Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 48
*
48 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tþaðt/tp/ ÞefA
•ÚAG/Í AD GAH<5A I
iTye/e Afssa
591 \þAb T/act V/fu'AÐHTeSA')
(5/6 OPPi ÞAP /fP STO/CÞU/A / í
3?
a|
P77 £22^ m 1T
•ccQJO
ThOefaðuOm Ai láH^
, 7Í/V)4H SEM é(£ SPA&Í
\V/■& / £> GAN6A FV/d/P
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
som iaíere a
LITTLE LATE,MA'AM..]
WE WALKED ALL
THE WAK T0
5CHOOLTHI5
M0RNIN6..
Afsakaðu kennari að við erum svo- Á móti vindinum...
lítið sein... við gengum alla leiðina í
Sfcrólann í morgun.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Yfirvöld og
hjólreiðar
Frá Birni Finnssyni:
Samkvæmt umferðarlögum eru
hjólreiðar hluti af umferðinni, þeim
er ætlaður staður meðal kraftmik-
illa bíla, en hafa heimild til nota af
gangbrautum. Svo er að sjá sem al-
mennt sé, af yfirvöldum, litið svo á
að reiðhjól séu skemmtitæki. Það
hvarflar vart að nokkrum í þeim
geira samfélagsins hvert heilbrigði
og hagi'æði er að slíku farartæki til
samgangna.
I hundruð ára ferðuðust Islend-
ingar fótgangandi um land sitt þótt
yfirstétt hvers tíma ætti hesta til
ferðalaga. Nú er svo komið að ekki
er gert ráð fyrir þeim ferðamáta
heldur, enda hvert umferðarmann-
virkið á fætur öðru hannað ein-
vörðungu fyrir bifreiðar. Ætla
mætti að fornum ferðamáta væri
ætlaður staður í samgöngukerfi
landsins, en svo er ekki. Reiðhjól-
um er hins vegar ætlaður staður
meðal bifreiða og því spyr maður
hvort yfirvöld beri ekki ábyrgð á
að skilja sundur þessa gjörólíku
ferðamáta. Lítt varinn hjólreiða-
maður hefur enga möguleika til að
fylgja hraða bifreiðanna. Undan-
tekning er, að heimild er fyrir hjól-
reiðamenn til að nota gangbrautir,
svo sem áður er getið, þekkjast
þær ekki utan þéttbýlis. Það getur
vel verið að samgönguráðherra
hvers tíma líti á reiðhjól sem tæki í
heilsuræktarstöðvar, en öðruvísi er
því farið. Umferðarmannvirki eru
nú send í umhverfismat, af hverju
ekki í mannlísfmat, kanna útblást-
ur og hávaðaáhrif, tilvonandi
hraða, samfarandi hættu fyrir hinn
gangandi mann og hversu ólífvænn
lífsmáti er á ferðinni? Annars má
sýna fram á að fólk er sá þáttur
umhverfis sem ætti að vera sá
stærsti, því ella erum við að þjóna
mosaþembum og grjótklumpum
sem eiai hluti af hinni eyðanlegu og
síbreytilegu náttúru. Þar eru vind-
ar og vatn, hiti og kuldi sífellt að
keppast við að eyða, mola og um-
breyta.
Hvar hafa yfirvöld og hönnuðir
samgöngumannvirkja sett fram
markmið sín í þessum efnum við
næstu þrjú stóru samgöngumann-
virki sem nú eru á döfinni, þ.e.a.s.
breikkun Breiðholtsbrautar og
Kópavogs, breikkun Vesturlands-
vegar frá Suðurlandsvegi að Víkur-
vegi og fyrirhugaða Sundabraut?
Það sem ég hef séð af skipulagi
þeirra framkvæmda eirn göngu-
brautir undir mannvirkin þvert á
stefnu gatnanna, rétt eins og gang-
andi og hjólandi eigi bara erindi
þvert á stefnu þessara gatna en
ekki með þeim.
Nei, yfirvöld hafa beinu, breiðu
og greiðfæru leiðirnar fyrir afl-
mikil farartæki. Bugður, sveigar,
brekkur, krókar og lykkjur eru
hlutskipti hinna er ganga og hjóla
rétt eins og það sé eingöngu tóm-
stundagaman. Gatnamót Skeiðar-
vogs og Miklubrautar eru þó gerð
með tiltölulega greiða umferð
þessara hópa í huga svo getið sé
um það sem vel er gert.
Umferðarlög segja okkur skýrt
að hjólreiðafólk eigi sinn stað í um-
ferðinni og því ber yfirvöldum
skylda til að gera því fólki það
kleift á hættulítinn hátt.
BJÖRN FINNSSON,
Krummahólum 13, R.
Sjálfhverf afstaða?
Frá Þór Jónssyni:
MARSHA Lorraine Daniel úr
Mosfellsbæ telur það merki um
sjálfhverfa afstöðu að Stöð 2 og
Sjónvarpið hafi tekið fram í frétt-
um um mannskæða skýstróka í
Bandaríkjunum að íslendingai- hafi
ekki beðið bana (Mbl. 7/5).
Islenskar fréttastofur flytja
fréttir fyrir Islendinga og þefr vilja
vita hvort landsmenn þeirra, ef tO
vill vinir og ættingjar sem búsettir
eru ytra, hafi sloppið við hamfar-
irnar. Þetta vita fréttamenn, sem
verða að svara fjölmörgum sím-
hringingum um afdrif Islendinga,
ef láist að geta þess í fréttum.
Það er gersamlega fráleitt að
telja að upplýsingar af þessu tagi
séu til þess fallnar að gera lítið úr
harmleiknum í Bandaríkjunum. Er
kannski hugsanlegt að slík við-
brögð beri vott um „sjálfhverfa af-
stöðu“ einhvers sem heitir Marsha
Loiraine Daniel? Og er hún ekki
bara ofur eðlileg?
ÞÓRJÓNSSON,
fréttamaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
OTTO vörulistinn
Ármula 17a - sfmi 588 1980JJ
^jsuÆKn
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.