Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MARGRA ARA
DRAUMUR
LISTAHASKÓLI íslands var settur í fyrsta sinn á fóstudag
með athöfn á Kjarvalsstöðum. Myndlistardeild skólans
hefur þegar tekið tO starfa en samkvæmt áætlun um uppbygg-
ingu listmenntunar á háskólastigi undirritaðri af menntamála-
ráðherra og forsvarsmönnum skólans í mars síðastliðnum mun
leiklistardeild skólans hefja starfsemi 1. ágúst 2000 og tónlist-
ardeild 1. ágúst 2001. Jafnframt er skólanum gert að leggja
fram tillögur um með hvaða hætti hann getur sinnt menntun á
sviði annarra lista, svo sem á sviði hönnunar og arkitektúrs.
Með setningu Listaháskóla Islands er að rætast margra ára
draumur listamanna og listunnenda í landinu. Með stofnun
skólans hefst viðurkennt háskólanám í listgreinum hér á landi
sem skapar vissulega nýja möguleika tO að þróa og bæta það
nám sem hefur verið hér fyrir, tO dæmis með samstarfí við há-
skóla, stofnanir og fyrirtæki, bæði innanlands og á alþjóðavett-
vangi, eins og Kristján Steingrímur Jónsson, forseti myndlist-
ardeildar, benti á við setningu skólans. Eins og rakið var hér
að ofan mun skólinn sameina undir einu þaki listnám í ólíkum
greinum sem áður hafa verið kenndar hver í sinni stofnuninni.
Með sameiningunni, sem á vonandi eftir að ná tO sem flestra
sviða, má gera ráð fyrir að til verði sterkur háskóli á alþjóðleg-
an mælikvarða.
Mikilvægt er að Listaháskóli Islands verði ekki aðeins upp-
eldisstofnun fyrir unga listamenn heldur einnig lifandi menn-
ingarmiðstöð. í ávarpi Hjálmars H. Ragnarssonar, rektors
skólans, við setningu hans kom fram að skólinn ætti að verða
eins konar aflvaki fyrir listalífíð í landinu. Óhætt er að taka
undir það með Hjálmari að skólinn þarf að vera í nánu sam-
starfi við listamennina í landinu og almenning en umfram allt
þarf hann að vera fyrir listsköpunina sjálfa.
Eitt af mikOvægustu hlutverkum skólans verður hins vegar
einnig að skapa frjóa samræðu á milli allra þeirra sem láta sig
íslenska list varða. Ef allir draumar rætast verður hann ein af
stoðum nýsköpunar í íslenskri list og íslenskri hugsun um list.
Enn ríkir óvissa um framtíðarhúsnæði Listaháskólans. Gert
hefur verið ráð fyrir að skólinn flytti inn í hús Sláturféiags
Suðurlands í Laugarnesi. Rektor og stjórn skólans fóru þess á
leit við Reykjavíkurborg í byrjun þessa árs að kannað yrði
hvort mögulegt væri að fínna skólanum stað í miðborg Reykja-
víkur og nýlega hafa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði lagt fram hug-
myndir um uppbyggingu Listaháskólans þar í bæ. Eins og
rektorinn benti á við setningu skólans má ljóst vera að stað-
setning hans er ekki aðeins mikOvæg skólanum sjálfum heldur
og mannlífinu í þeini byggð sem skólinn mun tengjast. Rektor
benti í því sambandi á að Listaháskólinn verði lifandi menning-
armiðstöð og kannski ein sú öflugasta í öllu landinu.
UPPSKERAÁ
ALDARAFMÆLI
KNATTSPYRNUFÉLAG Reykjavflcur fagnar aldarafmæli
sínu í ár og segja má að hápunkti hátíðarhaldanna hafi
verið náð nú um helgina er karlalið félagsins í knattspymu
náði að tryggja sér IslandsmeistaratitOinn í fyrsta sinn í 31 ár.
Ríflega þriggja áratuga bið eftir meistaratitli hafði vafalaust
tekið á stuðningsmenn félagsins. Fögnuður leikmanna og að-
standenda liðsins var því meiri á laugardag, þegar Ijóst var að
biðin langa væri loks á enda.
KR er eitt stærsta íþróttafélag landsins og það hefur átt því
láni að fagna að njóta mikils stuðnings innan og utan þess.
Áberandi hefur verið, að stuðningurinn hefur haldist og jafnvel
aukist með árunum, enda þótt velgengni á knattspymuvellin-
um hafi ekki verið til að dreifa hjá karlaliðinu um langt skeið.
Velgengni KR hefur verið með ólíkindum að undanfómu og
er óhætt að segja, að félagið minnist aldaraftnælisins með
glæsibrag. Kvennalið félagsins varð á dögunum íslandsmeist-
ari í knattspymu þriðja árið í röð og á sunnudag sigraði það
einnig í bikarkeppninni í fyrsta sinn. Kvennalið félagsins í
körfuknattleik vann einnig tvöfalt í ár og annað keppnisfólk fé-
lagsins hefur haldið merki þess á lofti í hinum ýmsu íþrótta-
greinum.
Sigur í keppnisíþróttum er sjaldnast tilviljunum háður,
miklu fremur uppsker íþróttafólk laun erfiðsins - eins og til
hefur verið sáð. Ástæða er tO að óska Knattspyrnufélagi
Reykjavíkur og hinum fjölmörgu áhangendum þess tO ham-
ingju með afmælið og hinn góða árangur. Um leið skal þess
minnst að ekkert stuðlar betur að vímuefnalausri æsku en það
starf sem íþróttahreyfingin í landinu vinnur. Ekki er síst
ástæða til að minnast þess á þeim válegu tímum sem við nú lif-
um.
/
Opinber heimsókn Lennarts Meris, forseta Eistlands, til Islands
Var þakklátur Islendingum
fyrir að opna dyrnar að Evrópu
Morgunblaðið/Þorkell
Frá undirritun samkomulags um stjórnmálasamband Islands við Eystrasaltsríkin þijú, þann 26. ágúst 1991. Frá
vinstri: Algirdas Saudargas, Sveinn Björnsson skrifstofustjóri utanrikisráðuneytisins, Janis Jiirkans, Lennart
Meri, Jón Baldvin Hannibalsson og Guðmundur Eiríksson þjóðréttarfræðingur.
*
I dag hefst opinber heimókn Lennarts Mer-
is, forseta Eistlands, til Islands. Hingað kom
hann einnig árið 1991, þá sem utanríkisráð-
herra nýfrjáls ríkis sem við undirritun yfir-
lýsingar um stjórnmálasamband ríkjanna
endurheimti réttmætan sess meðal sjálf-
stæðra Evrópuþjóða, Andri Lúthersson
rifjaði upp ummæli Meris í garð Islendinga
og kynnti sér sögu þessa óvenjulega
stjórnmálamanns.
HINN 26. ágúst árið 1991
undirrituðu utanríkisráð-
herrar íslands og Eystra-
saltsríkjanna þriggja,
Lennart Meri frá Eistlandi, Janis
Jurkans frá Lettlandi, Algirdas
Saudargas frá Litháen og Jón Bald-
vin Hannibalsson þáverandi utanrík-
isráðherra, yfírlýsingar um stjórn-
málasamband þjóðanna við hátíðlega
athöfn. Island var fyrsta ríkið sem
kom á formlegu stjórnmálasambandi
við Eystrasaltsríkin og hafa þau æ
síðan skipað sérstakan sess í hugum
Islendinga sem fylgdust náið með
þeim átökum er áttu sér stað í ríkjun-
um þremur er þau losnuðu undan
hálfrar aldar oki Sovétríkjanna -
sögulegu ranglæti - og endurheimtu
sæti sitt meðal lýðræðis- og bræðra-
þjóða í Evrópu.
Lennart Meri, núverandi forseti
Eistlands, sagði að undirritun lok-
inni, sem fram fór í Höfða, að í ágúst
1939 hefðu tvær undirskriftir, sem
settar voru að næturlagi í Kremlar-
virki, opnað dyrnar fyrir heimsstyrj-
öldina síðari. Vísaði Meri þar til leyn-
isáttmála Stalíns og Hitlers, þar sem
þeir skiptu Evrópu á milli sín og Sta-
lín fékk Eystrasaltsríkin. í frétt
Morgunblaðsins hinn 27. ágúst var
gripið niður í ræðu Lennarts Meris.
„Hvað Eystrasaltsríkin þrjú, fyrrum
aðildarríki Þjóðabandalagsins, varð-
ar, stóð síðari heimsstyrjöldin áfram,
alveg fram á þennan dag. Þessar
undirskriftir, sem þið hafið horft á,
eru þær fyrstu til að binda enda á af-
leiðingar styijaldarinnar. Við snúum
nú aftur inn í fjölskyldu Evrópu-
þjóða. Orðin sem við höfum sett á
blað, eru stutt, en þetta verður stórt
skref fyrir Evrópu og vonandi alla
menn, sem búa við lýðræði."
Var Islendingum þakklátur
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
frá því Islendingar, fyrstir þjóða, við-
urkenndu hin fullvalda Eystrasalts-
ríki fyrir rúmum átta árum. Sovétrík-
in liðuðust stuttu seinna í sundur og
Eystrasaltsríkin hafa færst nær tak-
marki sínu um að verða fullgildir aðil-
ar að sam-evrópskum stofnunum.
Markaðsvæðing og lýðræðisþróun
Eistlands og hinna Eystrasaltstríkj-
anna hefur ekki verið átakalaus og
gerði Meri sér þetta ljóst haustið
1991 er hann sagði í viðtali við blaða-
mann Morgunblaðsins daginn sem ís-
lensk stjórnvöld viðurkenndu sjálf-
stæði Eistlands að hann vildi ekki
kætast um of. „Það er langur vegur
framundan og við gerum okkur grein
fyrir því að það þarf að leysa erfíð
vandamál. Undanfarin 50 ár voru fyr-
ir aftan járntjaldið og það hafði
margar slæmar afleiðingar.“
Jafnframt sagði Meri: „Faðir minn
var stjómarerindreki fyrir Eistland.
Við höfðum í fórum okkar leynilegt
uppkast að samningi Hitlers og Sta-
líns um innlimun Eystrasaltsríkjanna
í Sovétríkin sennilega áður en stríðið
hófst. Alþjóðamál voru snar þáttur í
uppvaxtarárum mínum. Eg vissi
alltaf að sá dagur kæmi að ég myndi
halda á fána Eistlands milli handa
mér. Þegar ég var í útlegð í Síberíu
dreymdi mig þennan einfalda draum.
Nú höfum við snúið aftur til raun-
veruleikans. Og ég er þakklátur Is-
lendingum fyrir að hafa fyrstir látið
okkur hafa lykilinn, sem opnar dym-
ar að Evrópu.“
Fjölskyldan send til Síberíu
Lennart Meri fæddist árið 1929 í
Tallinn í Eistlandi. Er hann var ung-
ur að aldri fluttist fjölskylda hans úr
landi og nam hann því við skóla í
Berlín og París. Hafði fjölskyldan þó
snúið aftur er sovéski herinn innlim-
aði Eystrasaltsríkin í Sovétríkin og
árið 1941 hlaut Meri-fjölskyldan
sömu örlög og þúsundir annarra fjöl-
skyldna sem vom af eistnesku, lett-
nesku og litháísku bergi brotnar og
voru sendar til Síberíu. Eftir harða
vist í gúlaginu sneri fjölskyldan aftur
til Eistlands og Meri nam sagnfræði
við háskólann í Tartu. Sovésk stjóm-
völd vildu þó ekki leyfa honum að
starfa sem sagnfræðingur. Þess í stað
hóf hann störf í leikhúsi og síðar sem
þáttagerðarmaður við útvarp. Gaf
starfið honum tækifæri til að ferðast
um víðáttur Sovétríkjanna með það
að markmiði, að sögn kunnugra, að
afla upplýsinga um örlög þeirra fjöl-
skyldna er ekki höfðu átt aftur-
kvæmt.
Jón Baldvin Hannibalsson, sendi-
herra í Bandaríkjunum, þekkir náið
til Meris og sagðist hann í viðtali við
Morgunblaðið muna vel eftir litlu at-
viki frá því er hann kom á skrifstofu
Meris, sem var við torg það er nú
heitir Islandstorg, er hann var utan-
ríkisráðhema árið 1991. Á borðinu
hafi verið skókassi sem innihélt þétta
spjaldskrá. „Eg brá á glens og
spurði: Ertu orðinn svona vestrænn í
hugsun sem stjórnmálamaður að þú
ert farinn að hafa spjaldskrá yfír
kjósendur." Meri hafi þá glott við og
sagt að svo gæti vel verið. „Svo sýndi
hann mér innihaldið sem vom nöfn
tugþúsunda eistneskra fjölskyldna
sem höfðu eins og fjölskylda hans og
hann sjálfur lent í nauðungarflutn-
ingum Sovétmanna eftir hemámið og
ekki snúið aftur. Fjölskyldur af eist-
neskum uppruna sem enn vom vítt
og breitt í gúlaginu eða leifum þess.“
Telur Jón Baldvin þetta ekki aðeins
lýsa uppmna og rótum Meris heldur
ennfremur hvernig hann bregst við
hlutunum. „Eftir að hann sneri aftur
þá gerði hann sér það upp að vera
kvikmyndagerðarmaður og þátta-
gerðarmaður og undir því yfirskyni
ferðaðist hann um alla Síberíu og
gerði sína þætti og ritaði bækur. En í
raun og vem var hann að safna upp-
lýsingum um fólk af eistneskum upp-
runa sem var þarna í nauðungar-
vinnu.“ Eitt fyrsta verk Meris sem
utanríkisráðherra hafi verið að nota
þessar upplýsingar til þess að greiða
götu þessa fólks heim, eftir því sem
auðið var.
Tengsl Meris efldu málstað
Eystrasaltsríkjanna
Meri, sem er afkastamikill rithöf-
undur og þýðandi, gegndi trúnaðar-
störfum fyrir Samband eistneskra
rithöfunda á níunda áratugnum og
aflaði í starfi sínu mikilvægra tengsla
við erlenda stjómmálamenn og
blaðamenn, auk fjölda þeirra Eista er
flúið höfðu heimalandið er Sovétríkin
innlimuðu Eystrasaltsríkin. Gerðist
hann málsvari umhverfisverndar og
kom í veg fyrir að Sovétstjórnin réð-
ist í vinnslu fosfatnáma er gert hefðu
það að verkum að þriðjungur Eist-
lands hefði orðið óbyggilegur.
Náin tengsl Meris við málsmetandi
menn í Evrópu öfluðu málstað Eista
mikilsverðs stuðnings á alþjóðavett-
vangi og eftir að hann var skipaður
utanríkisráðherra landsins í apríl
1990 eftir fyrstu kosningar hins ný-
frjálsa ríkis varð hann fyrstur full-
trúa hinna nýfrjálsu þjóða Austur-
Evrópu til að ávarpa sendiherra Atl-
antshafsbandalagsins í Brússel, auk
þess sem hann átti fundi með starfs-
bræðrum sínum frá Bandaríkjunum
og Evrópu.
Jón Baldvin sagði í viðtali við
Morgunblaðið að Lennart Meri væri
afar óvenjulegur stjómmálamaður og
væri í sínum huga hinn „klassíski mið-
evrópski menntamaður“ sem hefði
lesið allt um allt milli himins og jarð-
ar. I heimsbókmenntum, sögu, pólitík
og vísindum sé hann vel heima. Hann
sé afar fær tungumálamaður og segir
Jón Baldvin að honum hafi eitt sinn
verið tráað fyrir því af rássneskum
stjómarerindreka, sem starfað hafi
að samningum Eista og Rússa, að
Meri tali miklu betri rássnesku en
Borís Jeltsín Rússlandsforseti, sem
tali hana með síberískum hreim. At-
hygli veki að á opinberum fundum
mæli Meri jafn vel á ensku, þýsku og
frönsku en það sé ekki formið sem
slíkt sem veki athygli manna, heldur
innihaldið. „Hann semur sjálfur sínar
ræður, sem em frumlegar og bera
glögg merki stíls rithöfundarins." Er
Meri taki til máls þá sé á hann hlust-
að. Þá sé Meri innvígður í franska,
þýska og enska menningu og Rússa
þekki hann kannski betur en þeir
þekki sig sjálfir.
Jón Baldvin sagði að Meri hafi
höfðað til yngri kynslóða sem hafi
hafi fremur lagað sig að honum en öf-
ugt. „Þeir fundu að þetta var maður
sem var ungur í anda - aldurslaus -
og hafði reynslu og vit sem þá
skorti."
Eftir stutta setu í embætti sendi-
herra Eistlands í Finnlandi vai' Meri
kjörinn forseti Eistlands í október ár-
ið 1992 eftir harða kosningabaráttu
við þáverandi forseta, Amold Rúúel.
Varð Meri þar með fyrsti þjóðkjörni
forseti Eistlands en í kosningunum
sem eftir fylgdu var kjöri forseta
landsins breytt í þá veru að þingið
kaus í embættið. Rúútel var sagður
vera fulltrái gamla kerfisins, efna-
hagsnómenklatúrunnar, sem bæri að
koma frá völdum svo opna mætti
landið fyrir erlendum fjárfestum.
Þeir sem kusu Meri voru hins vegar
að kjósa fyrirhugaða aðild að sam-
evrópskum stofnunum og Atlants-
hafsbandalaginu. Meri var aftur kjör-
inn forseti landsins árið 1996, þá af
þingheimi.
Jón Baldvin sagði að Meri hafi ver-
ið afar umdeildur þrátt fyrir að al-
menn virðing sé borin fyrir honum.
Ér hann hafi fyrst boðið sig fram hafí
hann náð öðru sæti í fyrri lotu kosn-
inganna en í þeirri seinni náð meiri-
hluta vegna þess að þá hafi andstæð-
ingar gömlu „nómenklatúrunnar“
sameinast gegn Rúútel.
Fyrri kosning Meris í forsetastól
hafi verið svo óvinsæl að Eistar hafi
numið úr gildi lög um beina kosningu
forsetans. Seinni kosningin hafí ekki
gengið þrautalaust þar sem öfund og
pólitískir flokkadrættir hafa verið
honum heldur andsnúnir.
Þetta breyti þó ekki því að árangur
Eista í framþróun samfélagsins sé
meðal þess allra mesta hjá öllum hin-
um nýfrjálsu þjóðum Mið- og Austur-
Evrópu. Þetta segi sína sögu um
þjóðina.
Fjórir úrskurðaðir í tveggja mánaða gæsluvarðhald í stærsta fíkniefnamáli hérlendis
Meðal þess sem hald var lagt á í aðgerðum lögreglunnar voru þrír BMW-eðalvagnar, sem geymdir eru í porti lögreglustöðvarinnai'.
Umfang málsins gríðarlegt
Fíkniefnasmyglið sem lögreglan kom upp
um í lok síðustu viku er hið stærsta sem
komið hefur upp hér á landi en annað eins
magn fíkniefna, sem lagt var hald á hefur
ekki áður sést í einu. Rannsókn málsins
er samt hvergi nærri lokið og stendur
yfir af fullum krafti.
FJÓRIR karlmenn á þrítugs-
aldri sem Lögreglan í
Reykjavík handtók á föstu-
dagskvöld í tengslum við
rannsókn á fíknefnamálinu sem upp
kom í lok síðustu viku, voru úrskurð-
aðir í tveggja mánaða gæsluvarðhald
á laugardag. Yngsti maðurinn í hópn-
um er tvítugur að aldri og hinir hafa
ekki náð þrítugsaldri. Allir nema einn
hinna handteknu hafa komið við sögu
fíkniefnamála áður.
Ljóst er að málið er hið stærsta í
sögu lögreglunnar og ennfremur, að
magn þeirra fíkniefna sem legið hafa
til grundvallar í stærstu fíkniefnadóm-
um liðinna ára er margfalt minna en
lagt var hald á um helgina. 1173 gr. a.
almennra hegningarlaga segir að
„Hver, sem andstætt ákvæðum laga
um ávana- og fíkniefni lætur mörgum
mönnum í té ávana- og fíkniefni eða
afhendú- þau gegn verulegu gjaldi eða
á annan sérstaklega saknæman hátt,
skal sæta fangelsi allt að tíu árum.
Sömu refsingu skal sá sæta, sem
gegn ákvæðum nefndra laga fram-
leiðir, býr til, flytur inn, flytur út,
kaupir, lætur af hendi, tekur við eða
hefur í vörslum sínum ávana- og
fíkniefni í því skyni að afhenda þau á
þann hátt, sem greint er í 1. mgr.“
Á liðnum árum hafa fallið nokkrh-
áralangir fangelsisdómar í fíkniefna-
málum, nú síðast í vor sjö ái’a fangelsi
fyrir smygl á 2.031 E-töflu, sem var
snúið við í Hæstarétti, en það er
þyngsti dómur sem kveðinn hefur
verið upp í fikniefnamáli hérlendis.
Að auki hafa m.a. verið kveðnir upp
skemmri dómar s.s. 5 ára fangelsis-
dómur yfir einum manni fyi'ir inn-
flutning á einu kg af kókaíni fyrir um
áratug og fjögurra ára
fangelsisdómur yfir tveim
mönnum fyrir innflutning
á rámum 800 E-töflum í
hittiðfyrra en í sama máli
fengu að auki tveir menn
þriggja ára fangelsi fyrir
aðild sína að málmu.
Til marks um umfang málsins var
aðdragandi atburða helgarinnar
langur en fylgst hafði verið með hin-
um grunuðu auk fleiri mánuðum sam-
an áður en látið var til skarar skríða.
Kostaði það mikla vinnu og krafðist
mikils mannafla en nú þykir sýnt að
það hefur borið árangur. Lagt var
hald á tugi kílóa af fíkniefnum, eink-
um við húsleit heima hjá hinum hand-
teknu á föstudag, en þá var lagt hald
á 17 kg af hassi, tæpar 6.000 E-töflur,
4 kg af amfetamíni og 1 kg kókaíni. Á
miðvikudag höfðu sjö kg af hassi
fundist um borð í skipi, sem komið
hafði frá Danmörku. Auk fíkniefna
lagði lögreglan hald á eina milljón
króna í peningum, tölvubúnað og
fjögur ökutæki, þar af þrjár BMW-
bifreiðar af dýrustu gerð.
Eitt af því sem lögregla telur að
hafi áunnist með aðgerðunum er að
nú hefur verið lokað fyrir þessa til-
teknu smyglleið, sem hugsanlega
kann að hafa verið opin í nokkum
tíma miðað við það magn efna sem
lagt var hald á. Þá er ekki átt við
smyglaðferðina í sjálfu sér, þ.e. að
smygla efnum sjóleiðis heldur smygl-
leið sem tengd var ákveðnum ein-
staklingum, þeim hinu sömu og nú
sitja í gæsluvarðhaldi. Hins vegar
mun áfram verða fylgst með hugsan-
legu skipasmygli.
Magn fíkniefnanna, sem lagt hefur
verið hald á við rannsókn málsins er
gífurlegt og margfalt á við það sem
lagt hefur verið hald á í einu og sama
málinu og jafnast magnið á við það
sem lagt hefur verið hald á á ári síð-
ustu árin. Þannig hefur
þegar verið lagt hald á
meira af hassi við rann-
sókn þessa eina máls en
árlega allar götur aftur til
ársins 1972 að árinu 1996
undanskildu, < en þá lagði
lögregla hald á rám 36 kg
af hassi á móti þeim 24 kg sem nú
hafa náðst.
Fáar hliðstæður við
4 kg af amfetamíni
Þau 4 kg af amfetamíni sem hald
hefur verið lagt á í málinu eiga sér fá-
ar hliðstæður í tæp 30 ár og þá er að
sjálfsögðu átt við magn á ári, en árið
1995 var lagt hald á rám 5 kg af efninu
og ári síðar rám 6 kg. í fyrra lagði lög-
reglan síðan hald á um 1,7 kg af am-
fetamíni. Sömu sögu er að segja um
kókaínið sem fannst, en mesta magn
sem lagt hefur verið hald á á einu ári
síðan 1972 er um 1,3 kg af efninu á
móti 1 kg nú. Magn E-taflnanna, sem
fundust á föstudaginn, 6.000 stykki, er
margfalt á við það sem fundist hefúr
milli ára á þessum ái’atug en þess ber
að geta að eiturlyfið fór fyrst að sjást
hér í upphafi áratugarins. Sífellt
meira magn af E-töflum hefur fundist
milli ára á áratugnum að undanskildu
árinu í fyrra, en mikill kippur kom á
milli áranna 1994 og 1995 þegar fjöldi
E-taflna sem hald var lagt á fór úr 22
stykkjum í 1820 stykki. Árið eftir,
1996 var stykkjafjöldinn kominn í
2199 og árið 1997 3397 stykki. í fyrra
var síðan lagt hald á 2031 E-töflu úr
einu og sama málinu.
Mörg hass- og amfetamíntilfelli
Að sögn Guðmundar Gígju, lög-
reglufulltráa hjá Lögreglunni í
Reykjavík, segja tölur um fíkniefni
sem hald hefur verið lagt á ákveðna
sögu um það magn fíkniefna sem er í
umferð á hveijum tíma. Þannig má
segja að ef lagt er hald á efnin í mörg-
um tilfellum getur það ver-
ið vísbending um að mikið
sé í umferð af tilteknum
efnum. Sérstaklega á það
við um kannabisefni og am-
fetamín, en á liðnum árum
hefur verið lagt hald á þess
konar efni í mörgum tilfell-
um. Aðra sögu er hins vegar að segja
um t.d. E-töflur en til samanburðar
má nefna að E-töflur sem hald var
lagt á í fyrra, alls 2.031 stykki tengd-
ust einu og sama málinu. Guðmundur
bendir ennfremur á að veruleikinn á
bak við tölfræðina geti þá allt eins
vitnað um áherslur lögreglunnar frek-
ar en árangur ef tekið er t.d. mið af
málafjölda í brotaflokknum Fíkniefni
- varsla - neysla. I málaflokknum var
fjöldi mála árið 1996 502 mál en næstu
tvö ár á eftir rétt um 270 eða nærri
helmingi færri. Skýringar á þessari
fækkun sé að hluta til að finna í þeirri
staðreynd að árið 1996 voru settir sér-
stakir lögreglumenn að ná mönnum af
götunni með fíkniefni, en um leið og *-
dregið var úr þeim aðgerðum fækkaði
málunum.
Ásókn í áfengi gæti aukist
Það að lögreglan lagði hald á svo
mikið magn fíkniefna um helgina tel-
ur hún að muni hafa slævandi áhrif á
fíkniefnamarkaðinn á næstunni því
ljóst er að rannsókn lögreglunnar er
og verður mjög víðtæk og gæti varð-
að aðra en þá sem nú eru í haldi.
Ennfremur má reikna með því að
framboð á efnum fai'i nú minnkandi
ef óöryggi skapast meðal sölumanna
eiturlyfja. Komi sú staða upp að
framboð á fíkniefnum minnki umtals-
vert má síðan reikna með því að fíkl-
ar, sem ekki ná sér í ólögleg fíkniefni, -
leiti ýmist eftir öðrum vímugjöfum,
s.s. áfengi, róandi lyfjum eða jafnvel
meðferð á sjúkrastofnun.
Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á
Vogi segir Ijóst að þurrð á fíkniefna-
markaðnum muni framkalla meiri
ásókn í ofangreind vímuefni og því sé
ástæða til að hafa auga með aukinni
áfengis- og lyfjaneyslu ef fíkniefna-
markaðurinn sýni viðbrögð við at-
burðum helgarinnar. Hann bendir
ennfremur á að þegar mikið af ólög-
legum fíkniefnum sé í umferð hafi
það þau áhrif framboðið togi sjúk-
linga, sem eru í meðferð vegna
neyslu, út af sjúkrastofnunum.
540 stórnotendur
ólöglegra efna í fyrra
Á heimasíðu SÁÁ kemur fram að á
síðasta ári hafi 540 stórneytendur
ólöglegra vímuefna
greinst meðal sjúklinga á
Vogi. Fram kemur að
fjöldi stómeytenda
kannabis hafi næstum
þrefaldast á síðustu fjór-
um ámm en á síðasta ári
voru þeir 410 talsins sem komu á
Vog. Þá greindust 389 stórneytendur
amfetamíns meðal sjúklinga og hafa
aldrei verið fleiri. Fjöldi reglulegra ^
neytenda E-töflunnar er hins vegar
lítill en af þeim 175 sem notað höfðu
efnið og komu á Vog voru 20 reglu-
legir neytendur. Kókaínneysla virð-
ist hins vegar vera að aukast veru-
lega hérlendis og reyndust 42 stóm-
eytendur meðal þeirra 219 einstak-
linga, sem komu á Vog á síðasta ári,
að því er kemur fram á heimasíðu *
SÁA.
Notkun af-
metamíns og
kókaíns hefur
stóraukist
Fylgst var
með hinum
grunuðu um
langa hrið