Morgunblaðið - 28.10.1999, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
• ARTÚR konungur er eftir
Rosalind Kerven í þýðingu Þor-
steins Jónssonar. Rakinn er ferill
þjóðsagnahetjunnar Artúrs kon-
ungs og riddara hringborðsins og
kryddað með ýmsum fróðleiks-
molum frá fyrri tíð. Margar lit-
myndir eru á hverri síðu, bæði
teikningar og ljósmyndir, en sag-
an er ætluð börnum og ungu
fólki.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 64 bls. prentuð á Italíu.
Verð: 2.380 kr.
• ENGAN asa Einar Áskell eftir
Gunillu Bergström er komin út á
ný í lítils háttar endurskoðaðri þýð-
ingu Sigrúnar Árnadóttur. Bóídn
hét áður Engan æsing Einar As-
kell.
Svo sem í öðrum bókum um Ein-
ar Áskel er hér fjallað um mannleg
samskipti í daglega lífinu.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin erprentuðíDanmörku, hún
er 30 bls. Verð: 1.880 kr.
• ARFUR og umbylting er eftir
Svein Yngva Egilsson. I bókinni
fjallar höfundur um úrvinnslu
Jónasar Hall-
grímssonar,
Gríms Thom-
sens, Benedikts
Gröndals, Gísla
Brynjólfssonar
og fleiri róman-
tískra skálda á
bókmenntaarfi
miðalda og
tengsl þeirra
við erlenda
skáldjöfra og samtímaviðburði.
Þessi skáld reisa þjóðlega menn-
ingu og skáldskap á grunni forn-
aldarinnar og voru jafnframt í
hringiðu evrópskrar sögu og hug-
mynda. Þau sóttu sér yrkisefni í
fomnorrænar goðsagnir, miðalda-
sögur og íslenska og erlenda frels-
isbaráttu.
Útgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag. Arfur og umbylting
erfyrsta bókin ínýrri ritröð Hins
íslenska bókmenntafélags og
Reykjavíkur Akademíunnar og
hlotið hefur nafnið „Islensk menn-
ing“. Bókin er 395 bls. meðnafna-
og heimildaskrá.
Sveinn Yngvi
Egilsson
Morgunblaðið/Sverrir
Skóla-
tónleikar
ÍMH
TÓNLEIKAR Hljómsveitar Tón-
Iistarskólans í Reykjavík í sal
Menntaskóians við Hamrahlíð
verða á laugardag kl. 17.
Þetta eru fyrstu tónleikar
Hljómsveitar Tónlistarskólans á
þessu skólaári og stjórnandi hans
er Kjartan Óskarsson.
Á efnisskrá eru Slavneskur
mars op. 31 eftir P. Tchaikovsky
og Sinfóma nr. 3 í Es-dúr op. 55
Eroica eftir L.v. Beethoven.
Hvað ungur nemur
BÆKUR
A f m æ I i s r i t
STEINARI VÖRÐU
til heiðurs Þuríði J. Kristjánsdóttur
sjötugri. 317 bls. Utg. Rannsókn-
arst. Kennaraháskóla íslands.
Prentun: Oddi hf. Reykjavík, 1999.
ÞURÍÐUR J. Rristjánsdóttir
hefur verið farsæll kennari. Þess
minnast vinir hennar og sam-
starfsfólk sem nú votta henni virð-
ing sína með samantekt og útgáfu
þessa afmælisrits. En Þuríður
varð sjötug fyrir tveim árum og lét
þá af störfum. Auk viðtalsþáttar,
þar sem tveir kennarar ræða við
Þuríði um ævi hennar og störf,
inniheldur bókin fjórtán ritgerðir
eftir jafnmarga höfunda og einum
betur. Allt tengist það skóla- og
uppeldismálum með einum eða
öðrum hætti. Ólafur J. Proppé ríð-
ur á vaðið með eins konar forystu-
grein, Þróun samræmdra prófa í
íslenskum skólum frá 1880 til
1977.
Efnið er þó víðtækara en fyrir-
sögnin gefur til kynna því höfund-
ur fer í stórum dráttum yfir skóla-
söguna sem hefst með óskipulegu
fræðslustarfi á fyrri
öld, aðallega í þétt-
býli, en þróast smám
saman í átt að skipu-
legu skólakerfi sem
nær til landsins alls
og þá með vaxandi
áherslu á samræm-
ingu.
Þar sem Þuríður
var prófessor við
Kennaraháskólann
lýtur efni bókarinnar
langmest að bai'na-
og unglingakennslu.
Allar eru greinarnar
fróðlegar og vafalaust
í takt við tímann.
Þarna skrifar fólk
Þuríður J.
Krisijánsdóttir
indum eins og sáfræði
og uppeldisfræði
fylgja líka snúin orð
og hugtök sem venju-
legur lesandi vistar
ekki fyrirhafnarlaust í
höfði sínu.
» Menntastofnanir
og skólakerfið fylgja
þróun samfélagsins,«
segir Ólafur J.
Proppé. Það er sann-
leikur en þó ekki
nema hálfur sannleik-
ur. Enda þótt hinum
dæmigerða kennara
líði óvíða betur en inn-
an veggja skólastof-
unnar meðal sinna
með reynslu, fólk sem hefur numið
fræðin og síðan sannreynt gildi
þeirra í starfi. Orðið rannsókn
kemur víða fyrir. Sumir byggja á
eigin rannsókn. Aðrir á gaumgæfi-
legri athugun eða hugboði. Og víða
er líka stuðst við erlendar rann-
sóknir. Sumir útlista fræði sín með
tölfræði, og þá með tilheyrandi
súlum, línuritum og töflum.
Það má heita stéttareinkenni
kennara að líta háalvarlegum aug-
um á hlutverk sitt. Skrif þeirra
bera þess alltént merki. Þarna er
lítt farið með gamanmál. Hugvís-
SIEMENS
Haust-Búhnykkur!
Siemens
uppþvottavél
SE 34200
Ný
þvottavél
frá
Siemens
WM 54060
Sannkölluð hjálparhella
í eldhúsinu.
Einstaklega hljóðlát og
sparneytin. Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig (nauðsynlegt fyrir
viðkvæmt leirtau), fjórföld
flæðivörn með Aqua-Stop.
Þetta er uppþvottavál eins
og þú vilt nafa hana.
^ Á þessu fína verði núna: ^
stgr.
Berðu saman verð,
gæði og þjónustu!
Umboðsmenn um land allt!
Þvottavál eins og allir vilja eignast!
• Algjör nýjung:
Sérstakt krumpuvarnarkerfi
• Tekur6 kg
• Óvenjustór lúga
• 15 þvotta- og sérkerfi
• 35 mínútna hraðkerfi
• 1000sn./mín.
• Allar innstillingar mjög auðveldar
• Glæsileg hönnun
• Vélin er algjörlega rafeindastýrð
• Þvottavirkniflokkur A
• Orkuflokkur A
• Mjög þýðgeng og hljóðlát þvottavél
Á frábæru kynningarverði:
-J
stgr.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000 • www.sminor.is
kæru nemenda veit hann sjaldnast
hvar hann stendur þegar út fyrir
skólalóðina kemur. Atvinnu- og
viðskiptalífið úti í þjóðfélaginu lýt-
ur t.d. allt öðrum lögmálum. Og
þar ríkir annars konar tíðarandi.
Góðæri skilar sér seint og illa inn
fyrir dyr skólanna. Og samfélagið,
sem virðir menntun til fjár, metur
starf kennarans gjarnan sam-
kvæmt því. Öðrum stofnunum
fremur hættir skóla til að einangr-
ast. Miðstýring, samræming og
sterk handleiðsla frá æðri stöðum
breytir því ekki. Skólamenn, sem
leggja efni til bókar þessarar,
skrifa samkvæmt því, horfa gjarn-
an á viðfangsefnið innan frá. Hver
og einn heldur sig við sitt afmark-
aða svið. Lítið er farið ofan í stóru
málin. Það er helst að maður
staldri við orð Þuríðar sjálfrar þar
sem hún ber saman lengd fram-
haldsskólans hér og erlendis og
spyr hvort íslensk ungmenni séu
ekki orðin of gömul þegar þau
hefja háskólanám. Og það er
hverju orði sannara. Skólagangan
er orðin hér allt of löng. Auðvitað
ættu stúdentar að útskrifast hér
átján ára eins og í öðrum löndum.
Auðvelt væri það ef þeir hæfu
menntaskólanám tólf ára. Og strax
keyrðir á fulla ferð! Þuríður nefnir
af hógværð sinni nítján ára aldur-
inn. Það væri spor í áttina.
Að lokum skal bent á að heiti
bókarinnar, Steinar í vörðu, felur í
sér hnyttilega skírskotun. Þegar
margir hlaða kemur hver með sinn
steininn. Og þannig var rit þetta
byggt upp. En Þuríður var líka
fædd og uppalin á Steinum í Staf-
holtstungum. Og það er raunar
kennimark góðrar sögu. Að upp-
haf og endir renni saman!
Erlendur Jónsson
Nýjar bækur
• Fánar heimsins og Heimsatlas
eru handbækur í þýðingu Áma
Óskarssonar. Fánar heims er með
öllum þjóðfánum heims, auk fána
héraða, yfirráðasvæða, flotafána,
fána alþjóðasamtaka og fána sem
ekki eru lengur í notkun en skipt
hafa máli í rás sögunnar. Fánarnir
eru allir sýndir í réttum litum og
fjallað er um tilurð þeirra, sögu og
táknfræði og gerð skil hugmyndun-
um sem búa að baki þeim og hlut-
verki þeirra í lífi þjóðanna. Fánar
heimsins er því í senn yfiriit yfir
stjórnmálasögu allra sjálfstæðra
ríkja heimsins og lýsing á helstu
staðreyndum um fána, svo sem liti,
hlutföll og lögun. Einnig er fjallað
um skjaldarmerki ríkja og em-
bætta, helstu hugtök í skjaldar-
merkjafræði skýrð og saga ein-
stakra skjaldarmerkja rakin.
Heimsatlas er smækkuð útgáfa
af Heimsatlas Máls og menningar
sem út kom á sl. ári.
Útgefandi er Mál og menning.
Bækurnar eru 240 og 192 bls. Verð:
1.980 kr. hvor bók.
♦ ♦ ♦—
Veggmynda-
sýning í Há-
skóla Islands
OPNUÐ verður veggmyndasýning
í anddyri Aðalbyggingar Háskóla
Islands laugardaginn 30. október
kl. 16 í tilefni af því að 200 ár eru
liðin frá fæðingu franska rithöf-
undarins Honoré de Balzac.
Á sýningunni er sagt frá ævi
Balzac, gerð grein fyrir helstu
verkum hans, eftirminnilegustu
persónum og hugmyndum hans
um list skáldsögunnar og þjóðfélag
samtíma síns.“
I fréttatilkynningu segir: „Hon-
oré de Balzac (1799-1850) er talinn
vera upphafsmaður raunsæis-
skáldsögunnar í vestrænum bók-
menntum. Hann lifði á tímum mik-
illa þjóðfélagsbreytinga í kjölfar
frönsku byltingarinnar og í verk-
um sínum leitaðist hann við að lýsa
því hvernig einstaklingum reiddi
af við ólíkar aðstæður. Hann er
einkum þekktur fyrir skáldsögur-
öð sína La Comédie humaine eða
Hinn mannlega gleðileik, sem sam-
anstendur af u.þ.b. tuttugu skáld-
sögum sem var ætlað að gefa eins
heildstæða og nákvæma lýsingu á
samfélagi samtímans og framast
var kostur.
Texti veggmyndanna er á
frönsku en ágrip á íslensku fylgir
með. Sýningin stendur til 14. nóv-
ember og er aðgangur ókeypis.
HU-GSKQT
Samamyndalöknr
1 0% afsláttur í október
Nethyl 2 S. 587 8044