Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 56

Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 56
IhinkPad Mes! seldo og verðlounaóa fartölva i heiminum <Ö> NÝHERJI 5:5697700 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Mikið þýfí end- ‘ urheimt LÖGREGLUNNI í Reykjavík hef- ur að miklu leyti tekist að endur- heimta þýfi sem talið er að sé að verðmæti nokkuð á þriðju milljón króna og stolið var úr íbúðarhúsum í mörgum innbrotum frá janúar til apríl. Sambærilegar aðferðir voru notaðar við öll innbrotin. Lögreglan hefur komið þýfinu í hendur réttra eigenda og er rann- sókn flestra innbrotanna lokið. Ekkert innbrot hefur verið framið með þessum hætti í heimahús eftir að þeir sem grunaðir eru um ■'V'erknaðina voru handteknir um miðjan aprfl. I flestum innbrotanna var stolið talsverðum verðmætum, svo sem skartgripum, silfurborðbúnaði og fleira, og voru innbrotin yfirleitt framin að degi til meðan íbúar voru að heiman. Voru þau flest í fjölbýlishús og því gaf umferð ókunnugra ekki endilega tilefni til grunsemda. Lögreglan vill benda íbúum slíkra húsa á mikilvægi þess að hleypa ekki óviðkomandi inn í ^sameign og gera ráðstafanir ef upp koma grunsemdir um óeðlilegar mannaferðir. -------------- Ráðist á mann í Vonarstræti Arásarmennirn- ir gáfu sig fram MAÐUR var fluttur með sjúkrabfl á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur eftir árás tveggja manna í Von- arstræti aðfaranótt laugardags. Arásarmennirnir gáfu sig fram við Jögreglu og var sleppt eftir yfir- Tieyrslu. Áverkar hins slasaða eru ekki taldir alvarlegir. Árásarmennirnir yfirgáfu vett- vang árásarinnar í bifreið og var vitað um númer hennar. Áður en til þess kom að lýsa eftir bflnum gáfu mennimir sig hins vegar fram á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Erfið sambúð SAMBÚÐ fugla og stærri dýra getur verið vandasöm, að minnsta kosti fyrir þann sem er minni. Stóru dýrin gæta ekki að því hvar þau stíga niður og undir fótum þeirra gæti jafnvel leynst heimili þess fljúgandi. Krían á myndinni var að minnsta kosti ekki sátt við veru hryssunnar og folaldsins hennar á túninu. Vænt- anlega hafa híbýli hennar verið í nágrenninu og gerði hún síend- urteknar árásir á hestana. Þeir létu sér hins vegar fátt um finn- ast og héldu áfram að bíta gras og drekka af spena í mestu mak- indum. LANDSVTRKJUN mun ekki sjálf fara fram á að Fljótsdalsvirkjun verði sett í lögformlegt umhverfismat en fyrirtækið mun í haust senda stjómvöldum skýrslu um rannsóknir á svæðinu, segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Friðrik segir að það sé ekki á valdi Landsvirkjunar að ákveða hvort ákvörðunum Alþingis verður breytt og ákveðið að Fljótsdalsvh-kjun fari í umhverfismat eins og aðrar stórframkvæmdir eiga að gera. „Leyfið er fyrir hendi, fyrirtækið undirbýr framkvæmdirnar á grundvelli stefnu sem nýtur meiri- hluta á Alþingi og fráleitt væri að það færi að eigin frumkvæði að tefja þær,“ segir Friðrik. „í haust verður lokið við skýrslu um niðurstöður rannsókna á veg- um Landsvirkjunar á svæðinu og hún send stjórnvöldum. Þegar skýrslan liggur fyrir geta Alþingi og ríkisstjóm breytt fyiTÍ ákvörð- unum sínum ef þeim þykir ástæða til. Þá verða menn hins vegar að hafa í huga að verði það gert mun það að sjálfsögðu fresta öllum við- ræðum um hugsanleg not fyrir raf- magnið.“ Verður að taka tillit til beggja sjónarmiða Friðrik segir að rangt sé að hunsa tilfinningar þeirra sem óttist frekara rask á umdeildum stöðum í óbyggðunum. „Það verður að taka verulegt tillit til beggja sjónar- miða. Þessi mál eru ekki þess eðlis að allir geti orðið ánægðir með lausnina. En ég er sannfærður um að hægt er að ná víðtækri sátt milli þeirra sem vilja nýta og þeirra sem vilja eingöngu njóta.“ Hann segir ennfremur að vax- andi hætta sé á hagsmunaárekstr- um milli Landsvirkjunar og Orku- veitu Reykjavíkur þar sem gera megi ráð fyrir að í framtíðinni verði samkeppni á milli fyrirtækj- anna tveggja á raforkumarkaði. Þess vegna sé ekki óeðlilegt að ráðamenn borgarinnar velti því fyrir sér hvort hún eigi að vera áfram stór eigandi að Landsvirkj- un. Mikilvægt sé að Landsvirkjun verði gerð að hlutafélagi til að hægt sé að fá aukið fjármagn inn í fyrirtækið. Forstjóri Landsvirkjunar um Fljótsdalsvirkjun Valdið verður í höndum Alþingis Morgunblaðið/Jón Sigurðsson ■ Fólk er sér betur/AlO Veiðum í sfldarsmugu lokið * Islensk stjórnvöld undirrita samstarfsyfírlýsingu við Norsk Hydro á þriðjudag Yfírlýsingin ekki bindandi og veitir engum forgang VILJAYFIRLÝSING um áfram- haldandi samstarf stjómvalda við Norsk Hydro verður undirrituð á Reyðarfirði á þriðjudag. Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra segh að áhugi Columbia Ventures á að reisa álver á Reyðarfirði hafi ekki áhrif á viðræður íslenskra stjómvalda við Norsk Hydro. Verður forsvars- mönnum Norsk Hydro greint með Varmlegum hætti frá erindi Col- umbia Ventures á þriðjudag og frá ágreiningi þeim sem stendur um virkjunarmál hérlendis. „Viðbrögð mín við erindi Col- umbia Ventures eru jákvæð, og ég fagna því að þeir skuli hafa gert þetta með þessum hætti, einfaldlega vegna þess að hér er um að ræða Tyrirtæki sem við þekkjum mjög vel auk þess sem við höfum góða reynslu af samstarfi við þá. Norsk Hydro verður gerð grein fyrir því að formlegt erindi hafi borist frá Columbia á fundi á Reyðarfirði eftir helgina og að við munum taka það til skoðunar. Við munum halda áfram sam- starfi við Norsk Hydro en yfirlýs- ingin bindur okkur á engan hátt í samstarfi við einn aðila og veitir engum forgang á Reyðarfirði. Við höfum allan rétt til þess að skoða fleiri kosti í þeim efnum og við hljótum fyrst og fremst að meta þetta út frá því hvað er hagkvæm- ast fyrir íslenska hagsmuni," segir ráðherra. „Þessi áhugi Columbia verður til þess að við höfum fleiri kosti tfl að skoða. Það má kannski segja að að því leyti til hafi það einhver áhrif á okkar afstöðu til einstakra þátta í máli Norsk Hydro en við munum halda áfram viðræðum og gera ráð fyrir því að vinna mjög markvisst að undirbúningi þessa verkefnis í sam- starfi við Norsk Hydro á næstu mánuðum," sagði iðnaðarráðherra. Að sögn Finns Ingólfssonar eru fulltrúar frá Columbia Ventures væntanlegir hingað til lands til við- ræðna um miðjan júlí. Mun greina Norsk Hydro frá ágreiningi um virkjunarmál Finnur segir að íslensk stjórn- völd hafi ekki greint forsvai’smönn- um Norsk Hydro og Columbia Ventures formlega frá þeim ágrein- ingi sem stendur um byggingu Fljótsdalsvirkjunar í íslensku þjóð- félagi þótt það hafi borið á góma í viðræðum við Norsk Hydro. Á fundunum eftir helgi mun forsvars- mönnum Norsk Hydro verða greint formlega frá þeim ágreiningi. Varðandi Columbia Ventures segir Finnur að slíkar umræður hafi ekki átt sér stað þar sem formlegar viðræður séu ekki hafnar. „Eg er hins vegar í engum vafa um að for- ráðamönnum Columbia sé kunnugt um þá umræðu sem farið hefur fram um virkjuriarmál hér á landi þar sem þeir eru með fyrirtæki starfandi hérlendis. Að mínu mati er það þó fyrst og fremst íslenskra stjórnvalda að móta stefnu um orkunýtingu. Ég tel að það sé okkar Islendinga að afhenda orkuna og það eigi ekki að vera áhyggjuefni fyrirtækjanna með hvaða hætti það sé gert.“ VEIÐAR úr norsk-íslenska sfldar- stofninum í sfldarsmugunni voru stöðvaðar á miðnætti i fyrrinótt. 202 þúsund tonna kvóti íslendinga til veiða á svæðinu var búinn. Sigurður Einarsson, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, gagn- rýnir að sett voru sérstök lög um úthlutun úr norsk-íslenska stofnin- um og það að ekki sé úthlutað eftir þriggja ára veiðireynslu heldur að hluta til eftir stærð og að hluta til eftir fjölda umsækjenda. Þá séu ekki sömu reglur um framsal og annars staðar. „Þama hafa ár eftir ár fengið leyfi skip, sem aldrei hafa farið og munu ekki fara,“ segir hann. „Mér finnst eðlilegt að það gildi sömu reglur um þessar veiðar og aðrar veiðar á íslandsmiðum og í úthaf- inu,“ segir Sigurður. M.a. telur hann eðlilegt, að líkt og við aðrar úthafsveiðar, þurfi útgerðir að skila hluta aflaheimilda á heimamiðum þegai' farið er í sfldarsmuguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.