Morgunblaðið - 19.06.1999, Side 18
18 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Þjóðhátíð í
góðu veðri
Egilsstaðir - Það viðraði vel til úti-
hátíðarhalda á Egilsstöðum 17.
júní. Dagskráin hófst reyndar að
kvöldi þess 16. með útidansleik í
Vémörk í Egilsstaðaskógi fyrir
unglinga í þokkalegu veðri. Á þjóð-
hátíðardaginn sjálfan hófst hátíða-
dagskráin með afmælisguðsþjón-
ustu í Egilsstaðakirkju en kirkjan
er 25 ára.
Skipulögð hátíðahöld fyrir Aust-
ur-Hérað voru að þessu sinni hald-
in í Lómatjarnargarðinum á Egils-
stöðum. Jón Guðmundsson flutti
hátíðarræðu og í hlutverki fjall-
konu var Gyða Guttormsdóttir.
Óperustúdíó Áusturlands sýndi at-
riði úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Söngvarar úr ýmsum áttum og í
margvíslegum hlutverkum komu
fram og sungu lög Ómars Ragnars-
sonar. Grímur sjóræningi og Toggi
tannálfur komu og leituðu að fjár-
sjóði með hjálp barna. Fjársjóður-
inn sem var poki fullur af karamell-
um fannst fyrir rest og nutu allir
góðs af. Gestir fengu sér svo þjóð-
hátíðarkaffi á kaffihúsum bæjarins.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
ÍBIJAR á Austur-Héraði héldu þjóðhátíðardaginn
hátíðlegan í góðu veðri.
OALVÍK
HUGFANGNIR áhorfendur horfa á trúðana Barböru og Úlfar.
Dagskrá þjóð-
hátíðardags í
íþróttahúsinu
Grindavík - Það var hryssings-
legt veðrið sem Grindvíkingar
fengu 17. júníþetta árið. Vegna
þess hve leiðinlegt veðrið var fór
dagskrá dagsins fram í íþrótta-
húsi Grindavíkur en kvölddag-
skráin fram í Festi. Einar Njáls-
son, bæjarstjóri, flutti sína fyrstu
17. júní ræðu fyrir Grindvíkinga
og kom fram í máli hans að bjart
væri framundan hjá Grindvíking-
um á öllum sviðum. Annars hófst
dagurinn með hefðbundnum
hætti þ.e. fánar dregnir að húni,
hátíðarmessa, en karamelluregn-
ið og fallhlífarstökkið féll niður
sakir veðurs. Þá var heldur fá-
mennt í skrúðgöngunni.
Skemmtidagskrá var síðan um
daginn í íþróttahúsinu og um
kvöldið meiri skemmtun og dans-
leikur í Festi.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
SIGRIÐUR Anna Ólafsdóttir
flytur ávarp Ijallkonunnar.
Ljósmynd/Eldsmiðurinn
ÞÓRA Þorgilsdóttir var fjall-
kona Homfirðinga að þessu
sinni.
Ung
fjallkona
Höfn - Þjóðhátíðardagurinn á
Höfn byrjaði með messu í Hafn-
arkirkju. Eftir hádegi var skrúð-
ganga frá tjaldstæði að hátíðar-
svæði við Heppuskóla, vegna
óhagstæðs veðurs fóru hátíða-
höldin fram inni í iþróttahúsinu.
Nýr bæjarsljóri Hornfirðinga,
Garðar Jónsson, flutti hátíðar-
ræðu og 16 ára stúlka, Þóra
Þorgilsdóttir, var fjallkonan.
Margs konar skemmtiatriði
voru fyrir börnin, m.a. hægt að
fara á hestbak, í bátasiglingar,
tertukast og ýmislegt fleira.
Kvennakór HornaQarðar sá um
hátiðardagskrána að þessu sinni,
þær kvennakórskonur voru með
söngvarakeppni nokkrum dögum
áður. Fjórar 12 ára stúlkur sem
komust í úrslit kepptu svo um tit-
ilinn besti söngvari 17. júní 1999,
Helga Sara Henrysdóttir frá
Hafnarfirði bar sigur úr býtum.
Um kvöldið var svo haldinn úti-
dansleikur fyrir alla fjölskylduna
frá kl. 20 til 22.
Götuleikhús á
Djúpavogi
Djúpavogi. Morgunblaðið.
STOFNAÐ hefur verið götuleikhús
í Neskaupstað og verða leikþættir
sýndir í tengslum við 80 ára afmæli
ungmennafélagsins Neista og 410
ára verslunarafmæli Djúpavogs,
sem haldið verður dagana 17.-20.
júní.
Það var Rannveig Þórhallsdóttir
sem hafði veg og vanda af að hleypa
götuleikhúsinu af stokkunum. Iris
Lind Sævarsdóttir sér um stjórnun-
ina ásamt Rannveigu. Að sögn
Rannveigar eru það 15 ungmenni úr
6.-9. bekk sem hafa vinnu af leik-
húsinu. „Við fengum leyfi til að
greiða þeim laun eins og í unglinga-
vinnunni. Það er um tveggja vikna
vinna sem þau hafa út úr þessu.
Einnig fengum við styrk frá menn-
ingarsjóði félagsheimila. Þetta eru
þrír leikþættir, við létum þau fyrst
vinna hugmyndavinnuna í tölvu, og
er efni leikþáttanna tengt sögu
staðarins," segir Rannveig.
Morgunblaðið/Hafdís
GAMLA kirkjan er höfuðstöðvar ungmenna götuleikhússins.
Sjóstangveiði á
10 ára afmælismóti
Neskaupstað - TÍU ára afmælismót
Sjóstangveiðifélags Neskaupstaðar
var haldið um sjómannadagshelg-
ina.
34 keppendur tóku þátt í mótinu
og róið var á ellefu bátum og er
þetta fjölmennasta mót sem haldið
hefur verið hér í Neskaupstað til
þessa.
Veður var gott báða keppnisdag-
ana og afli mjög góður eða tæp 14
tonn og var uppistaðan í aflanum
þorskur.
Aflahæsta sveit karla var sveit
Pálma Þórs Stefánssonar, Nes-
kaupstað, með 1.976 kg. Aflahæsta
kvenmannasveitin var sveit Sigríðar
Rögnvaldsdóttur, Siglufirði, með
1.742 kg. Aflahæsti karl var Jó-
hannes Hreggviðsson, Akranesi,
með 598 kg og hjá konunum var
Sigríður Rögnvaldsdóttir, Siglu-
firði, með mestan afla eða 550 kg.
Stærsta fiskinn sem veiddist á mót-
inu fékk Ragnhildur Bjamadóttir,
Akranesi, en það var þorskur sem
vó 9,8 kg. Formaður Sjóstangveiði-
félags Neskaupstaðar er Matthías
Sveinsson.
Morgunblaðið/Ágúst
34 KEPPENDUR tóku þátt í Sjóstangaveiðimóti Neskaupstaðar.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Öslað
yfir ána
Vaðbrekka, Jökuldal.
Vorverkum fylgja ýmsir snún-
ingar, meðal annars að sullast
yfir ána Hrafnkelu með
heyrúllur fyrir lambféð.
Myndin er tekin þegar
bændumir á Aðalbóli í Hrafn-
kelsdal Gísli og Sveinn Páls-
synir þurftu í vorleysingunum
að bregða sér yfir Hrafnkelu
með heyrúllur á vagni aftan í
traktornum handa lambrollun-
um austan ár.