Morgunblaðið - 14.07.1999, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Islandssíma hf.
Ummæli forstjóra
Landssíma röng
Morgunblaðið/Jim Smart
ANDDYRI Listasafns Reykjavíkur verður áberandi í götumyndinni.
28 tonna skyggni yfir
anddyri Listasafnsins
EYÞÓR Amalds, framkvæmdastjóri
Íslandssíma hf., segir það ekki rétt
sem haft var eftir Þórami V. Þórar-
inssyni, forstjóra Landssímans, í
Morgunblaðinu í gær um að aðstöðu-
munur sé á milli Línunnar, dótturfé-
lags Orkuveitu Reykjavíkur, og
Ók á 186
km hraða
LÖGREGLAN í Reykjanesbæ
tók ungan ökumann eftir að
hann hafði mælst á 186 km
hraða á Sandgerðisvegi kl.
00.55 aðfaranótt þriðjudags.
Hann var þegar sviptur öku-
leyfi til bráðabirgða og á eftir
að koma fyrir dómara sem
ákveður lengd sviptingar.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar er það fáheyrt að
menn séu teknir á þvílíkum
hraða á Sandgerðisvegi. Nokk-
uð hefur verið um hraðakstur á
Reykjanesbraut að undanfömu
og reynir lögreglan að fylgjast
vel með og halda hraða niðri.
Lögreglan segir allnokkra öku-
menn hafa verið tekna þar á
120 til 130 km hraða síðustu
daga en örsjaldan á yfir 180,
hvað þá á Sandgerðisvegi sem
er bæði mjórri og bugðóttari.
Nuddskóli
hlýtur viður-
kenningu
NUDDSKÓLI Guðmundar
hlaut nýlega viðurkenningu
menntamálaráðuneytisins sem
einkaskóli á framhaldsskóla-
stigi.
Nuddskóli Guðmundar var
stofnaður árið 1989 og er því 10
ára um þessar mundir. Það er
þó fyrst nú sem skólinn hlýtur
opinbera viðurkenningu, sem
veitt er á gmndvelli reglugerð-
ar nr. 137/1997 um viðurkenn-
ingu einkaskóla á framhalds-
skólastigi. Lýtur Nuddskólinn
því sömu reglum og eftirliti og
aðrir framhaldsskólar. Nú era
um 50 nemendur við skólann,
en 86 hafa þegar útskrifast
þaðan sem nuddffræðingar.
Landssímans, þar sem orkufyrirtæk-
in væra undanþegin skattgreiðslum
en Landssíminn ekki. Eins og greint
var frá í Morgunblaðinu í gær hafa
Línan og Islandssími náð samkomu-
lagi um uppbyggingu ljósleiðaranets
á höfuðborgarsvæðinu.
Eyþór bendir á að Línan sé hluta-
félag en ekki orkuveita. „Lína er
skattaðili og Íslandssími er að sjálf-
sögðu líka skattaðili og þar af leiðandi
era þetta vanhugsuð ummæli hjá
Pórarni,“ segir Eyþóri.
Þórarinn sagði einnig í Morgun-
blaðinu í gær að það væri nýtt að
Reykjavíkurborg skyldi taka ákvörð-
un um að bera drýgsta hlutann af
fjárfestingarkostnaði hins nýja fjar-
skiptafyrirtækis. Þetta segir Eyþór
að sé heldur ekki rétt. „Það er líka
fljótfærni hjá Þórami að álykta að
LANDSSÍMI íslands hf. sendi frá
sér athugasemd í gær við ummæli
Eyþórs Arnalds í fjölmiðlum varðandi
Landssímann. Er þar m.a. mótmælt
þeirri fullyrðingu hans að ljósleiðara-
kerfi Landssímans sé aðallega ætlað
til sjónvarpssendpiga. „Eyþór Arn-
alds segir að Íslandssími ætli að
„byrja þar sem Landssíminn endar“ í
gagnaflutningum; að fyrirtækið ætli
að bjóða bandbreidd frá 2 megabitum
á sekúndu, en það sé hámark hjá
Landssimanum. Hið rétta í málinu er
að Landssíminn býður nú þegar
gagnaflutningsþjónustu á ATM-neti
frá 64 Kb/s og allt upp í 155 Mb/s.
Verðskrá nær upp í 2 Mb/s en við-
skiptavinir fá verðtilboð í meiri flutn-
ingsgetu, ef óskað er eftir slíku.
í UMSÖGN lögreglu vegna óska
forsvarsmanna Clubs Clintons og
Hlaðvarpans um fullt vínveitinga-
leyfi til klukkan eitt eftir miðnætti
á virkum dögum og þrjú eftir mið-
nætti um helgar, er getið um
kvartanir vegna hávaða og ónæði
af völdum þessara staða, að sögn
Gunnars Þorlákssonar skrifstofu-
stjóra Félagsþjónustunnar í
Reykjavík sem fjallar um þessar
umsóknir.
Hann segir það rangt sem fram
hafi komið að búið sé að veita Hlað-
Reykjavíkurborg beri meirihlutann af
kostnaðinum. Það er einfaldlega ekki
rétt. Hann þarf að kynna sér málin
betur áður en hann fer með þau í fjöl-
miðla,“ sagði hann. „Það gætir ósam-
ræmis í málflutningi Landssímans
þar sem þeir beita nú sömu rökum og
þeir hafa gagnrýnt Samkeppnisstofti-
un og aðra fyrir að beita,“ bætti Ey-
þór við.
Að sögn Eyþórs gætir víða þess
misskilnings að Islandssími sé þátt-
takandi í fyrirhugaðri intemetþjón-
ustu um raforkudreifikerfi Orkuveit-
unnar en sú sé alls ekki raunin. Is-
landssími og Lína hafi náð samkomu-
lagi um þróun og uppbyggingu ljós-
leiðaranets á veitusvæði orkuveitunn-
ar en tilraunir með gagnaflutninga
eftir raforkukerfinu væra sjálfstætt
verkefni Línu og Orkuveitunnar.
Þá eru fullyrðingar Eyþórs Arn-
alds um flutningsgetu ljósleiðarakerf-
is Landssímans rangar. Landssíminn
hefur lagt öflugt ljósleiðarakerfi um
allt land, þ.m.t. um höfuðborgarsvæð-
ið, og eru fjölmörg fyrirtæki tengd
með ljósleiðara nú þegar. Þetta ljós-
leiðarakerfi er byggt fyrir alhliða
fjarskipti með margvíslegri tækni.
Fullyrðingar framkvæmdastjóra ís-
landssíma um að þetta kerfi sé „aðal-
lega ætlað til sjónvarpssendinga" eru
út í hött. Þótt Landssíminn geti boðið
upp á endurvarp sjónvarpsefnis til
tæplega 40% heimila í landinu tak-
markar það í engu möguleika ljósleið-
arakerfis fyrirtækisins til hvers kon-
ar annarra gagnaflutninga,“ segir í
athugasemd Landssímans.
varpanum leyfi til vínveitinga til
þess tíma sem staðurinn óskar eftir
og reiknar hann ekki með að borg-
aráð fjalli um leyfisveitingar til
handa stöðunum fyrr en síðar í
þessum mánuði.
Bréf lögð fyrir borgarráð
Á fundi borgarráðs í gær var lagt
fram bréf Ibúasamtaka Grjóta-
þorps frá 5. júlí varðandi stefnu-
mörkun borgarráðs um framtíð bú-
setu í Grjótaþorpi. Jafnframt var
lagt fram bréf Odds Bjömssonar
frá 7. júlí um ónæði í Grjótaþorpi af
völdum veitingareksturs og
skemmtanahalds. Erindunum var
vísað til samstarfsnefndar um lög-
reglumálefni, Heilbrigðiseftirlits og
til skoðunar við gerð þróunaráætl-
unar. Jafnframt beindi borgamáð
því til lögreglu og Heilbrigðiseftir-
lits að fylgjast sérstaklega með
starfsemi á mörkum Grjótaþorps.
Gunnar Þorláksson segir að um-
sögn byggingarfulltrúa sé jákvæð í
báðum tilvikum sem um ræðir og
svipaða sögu megi segja um aðra
umsagnaraðila fyrir utan lögreglu,
en eldvamareftirlit og heilbrigðis-
eftirht eiga eftir að fjalla um um-
sókn Kaffileikhússins í Hlaðvarp-
anum.
Mæla með takmörkunum
„Lögreglan vekur athygli á að
kvartanir hafi borist frá nærliggj-
NÝTT 28 tonna forsteypt
skyggni hefur verið sett upp yfir
anddyri Listasafns Reykjavíkur
sem verður til húsa í Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu. Margrét
Harðardéttir og Steve Christer
eru hönnuðir safnsins og sögðu
þau að endaniegum frágangi
væri ekki lokið. „Allur frágangur
er eftir og verður skyggnið í lok-
andi húsum, auk þess sem við er-
um með afrit af bréfum íbúa og
íbúasamtaka gagnvart báðum
þessum stöðum. Þá mælir lögregl-
an með takmörkunum á þeim tíma
sem Club Clinton er opinn og að
skilyrði verði sett vegna hávaða og
ónæðis frá veitingastaðnum, ef um
hann er að ræða,“ segir Gunnar.
Erindi um endurnýjun vínveit-
ingaleyfa eru til umsagnar hjá Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar
og byggist hún m.a. á umsögnum
annarra umsagnaraðila, en stofn-
unin gerir síðan tillögu til borgar-
ráðs. Club Clinton hefur leyfí til
23.30 virka daga og 1 um helgar en
óskar eftir lengri vínveitingatíma.
„Umsóknin hefur hins vegar
ekki verið afgreidd og þar af leiðir
er enginn annar tími kominn til
framkvæmda. Byggingafulltrúi
sendi umsögn sína 21. júní, heil-
brigðieftirlit 18. júní, eldvarnareft-
irlit 25. júní og lögregla 31. maí.
Það stendur á hins vegar á af-
greiðslu veitingaleyfis, sem er ein
af forsendum fyrir því að við leggj-
um þessa umsókn um endurnýjun
vínveitingaleyfis fyrir borgarráð,"
segir Gunnar.
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
hefur í dag léttvínsleyfi sem er til
23.30 virka daga og 2 um helgar.
Sótt er um leyfí til 1 virka daga og
3 um helgar og ennfremur um úti-
veitingar til klukkan 20 síðar á ár-
in málað hvítt eins og húsið,“
sagði Margrét. Steve sagði að
allt hefði gengið vel við uppsetn-
inguna og að skyggnið ætti að
virka eins og að steypufleki væri
skorinn úr húshliðinni. Rétt er að
taka fram að járnteinarnir tveir
efst á skyggninu verða teknir í
burtu þegar búið er að steypa að
innganginum.
inu eða næsta vor. „í því máli ligg-
ur fyrir umsögn lögreglu og bygg-
ingarfulltrúa, en vantar umsögn
eldvarnareftirlits og heilbrigðiseft-
irlits, auk þess sem umsókn nýs
rekstraraðila um veitingaleyfi er
til afgreiðslu hjá lögreglunni.
Þetta er því ekki tilbúið til að
leggja fyrir borgarráð, en ég
reikna með að mál Clubs Clintons
verði lagt fyrir borgarráð annað-
hvort 20. júlí eða 27. júlí og sama
máli gegni um Hlaðvarpann," seg-
ir Gunnar.
Bent á brot
á ákvæðum
Karl Steinar Valsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn forvarna- og
fræðsludeildar lögreglu í Reykja-
vík, segir að forsvarsmenn Clubs
Clintons hafi sótt um fullt vínveit-
ingaleyfi í apríl. Lögreglan gaf
umsögn sína 31. maí og sendi fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar
hana í kjölfarið. Forsvarsmenn
Hlaðvarpans sóttu um fullt vín-
veitingaleyfi 12. maí síðastliðinn og
lögreglan veitti umsögn sína 8.
júní sl.
„Við mælum aldrei með leyfum
af þessu tagi en heldur ekki gegn
þeim, ef þeim er sett ákveðin skil-
yrði. Við bendum á ef við teljum
stað ekki hafa fylgt þeim ákvæðum
sem gilda, t.d. ef mikið hefur verið
um kvartanir og annað slíkt, að
leyfisveitandi, þ.e. Reykjavíkur-
borg, geti sett þau takmörk sem
hann telur eðlilegt með vísan til
þess. Hvað varðar þá staða sem
um ræðir í þessu tilviki, þá eru
þeir á sömu leyfum og þeir hafa
verið og bæði áfengisleyfíð og veit-
ingaleyfið eru til umsagnar," segir
Karl Steinar.
Góðir leðurskór á frábæru verði
Mjúkir og þægilegir
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-14.
Landssíminn mótmælir
ummælum Eyþórs
Ekki búið að afgreiða vínveitingaleyfí fyrir Club Clinton og Hlaðvarpann
Hávaða getið í
lögregluskýrslu