Morgunblaðið - 27.06.1999, Side 50

Morgunblaðið - 27.06.1999, Side 50
Nú eru GALÉNIC húðsnyrtivörurnar loksins komnar Allar íslenskar konur þekkja hinar margverðlaunuðu EIANCYLvörur fyrir einstakan árangur og gæði, en ElANCYLer líkamslínan í GALÉNiC merkinu. GALÉNIC hentar öllum húðgerðum og öllum aldri G‘A[ ÍTV inniheldur náttúruleg virk efni sem svara þörfum þínum hefur svarið fyrir þig KYNNINGAR í ÞESSARIVIKU GJÖF FYLGIR KAUPUM Á morgun Apótek Stykkishólms kl. 13-18 Þriðjudag Krisma ísafirði kl. 11-18 Miðvikudag Lyfja Hafnarfirði kl. 13-18 Fimmtudag Apótek Ólafsvíkur kl. 11.30-18 Föstudag Lyfja Kópavogi kl. 12-17 UTSÖlUSVAQift GAtÍNtC BJÓOA ÞÉfi AÖ KYHKAST ÞtSSUW HÁSÆGA VíífiUM Lyfja Lágmúla »Lyfja Kópavogi • Lyfja Hafnarfirði »Hagkaup Kringlu Hagkaup Smáratorgi »ApótekÁrbæjar»Laugarnesa|)ótek Apótek Keflavíkur • Apótek Vestmannaeyja » Apótek Ólafsvíkur Apótek Stykkishólms • Lyfsala Patreksfjarðar» Bjarg Akranesi» Krisma ísafirði 1 SUNNUDAGUR 27. JUNI1999 120 f iylkí COLON LEANSE sn trefíar meö A MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM Colon Cleanser örvar mettinguna og tryggir að fæðan i fari hratt og örugglega f gegn um meltingarfærin. ÉK cilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu, Akureyri Morgunblaðið/Halldór MIKE Myers og Heather Graham fyrir utan Planet Hollywood í Cannes. MIKE Myers á heiðurinn af því að skapa njósnarann eftirminnilega. MEIRI illmenni eru ekki á hverju strái en Dr. Illur sem einnig er leikinn af Myers. Kvikmyndin Austin Powers: Njósnarinn sem negldi mig Tíu Japanir og Mike Myers HÚN gong sanj lí,“ eða eitt- hvað í þá áttina skrafa tíu japanskar konur hver of- an í aðra og er sem blaða- maður sitji í fuglamergðinni við Látrabjarg. Þetta er svolítið dæmi- gert fyrir óreiðuna í Cannes; að sitja við borð með japönskum stéttar- bræðrum sínum og japönskum túlki og bíða eftir njósnaranum sem neglir allt sem hreyfist. Það orð fer af Mike Myers að hann þyki ekki sérlega skemmtileg- ur viðræðu en augljóst er af öllu að hann kann virkilega að meta japönsku fréttakonurnar því hann bókstaflega ljómar eins og sólin þeg- ar hann sest við borðið. Enda eru þær sérdeilis hláturmildar og skríkja af kátínu að hverjum brandara eða bara svipbrigðum Myers. „Eg er orðinn dálítið ryðgaður í japönskunni," segir Myers þegar hann sest niður og kynnir sig. Þær taka í hendina á honum hver af ASGARÐUR — GLÆSIBÆ Caprí tríó leikur öll sunnudagskvöld frá kl. 20.00. i^^FÉLAG t?3B0RGARA Upplýsingar í síma 588 2111 Nýjasta kvikmyndin um Austin Powers skaut Stjörnustríði ref fyrir rass þegar hún var frumsýnd í Bandaríkjunum og náði þriðju mestu tekjum sögunnar. Pétur Blöndal var í góðum félagsskap er hann ræddi við aðalleik- arann Mike Myers um myndina í Cannes. annarri og syngja nafnið sitt á japönsku, einhvern veginn er tungu- málið þannig, þar til kemur loks að íslenska blaðamanninum. „Og hann er auðvitað frá Japan,“ segir túlkur- inn og fréttakonurnar skella upp úr. „Eg kem raunar frá Islandi," skýtur blaðamaður inn í. „Að sjálfsögðu,“ segir Myers, „hvar annars staðar getur maður búist við að hitta Is- lending en á borði með Japönum?“ Við eyjaskeggjar s töndum saman, svarar Maðamaður. „Ég bý á Manhattan, telst það með?“ spyr Myers. „Auðvitað," svarar blaðamaður. „Þér er guðvelkomið að slást í hóp- inn með okkur í kvöld.“ Myers virð- ist ánægður með það, tyllir sér og er fyrst spurður að því hvenær hann hafi búið til persónuna Austin Powers. s Eg hafði nýlokið við mynd- ina „Waynes World 2“ sem hafði gengið vel í Banda- ríkjunum og náð efsta sæti aðsóknarlistans og var í tónleikaferð með Barböru Streisand, allt hafði gengið eins og í sögu. Tveimur árum áður lést faðir minn og ég hafði unn- ið á hverjum degi síðan þá. Skyndi- lega varð mér ljóst að ég hafði engan áhuga á að vinna lengur. Ég var svo lánsamur að hafa lagt fyrir mikla fjármuni og vann ekki í eitt og hálft ár. Þá kviknaði hugmynd sem byggð var á minningunni um föður minn. Hann var enskur og elskaði myndir á borð við Bleika pardusinn og James Bond. Ég skrifaði handritið að Austin Powers á þremur vikum og hún er eiginlega upprifjun á öllum myndunum sem ég horfði á með föð- ur mínum í stofusófanum heima.“ Túlkurinn byrjar að þýða yfir á flaumósa japönsku erfiðleikalaust ef undan er skilin örlítil truflun frá Myers sem skýtur inn í: „Þetta er nú ekki alveg rétt hjá þér...“ Frétta- konurnar springa úr hlátri og á end- anum kemst þýðingin til skila. Ertu aðdáandi Peters Sellers? Hann var í uppáhaldi hjá föður mínum,“ svarar Myers. En Sean Connery? „Ég hitti hann í gærkvöldi," svar- ar Myers með aðdáunarsvip og bætir við: „í fyrsta skipti." Það heyrist mikið garg í fuglabjarginu og japönsku konumar lyftast upp úr stólunum af fögnuði. Talaðirðu við hann um myndina? „Ég varð of feiminn," svarar Myers. „Hvort sem þið trúið því eða ekki eru Kanadamenn mjög inn í sig. Ég hitti Sean Connery og hann sagði [með skoskum hreim í anda Conn- erys]: „Hvernig kanntu við þig á há- tíðinni?" Mér fannst þetta svo yfir- þynnandi að ég svaraði bara [óða- mála]: „Hún er góð.“ Þetta var mitt stóra tækifæri til að ræða við átrúnað- argoðið mitt.“ „Ohhh,“ andvarpa stallsystur blaða- manns frá Japan og finna mikið til með leikaranum sem setur upp ar- mæðusvip. Manstþú eftir sjöunda áratugnum? „Ég fæddist árið 1963 og fyrstu minningar mínar af kvikmyndum eru frá lokum sjöunda áratugarins og upphafi þess áttunda og ég upp- lifði þær mjög sterkt eins og krakkar gera. Mér er það þvi áreynslulaust að sækja í þennan tíma. Ég nefni sem dæmi myndina „The Great Santini“ og auðvitað Stjörnustríð." Hvernig vannstu handritið? Það er yndislega dularfullt ferli,“ svarar Myers. „Við skrifum handritið og reyn- um svo sífellt að gera það hraðara, fyndnara og áhugaverðara. Þegar stundin rennur upp tökum við upp nokkrar útgáfur af handritinu og notum líka spuna. Lokaútgáfan verð- ur svo til í klippiherberginu." Samræðurnar snúast um ýmislegt eftir þetta en eru heldur sundurlaus- ar þar sem þeim er snarað yfir á japönsku eftir hverja setningu. Það sem kemur m.a. til tals er hvort þriðja myndin sé væntanleg og segist Myers alveg til í að gera mynd um Austin Powers á tveggja ára fresti. Þá lýsir hann formúlunni að baki Bond-myndum, sem voru að hluta til fyrirmynd Austins: „Bond byrjar á því að koma óþokka fyrir kattarnef, stórglæpamaður er kynntur til sög- unnar með áætlanir um að tortíma heiminum, Bond er falið nýtt mál, að því búnu fær hann þrjú vopn sem er nýbúið að finna upp, hann ferðist til framandi lands, tveir launmorðingj- ar verði á vegi hans, hann drepur þá með nýtísku vopnum sem honum höfðu verið nýfengin. Þá hittir hann stórglæpamanninn og drepur hann með drápstæki úr hans eigin smiðju og loks siglir hann burtu frá öllu saman á fleka, - vitaskuld með íðil- fagurri stúlku.“ Hljómar ekki fjarri lagi. En til að komast að formúlunni á bakvið Austin Powers-myndirnar verða kvikmyndaáhugamenn að berja frjálslynda njósnarann augum á hvíta tjaldinu. Fyrir þá sem ekki vita þá er það er þessi með bjánalega glottið, skökku tennurnar og dýrs- lega aðdráttaraflið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.