
öOLSTEINAK 564 3555
LEGSTEINAR f Marmari
Islensk framleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blágrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
fyrir allt það sem þú hefur verið
mér og minni fjölskyldu. Þú barst
alltaf hag okkar fyrir brjósti, en nú
er komið að okkur að annast þau
sem þér þótti vænst um og eiga nú
um sárt að binda. Guð blessi minn-
ingu þína.
Svanlaug og fjölskylda.
Þórir hefur fengið hvíldina.
Hann var kvæntur Siggu föður-
systur okkar og hefur verið fastur
punktur í fjölskyldu okkar frá því
við munum eftir okkur.
Við andlát hans streyma fram
minningar um ljúfan mann sem tók
öllum sem jafningjum, bömum
jafnt sem fullorðnum. Þegar fjöl-
skyldan hittist gaf hann sér tíma til
að leika við okkur þegai- við vorum
yngri, eða spjalla þegar við uxum
úr grasi. Okkur em minnisstæðir
loftfimleikar í forstofunni á Meist-
aravöllum þegar Þórir sveiflaði
okkur um loftið og tók okkur í
„kleinu“. Hann var líka töframaður
og gat meðal annars tekið þumal-
fingurinn á sér í tvennt, sem okkur
þóttu mikil stórmerki.
Það var því alltaf spennandi og
líka hlýlegt að koma til Siggu og
Þóris. Þau sköpuðu saman um-
hverfi sem bömum leið vel í. Gera
mátti ráð fyrir að Þórir lumaði á
einhverju; í það minnsta góðlát-
legri glettni, súkkulaði og kók-
flösku eða jafnvel gjöfum eins og
tölvuspili eða vasadiskói.
Þórir var mikill vinur okkar og
þó að við hittumst sjaldnar hin
seinni ár þá fundum við alltaf hlý-
hug hans og velvild þegar fundum
okkar bar saman. Gaman var að
ræða við hann um heima og geima
og ætíð hafði hann fram að færa
skemmtilega, frumlega og lær-
dómsríka sýn á umræðuefnið. Þá
var greiðvikni hans einstök og nut-
um við góðs af henni á ýmsa lund.
Þórir átti við alvarleg veildndi að
stríða undir það síðasta. í fyrstu
var von um að hann næði bata en
þessar vonir kulnuðu. Við systkinin
söknum Þóris, ljúfmennsku hans
og kímni og erum þakklát fyrir að
hafa mátt kynnast honum. Minning
hans lifir með okkur um ókomna
tíð.
Vilhjálmur, Björn og Þór-
dís Katrín Þorsteinsbörn.
• Fleiri minningargreinar um Jón-
hann Þóri Jónsson bíða birtingar og
inunu birtast í blaðinu næstu daga.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VILBORG KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Seli,
áður til heimilis
á Eyrarvegi 17, Akureyri,
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
11. maíkl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á minningarkort frá Alzheimer-félögunum.
Jörundur Guðmundsson, Guðrún Kolbeinsdóttir,
Sveinbjörn Guðmundsson, Þorgerður Halldórsdóttir,
Þórhalla Guðmundsdóttir, Stefán Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HUGLJÚFAR JÓNSDÓTTUR,
Garðatorgi 17,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks
Vífilsstaðaspítala.
Dana Kristín Jóhannsdóttir, Lárus Þór Pálmason,
Örn Jóhannsson, Karen Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
----1—
liilii
^fararsto^
'TíW'<#
ÍSLANDS
Útfararstofa íslands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar
i samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna i kistu og
snyrta ef með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu
og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara,
einleikara og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á
sálmum.
- Líkbrennsluheimild.
- Duftker ef likbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning á kistu út á land eða utan af
landi.
- Flutning á kistu til landsins og frá
landinu.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
útfararstjóri
Útfararstofa íslands - Suðurhllð 35
- 105 Reykjavík. Sími 581 3300 -
allan sólarhringinn.