Morgunblaðið - 14.07.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 41
FRÉTTIR
Endurmenntun-
arstofnun Há-
skólans
Kennsla í
opinberri
stjórnsýslu
FYRSTI hópurinn sem lýkur námi
í opinberri stjórnsýslu og stjórnun
útskrifaðist fyrir skömmu frá End-
urmenntunarstofnun Háskólans.
Námið var skipulagt í samstarfi við
Hagsýslu ríkisins sem nú heyrir
undir fjármálaráðuneytið og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga. Hef-
ur námið þótt kærkomin viðbót við
flóru menntunarleiða í landinu,
sérstaklega þegar gætt er að því
að lítið hefur verið í boði hvað
varðar símenntun fyrir stjórnend-
ur í opinberum stofnunum. Einnig
var sérstakt tillit tekið til þess að
stjórnendur utan af landi gætu sótt
námið og það sett upp í kennslulot-
ur sem áttu sér stað á þriggja
vikna fresti. Nemendur komu úr
ýmsum áttum stjórnsýslunnar í
iandinu og má m.a. nefna sveitar-
stjóra, sýslumenn, félagsmála-
stjóra, skrifstofustjóra o.fl.
Einnig útskrifuðust 26 nemend-
ur frá Endurmenntunarstofnun
Háskólans í stjórnun og rekstri
heilbrigðisstofnana. Stofnunin hef-
ur áður útskrifað nemendur með
þessa menntun.
-----♦ ♦♦----
Tónleikar á
Ingólfstorgi
HLJÓMSVEITIRNAR 200.000
Naglbítar og Mínus spila á Taltón-
leikum Hins hússins og Rásar 2 mið-
vikudaginn 14. júlí kl. 18 á Ingólfs-
torgi.
Taltónleikar Hins hússins og Rás-
ar 2 eru í samvinnu við Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna og Iþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur.
-------------
Afhenti
trúnaðarbréf
SIGRÍÐUR Á. Snævarr sendiherra
afhenti 12. júlí s.l. hr. Carlo Azeglio
Ciampi, forseta Ítalíu, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands á Ítalíu
með aðsetur í París.
Faxafeni 8
Dömupeysur
tvœr fyrir eina
Herrabolir
tveir fyrir einn
Opif).
M.lii
f’ft
l.au
NÝJAR VÖRUR
DAGLEGA
Á FRÁBÆRU
VERÐI
Öræfajökull
Hæsti tindur Íslands er Hvannadalshnúkur í Öræfajökli, 2119 m hár.
Fyrstur íslendinga til að ganga á Öræfajökul var Sveinn Pálsson, læknir
og náttúrufræðingur, árið 1794. Skipulagðar ferðir með þjálfuðum
leiðsögumönnum eru til dæmis frá Skaftafelli og tekur hver ferð fram
og til baka 12 til IS klukkustundir.
Mynd: Ragnar Th. Slgurðsson
/TJílfc
.. heldur þér gangandi
'norrabraut 60 •
iími 511 2030
105 Reykjavik
Fax 511 2031
u/um/
veitir það ákveðið
öryggi að taka fyrstu
skrefin í Skátabúðinni.
Stærri verslun,
aukið vöruúrval,
sérhæfð þjónustal
Við höfum stækkað
búðina, aukið
vöruvalið og
bætt við þekktum
merkjum og leggjum sífellt meiri
áherslu á þjónustu starfsfólks með
víðtæka reynslu af útivist.
Sérstök ráðgjöf fyrir
byrjendur.
Segðu okkur hvað þig
vantar - við aðstoðum þig við að
fmna það rétta.
Upp til fjalla,
út til stranda,
inn á jökla
Fyrstu skrefin
Hvert sem ferðinni er
- upp til fjalla,
út til stranda,
inn á jökla, í helgarútilegu eða eins