Morgunblaðið - 27.06.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 7
Mosfellsbær er vaxandi bær með blómlegt mannlíf og gróskumikið
atvinnulíf. Mosfellsbær er vel staðsettur bær til atvinnurekstrar hvað
varðar samgöngur. Mosfellsbær er á stærsta markaðssvæði landsins og
með góða tengingu við landsbyggðina. Mosfellsbær hefur ákveðið að vinna
að Staðardagskrá 21 en samkvæmt henni skal tengja aðgerðir í
umhverfismálum við aðra starfsemi í bænum. Nýlokið er stefhumótun í
atvinnu- og ferðamálum í bæjarfélaginu. Nú stendur yfir úthlutun á
byggingarlóðum fyrir iðnaðar-, verslunar- og þjónustustarfsemi á fimm
stöðum í bænum. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst næstkomandi.
1. Lækjarhlíð - 2 lóðir
Lóðirnar eru hugsaðar fyrir verslunar-
og þjónustustarfsemi í íbúðarbyggð.
Lóðimar em við Lækjarhlíð sem tengist
Baugshlíð en hún er stofnbraut inn í
íbúðabyggðina við Vesturlandsveg.
í þjónustukjarnanum verða einnig
grannskóli, leikskóli og íbúðir aldraðra.
Eingöngu er gert ráð fyrir að lóðir þessar
fari rmdir verslunar- og þjónustustarfsemi
sem hentar í íbúðabyggð. Lóðimar era
2200m2 og 4200m2 að stærð. Á næstu
áram er gert ráð fyrir að íbúðabyggð
muni aukast mest í nágrenni við þessar
athafnalóðir.
2. Iðnaðarhverfi við Flugumýri
og Grænumýri - 5 lóðir
Lóðir þessar henta vel fyrir margskonar
iðnaðarstarfsemi. Svæðið er sunnan við
Lágafell sbr. kort. Um er að ræða 5 lóðir
á bilinu 2000m2 - 4200m2 að stærð. í
hverfinu eru nú þegar vélsmiðjur, nokkur
bifreiða- og trésmíðaverkstæði en auk
þess ýmis önnur athafnastarfsemi.
3. Álafosskvos
Lóð þessi er hugsuð fyrir lista- og/eða
þjónustustarfsemi. Um er að ræða eina
lóð 258m2 fyrir 72m2 byggingu.
4. Miðbæjarsvæði - 6 lóðir
Lóðir þessar eru hugsaðar fyrir
verslunar- og þjónustustarfsemi, milli
gamla og nýja Vesturlandsvegar sbr.
kort. Um er að ræða 6 lóðir á bilinu
1970m2-3380m2 að stærð. Lóðarsvæði
þessi era á sléttlendi, þau henta vel fyrir
þjónustufyrirtæki svo sem verslun eða
fyrirtæki í hátækni eða hugbúnaðar-
geiranum. Nú þegar era ýmis verslunar-
og þjónustufyrirtæki í nágrenninu ásamt
nýbyggðri verslunarmiðstöð.
5. Völuteigur - 4 lóðir
Lóðir þessar era hugsaðar fyrir iðnaðar-
og þjónustustarfsemi. Lóðirnar eru
norðan við Hafravatnsveg sem í
framtíðinni mun tengjast Suðurlandsvegi.
Gert er ráð fyrir blandaðri iðnaðar-,
verslunar- og þjónustustarfsemi á
svæðinu. Um er að ræða 5 lóðir á bilinu
3980m2-5470m2Dað stærð. Lóðasvæði
þessi eru á sléttlendi þar sem jarð-
vegsdýpi er lítið og hentar landið einkar
vel til bygginga. Svæðið hentar vel fyrir
þrifalega athafnastarfsemi svo sem við
matvælastarfsemi, heildsölur o.fl.
Mosfellsbær
Góður staður til atvinnurekstrar- nær en þú heidur
Þverholti 2, 270 Mosfellsbær • Sími: 525 6700, • Fax: 525-6729 • Netfang: ker@mosfellsbaer.is • Heimasíða: http//www.mosfellsbaer.is