Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 42

Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 42
%2 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Smáfólk Hvernig líst þér á að Hver bjó kaupa dálítið heima- það til? tilbúið sælgæti? Mamma mín, Ert þú meðal- Nei, þær eru allar amma mín og göngumaður? stærri en ég.. systir mín.. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hríðirnar afstaðnar Frá Margréti Guðmundsdóttur: ÞÁ ER hinum kvalafullu hríðaverkj- um við myndun nýrrar ríkisstjómar lokið og afkvæmið komið í ijós. Þeim sem efnaðir eru, eiga kvóta, eiga hlutabréf í svo og svo mörgum fyrir- tækjum, hafa borgað í digra lífeyris- sjóði og þar fram eftir götunum, líst eflaust vel á króann. En í þessu landi búa enn þúsundir manna sem vinna fyrir mjög lágum launum og búa við mikið atvinnuóöryggi, ellilífeyrisþeg- ar og öryrlqar sem lifa á ölmusu og góðvild ættingja, þeir eru ekki eins ánægðir. Það á eftir að taka hæstvirt- an forsætisráðherra lengri tíma en að setja íslandsmet á ráðherrastóli að bíta þetta fólk af sér. Hann getur líka verið viss um að það gerist ekki hljóðalaust. Slöpp lesning Slappari lesningu hef ég varla les- ið um dagana en málefnasamning stjórnarflokkanna. Þar segir bók- staflega ekkert um ekkert. Það er út af fyrir sig magnað að geta skrifað heilu síðurnar um ekkert. En þeir sem þeim hæfileikum eru gæddir ættu að snúa sér að öðrum störfum en að sinna stjómmálum, því það er mikið ábyrgðarstarf að vera stjórn- málamaður. Taumlaus gleði Hæstvirtur forsætisráðherra kem- ur fram á sjónvarpsstöðvunum glað- ur á svip og ánægður með það sem hann hefur gert og segir þjóðinni, jafn ánægður á svipinn, að hann ætli að halda áfram að gera það sem hann hefur verið að gera. Áð halda jafnvægi og stöðugleika. Hann er að segja; ég ætla að halda áfram að gera hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari. Hér verður allt við það sama næstu fjögur árin. Algert aft- urhald. Alger ládeyða. Og ráðherra- flotinn eins og hann leggur sig, jafnt nýir ráðherrar sem gamlir, tekur í sama streng og segir „nei, í mínu ráðuneyti verða engar breytingar, ekkert sérstakt sem á að taka á“. Launin hálda áfram að vera lág, ör- orkulaunin halda áfram að vera lág og lífeyrislaunin hjá hinum almenna manni halda líka áfram að vera lág. Hvers vegna gleðst maðurinn svona yfir þessu? Ég bara spyr. Ein af ástæðunum Getur verið að ein af ástæðum fyr- ir gleði hans sé að á næsta kjörtíma- bili verður ef til vill slegið lokahöggið á einkavæðinguna og á ég þar við heilbrigðisþjónustuna. Verður þess kannski ekki langt að bíða að við sjá- um hf. fyrir aftan Tryggingastofnun (ríkisins). Þá erum við komin í bandaríska drauminn. Þar sem markaðurinn og hagvöxturinn er lát- inn sitja fyrir öllu. Fólk hreinlega heilaþvegið með því að ekki fari sam- an góður hagvöxtur og að mann- eskjan sé höfð í fyrirrúmi. Ef þú get- ur ekki tryggt þig á hinum almenna markaði fyrir himinháar upphæðir hjá tryggingafélögunum máttu bara deyja fyrir utan sjúkrahúsið eða sækja læknisþjónustu þar sem þú getur ekki verið jafn viss um öryggi og gæði. Þetta á líka við um konur sem eru að fara að eiga börn. Þetta er ástand sem Islendingar hafa hing- að til horft á í bandarískum bíó- myndum (sem svo sannarlega er sýnt mjög mikið af hér á landi) og hugsað með sér „nei, svona verður þetta aldrei hér“. En með þessu áframhaldi gæti þetta vissulega orð- ið raunveruleiki hér fyrir þúsundir manna. Aumkunarvert Það er hálf aumkunarvert að heyra sagt frá því opinberlega að skipta eigi ráðherrastólunum á milli manna á miðju kjörtímabilinu. Bara til þess að sem flestir gæðinganna fái stól undir bossann. Það er hins vegar ekki talað mikið um þann kostnað sem því fylgir, en hann er gífurlegur. Honum væri kannski betur varið í að hækka t.d. örorkulaun. Annað sem ekki síst vekur athygli í nýju ríkis- stjórninni er að af tólf ráðherrum eru aðeins þrjár konur. Það er aumt. Eru konurnar kannski flúnar úr þessum flokkum? Lögmál Það er ekki lögmál að stór hópur af fólki í þjóðfélagi þurfi að vera fá- tækur og líða skort og greiða með lágum launum og lélegu lífsviður- væri fyrir góðan hagvöxt fyrir hina til að auðgast á. Markaðshyggjan er ekki það sem gerir þjóðfélag að góðu þjóðfélagi. Hvað er góður hagvöxtur ef manneskjan, náttúran og mannauðurinn er fótum troðinn? MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, húsmóðir, Skipholti 16, Reykjavík. Vatn fyrir vonda?! Frá Magnúsi Magnússyni: ÉG OG félagi minn komum við á Kaffí List, einu af „kaffihúsum" borg- arinnar, eitt föstudagskvöldið. Þannig var að ég og félagi minn ákváðum að fá okkur vatnsglas, mitt í þessum bjór- og brennivínskliði, svona rétt á meðan við vorum að átta okkur á því hvað snéri upp og hvað niður. Um leið og mér var rétt glas með vatni í þá var mér tilkynnt af reiðum afgreiðsluþjóni að það væru skilaboð frá eiganda staðarins, sem stóð við hliðina á honum, að ef ég ætl- aði að fá mér vatn aftur þá þyrfti ég að greiða þrjú hundruð krónur fyrir. Einnig hef ég orðið var við það að ef maður biður um kaffi á umræddu kaffihúsi þá setja umræddir þjónar upp undarlegan iylu- eða vonbrigða- svip! Og jafnvel virðast þeir komnir upp á lagið með það að sniðganga, eða láta þá sem versla ekki áfengi mæta rest. Semsagt, þeir sem kaupa bjór og brennivín á umræddu kaffihúsi, þeir eru velkomnir, en aðrir ekki. Á öðrum stöðum, kaffihúsum og börum, þar mætir maður yfirleitt brosi, sem mað- ur les úr: „Þessi er búinn með kvót>- ann sinn!“, og þar virðist maður vera velkominn. Get ég nefnt staði sem eru til fyrirmyndar í þessu; Fógetinn, Grandrokk, Kaffi Reykjavík og fleiri. Umræddir þjónar eru ekki frá ís- landi, kannski drekka allir alltaf bjór og brennivín í því landi sem þeir eru frá, eða er þarna komin peninga- græðgi frá Suður-Ameríku í líki ókurteisi? MAGNÚS MAGNÚSSON, Meðalholti 13, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.