Morgunblaðið - 27.06.1999, Side 4
4 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 21/6 - 27/6
►ÞÓRARINN V. Þórarinson
var ráðinn forstjóri Lands-
síma íslands f stað Guðmund-
ar Björnssonar sem látið hef-
ur af störfum forstjóra. Þá
var Friðrik Pálsson, fyn-ver-
andi forstjóri SH kjörinn
stjómarformaður Landssím-
ans. Breytingar þessar eru
liður í umfangsmiklum
breytingum sem gerðar hafa
verið á skipuriti fyrirtœkis-
ins.
►COLUMBIA Ventures, sem
á og rekur álverksmiðjuna
Norðurál í Hvalfirði hefur
lýst yfir áhuga á að reisa 90
þúsund tonna álver á Reyð-
arfirði með möguleika á
stækkun, í formlegu erindi
til iðnaðarráðuneytisins.
Stjómarformaður Columbia
Ventures segir fyrirtækið
geta verið tilbúið með álver-
ið þegar virkjun sem veitir
því orku verður tilbúin og
vonast hann til að það geti
orðið árið 2003.
►PRESTASTEFNA var
haldin á Kirkjubæjarklaustri
í vikunni og var henni slitið
síðdegis á fimmtudag. Um-
ræða um jafnréttismál og
fermingarfræðslu vom ofar-
lega á baugi í umræðum á
ráðstefnunni.
Forsætisráðherra
Japans í heimsókn
KEIZO Obuchi, forsætisráðherra
Japans, kom í opinbera heimsókn til
landsins á mánudag. Obuchi átti fund
með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í
Höfða og ræddu þeir m.a. um undir-
búning að stofnun íslensks sendiráðs í
Japan og opnun upplýsingaskrifstofu
Japana á íslandi. Þá funduðu forsætis-
ráðherra Norðurlandanna fimm með
Obuchi á Hótel Sögu, en þar ítrekuðu
þeir stuðning sinn við að Japan og
Þýskaland hljóti fast sæti í Oryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Þá kom á fundin-
um fram ríkur vilji til að starfa saman
að ýmsum verkefnum á nýju árþúsundi.
Obuchi hélt af landi brott á miðviku-
dag.
►STJÓRN Landsvirkjunar
ákvað að ganga til samninga
við íslenska aðalverktaka hf.
um byggingu Vatnsfellsvirkj-
unar og Amarfell ehf. um
gröft frárennslisskurðar.
Kínverska fyrirtækið China
National Water Resources
and Hydropower Engineer-
ing Corporation átti lægsta
tilboðið í alla verkþætti með
afslætti og telja forsvars-
menn fyrirtækisins að Lands-
virlgun hafi staðið óeðlilega
að vali á verktaka.
Forsætisráð-
herrar Norðurland-
anna funda
FORSÆTISRÁÐHERRAR Norður-
landanna, sem funduðu í Reykjavík á
mánudag, voru sammála um það að
samvinna Norðurlandanna væri æ mik-
ilvægari eftir því sem Evrópusamstarf-
ið yrði nánara. Auk forsætisráherra
Norðurlandanna vom fjármálaráðherr-
ar landanna einnig staddir hér á landi,
en þeir funduðu á Egilsstöðum á mið-
vikudag.
Óeirðir í Kosovo er
flóttamenn snúa heim
KFOR-friðargæzlusveitirnar, sem
héldu inn í Kosovo fyrir hálfum mánuði,
hafa mátt hafa sig allar við í vikunni til
að hafa hemil á ofbeldi í héraðinu. Að
minnsta kosti fjórtán íbúar Pristina,
höfuðstaðar Kosovo, biðu bana á
fimmtudag og föstudag í mestu óeirðum
sem blossað hafa upp í héraðinu frá því
hersveitir NATO tóku sér þar stöðu.
Wesley Clark, yfirmaður Evrópuherafla
NATO, sagði að senda þyrfti alþjóðleg-
ar lögreglusveitir til Kosovo sem fyrst
til að koma á lögum og reglu.
Ekki hefur komið á óvart að ofbeldi
skyldi blossa upp eftir því sem fleiri
flóttamenn snúa aftur til héraðsins. Þeir
hafa fyllzt reiði vegna aðkomunnar,
eyðilagðra húsa, eitraðra vatnsbóla og
hættulegra jarðsprengjusvæða, auk
þess sem margir þeirra misstu ættingja
í þjóðemishreinsunum Serba. Um
50.000 flóttamenn fóru aftur til Kosovo
frá nágrannalöndunum á fimmtudag og
var það mesti straumur flóttamanna í
héraðið á einum degi til þessa. Alls hafa
um 300.000 manns snúið aftur og um
hálf milljón Kosovo-búa er enn í ná-
grannaríkjunum eða á vergangi í hérað-
inu. Bill Clinton Bandaríkjaforseti
heimsótti flóttamannabúðir í Makedón-
íu á þriðjudag. Hann hvatti flóttafólkið
til að sýna þeim serbnesku óbreyttu
borgurum sem enn væru í Kosovo sátt-
fýsi í stað þess að leita hefnda fyrir þær
hörmungar sem dunið hafa yfir Kosovo-
Albana af völdum serbneskra hermanna
og lögreglumanna.
Bandarísk stjórnvöld hétu á fimmtu-
dag allt að fimm milljóna dollara verð-
launum hverjum þeim sem gæti veitt
upplýsingar er leiddu til handtöku
meintra stríðsglæpamanna í Júgóslavíu,
þeirra á meðal Slobodan Milosevic for-
seta. Leiðtogar NATO-ríkjanna hafa
sagt að útilokað sé að Júgóslavíu verði
veitt efnahagsaðstoð, umfram neyðar-
aðstoð í formi matvæla, lyfja og raf-
magns, svo lengi sem Milosevic sé enn
við völd.
► ÍSRAELAR sendu skrið-
dreka í átt að landamærun-
um að Líbanon á föstudag
eftir að hafa gert harðar
loftárásir á landið til að
hefna flugskeytaárásar ís-
lömsku hreyfíngarinnar Hiz-
bollah á norðurhluta ísraels
á fimmtudagskvöld.
► TONY Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og Bertie
Ahern, forsætisráðherra ír-
lands, fóru til Belfast á
Norður-írlandi á föstudag í
því skyni að eiga viðræður
við leiðtoga stríðandi fylk-
inga um lausn deilna sem
ógna framtíð friðarumleit-
ana í héraðinu. Mikil svart-
sýni ríkir á N-Irlandi um að
takist að leysa deilurnar far-
sællega og við bætist að nú
styttist óðum í hápunkt
„göngutíðar" Óraníuregl-
unnar.
► KÚRDALEIÐTOGINN
Abdulla Ocalan hefur varað
stjórnvöld í Tyrklandi við
miklu blóðbaði verði hann
liflátinn. Réttarhöldin yfir
Öcalan héldu áfram á mið-
vikudag eftir tveggja vikna
hlé. Hann hélt lokaræðu sína
úr skotheldu glerbúri á með-
an á réttarhöldunum stóð.
Drap Öcalan þar, í fyrsta
sinn frá því réttarhöldin
hófust, á baráttumál Kúrda.
► SPENNAN í samskiptum
Indlands og Pakistans magn-
aðist enn á þriðjudag, er ind-
verski herinn herti árásir
sínar á skæruliða á 4.500 m
háum fjallgarði á yfirráða-
svæði Indverja í Kasmír og
Pakistanar vöruðu við því að
allsheijarstríð gæti blossað
upp á milli ríkjanna.
Opnar Landsvirkjun leið
inn á fjarskiptamarkað
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi í morgun, að tillögu Finns Ing-
ólfssonar iðnaðarráðherra, að beita
sér fyrir því að lögum um Lands-
virkjun verði breytt þannig að fyrir-
tækið geti tekið þátt í útboði vegna
gerðar Tetra-fjarskiptakerfis fyrir
neyðarþjónustu, sem ríkislögreglu-
stjóri og slökkviliðið í Reykjavík
hyggjast koma upp á suðvesturhorn-
inu 1. júní árið 2000. Stefnt er að því
að kerifið nái til alls landsins innan
fárra ára og þjónusti einnig einka-
fyrirtæki.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
Landsvirkjun ætli í þessu sambandi
að nýta fjarskiptakerfí sem er fyrir
hendi til að stýra orkukerfi fyrirtæk-
isins. Flutningsgeta þess er mun
meiri en fyrirtækið þarf á að halda.
Útboð á uppsetningu og rekstri
Tetra-fjarskiptakerfis var auglýst 6.
júní sl. og verða tilboðin opnuð 29.
júlí nk. „Við höfum sameiginlega,
með atbeina Ríkiskaupa, • boðið út
uppsetningu Tetra-fjarskiptakerfis á
suðvesturhorninu,“ segir Jón Bjart-
mars, yfirlögregluþjónn hjá embætti
ríkislögreglustjóra. „Það er fyrsti
hluti, en við sjáum fyrir okkur að
fleiri opinberir aðilar og jafnvel
einkaaðilar komi að þessu og þetta
verði komið út um allt Island að lok-
um.“
Tetra er staðall fyrir fjarskipta-
kerfi með stafrænar upplýsingar,
hvort sem er hljóð, mynd eða texta.
„Það sem við bjóðum út er að ein-
hver taki að sér að setja upp og reka
þetta kerfi og við greiðum þjónustu-
gjald. Síðan munum við sjálfir kaupa
okkur endabúnað, hvort sem er bíl-
stöðvar eða handstöðvar."
Jón vill ekki gefa upp áætlaðan
kostnað við uppsetningu og rekstur
kerfisins, en segir að hann sé hár.
„Kostnaðurinn fer töluvert eftir því
hvað menn eru vel settir fyrir. Síma-
fyrirtæki og Landsvirkjun eru aðilar
sem eru með undirbyggingu, þannig
að það er sennilega ekki svo mikið
mál fyrir þá að koma upp svona kerfi
til viðbótar.
Þetta býður upp á gjörbyltingu í
fjarskiptamöguleikum, bæði hvað
varðar neyðarþjónustuaðila og
margvíslega aðra starfsemi, til dæm-
is leigubíla- og sendibílastöðvar.
Þetta er raunverulega samsvarandi
GSM-kerfi nema hvað þetta hefur til
viðbótai- talstöðvamöguleika. Dags
daglega stai-fa lögreglan, slökkvilið
og aðrir slíkir aðilar aðskilið, en með
þessu kerfi er á mjög einfaldan hátt
hægt að opna og breyta notenda-
hópnum og þeh- sem væru að starfa
saman á slysavettvangi gætu komist
í fjarskiptasamband,“ segir Jón. Jón
nefnir einnig að til dæmis sé hægt að
flytja upplýsingar um staðsetningu
lögreglubíla inn á kortagrunn með
kerfinu.
Hann kveðst ekki sjá fyrir sér að
kerfíð komi í stað GSM-kerfis fyrir
almenning. „Það hefur verið miðað
við að þetta sé notað af opinberum
aðilum, neyðarþjónustuaðilum og
öðrum sem eru virkjaðir við al-
mannavarnir, auk einkaaðila sem
þurfa á talstöðvakerfi að halda.“
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Caledonian Star siglir inn Eskifjörð. Minn-
ismerki um drukknaða sjómenn í forgrunni.
Tvö skemmtiferðaskip
til Eskifjarðar
SKEMMTIFERÐASKIP kom til
Eskifjarðar nýlega og annað skip
er væntanlegt þangað í dag,
sunnudag.
Skipið, sem kom til Eskifjarðar
fyrir viku, mun vera fyrsta
skemmtiferðaskipið sem þangað
kemur. Skipið heitir Caledonian
Star, og er skráð í Nassau. Alls
eru 70 manns í áhöfn, yfirmenn
eru sænskir, en undirmenn frá
Filippseyjum. Farþegarnir hund-
rað voru flestir frá Kanada og
var meðalaldur þeirra 74 ár.
Áætlað hafði verið að skipið
færi til Hornafjarðar en það var
of seint fyrir til að ná flóðinu þar
og því var stefnan tekin til Eski-
fjarðar. Caledonian Star var áður
stór skuttogari, en skipinu var
breytt í skemmtiferðaskip fyrir
nokkrum árum og eru vistarver-
ur og salarkynni hin glæsileg-
ustu.
Annað skemmtiferðaskip, Ex-
plorer, er væntanlegt til Eski-
fjarðar í dag og er svipaður fjöldi
farþega um borð. Explorer er á
vegum Ferðaskrifstofunnar
Nonna á Akureyri, en ferð
Caledonian Star var skipulögð í
samvinnu við Eimskip.
Ráðstefna
um vík-
ingaferðir
til vestur-
heims
FJÖLFAGLEG ráðstefna um
landnám norrænna manna á
Nýfundnalandi í Kanada fyrir
eitt þúsund árum verður haldin
í St. John’s og L’Anse aux Mea-
dows á Nýfundnalandi dagana
16. til 24. september á næsta
ári.
Meðal frummælenda á ráð-
stefnunni verða Magnus Magn-
usson, Benedicte Ingstad og
Birgitta Wallace. Heiðursgest-
ur verður Helge Ingstad, sem
ásamt konu sinni, Anne Stine,
hafði frumkvæði að fornleifa-
uppgreftri í L’Anse aux Mea-
dows, á nyrsta odda Nýfundna-
lands, þar sem var byggð nor-
rænna manna fyrir þúsund ár-
um.
Það er Memorial-háskóli í St.
John’s, sem stendur að ráð-
stefnunni, ásamt Sögufélagi
Nýfundnalands og Labrador og
Þróunarfélagi Labradorsunds.
Ráðstefnan verður tvískipt.
Fyrri hlutinn er fræðilegur og
fer fram í St. John’s 16. og 17.
september. Verður þar fjallað
um vesturferðir víkinga til Is-
lands, Bretlandseyja og Græn-
lands, sögulegt samhengi og
fornsögurnar.
Átjánda til tuttugasta sept-
ember flyst ráðstefnan til
L’Anse aux Meadows og La-
bradorsunds, þar sem fræði-
menn og leikmenn fjalla um
menningu víkinga, samfélag og
landnám, m.a. konur í fornnor-
rænu samfélagi, tengsl víkinga
og íra og víkingafornminjar í
N orður-Ameríku.
í Labradorsundi, sem er
syðsti hluti Labradorskagans,
verður fjallað um landkönnun,
siglingatækni og menningar-
samskipti á ferðum fornnor-
rænna manna til Norður-Am-
eríku, m.a. samskipti víkinga
og n-amerískra frumbyggja og
deilur um Vínlandskortið.
Skipuleggjendur ráðstefn-
unnar hafa sent út fundarboð
og ber að skila tillögum að fyr-
irlestrum fyrir 15. september
nk. Nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna verða fáanlegar á vef-
síðunni www.vikingsymposi-
um.nf.ca
Nauðsynleg
áhugafólki
um garðrækt
• Jafnt fyrir
byrjendur sem vana
garðyrkjumenn.
• 550 blaðsíður í
stóru broti.
• 3.000 litmyndir og
skýringarteikningar.
Sannkölluð affræði
garðeigandans
4>
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Siðumúla 7 • Sfmi 510 2500