Morgunblaðið - 14.07.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 27
UMRÆÐAN
Sauðaþjófar
á Selfossi
ÞÆR VORU ekki glæsilegar
fréttimar sem Morgunblaðið færði
mér sunnudaginn 4. júlí þegar ég
kom af svæði 1 og 2 í Stóru-Laxá.
Kaupmaðurinn í Nóatúni hafði
keypt alla laxana sem ég ætlaði að
veiða í minni veiðiferð, alls tvö
tonn og 40% af því stórlax. Ekki
svo að skilja að ég hafi ætlað að
koma með tvö tonn í bæinn, nei,
mér hefði alveg nægt að sjá 1-2
fiska en það var nú ekki svo gott.
Eg sá engan fisk á svæði 1 og 2 í
Stóru-Laxá. Fréttin um stórfellda
netaveiði neðar á vatnasvæðinu
fyllti mig vonleysi og ég varð ösku-
reiður út í þessa nútíma sauða-
þjófa sem þvergirða Olfusá og
Hvítá með netum svo það kemst
ekki ein padda framhjá. Hvað á
þetta að ganga lengi, að einhverjir
menn fái að drepa fiskinn án þess
að skeyta nokkuð um hvernig
stofninn er? Netabændur leggja
ekki eina krónu til uppbyggingar á
laxastofnum af þeirri einföldu
ástæðu að það selst engin stöng á
netasvæðunum.
Þeir sem aftur selja veiðileyfi á
stöng láta 10 daga til veiðifélagsins
til uppbyggingar á laxastofnum á
vatnasvæði Ölfusár og Hvítár og
bera því hitann og þungann af
kostnaði við uppbygginguna. Nú
þegar jökulhlaup í Hagavatni er
komið aftur óttast ég að það verði
Laxveiði
Ætlum við að láta sög-
una frá 1980 endurtaka
sig, spyr Hilmar Hans-
son, þegar síðasta
hlaup var og netabænd-
ur fylltu frystigeymslur
sínar af stórlaxi?
gengið frá laxastofnunum á svæð-
inu. Fiskurinn gengur hægt með
landinu vegna núverandi aðstæðna
í ánni, en það kemst ekkert fram-
hjá netagirðingum sauðaþjófanna
á Selfossi. Nú spyr ég ykkur,
áhugamenn um laxveiði og aðra
umhverfissinna, hvað er til ráða?
Ætlum við að láta söguna frá
1980 endurtaka sig þegar síðasta
hlaup var og neta-
bændur fylltu frysti-
geymslur sínar af stór-
laxi? Þá gaf Stóra-
Laxá aðeins 76 laxa og
Sogið aðeins 223 laxa
og algjört hrun varð á
laxastofnum á vatna-
svæði Hvítár í Arnes-
sýslu. Hvar eruð þið,
stórhuga menn, sem
skrifið hverja greinina
eftir aðra til bjargar
Elliðaánum? Þeirri
perlu hefur fyrir löngu
verið kastað fyrir svín.
Ekki það að Elliðaárn-
ar séu vel þess virði að
berjast fyrir, en við
verðum líka að horfa í
aðrar áttir. Af hverju heyrist ekk-
ert í ykkur, forsvarsmenn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, þó eruð
þið bæði með Sogið og Stóru-Laxá
á leigu?
Þegar ég kem á aðalfundi hjá
SVFR til að kjósa ykkur þá talið
þið allir um hversu brýnt mál það
sé að ná upp netum úr Ölfusá og
Hvítá. En þess á milli heyi’ist
hvorki hósti né stuna úr ykkar
herbúðum. Eg er hræddur um að
þetta vatnasvæði þoli ekki annað
svona sumar. Hlaupið í ánni gerir
fisknum mjög erfitt fyrir að ganga
á sínum eðlilega hraða og því hafa
dagarnir sem netin eru uppi ekk-
ert að segja. Stofninn hefur ekki
náð fyrri styrk frá árinu 1980 svo
að leiðin liggur bara niður á við úr
þessu. Það er grátbroslegt að Is-
Hilmar
Hansson
Landsmót skáta 1999
umhverfísvænt og alþjóðlegt
ISLENSKIR skátar
og félagar þeirra í fjöl-
mörgum öðrum lönd-
um eru að undirbúa
landsmót sem haldið
verður á Úlfljótsvatni
13. til 20. júlí næst-
komandi. Skátamót á
Islandi hafa verið
mörg allt frá því að
skátastarf festi rætur
hér á landi árið 1912.
Hvert mót er sérstakt
og svó er einnig í þetta
sinn.
Nepal, Noregur og
Nýja-Sjáland
Mótið í sumar verð-
ur til að mynda sérstakt fyrir það
hve alþjóðlegt yfirbragð það hefur
fengið. Erlendir þátttakendur í al-
mennum skátabúðum verða tæp-
lega 800, eða helmingi fleiri en á
síðasta móti, og í röðum starfs-
manna mótsins verða 130 erlendir
skátar. Skátar frá a.m.k. 25 lönd-
um koma til mótsins. Þátttakend-
ur munu koma frá öllum heimsálf-
um og fjölmörgum menningar-
svæðum, til dæmis Nepal, Noregi
og Nýja-Sjálandi. Þessi víðtæka
þátttaka undirstrikar alþjóðleika
skátastarfs því 35 milljónir barna
og unglinga í 216 löndum starfa í
skátahreyfingunni. A landsmóti
munu eflaust tengjast fjölmörg
vináttubönd yfir landamæri ríkja
og á milli heimsálfa, Þannig mun
mótið treysta stöðu íslands í sam-
félagi þjóðanna.
Við erum hluti náttúrunnar
Á íslandi og um allan heim ber
Tryggvi
Felixson
sífellt meira á umræð-
um og aðgerðum í um-
hverfismálum. I skáta-
lögunum segir að skáti
sé nýtinn og að skáti
sé náttúruvinur. Þegar
grannt er skoðað er
óhætt að segja að
nýtni og náttúruvernd
séu hornsteinar sjálf-
bærrar þróunar. Á
landsmótinu í sumar
verður þetta í háveg-
um haft. Við skipulag,
framkvæmd og efnis-
notkun á mótinu er
reynt að hafa sjálf-
bæra þróun að leiðar-
ljósi. Má nefna sem
dæmi að úrgangur verður flokkað-
ur í átta mismunandi flokka. Þá
geta allir sem mótið sækja með
Skátastarf
Mótið í sumar verður
til að mynda sérstakt
fyrir það, segir
Tryggvi Felixson, hve
alþjóðlegt yfirbragð
það hefur fengið.
táknrænum hætti lagt nafn sitt við
sérstakan umhverfissáttmála.
Sáttmálinn er í tíu liðum. I honum
segir m.a. að þeir sem undir hann
rita viðurkenni að þeir eigi ekki
náttúruna, heldur séu hluti hennar
Útsalan!
hófst í morgun
Opið frá
kl. 8.00-20.00
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980.
lendingur fari fyrir
netauppkaupum í
heiminum á sama tíma
og Islendingar stunda
netaveiði á laxi í ís-
lenskum ám. Nei, það
er ótrúlegt enda trúa
erlendir veiðimenn því
almennt ekki þegar
þeir heyra það. Þeim
þykir jiað fáránlegt,
sem það auðvitað er.
Það er réttlætismál
fyrir veiðimenn og td.
bóndann í Skarði við
Stóru-Laxá að laxinn
sem á heima í Skarðs-
strengjum fái að ganga
í sinn heimahyl og
hrygna, en sé ekki
drepinn í Ölfusá og síðan seldur í
fiskborðinu í Nóatúni.
Eg fer í Stóru-Laxá meðan hún
enn rennur og ég veit það að vinir
mínir sem eru búnir að veiða í Sog-
inu í áratugi fara líka áfram í Sog-
ið meðan fisk er að fá, en hvað
verður það lengi með þessu áfram-
haldi? Eg bið þess að netabændur
við Ölfusá og Hvítá, þeir sömu og
ég kallaði fyrr í þessari grein
sauðaþjófa, haldi netunum uppi
meðan þessar náttúrurhamfarir
ganga yfir í ánni, og síðar meir að
stangaveiðimenn og netabændur
geti unnið saman að uppbyggingu
á laxastofnum á svæðinu. Að síð-
ustu skora ég á Stangaveiðifélag
Reykjavíkur að taka frumkvæði í
viðræðum við veiðiréttareigendur
á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár
með uppkaup neta á svæðinu í
huga.
Höfundur er dúklagningameistari
og laxveiðimaður.
og ætli því að umgangast hana af
nærgætni og virðingu. Þá einsetja
þeir sér sem undir sáttmála skrifa
að menga ekki landið og hvorki
spilla gróðri né trufla dýralíf. í
dagskránni verða fjölmörg atriði
sem sérstaklega eru ætluð til þess
að auka skilning á lífríki Úlfljóts-
vatns og efla almenna vitund um
náttúruvernd og umhverfismál.
5.000 gestir á Landsmóti
Landsmótið er haldið undir
kjörorðinu „Leiktu þitt lag“. Þetta
kjörorð á að undirstirka mikilvægi
þess að allir einstaklingar fái að
vera með og leggja sitt af mörkum
við uppbyggingu á góðu og
skemmtilegu samfélagi við
Úlfljótsvatn þessa vjku í júlí.
Þetta samfélag á Úlfljótsvatni
mun væntanlega telja um 5.000
manns þegar flestir verða á staðn-
um. Hápunktur mótsins verður
laugardaginn 17. júlí þegar móts-
svæðið tekur á sig hátíðarmynd.
Þann dag verður mótssvæðið opið
fyrir gesti.
Fjör í fjölskyldubúðum
Á mótinu verða sérstakar búðir
fyrir fjölskyldur sem vilja fylgjast
með börnum sínum í leik og starfi,
hitta gamla vini úr skátastarfi eða
kynnast skátastarfi í fyrsta sinn.
Ef að líkum lætur munu margar
fjölskyldur nota þetta tækifæri til
að upplifa skátamót eins og þau
gerast best. Hittumst heil á
Úlfljótsvatni í sumar.
Höfundur er aðstoðarskáta-
höfðingi.
Kanarí-
veisla
í haust
með Sigurði Guðmundssyni
frákr. 48-655
sssaaf
Heimsferðir
kynna nú aftur haustferðir sínar'til
Kanaríeyja, þann 20. október og 21.
nóvember, en Kanaríeyjar eru tví-
mælalaust vinsælasti vetraráfangastað-
ur íslendinga í dag. Við bjóðum nú|
betri gistivalkosti en nokkru sinni fyrr®
í hjarta ensku strandarinnar og að sjálfsögðu njóta
farþegar okkar rómaðrar þjónustu fararstjóra Heims-
ferða allan tímann. Sigurður Guðmundsson verður
með fjölbreytta skemmti- og íþróttadagskrá, leikfimi
og kvöldvökur til að tryggja það að þú fáir sem mest
út úr fríinu.
Roque Nublo
3 vikur
frá kr. 48.655.-
21. nóvember, m.v. hjón með 2 böm á Tanife,
3 vikur
Kr. 59.990.-
21. nóvember, m.v. 2 í íbúð, Tanife, 3 vikur
Brottför
20.okt. - 32 nætur
21.nóv.-21 nótt
5 vikur (32 nætur)
Vegna fjölda áskorana
bjóðum við nú 5 viknaferð
í október
á frábœru verði
frá kr. 54.155.-
20. okt., m.v. hjón með 2 böm á Tanife,
32 nœtur
Kr. 75.890.-
20. okt., m.v. 2 í íbúð, Tanife, 32 nœtur
Gististaðir Heimsferða
• Roque Nublo
• Los Volcanes
• Paraiso Maspalomas
• Tanife
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð
sími 562 4600
www.heimsferdir.is