Morgunblaðið - 14.07.1999, Side 19

Morgunblaðið - 14.07.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 19 VIÐSKIPTI OPEC viðheldur framleiðslukvótum Olíuverð hækkar enn VERÐ á Brent-hráolíu fór í gær yfir 19 dollara á tunnu og hefur ekki verið hærra í 20 mánuði. Meðalverð í desember síðastliðn- um var um 9,94 dollarar, var í júní 15,82 dollarar en er í dag um 18,9 dollarar. Hér er því um töluverða hækkun að ræða og það er tvennt sem veldur, annars vegar eru ný- legar upplýsingar um að olíubirgð- ir í Bandaríkjunum séu litlar og eftirspurnin verði því meiri en bú- ist var við. Olíubirgðir í heiminum minnki þvi hraðar en gert var ráð fyrir miðað við niðurskurð á fram- leiðslukvóta. OPEC þrýstir verðinu upp með minnkandi framboði Hins vegar er um að ræða að- gerðir OPEC, Samtaka olíuútflutn- ingsríkja, til minnkunar á framboði olíu í heiminum. Þessar aðgerðir hafa haft tilætluð áhrif því að síð- ustu mánuði hefur framboð á olíu minnkað um u.þ.b. 26 þúsund millj- ónir tunna á mánuði. í mars síðastliðnum samþykktu olíuríkin á fundi OPEC-samtak- anna að vinna markvisst að því að draga úr framleiðslu tO að minnka olíubirgðir í heiminum og ná þannig fram verðhækkun. Þá stóðu vonir tO þess að tunnuverð færi í 17 til 19 doOara fyrir mitt árið auk þess sem hægt væri að selja allar fyrirliggjandi birgðir. Markmið OPEC var að fá tunnuverðið í 18 tO 20 doUara en 16 tO 18 doUarar var talið viðunandi. OPEC mun halda tO streitu nú- verandi framleiðslukvótum þar tO olíuverð er orðið viðunandi að þeirra mati en upplýst hefur verið að samtökin muni ræða málin ef tunnuverð verður óeðlOega hátt, þ.e. fer yfir 20 doUara. En tO að halda því verði sem fæst í dag telja samtökin að olíuríkin eigi ekki að auka framleiðsluna eins og þau gerðu árið 1997 þegar verðið var hátt, en það leiddi tíl verulegrar verðlækkunar árið 1998. Sýni öll olíuríkin áfram sam- stöðu í niðurskurði eins og verið hefur gæti það leitt tO minnkunar olíubirgða um 3,2 miUjónir tunna á dag á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Mikil freisting að framleiða umfram kvóta Nú, þegar tekist hefur að þrýsta verðinu upp, er aukin hætta á að framleiðsla verði aukin umfram kvóta í sumum olíuframleiðsluríkj- anna og þá ekki síst vegna efna- hagsástands í mörgum þessara ríkja. Magnús Ásgeirsson hjá Olíufé- laginu hf. og Gunnar Karl Guð- mundsson hjá Skeljungi hf. sögðu í samtali við Morgunblaðið að þar sem verðið væri orðið þetta hátt gætu einhver olíuríkj- anna freistast til að framleiða meira heldur en kvóti þeirra segði til um. Menn sjái jafnvel ekki fram á að verðið hækki mik- ið meira í bráð en telja að það geti svo sannarlega lækkað. Gunnar sagði að eftir mögur ár hjá olíuframleiðendum vilji þeir gjarnan fara að hafa eitthvað upp- úr krafsinu. Dollarinn sé mjög sterkur í dag og það komi vel út fyrir framleiðslulöndin en á móti kemur að hans sögn að eftirspurn eftir olíu getur jafnframt minnkað í löndum þar sem gjaldmiðillinn er að veikjast, s.s. í sumum Evrópu- löndum. Magnús benti á að nái efnahags- bati fram að ganga í Asíu, muni eft- irspum eftir olíu þar vaxa og lík- legt er að hækkanir á olíu á heims- markaði fylgi í kjölfarið Nokia í forystu- STERKARI markaðsstaða fínnska tæknifyrirtækisins Nokia er m.a. talin ástæða fyrir brottrekstri forstjóra sænska keppinautarins Erics- son á dögunum, að því er fram kemur f norska dagblað- inu Dagens Næringsliv. Fram kemur að grunnurinn að velgengni Nokia hafí verið lagður þegar um miðjan m'- unda áratuginn en Ericsson hafi ekki staðið sig eins vel. „Nokia hefur unnið vel og sett markmið til lengri ti'ma. Uppbygging fyrirtækisins hefúr verið markviss og gefið góðan árangur," segir Andre- as Vogt hjá norska útflutn- ingsráðinu, en ráðið vinnur nú að atvinnuþróun í Noregi ásamt fleirum þar sem árang- ur Nokia er m.a. hafður til hliðsjónar. Ericsson hefur náð góðum árangri í sölu og markaðs- setningu á vélbúnaði til fjar- skipta en Nokia hefur verið í forystuhlutverki hvað varðar símtækin sjálf og er það m.a. þakkað hefð fyrir finnskri hönnun. Niðurstöður könnunar á alþjóðlegri samkeppnishæfni ísland 118. sæti London. Reutcr. í NIÐURSTÖÐUM könnunar á alþjóðlegri samkeppnishæfni landa árið 1999 má sjá Island í átjánda sæti sem er töluvert stökk frá í fyrra en þá lenti Island í þrítug- asta sæti. Island hefur með þessu skotið löndum eins og Svíþjóð og Austurríki ref fyrir rass. Singapúr þykir enn álitlegast í alþjóðasamkeppni og er í fyrsta sæti eins og áður. Hong Kong varð að gefa Bandaríkjunum eftir annað sætið og vermir nú það þriðja í stað Bandaríkjanna í fyrra. Athygli vekur að Bretland fær lakari einkunn en áður og fellur úr fjórða sæti í það áttunda. Alls voru 59 lönd í könnuninni. Á botni listans lenti Rússland og féll úr 52. sæti. I næstneðsta sæti list- ans er Úkraína sem var í 53. sæti í fyrra. Könnunin náði til 4.000 stjórn- enda fyrirtækja og í henni er tekið mið af átta þáttum. Þeir eru: við- skipta- og fjárfestingarfi-elsi, hlut- verk ríkisins, fjármál, innri upp- bygging, tækni, stjómun, vinnuafl og stofnanir. Samkeppnis- hæfni landanna 1999 LAND (RÖÐ 98) 1. Singapore (1.) 2. Bandaríkin (3.) 3. Hong Kong (2.) 4. Taiwan (6.) 5. Kanada (5.) 6. Sviss (8.) 7. Lúxemborg (10.) 8. Bretland (4.) 9. Holland (7.) 10. írland (11.) 11. Finnland (15.) 12. Ástralía (14.) 13. Nýja-Sjáland 14. (13.) 15. Japan (12.) 16. Noregur (9.) 17. Malasía (17.) 18. Danmörk (16.) 19. ÍSLAND (30.) 20. Svíþjóð (23.) 21. Austuríki (20.) 22. Chile (18.) 23. Suður-Kórea 24. (19.) 25. Frakkland (22.) 26. Belgía (27.) 27. Þýskaland (24.) 28. Spánn (25.) 29. Portúgal (26.) 30. ísrael (29.) 31. Máritíus (-) 32. Thaiiand (21.) 33. Mexfkó (32.) 34. Kína (28.) 35. Filippseyjar (33.) 36. Kosta Rfka (-) 37. (talfa (41.) 38. Perú (37.) Amazon.com eykur umsvifín NETVERSLUNIN Amazon.com hefur aukið vöruúrval sitt til muna og selur nú leikföng og raftæki, auk bóka og tónlistar. Hafin er sala á öllu frá Barbie-dúkkum til DVD- myndspilara. Leikföngin verða m.a. frá Mattel og raftækin t.d. frá Sharp og Panasonic. Aukningin er liður í að ná því markmiði Amazon.com að verða al- hliða netverslun, þar sem neytend- ur geta fundið það sem þá vanhagar um í gegnum Netið í stað þess að leita í stórum leikfanga- eða raf- tækjaverslunum. Búist er við miklum vexti í við- skiptum með leikföng og raftæki á Netinu og því hefur verið spáð að tekjur af leikfangasölu á Netinu aukist úr 52,6 milljónum dollara nú (3,9 milljarðar króna), í 550 milljón- ir dollara (40,7 milljarðar króna) fyrir árið 2002 og að sama skapi muni raftækjasala aukast úr 78 milljónum dollara (5,7 milljarðar króna) í 792 milljónir dollara (58,6 milfjarðar króna) árið 2002. Á síðustu 14 mánuðum hefur Amazon.com stöðugt bætt vöruúrval sitt og eru viðskiptavinir fyrirtækis- ins nú 10 milljónir. Amazon.com hef- ur einnig fjárfest í lyfjaverslun á Netinu, auk gæludýraverslunar og matvöruverslunar. t25% af ýmsum herrafískuskóm Evrópskir bankar og tryggingafélög Tryggð viðskipta- vina fer minnkandi TRYGGÐ viðskiptavina evrópskra banka og tryggingafélaga við þau fé- lög sem viðskiptavinimir skipta við fer sífellt minnkandi og aukin notk- un ýmissa beinna söluaðferða mun minnka viðskiptatryggðina enn frek- ar. Þetta segir í nýrri skýrslu Data- monitor sem heitir „Viðskiptatryggð í eyrópskri fjármálaþjónustu". I skýrslunni segir einnig að sum- ar fjáiTnálastofnanir séu nú loks að grípa til aðgerða til að rækta við- skiptatryggð, en aðrar geri ekkert í þá átt. Einnig segir að aukin notkun Netsins í viðskiptum hafi leitt til þess að margir viðskiptavinir séu hættir að hringja nokkur símtöl til að bera saman verð og þjónustu banka og tryggingafélaga, en geri þess í stað samanburð á Netinu. STEINAR WMGE SKÓVERSLUN DOMUS MEOICA við Snofrobrout - Reykiovík Srn 5518519 KRINGLAN Kiinglunni8-12.ReyLjavik Sími 5689212 PÓSTSENDUM SAMD&GURS Tilboð baðherbergissett! Kr. 25.000,- stgr. Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá sama aðila sem tryggir sama litatón á salerni, salernissetu, handlaug og baðkari. Forðist ósamstæða litatóna! Salerni með stút í vegg eða gólf. Hörð ABS seta og festingar fylgja. Framleiðandi: Ceramicas Gala, bellavista Burpos Spani group. Handlaug á vegg. Stærð 55 x 43 cm ‘gSSfíSí Baðkar. 170 x 70 cm. Innréttingar & tæki - trygS1" Við Fellsmúla Sími 588 7332 OPID: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 http://www.heildsoluverslunin.is/ RAOGREIDSLUR i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.