Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Kynningardagar norræna umhverfísmerkisins
Hollustuvernd boðar byltingu
í umhverfisverndarmálum
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
Nýr smurostur
KOMINN er á markað nýr
smurostur með pepperóní frá
Kavli. Fituinnihald ostsins er lágt,
einungis 18%. Geymsluþol ostsins
er 15 mánuðir í kæli. Pepperóní-
smurosturinn er í handhægum túp-
um. Hann er góður sem álegg á
brauð eða hrökkbrauð auk þess
sem hann hentar vel sem bragð-
auki í matargerð. Bergdal ehf. flyt-
ur inn og dreifír Kavli-smurostun-
um.
Argos-listi
NÝR Argos-vetr-
arlisti er kominn
út. Hann er 750
blaðsíðna langur
og inniheldur m.a.
búsáhöld, heimil-
istæki, skartgripi
og ljósakrónur
auk úrvals af jóla-
og gjafavörum.
Listinn fæst hjá B. Magnússon.
Skólavörðuatig, Kringlunni ó Smáratorgi
HOLLUSTUVERND rískisins hef-
ur hafið kynningarátak fyrir Nor-
ræna umhverfismerkið, en í haust
eru liðin tíu ár frá því að sameigin-
legt umhverfismerki var tekið í
notkun á Norðurlöndunum.
Merkið er notað á vörur
sem uppfylla ströng
skilyrði um að meng-
un við framleiðslu,
notkun og eyðingu
þeirra sé lítil. Tak-
markaður fjöldi
vörutegunda á Is-
landi er enn sem
komið er skreyttur
Norræna umhverfis-
merkinu og aðeins
ein vörutegund
framleidd á íslandi ber merkið, en
er það þvottaefnið Maraþon milt frá
Frigg hf.
Á móts við
umhverfisvitund neytenda
Á hinum Norðurlöndunum er merk-
ið hins vegar mun þekktara og ræð-
ur, að sögn Tore Skjenstad hjá
Hollustuvernd, miklu um innkaup
hjá neytendum, enda fer umhverfis-
vitund neytenda sívaxandi og hefði
maður talið að Islendingar væru
ekkert undanskildir þeirri þróun.
Hins vegar hafa neytendur á ís-
landi ekki haft kost á að velja vörur,
í teljandi magni, merktar umhverf-
isstimpli fram til þessa og því ekki
að undra að merkið skuli vera lítt
þekkt hér á landi. Tore Skjenstad
segir ástæðu þess að svo fáar ís-
lenskar vorur beri merkið vera tví-
þætta. I fyrsta lagi segir hann um-
hverfisvitund íslenskra neytenda, í
samanburði við nágrannaþjóðirnar;
enn skammt á veg komna. I
öðru lagi þurfa framleið-
endur að leggja út í
töluverðan stofnkostn-
að, eða því sem nemur
um eitt hundrað þús-
und krónur í umsókn-
argjöld. Auk þess
borga framleiðendur
0,4% af árlegri sölu
vörunnar. Islenska
umhverfismerkja-
nefndin sem skipuð er
fulltrúum Hollustu-
vemdar, heilbrigðis- og félagsmála-
ráðuneytisins, tekur á móti umsókn-
um frá framleiðendum, sem einnig
geta sótt um niðufellingu á umsókn-
argjöldunum vilji þeir að vara
þeirra beri merkið.
Hollustuvemd og umhverfis-
merkjanefndin boða nú breytta
tíma og standa fyrir kynningardög-
um á Norræna umhverfismerkinu
út þennan mánuð, með það fyrir
augum að Islendingar læri að
þekkja merkið og fyrir hvað það
stendur.
Hollustuvemd hefur látið fram-
leiða kynningar- og útstillingarefni
fyrir verslanir sem fæst endurgjald-
skaust hjá stofnuninni. Stofnunin
hefur einnig beint þeim tilmælum til
fyrirtækja er nú þegar markaðsetja
Norræna umhverfis-
merkið
Egg og skinka selt saman í pakka
Varan reyndist
ókæld og ósöluhæf
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá Heil-
brigðiseftirliti Kjósarsvæðis:
„Brögð hafa verið að því að
undaniornu að verslanir á
höfuðborgarsvæðinu hafi selt
kjötvöru, utan kælis. Þannig
hefur orðið vart við að beikcn
og skinka hafi verið seld í
pakkningu með eggjum og
hefur varan staðið í grind ut-
an kælis. Heilbrigðiseftirlit
Kjósarsvæðis hefur þurft að
hafa afskipti af verslunum
vegna þessa og þegar hefur
nokkurt magn af þessari vöru
verið tekið úr sölu og hent. Þá
hafa niðurstöður rannsóknar-
stofu staðfest að um ósölu-
hæfa vöru hefur verið að
ræða.
Ef kjötvara nær að hitna of
mikið ná bakeríur í kjötinu að
fjölga sér og varan eyðileggst.
Ef sjúkdómsvaldandi bakterí-
ur eru til staðar í upphafi geta
þær valdið matareitun.
Heilbrigðiseftirlitið hvetur
fólk til þess að kaupa ekki
kælivöru sem geymd er utan
kælis og láta eftirlitið vita
verði það vart við slíka vöru.“
HEILSUBOT
KYNNING OG RAÐGJOF UM
NOTKUN ZINAXIN™ OG REVENA®
Engifer
°9gígt
Zinaxin™
ranptKwws
Þa5 er munur á engifer. Zinaxin inniheldur
staðlaðan engifer-extrakt sem tryggir jafnan
styrk virku efnanna I hverri framleiðslu.
3S&
REVENA
Revena fótakrem við þreytu,
bólgu og pirringi í fótum.
KYNNTU ÞÉR MÁL!N í eftirtöldum
apótekum milli kl. 14-18
Austurbæjar apótek þri. 14. sep.
Háaleitis apótek mið. 15. sep.
Norðurbæjar apótek fim. 16. sep.
Akranes apótek fös. 17. sep.
M38QN'
Frá afhendingu kynningar- og útstillingaefnis í Ofnasmiðjunni; frá
vinstri Sigurður Þorvaldsson sölustjóri, Þröstur Gestsson sölumaður,
Tore Skjenstad frá Hollustuvemd ríkisins og Erling Erlingsson frá
AUMA, sem annast Auglýsinga- og markaðsmál fyrir útbreiðslu um-
hverfismerkisins á íslandi.
vörur merktar merkinu að kynna
þær sérstaklega næstu vikurnar.
Markmið Hollustuverndar er að
fjölga verulega þeim vörutegundum
hérlendis sem bera Norræna um-
hverfismerkið á Norðurlöndum sem
og að auka innlenda framleiðslu á
merkinu og er það að sögn Tore lið-
ur í að koma á móts við umhverfis-
vitund neytenda.
Neytendur ráða ferðinni
I fréttatilkynningu Hollustverndar
segir að með aukinni umhverfisvit-
und almennings og þekkingu á gildi
umhverfismerkisins, muni fleiri
fyi’irtæki, af hagsmunaástæðum,
sjá sig knúin að merkja vörur sínar
merkinu. Umhverfismerkingar
hafa nú lengst sannað gildi sitt á
Norðurlöndunum og víðar og gert
neytendum auðveldara að velja vör-
ur sem menga síður umhverfið. Fá-
ar þjóðir lifa í eins nánu samspili
við náttúruna og íslendingar og því
tími til kominn að vera ekki eftir-
bátur annan-a þjóða í verndun um-
hverfisins.
A annað hundrað slys af völdum
knattspyrnumarka
Jarðankerin
geta komið í veg
fyrir slys
ÞORBJÖRN Ás-
björnsson hefur
hannað festingar
fyrir knattspyrnu-
mörk sem hann kall-
ar jarðanker. Jarð-
ankerin eiga að
koma í veg fyrir að
mörkin geti koll-
steypst og valdið
slysum. Að sögn
Þorbjörns hefur Iðn-
tæknistofnun þegar
gert prófanir á jarð-
ankerunum. Þær
leiddu í ljós að tog-
krafturinn mældist
frá 70-200 kflóum
eftir því í hvaða hom
var togað áður en
jarðankerið losnaði
úr jörðu.
Herdís Storgaard,
framkvæmdastj óri
átaksverkefnis um
slysavamir bama og
unglinga, segir að á
þeim fjórtán áram
sem hún hafi unnið
að slysavömum
bama og unglinga
hafi á fimmta tug lífshættulegra
slysa orðið vegna illa festra fót-
boltamarka. „Þar fyrir utan hefur á
þessum tíma þurft að leggja inn um
100 börn sem hafa hlotið áverka af
völdum knattspyrnumarka. Börn
hanga gjarnan í mörkunum og það
er alvarlegt þegar þau era ekki fest
tryggilega niður. Það er því full
ástæða til að hvetja þá sem eiga eft-
ir að gera úrbætur með festingar á
Þorbjörn Ásbjörnsson.
mörkum að láta verða af því. Jarð-
ankerin hafa verið prófuð sam-
kvæmt ströngum öryggiskröfum og
eiga að koma að notum.“
Þorbjörn segir að Vélsmiðjan
Héðinn vinni nú að smíði tveggja
jarðankera fyrir sig en í október
fer hann að taka við pöntunum.
Hann býst við að eftir áramót verði
farið að framleiða jarðankerin og
selja.