Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 43
MORGUNB LAÐIÐ
________________________________ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 43 "
VEÐREIÐAR FÁKS
Kampakátir tóku þeir Logi Laxdal, til vinstri, og Mag’nús við verðlaunafénu í lok kapp- Leiser átti endasprett í 800 metrunum og sigraði nokkuð örugglega, knapi er Sylvía
reiða. Logi með þá Hraða, Þormóð ramma og Oðin en Magnús situr Katrínu. Sigurbjörnsdóttir.
Góðir tímar í skeiði -
stökkhestamir þungir á sér
Þegar hestamenn ættu undir öllum eðlileg-
um kringumstæðum að vera að draga
skeifur undan og koma hrossum sínum í
hausthaga er verið að blása lífí í veðreiðar
Fáks eftir rúmlega þriggja mánaða hlé.
Aðrar veðreiðar ársins voru haldnar að
Víðivöllum og voru þær að stærstum hluta
sýndar beint á Sýn og nú í fyrsta sinn voru
veðmálin rekin í samvinnu við Islenskar
getraunir. Valdimar Kristinsson fylgdist
framan af með í sjónvarpinu en fór síðan á
vettvang og myndaði úrslitahlaupin.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Vinur, sem enginn veit hvaðan er, sigraði af öryggi í 250 metrunum
og knapinn, Stígur Sæland, setja sig hér í réttu stellingarnar að
loknu hlaupi og góðum sigri, sem skilaði 50 þúsund krónum.
KAPPREIÐAVEKRINGAR lands-
ins hafa haft úr ýmsu að moða í
sumar en stökkhestarnir hafa feng-
ið fá tækifæri til að etja kappi. Veð-
reiðar Fáks báru þessa glögg
merki. Skeiðhrossin skiluðu ágæt-
um tímum meðan þungir stökkhest-
arnir dóluðu sér í mark. Sérstak-
lega virtust hrossin í 800 metrunum
vera þung á sér í lok hlaupa. En nú
eru kappreiðarnar komnar í fullan
gang og ljóst að keppt verður næstu
fjórar helgar, sem þýðir að enn
lengist keppnistímabil hestamanna,
sem nú endar um miðjan október.
Keppnin var tvískipt, annarsveg-
ar undanrásir þar sem einn riðill í
hverri grein var veðhlaup og svo úr-
slitasprettir þar sem veitt voru
þrenn peningaverðlaun. 50 þúsund
krónur fyrir fyrsta sæti, 25 þúsund
krónur fyrir annað sæti og 15 þús-
und krónur fyrir þriðja sæti. í
veðriðlana voru valin saman hross
með bestu tíma frá undangengnum
kappreiðum og verður svo áfram
þannig að tímar frá kappreiðum
helgarinnar munu gilda á næstu
kappreiðum við niðurröðun í
veðriðla. Þegar veðmál hófust fengu
hestarnir veðstuðla eftir því hversu
mikið var veðjað á hvern þeirra. Því
meira sem veðjað var á hest lækk-
aði stuðull hans.
Sex í riðli
Nú voru í fyrsta sinn sex hestar í
riðli í öllum greinum og mátti
glöggt sjá að það veldur knöpum í
skeiðinu vandræðum þegar sex
hestar koma snarlega út úr boxun-
um. Kom fyrir að hestar lentu í
þvögu og slíkt gerir knöpum mjög
erfítt fyrir með að ná hestunum á
skeið. Þá kvörtuðu hlaupagæslu-
menn yfír því að erfitt væri að
henda reiður á hverjir liggi sprett-
ina á enda þegar allt er í einni kös.
Ein kæra kom fram eftir úrslita-
sprett í 250 metra skeiði þegar
knapi sagði að tveir keppinautanna
hefðu hleypt fyrir sig og komið í veg
fyi-ir að hann næði hrossinu niður.
Kæran var ekki tekin til greina og
við það sat. Það var örlítið kald-
hæðnislegt að þegar upp komu
ágreiningsatriði í úrslitasprettunum
voru tökumenn Sýnar á bak og burt
með tól sín og tæki til að mynda
kvennafótbolta á Laugardalsvelli
svo ekki var hægt að styðjast við
upptökur.
Allt upp í lofti í úrslitum
Aðeins tvö hross lágu í hvorum
úrslitaspretti í skeiðinu og því að-
eins veitt fyrstu og önnur vei'ðlaun.
Tímarnir vora mun lakari í úrslita-
sprettunum en sigurinn í 250 metr-
unum dæmdist Katrínu frá Kjarn-
holtum sem Magnús skeiðmeistari
Benediktsson sat. Rann Katrín
sprettinn á 24,57 sekúndum en Oð-
inn frá Efstadal, sem Logi Laxdal
sat, var á 24,93 sekúndum. Logi var
með tvo fljótustu hestana í 150
metra skeiðinu, reið sjálfur Hraða
frá Sauðárkróki en þeir vora með
næstbesta tímann, 17,16 sekúndur,
en hann fékk Jón Gíslason til að
sitja Þormóð ramma frá Stokk-
hólma og náðu þeir besta tímanum,
15,30.
Ósk frá Litladal er í feiknaformi
þessa dagana, skeiðaði 250 metrana
á 21,84 sekúndum, sem er næstbesti
tími hennar á árinu og líklega næst-
best tími hennar frá upphafí. Sigur-
björn Bárðarson náði henni ekki
niður á skeið í úrslitasprettinum og
sagði hann að hleypt hefði verið fyr-
ir sig á niðurtökukaflanum. En ár-
angur Óskar var tvímælalaust besti
árangur kappreiðanna. Þótt stökk-
hestamir væru ekki í góðu formi
var nokkur spenna í flestum hlaup-
um. Má þar nefna veðriðilinn í 800
metranum þar sem Lýsingur og
Leiser háðu harða rimmu. Ætla má
að stökkhestamir mæti sprækari til
leiks um næstu helgi og bæti við sig
fram að síðustu kappreiðum.
Hestar-
/fólk
■ LOGI Laxdalgerði góða
ferð í Víðidalinn. Vann hann
hundrað þúsund krónm' inn á
vekringana sem hann mætti
með til leiks.
■ ÞORMÓÐUR rammi frá
Stokkhólma skilaði fimmtíu
þúsundum fyrir fyrsta sæti í
150 metra skeiði en Jón Gísla-
son sat hann á úrslitasprettin-
um.
■ LOGI sat sjálfur Hraða frá
Sauðárkróki, sem skilaði tutt-
ugu og fimm þúsund krónum.
■ ÓÐINN frá Efstadal skilaði
einnig tuttugu og fimm þús-
und krónum fyrir annað sæti í
250 metra skeiðinu.
■ FREYJA frá Efstadal,
móðir Óðins, var skráð til
leiks í 150 metranum og skil-
aði vegalengdinni á 16,76 sek-
úndum en hún er nú 25 vetra
gömul.
■ FREYJA gat sér fyrst
frægð er hún öllum á óvart
sigraði í 250 metra skeiði á
hvítasunnumóti Fáks fyrir um
tíu árum.
■ JÓHANN Valdimarsson
eigandi Freyju sat hryssu sína
um helgina eins og á mótinu
fyrir tíu áram. En þá skeiðaði
hún á tíma vel undir 23 sek-
úndum.
■ STJARNI frá Efstadai, sem
keppti í 800 metra stökki, er
sonur Freymóðs frá Efstadal,
sem Logi Laxdal fór með á
heimsmeistaramótið í sumar.
En hér birtast úrslit í 350 og 800
metra stökki og bestu tímar hross-
anna úr undanrásum og í úrslitum.
Fyrri tölurnar sýna tímann úr und-
anrásum en seinni tölur eru tímar í
úrslitum. Röð vekringanna er eins
og hún var eftir undanrásir, aðeins
einn tími.
Skeið 250 metrar ^
1. Ósk frá Litladal, eig. og kn.: Sig-
urbjörn Bárðarson, 21,84 sek.
2. Óðinn frá Efstadal, eig.: Jóhann
Valdimarsson, kn.: Logi Laxdal,
22,27 sek.
3. Glaður frá Sigríðarstöðum, eig.:
Hafsteinn Jónsson, kn.: Sigurður V.
Matthíasson, 22,52 sek.
4. Skjóni frá Hofi, eig.: Hjörtur
Bergstað, kn.: Sigurður V. Matthí-
asson, 23,22 sek.
5. Framtíð frá Runnum, eig.: Ragn-
ar Valsson, kn.: Sveinn Ragnarsson,
23,54 sek. *
6. Katrin frá Kjarnholtum, eig.:
Eygló Gunnarsdóttir, kn.: Magnús
Benediktsson, 24,24 sek.
Skeið 150 metrar
1. Hraði frá Sauðárkróki, eig. og
kn.: Logi Laxdal, 14,39 sek.
2. Gunnur frá Þóroddsstöðum, eig.:
Bjarni Bjarnason, kn.: Þórður Þor-
geirsson, 14,63 sek.
3. Ölver frá Stokkseyri, eig.: Haf-
steinn Jónsson, kn.: Sigurður V.
Matthíasson, 14,75 sek.
4. Þormóður rammi frá Stokk-
hólma, eig. og kn.: Logi Laxdal,
14,94 sek.
5. Gasella frá Hafnarfirði, eig.: Arn-
ar Bjarnason, kn.: Guðmundur
Jónsson, 15,12 sek. **
6. Von frá Steinnesi, eig.: Hjörtur
Bergstað, kn.: Tryggvi Bjömsson,
15,17 sek.
Stökk 800 metrar
1. Vinur, eig.: Kristinn J. Einars-
son, kn.: Stígur Sæland, 25,59/24,77
sek.
2. Sproti frá Árbakka, eig.: Ingimar
Jónsson, kn.: Aníta Aradóttir,
26,42/26,10 sek.
3. Gáska frá Þorkelshóli, eig.: Hall-
dór P. Sigurðsson, kn.: Kolbrún S.
Indriðadóttir, 26,33/26,11 sek.
4. Gullrass frá Komsá, eig.: Magnús
Einarsson og Logi Laxdal, kn.:
Daníel I. Smárason, 26,24/26,77 sek.
5. Brúða frá Akureyri, Gunnar Hall-^_
dórsson, kn.: Gígja D. Einarsdóttir,
26,70/26,83 sek.
6. Snerpa frá Brekku, eig.: Smári
Adolfsson, kn. í undanr.: Daníel I.
Smárason, kn. í úrsl.: Sigurjón
Björnsson, 26,81/27,40 sek.
Stökk 800 metrar
1. Leiser frá Skálakoti, eig.: Axel
Geirsson, kn.: Sylvía Sigurbjöms-
dóttir, 64,69/65,75 sek.
2. Trausti frá Hvítárholti, eig. og
kn.: Sigurður S. Pálsson,
66,20/66,99 sek.
3. Lýsingur frá Brekku, Piltur og
stúlka, kn.: Stígur Sæland,^
64,60/67,19 sek.
4. Frigg frá Breiðabólstað, eig.:
Halldór P. Sigurðsson, kn.: Sigur-
þór Sigurðsson, 69,66/68,99 sek.
5. Kósi frá Efri-Þverá, eig.: Halldór
P. Sigurðsson, kn.: Kolbrún S. Ind-
riðadóttir, 65,47/69,74 sek.
6. Stjami frá Efstadal, eig. og kn^f.
Valdimar Á. Kjartansson,
70,56/71,78 sek.