Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 22

Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 22
I 22 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Um tólf milljónir manna tóku þátt í kröfugöngum fyrir friði í Kólumbíu um helgina Friðarviðræður hafnar milli stiórnar og skæruliða Bogota, Brussel, SÞ. Reuters. FRIÐARVIÐRÆÐUR stjórn- valda og skæruliða hófust loks á sunnudag, eftir að tilraunir í þá veru höfðu ítrekað runnið út í sandinn síðasta árið. Nefnd á veg- um ríkisstjórnar Kólumbíu hélt þá til fundar við leiðtoga helstu skæruliðahreyfingar marxista, Byltingarhers Kólumbíu (FARC), í héraðinu Uribe, sem er á valdi skæruliða. Munu samninganefnd- irnar reyna að komast að sam- komulagi um tólf efnisatriði vænt- anlegs friðarsamkomulags. Verður varla hlaupið að því í ljósi blóðugra átaka síðustu þrjátíu ára, sem kost- að hafa tugi þúsunda manna lífið. Ljóst er að erfitt mun verða að ganga að kröfum skæruliða, en þeir setja framkvæmd róttækrar endurskoðunar á þjóðskipulagi landsins sem skilyrði fyrir friðar- samningum. Hafa skæruliðarnir jafnframt farið fram á að meðlimir í FARC verði látnir lausir úr fang- elsum, en neita kröfum stjórnvalda um að þeir láti af mannránum og eiturlyfjasölu, sem eru megintekju- lindir þeirra. Viðræður eru nú hafnar milli stjórnvalda og marxískra skæruliða í Kólumbíu um hvernig binda megi enda á átökin, sem geisað hafa í landinu í yfír þrjá áratugi. Ekki fer á milli mála að almenningur í Kól- umbíu þráir frið, því talið er að allt að 12 milljónir af um 40 milljónum íbúa hafí tek- ið þátt í friðargöngum í borgum landsins um síðustu helgi. Aðdragandinn brösóttur Samningaumleitanir um við- ræðugrundvöll voru hafnar í janú- ar á þessu ári, en tóku skjótan endi þegar skæruliðar sökuðu stjórn- völd um að standa í leynimakki með vopnuðum sveitum hægri- manna. Þráðurinn var þó tekinn upp að nýju í vor og tilkynnti ríkis- stjómin í byrjun maí að samkomu- lag hefði náðst um dagskrá friðar- viðræðnanna. Upphafi þeirra var þó frestað nokkmm dögum síðar og aftur í byrjun júlí, þegar til deilna kom um hugsanlega þátt- töku alþjóðlegra eftirlitsnefnda í friðarferlinu. Eftir að skæruliðar hófu svo sókn í átt til höfuðborgar- innar Bogota um miðjan júlí, leit út fyrir að ekkert yrði af friðarvið- ræðunum. Ríkisstjórn Andres Pastrana forseta lét þó nýlega af kröfum um að erlendir aðilar hefðu eftirlit með svæðum sem eru á valdi skæruliða, og tókst þannig að fá þá að samn- ingaborðinu. Þrátt fyrir augljósan friðarvilja meðal þjóðarinnar hefur Pastrana verið gagnrýndur fyrir að gefa of mikið eftir, án þess að fá neinar tryggingar í staðinn. Skæruliðarnir virðast hafa litla samúð meðal Kólumbíumanna og í nýlegri skoðanakönnun kváðust þrír fjórðu aðspurða telja að fram- ganga þeirra í samningaviðræðun- um væri óheiðarleg. Pastrana hefur vísað þessari gagnrýni á bug og bendir á að það sé stór áfangi að fá skæruliðana til Að minnsta kosti tvær milljónir manna tóku þátt í friðargöngu í Bogota, höfuðborg Kólumbfu, á sunnudag. að ganga til samninga. „Friður er langt ferli sem ekki næst frá degi til dags,“ sagði Pastrana á föstu- dag, þar sem hann var í heimsókn á Spáni. Kvaðst hann vona að sam- komulag næðist áður en kjörtíma- bil hans rennur út árið 2002, en sagðist ekki geta ábyrgst að það tækist. „Það sem skiptir höfuðmáli er að taka fyrsta skrefið og að póli- tískur vilji sé fyrir hendi til að gera það,“ sagði Pastrana. Ótrúleg þátttaka í friðargöngum Almenningur í Kólumbíu lét væntingar sínar til viðræðna skæruliða og stjómvalda berlega í ljós um helgina, því meira en fjórð- ungur landsmanna, um 12 milljón- ir, tók þátt í friðargöngum. Kom fólk saman í um 700 borgum og bæjum og krafðist þess bundinn yrði endi á ofbeldisverkin, sem orð- ið hafa um 35 þúsund manns að bana á síðasta áratug og neytt 1,5 milljón manna til að yfirgefa heim- ili sín. Friðargöngurnar voru skipu- lagðar af borgaralegum samtökum er nefnast „No mas“, sem útleggst á íslensku „Ekki meira“. Njóta þau stuðnings stjórnvalda, sem fagna slíkum þrýstingi á hreyfíngar skæruliða. Markmið samtakanna er að knýja stjórnvöld og skæru- liða til að semja um vopnahlé og FBI og fsraelar fylgjast með dómsdagssöfnuðum Ottast hermdarverk Jerúsalem. AFP, Keulers. BANDARÍSKA leyniþjónustan, FBI, hefur að undanfömu aðstoðað ísraelsku leyniþjónustuna við að bera kennsl á félaga í kristnum dómsdagssöfnuðum, sem hafa hugs- anlega í hyggju að svipta sig lífi um aldamótin eða sprengja upp moskur múslima í Jerúsalem. Israelska dagblaðið Haaretz sagði á þriðjudag að Shlomo Ben Ami, öryggismálaráðherra í ísrael, hefði átt fund með Janet Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í Washington á mánudag þar sem rætt var um aðgerðir gegn félögum dómsdagssöfnuðunum. Óttast er, að þeir muni grípa til ofbeldis enda trúi þeir því, að það geti flýtt fyrir endurkomu Krists. Meira en 60 reknir á árinu ísraelar ráku eftir helgina úr landi 21 mann, þar af fimm böm. Var um að ræða 20 Bandaríkja- menn og einn Astrala, félaga í söfn- uðunum „Sonum bænarinnar“ og „Musteri Salómons“. Voru þeir grunaðir um að ætla að sprengja upp Al-Aqsa-moskuna á Musteris- fjallinu eða svipta sig lífi. Al-Aqsa- moskan er þriðji mesti helgistaður múslima. Fyrir hálfum mánuði ráku ísrael- ar burt hóp manna, aðallega íra, sem var talinn vera kominn til landsins í svipuðum erindum, og hefur þá alls verið vísað burt frá landinu meira en 60 manns á árinu. Búist er við milljónum kristinna pflagríma til Landsins helga um aldamótin og hafa ísraelsk yfirvöld þungar áhyggjur af því, að innan um allan þann fjölda kunni að leyn- ast ofsatrúarmenn, sem líklegir eru til einhverra óhæfuverka. hefja friðarviðræður af alvöru og heiðarleika. Krefjast þau þess að óbreyttir borgarar verði ekki leng- ur fórnarlömb ofbeldisverka og átaka. Það sýnir þó vel hve ástandið er eldfimt að einungis nokkrum klukkustundum áður en friðar- göngurnar hófust sprungu þrjár öflugar sprengjur í borginni Medellin, þar sem ofbeldisverk eru daglegt brauð. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengingunum, en lögregla segir að skæruliðar, eitur- lyfjasalar og vopnaðir hópar hægrimanna liggi allir undir grun. ESB og SÞ leggja hönd á plóginn Evrópusambandið hét því á mánudag að aðstoða ríkisstjórn Kólumbíu við að semja frið við skæruliða. Chris Patten, sem fer með utanríkismál í framkvæmda- stjórn sambandsins, sagði eftir fund með Pastrana að hann myndi skoða efnisatriði viðræðnanna vandlega, áður en tekin yrði ákvörðun um hvernig aðstoðinni yrði háttað. „Við þurfum á stuð- ingi Evrópumanna að halda,“ sagði Pastrana að fundinum lokn- Þá munu Sameinuðu þjóðimar skipa sérstakan sendimann til að fylgjast með friðarferlinu í Kól- umbíu. Búist er við að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, muni bráð- lega tilnefna Jan Egeland, fyrrver- andi aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, til starfans, en hann vann meðal annars að friðarsamkomu- laginu sem ísraelar og Palestínu- menn undirrituðu í Ósló árið 1993. Ekki er þó ljóst hvaða hlutverki sendimaður SÞ muni gegna, og er það komið undir framvindu mála í friðarviðræðum skæruliða og stjómvalda í Kólumbíu. Buchanan ræðst á Safíre Washington. AP, The Daily Telegraph. PAT Buchanan, sem á mánudag sagði sig úr Repúblikanaflokkn- um og gekk til liðs við Umbóta- flokkinn, hefur sakað einn þekktasta dálkahöfund Banda- ríkjanna fyrir að ganga er- inda Israels- stjórnar. Er Buchan- an mætti til viðtals í þætt- inum „Good Morning America“ á Pat Buchanan sjonvarps- stöðinni ABC lýsti þáttastjómandinn Diane Sawyer dálkahöfundinum Willi- am Safire á New York Times, sem „vini“ Buchanans. Þeir störfuðu saman í starfsliði Ric- hards Nixons, íyrrum Banda- ríkjaforseta. Buchanan brást hinn versti við og sagði „William Safire er ekki vinur minn og ég tel hann ekki vera heiðvirðan mann. Ég stend fyrir það að láta hagsmuni Bandaríkjanna ganga íyrir. Safire hefur, að mínu mati, alltaf tekið hagsmuni Israels fram yfir hagsmuni eigin lands.“ Bætti Buchanan því við að menn yrðu að láta þjóðarhags- muni Bandaríkjanna vega þyngra en hagsmuni annarra ríkja og ætti það einnig við um ísrael. Talsmaður Safires sagði að hann myndi að svo stöddu ekki tjá sig um þessar yfirlýsingar Buchanans en að hann hefði ágætis vettvang til að svara fyr- ir sig. Buchanan hefur þrívegis sóst eftir því að verða forsetaefni repúblikana. Hann hyggst nú berjast fyrir því að verða full- trúi Umbótaflokksins, sem stofnaður var á sínum tíma af auðkýfingnum Ross Perot, í forsetakosningunum á næsta ári. Lipponen um leiðtogafundinn í Heisinki Einhugur um aðildarviðræður Strassborg. Reuters. PAAVO Lipponen, forsætisráð- herra Finnlands, sagði í gær að sér sýndist leiðtogar Evrópusambands- landanna vera sammála um að tekin verði um það ákvörðun á fundi leið- toganna í Helsinki í desember að hefja aðildarviðræður við sex ríki til viðbótar við þau sex sem þegar hafa hafið slíkar viðræður. „Ég tel að eft- ir Helsinki-fund- ríkin mn mum EVRÓPA^ viðræður um aðild þess að svo komnu máli. Tillögur framkvæmdastjómarinn- ar verða ræddar á leiðtogafundinum í Helsinki. Lipponen, sem verður gestgjafi fundarins þar sem Finnar fara með formennslm í ráðherraráði sambandsins þetta misserið, sagði það vera „í sex i „annarrar lotu“-hópnum geta tekið þátt í full- um aðildarviðræðum. Um þetta ríkir einhugur," sagði Lipponen á blaðamannafundi eftir að hafa ávarpað Evrópuþingið í Strass- borg. Staða Tyrklands enn óljós Framkvæmdastjórn ESB lagði til fyrr í mánuðinum að Slóvakíu, Lett- landi, Litháen, Búlgaríu, Rúmeníu og Möltu ýrði boðið að hefja full- gildar viðræður um ESB-aðild á ár- inu 2000, og slást þar með í hóp sex annarra ríkja sem hófu viðræður í lok marz í fyrra. Framkvæmdastjórnin hefur jafn- framt mælt með því að Tyrkland verði viðurkennt sem tilvonandi að- ildarríki, án þess að hafnar verði hæsta máta ólík- legt“ að mögulegt verði að ákveða einhverja tiltekna dagsetningu sem stefnt skuli að því að næsta fjölgun aðildarríkja kæmi til framkvæmda. Hann tók einnig fram að staða Tyrk- lands væri enn óljós. „Við vinnum hörðum höndum að því að ná jákvæðri niðurstöðu á Helsinki-fundinum, hvað Tyrkland varðar," sagði Lipponen, en bætti við að til þess að svo mætti verða yrðu stjórnvöld í Ankara að gefa frá sér „viss teikn“. Lipponen vildi ekki útskýra hvort hann ætti við skiptingu Kýpur eða stöðu mannréttindamála í Tyrk- landi. „Við höfum ekki tekið ákvörð- un um neins konar „gátlista" í þessu sambandi. Það er betra að það sé undir stjórninni í Ankara sjálfri komið að meta hvaða teikn þetta ættu að vera.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.