Morgunblaðið - 27.06.1999, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BJÓÐUM ÞEKKINGU
OGREYNSLU
mssapn/ammiF
Á SUNIMUDEGI
► Jón Örn Guðbjartsson fæddist 8. júní 1962 í Reykjavík. Hann
nam íslensku og bókmenntir við Háskóla fslands og lauk þaðan
prófi 1985. Eftir nám starfaði Jón Örn fyrst sem blaðamaður á
DV og síðar sem frétta- og dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 og
Bylgjunni. Árið 1993 tók Jón Örn við starfí markaðsstjóra hjá
hugbúnaðarfélaginu Streng en þremur árum síðar tók hann
þátt í að stofna nýtt hugbúnaðarfyrirtæki, Navis h.f., sem síðar
var sameinað hugbúnaðarfyrirtækinu Landsteinum. Fram-
kvæmdastjóri Landsteina er Aðalsteinn Valdimarsson. Jón Örn
Guðbjartsson starfar nú sem markaðsstjóri hjá Landsteinum.
Hann á tvær dætur, Kristínu Lilju og Hildi Yr. Sambýliskona
Jóns Arnar er Rut Gunnarsdóttir laganemi.
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
ugbúnaðarfyrirtæki hafa
verið mikið í umræðu að
undanfömu vegna mikils
uppgangs þeirra í ís-
lensku atvinnulífi. Landsteinar er
eitt þessara fyrirtækja. „Fyrirtæk-
ið Landsteinar var stofnað árið
1995 af nokkrum ungum mönnum
með það fyrir augum að nýta sér-
þekkingu íslenskra aðila á við-
skiptahugbúnaðinum Navision og
uppfylla ákveðna þörf á markaðin-
um varðandi sérlausnir og uppsetn-
ingar fyrir alþjóðlega viðskiptavini.
Strax á fyrsta starfsárinu hófst
vinna að þeim þremur meginþátt-
um sem fyrirtækið byggir á í dag,“
sagði Jón Öm Guðbjartsson mark-
aðsstjóri hjá Landsteinum í viðtali
við blaðamann Morgunblaðsins.
Þessa þrjá þætti kvað hann vera að
smíða nýjar lausnir m.a. fyrir versl-
anakeðjur, stofnun sölu- og þjón-
ustufyrirtækja og miðlun sérfræði-
ráðgjafar til dreifingar- og söluaðila
Navision út um allan heim.
„Fyrsta sölu- og þjónustufyrir-
tækið var opnað í London í
Englandi. Þegar af stað var farið
töldu menn að þeir hefðu í sjálfu
sér vitneskju um flest það sem ætti
að gera til að skapa fyrirtækinu
kjölfestu nema hvað nafnið á félag-
ið vantaði tilfinnanlega," sagði Jón
ennfremur. „Nafnið Landsteinar
vitraðist einum stofnendanna I
draumi og hefur þetta alíslenska
nafn reynst félaginu afskaplega vel
þar sem það hefur fallið ljómandi
vel að öllum þeim tungumálum þar
sem félagið hefur starfsemi, en
Landsteinar reka sölu- og þjón-
ustufyrirtæki í Bretlandi, Dan-
mörku, á Jersey og auðvitað á ís-
landi. Síðan eram við með þróunar-
fyrirtækið NaviPlus hér heima og
einnig í Þýskalandi,“ sagði Jón Öm.
„Landsteinar sérhæfa sig í sölu,
uppsetningu, aðlögun og ráðgjöf á
Navision-viðskiptakerfinu sem
framleitt er af Navision Software
a/s í Danmörku. Navision er við-
skiptakerfi sem er selt út um allan
heim og það kom fyrst á markað í
Danmörku 1988. Navision er nú eitt
vinsælasta viðskiptakerfið í Evrópu
en ísland er fyrsti útflutnings-
markaður þess. Navision er sveigj-
anlegur hugbúnaður sem heldur ut-
an um helstu þætti í starfsemi fyr-
irtækja, svo sem birgðahald, starfs-
mannahald, fjárhagsumsvif og inn-
kaup og sölu, hvort sem um er að
ræða vöra eða þjónustu. Kerfinu
fylgir þróunarumhverfi sem Land-
steinar hafa hagnýtt sér til að laga
kerfið að þörfum einstakra fyrir-
tækja eða hreinlega til að mynda
nýjar lausnir frá granni eins og Na-
viPlus hefur gert.“
Starfsemi Landsteina þríþætt
- En hvað bjóða Landsteinar
umfram viðskiptahugbúnaðinn?
„Það er fyrst og fremst mikil
reynsla og þekking á hugbúnaðin-
um, en þetta tvennt hefur fært okk-
ur ákveðna virðingu innan Na-
visions-geirans. í raun má segja að
starfsemi Landsteina sé þríþætt, í
fyrsta lagi rekum við sölu-,_ þjón-
ustu- og ráðgjafafyrirtæki. í öðru
lagi rekum við þróunarfélag og í
þriðja lagi höfum við myndað net
samstarfsaðila undir nafni Land-
steina, sem vinna saman að því að
dreifa sérfræðiþekkingu um allan
heim. Dreifingarkerfi Navision
Software a/s er þannig háttað að
fyrirtækið hefur umboðsaðila í
hverju landi og síðan starfa sölu- og
þjónustuaðilar í náinni samvinnu
við umboðsaðila. Landsteinar hafa
fylgt þessari tilhögun Navision
Software og stofnað sölu- og þjón-
ustuaðila í flestum helstu markaðs-
löndum Navision. Þetta höfum við
gert til að sækja fram á ólíkum
mörkuðum en ekki síður til að auð-
velda okkur að þjóna alþjóðlegum
viðskiptavinum. Til að styrkja þá
stöðu okkar enn frekar mynduðum
við tengslin við önnur sölu- og þjón-
ustufyrirtæki sem ekki era eignar-
lega tengd Landsteinum. Með þess-
um fyrirtækjum myndum við net
sem við köllum Landsteinar
Network og í því era nú um tuttugu
fyrirtæki auk okkar. Markmið
þessa nets er að samræma verklag
og vinnuhætti fyrir þessa alþjóð-
legu viðskiptavini. Þetta samstarfs-
net Landsteina stækkar nú ört en
netið tryggir að fyrirtæki innan
þess miðli þekkingu til hvers ann-
ars auk hugbúnaðareininga og
heilla kerfa, þannig að viðskiptavin-
ir njóti alltaf bestu og hagkvæm-
ustu lausnanna. Navision Software
vottar einnig sérstaka þróunaraðila
sem vinna í náinni samvinnu við
Navision Software við nýsmíði hug-
búnaðarlausna. Fyrirtækið Na-
viPlus er af þeim toga og það er
eina slíka fyrirtækið á íslandi.
Markmið okkar hjá Landsteinum
hefur ávallt verið að miðla af
reynslu okkar og þekkingu til við-
skiptavina á mjög agaðan og mark-
vissan hátt. Þetta hefur tryggt að
viðskiptavinir okkar hafa náð að
hagnýta sér hugbúnaðarlausnir á
besta mögulegan veg hverju sinni
og fjárfesting þeirra skilað há-
marks arðsemi. Þetta hefur að
mínu mati tekist vel enda hefur fé-
lagið vaxið af verkum sínum og er
nú stærsta samstæða Navision-fyr-
irtækja í heiminum.
Þjónusta og aðlögun kerfa
-Hvað starfa margir hjá fyrir-
tækinu?
„Landsteinar er í raun og vera
samstæða fyrirtækja sem hafa ólík-
ar áherslur hvað snertir sókn inn á
markaðinn. Heildarfjöldi starfs-
manna er um 140 og á síðustu
þremur árum höfum við skapað
rösklega 120 hátæknistörf. Þar af
era meira en 50 störf hér á landi. í
fyrirtækjum okkar erlendis era
tæplega hundrað manns, flestir í
Danmörku og á Jersey."
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Örn Guðbjartsson
LANDSTEINAR - SKIPURIT
Að sögn Jón Arnar eru meginá-
herslur Landsteina nú þjónusta og
aðlögun kerfa fyrir verslanarekst-
ur. „Þessi áhersla endurspeglast í
starfsemi Navis-Landsteina á ís-
landi og hjá Landsteinum DK í
Danmörku. Þessi félög hafa sett
upp lausnir hjá mjög stórum og
þekktum verslunarfyrirtækjum á
undanförnum misserum, sem stýra
allri starfsemi viðkomandi fyrir-
tækja. Þetta eru virt fyrirtæki eins
og De Danske Statsbaner, Tivolí,
Rema-1000, Kaupás, Penninn og
IKEA,“ sagði Jón Örn. ,Á Jersey
sérhæfum við okkur hins vegar í
smíði og aðlögun fjármálalausna og
í lausnum vegna rekstrar orkusölu-
fyrirtækja."
- Hverjar eru áherslurnar í
sta rfseminni í Bretlandi?
„í Bretlandi höfum við skrifstof-
ur í þremur borgum og hefur fyrir-
tækið þar verið frumkvöðull í sölu
og þjónustu á Navision-lausnum.
Þar höfum við unnið talsvert fyrir
sveitarfélög en á síðustu mánuðum
hafa menn sótt æ meira í sig veðrið
í verslunargeiranum. Árangur okk-
ar hefur enda verið afar góður í
sölu á verslunarkerfinu okkar og er
það nú komið í rösklega fimmtán
hundrað verslanir í um tíu þjóð-
löndum."
Sögxilegar forsendur
-En hvað með sögulegar for-
sendur Landsteina - hvaða menn
voru það t.d. sem stofnuðu fyrir-
tækið og hvar hóf það starfsemi
sína?
„Framkvöðullinn að stofnun
Landsteina var Guðbjartur Páll
Guðbjartsson sem er einn reynd-
asti Navision-ráðgjafi í heiminum.
Hann hafði ákveðnar hugmyndir
um að hægt væri að flytja út þekk-
ingu sína og annarra Navision-sér-
fræðinga. Fyrst starfaði því félagið
að mestu í sérfræðiráðgjöf og var
starfsemin miklu víðtækari erlendis
en hér heima. Þetta var árið 1995.
Til liðs við Guðbjart komu snemma
reynslumiklir Navision-sérfræðing-
ar, svo sem þeir Aðalsteinn Valdi-
marsson sem nú er framkvæmda-
stjóri, Magnús Sigurðsson, Friðrik
Þór Öskarsson, Jón Hörður Haf-
steinsson, Þorsteinn Guðbrandsson
og ég sjálfur. Saman mynduðum
við grann sem síðan hefur verið
byggt á undanfarin ár.“
Barátta á markaðinum
- Hvernig hefur ykkur gengið að
hasla ykkur völl innan hins harð-
snúna heims hugbúnaðarfyrirtækj-
anna?
„Þetta hefur verið skemmtileg
barátta en uppskrift okkar að ár-
angri hefur legið í uppbyggingu al-
þjóðlegs nets fyrirtækja og í þeirri
þjónustustefnu sem við höfum
markað okkur og síðan mótað
áfram fyrir öll okkar fyrirtæki.
Þannig höfum við lagt mikla
áherslu á ráðgjöf áður en endanleg
sala eða samningagerð á sér stað. A
flestum mörkuðum sem við vinnum
era fyrir öflugir aðilar sem hafa
boðið frambærilegar lausnir og því
hefur vissulega verið átak að ná fót-
festu. Áhersla okkar hefur legið í
að skapa okkur ímynd með okkar
eigin verkum og það hefur tekist
mjög vel. Landsteinar era fyrst og
fremst þekkingarfyrirtæki. Stofn-
endur félagsins höfðu mikla reynslu
og til liðs við okkur höfum við feng-
ið mjög hæft og vel menntað fólk á
sama tíma og mikil barátta hefur
verið um hvern einasta hugbúnað-
arsérfræðing á vinnumarkaðinum.
Ástæðan fyrir þessu er líklega sú
að við vinnum í alþjóðlegu umhverfi
þar sem starfsmönnum býðst að
vinna í lengri eða skemmri tíma
víða um heim. Við vinnum í mjög
skemmtilegu umhverfi í öllum okk-
ar fyrirtækjum. Við höfum látið ís-
lenska hönnuði hanna allar skrif-
stofur okkar og jafnvel flutt út hús-
gögn sem smíðuð era á íslandi í
skrifstofur okkar erlendis. Þessi
húsgögn hafa vakið mikla athygli
hjá viðskiptavinum okkar - einn
þeirra hefur þegar lagt inn pöntun
hjá húsgagnaframleiðanda. Þannig
má segja að við séum ekki einungis
að flytja út hugvit heldur í leiðinni
að stuðla að útflutningi íslensks
iðnaðar."
-Hvað með fyrirsjáanleg verk-
efni?
,Á síðustu misseram höfum við
unnið talvert fyrir verslanir IKEA í
Mið-Austurlöndum og í Ástralíu.
Fyrirsjáanlegt er framhald á þess-
ari vinnu og frekari uppsetningar
væntanlegar. Landsteinar hafa auk
þess unnið talsvert fyrir Adidas í
Þýskalandi og er nú hafið stórt
verkefni fyrir þennan íþrótta-
vörarisa, en að því verkefni kemur
tugur sérfræðinga. Á íslandi erum
við nú að vinna að heildarlausn fyr-
ir Pennann, fyrir Rannsóknarstofn-
anir atvinnuveganna og fyrir
Kaupás, sem rekur 11-11 verslan-
irnar, Nóatún og KÁ, auk Kosta-
kaups. I Danmörku höfum við stað-
ið í ströngu en þar höfum við nú
lokið að mestu uppsetningum hjá
þremur stórum verslunarkeðjum
en við tekur nú uppsetning verslun-
arkerfis fyrir símafélagið Sonofon.
Á Jersey höfum við notið vel-
gengni, ekki síst vegna sölu á
lausnum til rafmagnsveitna, t.d. á
eyjunni Mön, á Guemsey og á
Álandseyjum. Þá er fyrirtæki okk-
ar á Jersey einnig í verkefnum fyr-
ir Standard Bank og fyrir Barclays
Bank. Við eigendur félagsins eram
vissulega stoltir af velgengni Land-
steina, en hana eigum við að mestu
að þakka framúrskarandi starfs-
fólki. Vissulega má alltaf gera bet-
ur og veigamikill þáttur í starfsem-
inni er vitanlega að öðlast reynslu
og miðla henni síðan til samstarfs-
manna okkar og viðskiptavina."