Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 1
142. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Öttast blá- eygan Dalai Lama Peking. The Daily Telegfraph. RÁÐGJAFI kínversku ríkis- stjórnarinnar sagði í samtali við South China Morning Post í Hong Kong að kínversk yfir- völd myndu ekki viðurkenna stöðu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbetbúa, er fæðast myndi utan Kína. Dalai Lama, sem hefur verið í útlegð á Indlandi eftir mislukk- aða uppreisn gegn ógnarstjórn Kínverja í Tíbet árið 1959, lét nýlega þau ummæli falla að arf- taki hans muni fæðast í „hinum frjálsa heimi“. „Þar sem Dalai Lama fjór- tándi hefur verið í útlegð frá Tí- bet í 40 ár er óttast að eftir and- lát hans muni næsti Dalai Lama verða vestrænn drengur, glókollur með blá augu,“ sagði Tao Changsong, ráðgjafi kin- versku stjórnarinnar í málefn- um Tíbet. Tao sagði það algjört skilyrði fyrir því að kínversk stjórnvöld viðurkenndu tilvist hins nýja Dalai Lama að hann „fæddist í Tíbet í Kína og yrði föðurlandsvinur sem hefði ekki í hyggju að tvístra landinu." BRÚÐHJÓNIN með New York-höfn í baksýn. Murdoch kvænist á ný ÁSTRALSKI fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch kvæntist á föstudagskvöld sjónvarpskon- unni Wendy Deng við látlausa athöfn um borð í snekkju Mur- dochs í New York-höfn. 82 gest- ir voru viðstaddir um borð í snekkjunni „Morning Glory“ þegar dómari frá New York gaf þau Murdoch, sem er 68 ára og einn ríkasti maður heims, og Deng, sem er 31 árs, saman. Skilnaður Murdochs frá eig- inkonunni Anne, sem hann var kvæntur í 32 ár, gekk í gildi hinn 8. júní sl. Golf í mið- Fleiri rússneskir friðargæzluliðar lenda í Kosovo-héraði nætursól METÞÁTTTAKA var á Arctic Open, fjögurra daga golfmóti sem fram fór í blíðskaparveðri á Akureyri í vikunni. Leikið er á mótinu frá eftirmiðdegi þar til morgna tekur næsta dag. Um 180 keppendur, víðs vegar að úr heiminum, léku golf í skini miðnætursólar á Arctic Open. í hópi þeirra mátti meðal annars finna fólk frá Japan og S-Afríku. Veðrið aðfaranótt föstudags var dýrðlegt eins og merkja má af myndinni sem tekin var af kepp- endum á mótinu; blankalogn, þurrt og bjart. Búast við árekstr- um við skæruliða Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Horta kemur til Indó- nesíu eftir 23 ár í útlegð Djakarta. AP. JOSÉ Ramos-Horta, einn helzti leiðtogi baráttunnar fyrir sjálfstæði Austur- Tímor og friðarverðlauna- hafi Nóbels, kom í gær til Djakarta, höfuðborgar Indónesíu, til viðræðna við þarlend stjórnvöld um fram- tíð heimalands síns. Horta hefur verið útlægur frá Austur-Tímor frá því indónesíski herinn hertók þessa fyrrverandi nýlendu Portúgals árið 1975. Ali Alatas, utanríkisráðherra Indónesíu, sagði að ríkisstjórnin myndi hugsanlega leyfa Horta að heimsækja Austur-Tímor, en að hann mætti ekki reka áróður fyrir sjálfstæði. Horta sagðist myndu hKta þeim fyrirmæl- um, enda þyrfti hann ekki á því að halda að reka áróður. „Ég er mjög ánægður með þær lýðræðisumbætur sem átt hafa sér stað í Indónesíu,“ sagði hann. Horta mun verða viðstadd- ur friðarviðræður milli ólíkra fylkinga á Austur-Tímor áður en kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst um hvort stefna eigi að fullu sjálfstæði eða sjálfstjórn innan Indónesíu. Hörð átök hafa verið milli þeirra eftir að stjórnvöld í Djakarta lýstu því yfir í janúar sl. að þau myndu leyfa landsmönnum að fá sjálfstæði, ef þeir höfnuðu sjálfstjóm. Ramos-Horta Pristína, Bcrlín, Moskvu. AP, Reuters, AFP. SVEIT rússneskra sérfræðinga og 21 fallhlífarhermaður komu til Kosovo um miðjan dag í gær, í fyrstu erlendu flugvélinni sem lenti á Slatina-flug- velli við Pristina eftir að friði var komið á í Kosovo fyrir hálfum mánuði. Háttsettur rússneskur hershöfðingi sagði í gær að búast mætti við því að samskipti rússneskra friðargæzlusveita í Kosovo og skæruliða Kosovo-Al- bana yrðu erfið. Hann sagði að Rússar myndu verjast af hörku, réðust skæruliðar Frelsishers Kosovo gegn þeim. Samtals hyggjast Rússar senda 3.600 manna gæzlulið til Kosovo, en ákvörðunin þar að lútandi var sam- þykkt í efri deild rússneska þingsins á föstudag og Borís Jeltsín Rúss- landsforseti undirritaði hana í gær- morgun. Fyrstu 200 rússnesku her- mennirnir komu frá Bosníu og hertóku Slatina-flugvöll 12. júní sl. Þeir urðu þar með nokkram klukku- stundum fyrri til að taka sér stöðu í Kosovo en hermenn NATO, sem héldu inn í héraðið frá Makedóníu. Rússneska herflugvélin sem lenti á Slatina-flugvelli í gær var sú fyrsta af áætluðum lendingum tólf flugvéla - sex frá Rússlandi og sex frá NATO - sem von er á næstu tíu daga. Munu flugvélamar flytja tæknimenn og búnað til að gera við flugstjórnar- kerfi flugvallarins, en fyrst eftir að þeim viðgerðum er lokið geta venju- legar fiutningavélar lent þar til að flytja í stórum stíl hjálpargögn og friðargæzluliða til svæðisins. Varaliðar í serbneska hemum, sem frá því á fimmtudag höfðu lokað vegum til bæjarins Kjraljevo í Mið- Serbíu í mótmælaskyni við að hafa ekki fengið mála sinn greiddan, hættu aðgerðunum í gær eftir að gengið hafði verið að kröfum þeirra. Fyrst höfðu þeir fengið þau svör að herinn ætti enga peninga til að borga þeim. Engar skuldaendurgreiðslur Júgóslavnesk stjómvöld hafa ekki í hyggju að endurgreiða erlendar skuldir ríkisins, en þær era taldar nema um tólf miiljörðum bandaríkja- dollara, eða tæpum 900 milljörðum króna. Vojislav Seselj, fráfarandi varaforsætisráðherra Serbíu, segir í viðtali við þýzka vikuritið Der Spi- egel að skaðinn sem ioftárásir Atl- antshafsbandalagsins hafi valdið verði dreginn frá skuldunum. Seselj, sem er ákafur þjóðernis- sinni, sagði Serba ekki myndu „selja sig pólitískt“ fyrir „fáeina silfurpen- inga“. Hann lýsti stuðningi við að kosningar verði haldnar sem fyrst, en mótmælti því að Slobodan Milos- evic, forseti Júgóslavíu, yrði látinn afsala sér embætti. Seselj sagði að það myndi valda glundroða og óstöð- ugleika. Seselj sagði að fimm milljóna doll- ara verðlaun, sem Bandaríkjamenn hafa heitið fyrir handtöku Milosevics og annarra leiðtoga Júgóslavíu, sem ákærðir hafa verið iyrir stríðsglæpi, myndu verða til þess að treysta stöðu Milosevics. „Vesturlönd skilja ekki serbnesku þjóðarsálina," sagði hann. SAMVISKA hagfræðinnar BJÓÐUM ÞEKKINGU OG REYNSLU 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.