Morgunblaðið - 28.10.1999, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra um gagnrýni
formanns VMSI
Höfum ekki
grafíð undan
stöðugleikanum
Morgunblaðið/Bernhald Jóhannesson
Matartími hjá slökkviliðsmönnum á Hellu og Hvolsvelli. Slökkviliðsmenn ásamt leiðbeinendum.
Morgunblaðið/Kristinn
Erfitt getur reynst að glöggva
sig á gildi peningaseðla við
fyrstu sýn. Efsti seðillinn á
myndinni er ófalsaður en sá
neðri er hinsvegar falsaður.
Greitt með
fölsuðum
seðlum í MH
ÞRIR falsaðir þúsund króna seðlar
komust í umferð í Menntaskólanum
við Hamrahlíð í vikunni. Uppgötv-
aðist hátterni ókunnra og óprútt-
inna viðskiptaaðila skólans í gær og
í fyrradag þegar seðlamir fúndust,
en þeir eru mjög líkir löglegum
seðlum, þótt heldur sé pappírinn í
þeim nokkru þykkari og stamari
auk þess sem litimir em dekkri en í
hinum löglegu. Þá vantaði segul-
þráð og vatnsmerki í fölsuðu seðl-
ana.
Tveir seðlanna fundust á þriðju-
dagskvöld þegar verið var að gera
upp sölu dagsins eftir miðasölu á
skóladansleik MH og sá þriðji, sem
fannst í gær, hafði að líkindum verið
notaður í viðskiptum við matsölu
skólans.
Strax var haft samband við lög-
regluna og henni afhentir fölsuðu
seðlamir.
Að sögn Gunnars Hallgrimsson-
ar, útskriftamema og starfsmanns
matsölu MH, var gripið til þess ráðs
að bregða öllum peningaseðlum eft-
ir viðskiptin í gærmorgun upp í
skært ljós til að kanna áreiðanleika
þeirra, eftir að sá falsaði uppgötvað-
ist, en þeir reyndust sem betur fer
góðir og gildir.
Að sögn Ingvars A. Sigfússonar,
rekstrarstjóra Seðlabankans, eru
1,5 milljónir þúsund króna seðlar í
umferð á Islandi, en árlega koma
fram 15-20 seðlar, sem reynast fals-
aðir eða um 0,001% af gildum þús-
und króna seðlum í umferð. Heyri
það hins vegar til algjörra undan-
tekninga ef eftirlíkingar af öðmm
fölsuðum seðlum koma fram.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
vísar því á bug að stjórnvöld hafi
grafið undan stöðugleika í landinu
og að gengið hafi verið á bak kosn-
ingaloforða eins og Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambands Islands, hélt fram í setn-
ingarræðu sinni á þingi VMSI sl.
þriðjudag. Björn Grétar sakaði
stjórnvöld um að hafa ekki staðið
við sín loforð um að vera bakhjarl-
ar launastefnu sem tryggði stöðug-
leika og vaxandi kaupmátt.
„Það er ekki hægt að færa nein
rök fyrir þessu. Þvert á móti emm
við að skila ríkissjóði með miklum
afgangi. Við höfum staðið að því
með Seðlabankanum að vextir hafa
hækkað og við emm að fresta
framkvæmdum,“ sagði Davíð í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Davíð sagði það rangt að hann
hefði gengið á bak kosningalof-
orða frá í vor. „Ég var sakaður um
það í kosningabaráttunni, ekki
bara af andstæðingum heldur
jafnvel af samherjum, að ég hefði
ekki gefið nein kosningaloforð,
þannig að það væri fróðlegt að
vita hvaða kosningaloforð átt er
við,“ sagði Davíð.
UM 47% íslendinga eru mjög eða
frekar sammála því að Reykjavík-
urflugvöllur verði áfram staðsettur
í Vatnsmýrinni í Reykjavík, um
31% eru ósammála því en um 22%
hafa ekki myndað sér skoðun á því.
Þetta kemur fram í skoðanakönn-
un sem Pricewaterhouse Coopers
gerði í lok september á viðhorfi ís-
SLÖKKVILIÐSMENN á Hellu og
Hvolsvelli tóku það undarlega ró-
lega þegar eldur kom upp í hús-
inu á Bakkavöllum í Hvolhreppi
um síðustu helgi. í stað þess að
reyna að slökkva eldinn fengu
þeir sér kaffi og borðuðu nestið
sem þeir höfðu tekið með sér.
Þetta átti sér hins vegar eðlileg-
ar skýringar því að þeir voru á
reykköfunarnámskeiði á vegum
Brunamálaskóla Brunamála-
stofnunar ríkisins. Eftir að hafa
setið á skólabekk í tvo daga var
lendinga til staðsetningar Reykja-
víkurflugvallar en spurt var: Ertu
sammála eða ósammála því að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram
staðsettur í Vatnsmýrinni í
Reykjavík? Úrtakið var 1.100
manns alls staðar að af landinu á
aldrinum 18 til 75 og var nettósvar-
hlutfall um 61%.
Húsið
brennur og
slökkviliðið
í kaffí
farið að Bakkavöllum og kveikt í
gamla íbúðarhúsinu í æfingar-
skyni. fbúðarhúsið að Bakkavöll-
Lítill munur var á afstöðu karla
og kvenna til málsins en nokkur
munur var á afstöðu íbúa höfuð-
borgarsvæðisins og íbúa lands-
byggðarinnar. 45,5% íbúa höfuð-
borgarsvæðisins eru mjög eða
frekar sammála því að hann verði
áfram í Vatnsmýrinni, 36,5% eru
mjög eða frekar ósammála og um
18% hafa ekki myndað sér skoðun.
Um 50% íbúa landsbyggðarinnar
eru mjög eða frekar sammála, um
21,5% eru mjög eða frekar ósam-
mála og um 28,5% hafa ekki mynd-
að sér skoðun.
Flestir nefndu
Keflavík
Þeir sem voru mjög eða frekar
ósammála því að fiugvöllurinn yrði
áfram staðsettur í Vatnsmýrinni
voru spurðir: Hvar á flugvöllurinn
frekar að vera staðsettur? Af þeim
sem tóku afstöðu sögðu 43,5%
Keflavík, um 13% sögðu utan
Reykjavíkur/byggðar, um 12%
sögðu Hafnarfjörður/Hafnarfjarð-
arhraun, um 3% Sandskeið og um
28,5% nefndu annað.
um hafði lokið tilgangi sínum og
staðið autt í mörg ár.
Þórður Bogason og Oddur
Hallgrímsson frá slökkviliðinu í
Reykjavík voru aðalkennarar á
námskeiðinu og voru þeir
slökkviliðsmönnum á Hellu og
Hvolsvelli til halds og trausts
þegar íbúðarhúsið á BakkavöII-
um var brennt.
Að æfingunni lokinni var húsið
látið brenna eins og hægt var og
siðan var það rifið með gröfu og
grafið.
Lést í
bílslysi
MAÐURINN sem lést í bílslysi í
Ljósavatnsskarði í Suður-Þingeyjar-
sýslu á mánudagskvöld hét Sigurður
Thorlacius Rögnvaldsson, jarð-
skjálftafræðingur, til heimilis að
Sjávargötu 9 í Bessastaðahreppi-
Hann var fæddur 11. janúar árið
1964 og lætur eftir sig eiginkonu og
tvö börn.
Stór ’fíkni
efnafundur
UM 230 grömm af hassi og á bilinu
10 til 20 grömm af amfetamíni fund-
ust við húsleit í iðnaðarhúsnæði í
vesturbæ Kópavogs síðdegis í gær. í
húsinu voru nokkrir menn á fertugs-
aldri við vinnu og viðurkenndi einn
þeirra að hann ætti efnin.
Arkin og kjarnavopnin
„Okkur kann að skjátlast“
„OKKUR kann að skjátlast en
ýmsar vísbendingar gefa okkur
enn sem fyrr tilefni til að gruna
að kjarnavopn hafi verið stað-
sett á Islandi."
Bandaríska stórblaðið Was-
hington Post hafði þetta í gær
eftir William M. Arkin, einum
höfundi skýrslu, sem birtist ný-
lega í tímaritinu Bulletin of
Atomic Scientists, en þar er full-
yrt að kjarnorkuvopn hafi verið
á Islandi á árunum 1956-’59.
Bandaríkjastjóm neitaði því
formlega fyrir helgi að kjarna-
vopn hefðu verið á Islandi á
dögum kalda stríðsins, en slík
yfirlýsing er óvenjuleg að því
leyti að það er stefna Banda-
ríkjastjómar að neita hvorki né
játa neinu um staðsetningu
kjamavopna.
Skoðanakönnun um staðsetningu Reykjavrkurflugvallar
Helmingur vill flugvöll
áfram í Vatnsmýrinni
Sérblöð f dag
ISSfiðUR
KSÍ að falla á tíma í lands-
liðsþjálfararáðningu / B1
Kristinn Hafliðason til
Raufoss í Noregi / B8
Með Morgun-
blaðínu í dag
fylgir 12 síðna
blað frá
Kringlunni,
„Kringlukast“.
Fylgstu
r,i t ð
nýjustu
fréttum
www.mbl.is