Morgunblaðið - 14.07.1999, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 17
Sveitahátíðin á Selfossi fór fram
í þéttum hátíðarúða
Kleopatra þótti
fegurst kvíga
Selfossi - Kleopatra frá Kirkju-
vík og Laugarbökkum varð
hlutskörpust í fegurðarsam-
keppni kvíga sem fram fór á
Sveitahátíðinni á Selfossi sjðast-
liðinn laugardag, 10. júlí. A há-
tíðinni var einnig krýndur fs-
landsmeistari í orfaslætti og
hlaut það sæmdarheiti Skúli
Gunnlaugsson, bóndi á Miðfelli í
Hrunamannahreppi. Knáasta
kaupakonan var valin Lovísa
Jónsdóttir frá Selfossi. Sveita-
hátíðin var vel sótt og fjöldi
fólks lagði leið sína inn á hátíð-
arsvæðið sem var á Sýslu-
mannstúninu við Austurveginn
á Selfossi.
Hátíðin hófst með skrúð-
göngu sláttumanna, kaupa-
kvenna, þjóðdansara, leikara og
annarra. Fyrir göngunni fór
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra akandi á Ferguson ‘58
módelinu með tvo bolakálfa í
kerru, Halldór og Davíð. Guðni
setti hátíðina og gat þess meðal
annars að það væri vel til fund-
ið að efna til samkomu á Sel-
fossi með sveitamenninguna
sem undirtón.
Hresstu sig með engjakaffi
Tíu þátttakendur voru í ís-
landsmótinu í orfaslætti og var
yngsti keppandinn 14 ára.
Sláttumenn slógu hver sinn reit
og höfðu dómarar auga með
þeim og dæmdu sláttulag,
hraða og gæði. Þá tóku kaupa-
konurnar við og unnu nýslegið
grasið í flekki, rökuðu saman
og rifjuðu. Dómararnir dæmdu
einnig vinnulag þeirra og rösk-
leika í flekknum. Inn á milli
bauðst vinnufólkinu hressing,
engjakaffí úr flösku vafinni í
ullarsokk. Þá tók við kynning á
því hvernig heyið var bundið,
sett á klakk og reitt heim. í
tengslum við þann þátt var
stutt kynning á íslenskri glímu.
Þjóðbúningar voru kynntir og
dansarar úr Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur sýndu nokkra
dansa.
Fegurðarsamkeppni kvíga
vakti athygli en þar sigraði
kvígan Kleopatra sem Guðni
Ágústsson landbúnaðarráð-
herra leiddi fyrir dómarann við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
ÞAÐ var glatt á hjalla hjá fjölskyldunni frá Akurgerði að lokinni gróð-
ursetningunni.
Gróðursettu tré
á fjölskyldumóti
Skagaströnd - Vitur maður sagði
einhverju sinni að það væri tvennt
sem maður gæti gert til að skilja
eitthvað eftir sig á jörðinni. Annað-
hvort skrifað bók eða gróðursett
tré.
Kannski hefur það verið þess
vegna sem fjölskyldan frá Akur-
gerði gróðursetti 15 tré á gróður-
sælum stað á Skagaströnd þegar
hún hélt fjölskyldumót nýlega.
Systkinin eru 13 og þess vegna voru
trén 15, eitt fyrir hvert systkini og
foreldrana.
Þrátt fyrir að systkinin séu svona
mörg eru þau öll flutt í burtu ásamt
foreldrum sínum. Þau voru öll alin
upp í Akurgerði, sem er ekki nema
78 fermetrar. Ef til vill er þar að
finna skýringuna á samheldni fjöl-
skyldunnar því eins og segir í spak-
mælinu: Þröngt mega sáttir sitja.
Gifting í Skógakirkju
Holti -1 einni nýj-
ustu kirkju lands-
ins, Skógakirkju að
Skógum undir Eyja-
fjöllum, fór nýlega
fram sérstæð og
eftirminnileg gift-
ingarathöfn, þar
sem nýir ábúendur
að Onundarhorni í
Austur-Eyjafjalla-
hreppi giftu sig,
þau Þórhallur Sæ-
mundsson og Poula
Kristín Buch.
Að athöfn lokinni ók Viðar
Bjarnason brúðhjónunum í hrepp-
stjórabúningi á nýuppgerðum All-
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
is Chalmers í brúðarvagni til
Fossbúðar, félagsheimilis sveitar-
innar, þar sem brúðkaupsveislan
var haldin.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
SLÁTTUMENN og vinnukonur að loknum slætti og vinnu í flekknum. Lengst til hægri eru tveir dómaranna,
Árni Magnússon frá Flögu og Þórarinn Pálsson frá Litlu-Reykjum.
Ýmislegt annað var til skemmt-
unar; kúaskítsveðmál, jafnvæg-
islistin að járna hana Pertu og
ýmislegt fleira. Dýr voru til
sýnis fyrir yngri kynslóðina og
fólki bauðst meðal annars ljúf-
feng kjötsúpa ásamt því að
Guðni, bakari staðarins, bauð
upp á engjabakka. Þá voru
sýndar búvélar á svæðinu og
fornbílar sem fengu fólk til að
hugsa aftur í tímann.
Veðrið setti aðeins strik í
reikninginn en þéttur hátíðar-
úði dreifðist yfir gesti þegar
leið á samkomuna. Sveitahátíð-
in, sem fór fyrst fram í fyrra, er
orðin fastur liður í viðburðaröð-
inni Sumar á Selfossi sem eru
uppákomur á Selfossi, haldnar í
samvinnu sveitarfélagsins og
fyrrirtækja á staðnum.
GUÐNI Ágústsson heldur kvígunni Kleopötru á meðan Garðar Vigfús-
son dómari og Anna Amardóttir, ritari hans, dæma vaxtarlag og lík-
amsfegurð.
Fólk, viðtöl, dagskrá
Dagskrárblað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps- og
útvarpsstöðva í hálfan mánuð.
í blaðinu er einnig að finna viótöl, greinar, kvikmyndadóma,
fræga fólkið og stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsend-
ingar frá íþróttaviðburðum og Ijölmargt annað skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblað Morgunblaðsins alltaf til taks nálægt
sjónvarpinu!