Morgunblaðið - 28.10.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 37
Herhvöt lífs-
kj araby ltingar
manns
Að
kenna
öðrum
um
KVIKMYIVDIR
S a m b f ó i n
SOUTHPARK: BIGGER,
LONGER AND UNCUT
★ ★%
Leikstjóri: Trey Parker. Handrit:
Trey Parker, Matt Stone og Pam
Brady. Raddir: Trey Parker og
Matt Stone. Paramount Pictures
1999.
ÉG hef aldrei séð þátt í sjónvarps-
þáttaröðinni um uppátæki strák-
anna í South Park, sem nefnast
Trufluð tilvera á íslensku. Og þótt
þessi kvikmynd sé meira eins og
einn stór brandari, þykja mér fyrstu
kynni mín af þessum drengjum bara
ánægjuleg og eru þeir Kenny, Kyle,
Stanley og Cartman ósköp sætir og
aðlaðandi í breiskleika sínum.
í þessari mynd svindla vinimir
sér inn á kanadíska kvikmynd þar
sem tveir náungar, sem hafa undar-
legan neðanmittishúmor, gera ekk-
ert annað en að ryðja út úr sér
fúkyrðum. Brátt hafa allir í skólan-
um séð myndina og smitast af tals-
máta þeirra. Óánægðar mæður taka
tál óspilltra málanna í uppreisn sem
endar með að Clinton segir Kanada
stríð á hendur.
Eins og kanadíska myndin geng-
ur þessi mikið út á dónahúmor, mun
íronískari þó, þar sem menn (og
meira að segja djöfullinn) bresta í
viðkvæmnissöng á ótrúlegustu
stundum. Hér er á gjörsamlega fár-
ánlegan hátt gert grín að öllu sem
bandarískt er, og þörfínni fyrir að
kenna öðrum um í stað þess að líta í
eigin barm.
Sagan sjálf er ágæt og mjög fynd-
in framan af en fer að verða helst til
löng undir lokin. En eins og nafnið á
myndinni gefur til kynna eru höf-
undar greinilega fegnir að vera
komnir úr sjónvarpinu, þar sem fátt
leyfist, og rasa út á öllum sviðum;
ímyndunarafli, lengd og dónahúmor.
Hildur Loftsdóttir
Tímarit
• TÍMARITIÐ Vcfnirer komið
út, öðru sinni. Um er að ræða veft-
ímarit Félags um 18. aldar fræði. Að
þessu sinni birtast í ritinu sjö frum-
samdar greinar um íslenskan skáld-
skap á „hinni löngu átjándu öld“.
Þær eru flestar unnar upp úr erind-
um sem haldin hafa verið á málþing-
um Félags um átjándu aldar fræði á
undanfömum árum. Meginþema
þeirra er íslenskur skáldskapur
upplýsingaraldar. Meðal efnis era
þrjár greinar sem fjalla um áhrif og
þýðingar erlendra bókmennta. Sig-
urður Pétursson gerir grein fyrir
áhrifum klassíkur á latínukveðskap
Islendinga. Kristján Amason fjallar
um þýðingar íslenskra skálda 17. og
18. aldar á klassískum ljóðum.
Heimir Pálsson skrifar um Klop-
stock, höfund kvæðabálksins Mess-
íasar sem íslendingar þekkja í þýð-
ingu séra Jóns á Bægisá. Þá er
ennfremur að finna grein eftir Mar-
gréti Eggertsdóttur um kveðskap
kvenna á 17. og 18. öld.
Auk þessa birtast í Vefni þrjár
greinar sem fjalla um kvæði Egg-
erts Ólafssonar. Guðrún Ingólfs-
dóttir fjallar um náttúrasýn.
Gamansemi Eggerts Ólafssonar er
svo til umræðu í greinum Steinunn-
ar Haraldsdóttur og Sveins Yngva
Egilssonar.
Ritstjórar Vefnis eru Kári
Bjarnason ogSveinn Yngvi Egils-
son. Veffang tímaritsins er
WWW.bok.hi.is/vefnir.
BÆKUR
Efnahagsmál
VIÐSKIPTIN
EFLA ALLA DÁÐ
eftir Þorvald Gylfason. Reykjavík,
Heimskringla, háskólaforlag Máls
og menningar. 359 bls. 1999.
ÞORVALDUR Gylfason, prófes-
sor við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Islands, er öðrum íslensk-
um hagfræðingum duglegri að
skrifa greinar um efnahagsmál fyrir
almenning. Viðskiptin efla alla dáð
er fimmta ritið sem hann gefur út á
þessum áratug með safni slíkra
greina. Greinamar hafa
flestar birst áður á ís-
lensku og nokkrar þeirra
hafa einnig birst erlendis.
Að vanda kemur Þor-
valdur víða við, bæði í
tíma og rúmi, og honum
fylgh’ engin lognmolla.
Þorvaldur telur það
skyldu fræðimanna að
nota þekkingu sína til að
sjá hvað má betur fara og
benda á það og dregur
ekkert af sér í viðleitni
sinni til að uppfylla þá
skyldu. Hann gagnrýnir
jafnframt aðra hagfræð-
inga sem hafa haft að-
stöðu til að benda á ýmislegt sem af-
laga hefur farið í íslensku
efnahagslífi í gegnum tíðina en hafa
lítið látið í sér heyra. Þorvaldur við-
urkennir að það sé reyndar ekki allt-
af þakklátt hlutverk að flytja boð-
skap sem stjórnvöldum líkar illa
(bls. 61) og víst er að skrif hans hafa
iðulega farið fyrir brjóstið á þeim
sem fjallað er um og þeim verið mót-
mælt.
Þorvaldur er kröfuharður maður
og ver engum tíma í að dásama það
sem er einungis þokkalega gert.
Engum er hælt fyrir hænuskref í
rétta átt. Þorvaldur viU stórstígar
framfarir. I einni gi-eimnni veltir
hann því fyrir sér hvort hann sé bylt-
ingarmaður og kemst að þeirri nið-
urstöðu að hann sé það oftast. Hvort
sem lesandi er sammála Þorvaldi um
annað efni bókarinnar eða ekki er
vart hægt að deila um þessa, höfund-
urinn er lífskjarabyltingarmaður.
Þoi’valdi er hagvöxtur hugleikinn
og hann tiltekur ýmis dæmi um lönd
sem hafa náð góðum árangri, era á
góðri leið frá fátækt til ríkidæmis.
Hann skoðar hvaða leiðir famar
hafa verið og vOl að Islendingar taki
sér það sem vel hefur verið gert til
fyrirmyndar. A sama hátt nefnir
hann ýmis erlend víti Islendingum
til vamaðar og fjölmörg innlend
dæmi. Hann telur að þótt vel hafi
gengið að ýmsu leyti undanfarin ár á
Islandi þá sé hægt að gera mun bet-
ur. Það þurfi að gera ef þær þjóðir
sem best standa sig á sviðþefnahags-
mála eigi ekki að skilja Islendinga
eftir.
I samræmi við titil
bókarinnar era kostir
frjálsra viðskipta víða
tíundaðir og þeir sem
standa í vegi þeirra
skammaðir. Innlendir
sem erlendir sérhags-
munahópar og stjóm-
mála- eða embættís-
menn sem era að mati
Þorvaldar latir eða
spilltir fá sérstaklega á
baukinn. Stfll Þorvaldar
er skýr og hressilegur
og þeir sem hann telur
að hafi verið dragbítar á
framfarir era lítt öfund-
sverðir af því að þurfa að sitja undir
skömmunum. Hetjm-nar í bókinni
era þeir sem sagt hafa hug sinn og
barist gegn sérhagsmunum og aft-
urhaldi, hafa flutt óþægileg tíðindi
þegar þess hefur þurft. Pilturinn í
ævintýrinu um nýju fötin keisarans
er söguhetja að skapi Þorvaldar.
Það er óhugsandi að reyna að
fylgjast með umræðu um íslensk
efnahagsmál án þess að lesa skrif
Þorvaldar og þetta rit er engin und-
antekning. Sldptir þá engu hvort
lesandinn er yfirleitt sammála höf-
undinum eða ekki. Það er því akkur í
því að safna greinum Þorvaldar
saman á þennan hátt og vísast eiga
greinasöfnin eftir að verða fleiri því
Þorvaldi liggur mikið á hjarta.
Þorgeir Kjartansson og Rúna
K. Tetzschner.
Ljóða- og tón-
listaruppákoma
á Næstabar
LITIÐ ljós á jörð stendur fyrir
ljóða- og tónlistaruppákomu á
Næstabar í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.
Rúna K. Tetzschner stofnaði
Lítið ljós í minningu eiginmanns
síns, Þorgeirs Kjartanssonar,
sem lést árið 1998. Tilgangurinn
er m.a. að búa til nýjan vettvang
þar sem skapandi einstaklingar
- Iítið Ijós á jörð - geta tjáð list
sína, segir í fréttatilkynningu.
Á uppákomunni verður lögð
áhersla á tengsl ljóðupplesturs,
leikrænnar tjáningar, söngs og
tónlistarflutnings. Listamenn-
irnir sem fram koma í kvöld eru
Sveinbjörn Halldórsson sem les
ljóð eftir Þorgeir Kjartansson
(1955-1998), Þorsteinn Víkingur,
Steinar Vilhjálmur Jóhannsson,
Birgitta Jónsdóttir og Elísabet
Jökulsdóttir lesa eigin ljóð.
Margræð hljóð Product 8 munu
hljóma og tónlistarmenn úr ýms-
um áttum leika á hljóðfæri:
Hörður Bergmann, orgelleikari,
Einar Jónsson, básúnuleikari,
gítarleikararnir Steingrímur
Eyfjörð, Kristinn H. Árnason og
Ársæll Másson, trompetleikar-
inn Hjalti Gíslason og Þorbjörn
Magnússon sem leikur á konga-
trommur. Að lokum mun Rúna
K. Tetzschner lesa upp 20 mín-
útna kvæði sitt sem hún tileinkar
manni sínum, Þorgeiri Kjartans-
syni, við undirleik tónlistar-
mannanna.
Ljóð og
djass á
Nauthóli
DJASSTRÍÓ Árna Heiðars leikur
valinkunnan vetrardjass á Kaffi
Nauthóli í kvöld, fimmtudagskvöld,
milli þess sem skáldin Andri Snær
Magnason, Davíð Stefánsson og
Steinar Bragi lesa við kertaljós úr
nýjum óútkomnum verkum sínum.
Djasstríóið skipa þeir Arni H.
Karlsson (píanó), Tómas R. Einars-
son (kontrabassi) og Matthías MD.
Hemstock (trommur).
Dagskráin hefst kl. 20:30 og
stendur fram eftir kvöldi. Aðgang-
ur er ókeypis.
------» ♦ ♦.-
Málverka-
sýning í Kaffí-
setrinu
GARÐAR Jökulsson opnaði sýn-
ingu í Kaffisetrinu, Laugavegi 103,
um síðustu helgi. Þar sýnir þann 20
lítil málverk undir heitinu íslenskt
landslag og náttúra.
Myndirnar era málaðar í akrýl-,
olíu- og vatnslitum. I fréttatilkynn-
ingu segir að myndirnar séu heppi-
legar til tækifærisgjafa og verðið sé
hófstillt.
Þetta er 24. einkasýning Garð-
ars.
■— ■ ©
Eucerin
ijt'
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning í dag
kl. 14-18 f
Snyrtihöllinni Garðatorgi,
Garðabæ,
Fjarðarkaups Apóteki,
Hafnarfirði,
Hagkaupi Skeifunni og
Egilsstaða Apóteki,
Egilsstöðum.
Málningar-
límbönd
Skilnr ekki eftir sig límrestar
Þunn, mjúk og teygjanleg
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Þorvaldur
Gylfason