Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 10

Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjávarútvegsráðherra og stjórnendur í sjávarútvegi undrast áhugaleysi á sjávarútvegsnámi aðir eru úr sjávarút- vegsfræðum frá Há- skólanum á Akureyri ganga almennt í fjöl- breytt og vel launuð störf, jafnt hjá sjávar- útvegsfyrirtækjum sem tölvufyrirtækjum, bönkum og sjóðum. Sj ávarútvegsráðherra og stjórnendur sjávar- útvegsfyrirtækja lýsa furðu sinni á því að að- sókn í nám af þessu tagi skuli ekki vera meiri en raun ber vitni. í MORGUNBLAÐINU í gær kom fram að aðsókn í nám á sviði sjávarútvegs, bæði á framhalds- skóla- og háskólastigi, væri mjög dræm og hefði minnkað verulega að undanfömu. Stjórnendur náms- brauta lýstu yflr áhyggjum vegna þróunarinnar. Bentu margir á að neikvæð fjölmiðlaumræða um sjáv- arútveg undanfarið hefði gefíð ungu fólki ranga mynd af þeim störfum sem í boði væru í sjávarútvegi. í hugum unga fólksins væru störf í sjávarútvegi láglaunastörf í frysti- húsum. Arni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra sagði að það hefði komið sér verulega á óvart hve dræm að- sóknin að sjávarútvegsnámi Háskól- ans á Akureyri væri. „Það læðist að manni sá grunur að sú umræða sem verið hefur í gangi undanfarið, þar sem sjávarút- vegurinn er tengdur við byggða- vandann og byggðaþróunina í nei- kvæðu ljósi, hafí haft áhrif á þetta,“ segir Arni. Hann segir aðspurður að erfítt verði að breyta umræðunni, en Sjávarútvegsfræðingar eftirsótt vinnuafl Nemendur sem útskrif- hún sé á skjön við stöðu greinarinn- ar í heild. Eins og stendur sé hún mjög góð og hafi farið batnandi. Ekkert bendi til þess að erfiðleikar muni eiga sér stað í greininni, þótt hún sé ávallt háð breytingum í nátt- úrunni og á erlendum mörkuðum, þar sem 99% afurðanna séu flutt út. Vegna þessarar góðu stöðu atvinnu- greinarinnar eigi hann erfítt með að skilja hvers vegna ungt fólk sýni því lítinn áhuga að starfa við hana. Eðlilegt að starfa við undir- stöðuatvinnuveg þjóðarinnar Aðspurður um hvort hann teldi það bæta stöðuna ef námið yrði tengt betur við atvinnulífið sagðist hann ekki telja að það myndi breyta miklu. „Það hefur verið reynt til dæmis í Fiskvinnsluskólanum en hefur ekki leitt til verulegrar aukn- ingar í umsóknum. Ég á erfitt með að átta mig á því á þessu stigi af hverju þessi dræma aðsókn stafar en ef svo heldur sem horfir þá þarf auðvitað að skoða málið.“ Þegar Morgunblaðið grennslaðist fyrir um störf þeirra sem útskrifast hafa úr sjávarútvegsfræði frá Há- skólanum á Akureyri kom í ljós að flestir, ef ekki allir, voru í vel laun- uðum störfum af margvíslegum toga, sem öll tengdust sjávarútvegi. Morgunblaðið spurði tvo þeirra út í námið og störfin sem þeir fást nú við. Haraldur Grétarsson lauk námi í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1994. Hann var staðráðinn í að fara í þetta nám jafnvel þótt hann þekkti lítið sem ekkert til sjávarútvegsins áður en hann hóf námið. „Ég lít á háskóla- nám sem fjárfestingu og því verður ekki breytt að ísland lifir af sjávar- útveginum, en milli 70 og 80% gjaldeyristekna þjóðarinnar koma þaðan. Undirstaða þjóðarinnar er sjávarútvegurinn og ég gat ekki hugsað mér að vinna ekki á þvi sviði sem mest verðmætasköpun á sér stað,“ segir Haraldur, sem nú er framkvæmdastjóri Onward Fishing Company, dótturfyrirtækis Sam- herja í Skotlandi. Hann fékk strax vinnu hjá Samherja að loknu námi og í byrjun síðasta árs tók hann við stöðunni í Skotlandi. Haraldur segist geta mælt með náminu og segir að sjávarútvegur- inn sé áhugaverð grein þar sem fullt sé af krefjandi störfum. „Námið á fullan rétt á sér á íslandi í dag. Við munum áfram lifa af sjávarútvegin- um og það hlýtur að vera krafa að við menntum fólk á því sviði. Sjáv- arútvegurinn er hluti af okkar lífi eins og tölvur eru á nýrri öld. Það þýðir ekki fyrir okkur að afneita tölvutækninni og sama gildir um sjávarútveginn, við getum ekki af- neitað því að hann er undirstaða okkar velferðarkerfis," segir Har- aldur að lokum. Margir starfa hjá Tölvumyndum Rúnar Þór Sigursteinsson er líka sjávarútvegsfræðingur frá HA og útskrifaðist sl. vor. Hann starfar hjá Tölvumyndum hf. við að setja upp Wisefish-hugbúnað, sem er sérstak- ur aukapakki af Navision Financi- als-hugbúnaðinum ætlaður sjávar- útvegsfyrirtækjum. Rúnar Þór er úr sjávarútvegsfjölskyldu svo leiðin lá í þann geira, að hans sögn. Rúnar vann með náminu hjá PriceWaterhouseCoopers á Akur- eyri en að loknu námi bauðst honum starf hjá Tölvumyndum þar sem einir átta aðrir sjávarútvegsfræð- ingar starfa. „Við störfum við ráð- gjöf og uppsetningu á Wisefish-bún- aðinum í sjávarútvegsfyrirtækjum hérlendis, í Kanada, Bandaríkjun- um og í Færeyjum. Búnaðurinn er alhliða upplýsingakerfi sem kemur öllu í fyrirtækinu við, allt frá birgð- um til bókhalds, útgerðar, jgæða- kerfis og launaútreikninga. Astæð- an fyrii' því að sjávarútvegsfræðing- ar eru fengnir í þessi störf er líklega sú að það er auðveldara að kenna okkur á tölvur en að setja tölvu- fræðinga inn í það hvernig sjávarút- vegsfyrirtækin virka,“ segir Rúnar'. Hann segir að námið henti vel í þetta starf sem og fjölmörg önnur þar sem það sé þverfaglegt. Hann segir að þær hugmyndir sem menn telji að ungt fólk hafi af störfum í sjávarútvegi séu algerlega á mis- skilningi byggðar. Þeir sem útskrif- ist með háskólapróf á þessu sviði séu í þjónustu- og tæknistörfum, en ekki á lágum launum í frystihúsa- vinnu. „Fyrst fóru flestir sem út- skrifuðust til starfa hjá sölusam- böndunum, síðan urðu þeir eftir- sóttir í gæðastjórnun og nú eru þeir fengnir í þjónustugreinar og tölvu- bransann,“ útskýrir Rúnar. Þörfín fyrir menntað vinnuafl að margfaldast Stjórnendur sjávarútvegsfyrir- tækja kváðust einróma hafa mjög góða reynslu af fólki útskrifuðu úr sjávarútvegsfræðum, að öðrum ólöstuðum. Hjá Utgerðarfélagi Akureyringa starfa þrír sjávarút- vegsfræðingar og segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri UA, að þörf fyrirtækjanna fyrir fólk með þessa menntun sé að margfaldast, sérstaklega á sviði vöruþróunar og markaðsmála. „Það eru að verða breytingar í greininni. Ég held að einingunum muni fækka og þær stækka og aukin eftirspurn verði eftir séi’hæfðara vinnuafli," segir Guðbrandur. Róbert B. Agnarsson, fram- kvæmdastjóri SÍF ísland, lýsir furðu sinni á því að fieiri skuli ekki sækjast eftir þessu námi, miðað við mikilvægi sjávarútvegs fyrir þjóð- arbúið. Líklega þui’fi að kynna nám- ið betur fyi’ir ungu fólki þar sem fjölmörg tækifæri bjóðist ungu fólki með þessa menntun, bæði hérlendis sem erlendis. Alyktun um virkjunarframkvæmdir á Austurlandi lögð fram á þingi VMSÍ Lýsa yfir stuðningi við álver og virkjun SAUTJÁN aðilar í forystu verka- mannafélaga víðs vegar um landið lögðu í gær fram ályktun um virkj- unarframkvæmdir á Austurlandi á þingi Verkamannasambands ís- lands. I ályktuninni er lagt til að þingið styðji eindregið áform um nýtingu orkunnar til orkufreks iðn- aðar í Austurlandsfjórðungi. Jafn- framt er lögð áhersla á að Fljóts- dalsvirkjun ásamt álveri við Reyð- arfjörð séu án efa áhrifamestu að- gerðir til að vinna gegn þeirri byggðaröskun sem átt hafi sér stað mörg undanfarin ár í fjórðungnum. Framkvæmdir sem fyrst Þá er það undirstrikað að mikil- vægt sé að framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun hefjist sem fyrst að nýju, þannig að áform um upp- Skiptar skoðanir á þinginu og óvíst hver niðurstaðan verður byggingu álvers við Reyðarfjörð verði ekki sett í uppnám. Undir ályktunina skrifa 17 for- ystumenn í verkamannafélögum og þar af eru 10 frá Austurlandi. Hall- dór Bjömsson, formaður Eflingar, skrifar undir ályktunina ásamt for- mönnum verkamannafélaganna í Keflavík, Akureyri, Akranesi, Húsavík, Blönduósi og Rangár- vallasýslu, svo nokkrir séu nefndir. Sigurður Ingvarsson, forseti AI- þýðusambands Austurlands, lagði ályktunina fram. Hann segir að undirtektir hafi verið misjafnar og erfitt sé að meta á þessu stigi hvaða afgreiðslu ályktunin fær á þinginu. Að sögn Sigurðar er þetta stórt mál fyrir alla þjóðina. Virkjunar- framkvæmdir muni leiða til þess að mikið verði á seyði á Austurlandi fram til ársins 2015 og það tímabil geti menn síðan notað til að byggja fjórðunginn upp til framtíðar. „Okkar vantar einhverja svona vítamínssprautu til að snúa fólks- flóttanum við. Við fyrsta áfanga ál- vers myndum við fá til baka þann mannfjölda sem við höfum verið að glata á síðustu 10 árum. Og síðan mikið meira í framhaldinu,11 segir Sigurður. Andlát EGILL ÓLAFSSON EGILL Ólafsson, bóndi og safnvörður frá Hnjóti í Rauða- sandshreppi í V- Barðastrandarsýslu er látinn. Hann fæddist á Hnjóti 14. október 1925. Foreldrar hans voru Ólafía Egilsdóttir ljósmóðir og Ólafur Magnússon bóndi. Egill stundaði nám í Héraðsskólanum á Núpi og lauk þaðan prófi 1943. Prófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri lauk hann 1946. Egill starfaði á Hnjóti allt sitt líf. Auk búskapar starfaði hann sem flugvallarvörður á Vestfjörðum frá árinu 1973 og var landgræðsluvörð- ur á Vestfjörðum frá árinu 1971. Egill hafði brennandi áhuga á varðveislu menningarverðmæta, ekki síst úr atvinnusögu landsins. Hann safnaði munum sem tengjast landbúnaði og sjávarútvegi, en þekktastur er hann þó fyrir flug- minjasafn sem hann byggði upp á Hnjóti. Safnið var formlega opnað árið 1991. Egill tók virkan þátt í félagsmálum og gegndi ýmsum tiúnað- arstörfum fyrir Rauða- sandshrepp. Hann var formaður Búnaðarfé- lagsins Örlygs í Rauða- sandshreppi tvívegis á árunum 1951-1979, formaður Sparisjóðs Rauðasandshrepps 1977-1983, fox-maður stjómar Ræktunar- sambands V-Barðastrandarsýslu 1961-1978, í stjórn Mjólkursamlags V-Barðastrandarsýslu í áratugi og formaður náttúruverndamefndar V- Barðastrandarsýslu 1973-1990. Egill var sæmdur í’iddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1989. Egill var kvæntur Ragnheiði Magnúsdóttur. Þau eignuðust fjög- ur böm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.