Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 6J|||
Foreldrar Nönnu Karenar, Þórunn Inga Runólfsdöttir og Alfreð Ómar
Isaksson ásamt Kolbrúnu Aðalsteinsdóttir _og syni hennar, Aðalsteini
Janusi Sveiniónssyni, I Nice.
Stúlkurnar ijórar sem komust í efstu sætin: Alexandra Vukovice sem
varð í öðru sæti, Raica Liveira, einnig í öðru sæti, sigurvegarinn Vika
Semencove og Ashley Garrison sem lenti í þriðja sæti.
Nanna Karen á tískusýningu sem frain fór á ströndinni.
Þann 20. október býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
vikuferð til hinnar fornfrægu og fallegu borgar Prag.
Flogið verður til Frankfurt í Þýskalandi, þaðan sem ekið verður
samdægurs til Prag. í Prag verður dvalið til 26. október, en þá
verður ekið aftur til Þýskalands þar sem gist verður síðustu nóttina.
Verð á mann er 59.900 krónur og er þá innifalið flug, akstur milli
Frankfurt og Prag, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður,
flugvallarskattur, skoðunarferð um borgina og íslensk fararstjóm.
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar
| Ferðaskrlhtofa
GUDMUNDAR JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
9
FÓLK í FRÉTTUM
Uf ^iil í llilti ke|t|)llitllli
Fékk góð tilboð en
komst ekki í sæti
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Um kvöldið dönsuðu stúlkurnar fyrir dómarara
og aðra viðstadda á diskóteki. Hér sést Nanna
Karen dansa.
ÚRSLIT hafa verið
kunngerð í Elite-
keppninni sem fram
fór í Nice á Suður-
Frakklandi um helg-
ina. Undirbúningur
stóð yfír í viku og
þurftu stúlkumar 75
sem kepptu að vera
á stífum æfingum
alla dagana en á
kvöldin voru diskó-
tek með mismun-
andi þemum.
A laugardag
hófust úrslitin með
tískusýningu á
ströndinni þar sem
stúlkurnar komu
fram á sundfatnaði.
Um kvöldið döns-
uðu stúlkurnar fyrir
dómnefndina á diskóteki og síðar
um kvöldið var tilkynnt hvaða
stúlkur urðu í fimmtán efstu sæt-
unum.
Dökkhærðar stúlkur sigruðu
Stúlkurnar fjórar sem lentu í
þremur efstu sætunum eru allar
með sítt, dökkt hár sem virðist vera
það útlit sem aðallega er sóst eftir í
dag. Stúlkan sem vann keppnina
heitir Vika Semencova og er frá
Úkraínu. Tvær stúlkur voru jafnar
að stigum og hrepptu annað sætið,
þær Raica Liveira frá Brasilíu og
Alexandra Vukovice frá Júgóslavíu.
Ashley Garrison frá Bandaríkjun-
um hlaut þriðja sætið en Nanna
Karen Alfreðsdóttir sem var full-
trúi Islands í keppninni komst ekki
í eitt af fimmtán efstu sætunum.
Hún mun þó hafa nóg að gera við
fyrirsætustörf á næstunni og flaug
strax eftir lokakvöldið til London til
að sitja fyrir. „Hún er nú í prufum
fyrir breska Vouge sem er frábær
árangur,“ sagði Kolbrún Aðal-
steinsdóttir frá Islenskum fyinrsæt-
um sem flaug ásamt Nönnu til
London beint frá Frakklandi. „Eins
er hún á leiðinni til Parísar í mátun
fyrir Gil Sanders sýningu sem hald-
in verður á Mflanó 31. september."
Kolbrún segir Nönnu hafa fengið
mjög góð tilboð þrátt fyrir að kon-
ast ekki í úrslit í Frakklandi.
„Stúlkan sem vann er æðisleg og
býður af sér góðan þokka og það
verður spennandi að fylgjast. með
henni í framtíðinni."
mbl.is
> rpc íjí TTjRl J
TjjVj * ] j |