Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 43

Morgunblaðið - 28.10.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 43 -----------------------------fK varðveita þig og geyma og veita ömmu og okkur öllum hinum styrk til að takast á við missinn sem við nú stöndum frammi fyrir. Guttormur Guttormsson. Þær flugu oddaflug yfir Lyng- hagann, gæsimar, einn kyrran laugardagsmorgun fyrir skömmu. I þeirri andrá var afi Óli á spítalan- um að stríða við dauðann. Nú eru gæsirnar á braut og stríðinu er lok- ið. Það er tómlegt á heiðum og hljóðara á Lynghaganum. Hann afi tilheyrði þeirri kynslóð sem nú skilar dýrum arfi til afkom- enda sinna, þeirri kynslóð sem lifað hefur róttækustu umbyltingartíma mannkynssögunnar. Kreppan á fjórða áratugnum, önnur heims- styrjöldin, búferlaflutningarnir, heimsvaldastefnurnar, vísinda- framafarirnar, lífskjarabyltingin og frjálsræðisvindamir mörgu, öll þessi ósköp mótuðu lífsskilyrði og viðhorf þeirrar kynslóðar sem í þessu umróti velktist. Það hefur ef- laust verið auðvelt að týna áttum á þessari vegferð, láta glepjast af gylliboðum falsspámanna eða láta velmegunina spilla sér. Afi stóð alltaf föstum fótum í þessum hvið- um. Kannski vegna þess að hann var víðsýnn, öldungis hégómalaus og nægjusemi var honum í blóð borin. Lynghagi 8 var heimili ömmu og afa í hartnær hálfa öld og varð fyrir vikið einn af þessum föstu punktum í tilverunni sem hverju barni er hollt að eiga. Það var sama hvenær maður datt fyrirvaralaust inn um dyragættina, alltaf var manni tekið með kostum og kynjum. Amma galdraði vanalega stóra máltið á augabragði og afi hafði þessa þægi- legu návist sem lægir allan asa og friðar hverja sál. Fyrirhyggja hans tryggði stórri fjölskyldu öryggi og alltaf var hald í afa ef þrengdi að. Hann afi verður mér um alla framtíð fyrirmynd um farsælan mann. Hann var ekki áberandi maður en skar sig úr fjölda fyrir prúðmennsku og hæverskt yfir- bragð. Hann var vanur að gæta hófs í orðum og gjörðum, mælti jafnan viturlega. Hlýr var hann. Gerði meiri ki-öfur til sjálf sín en annarra og lagði alúð í hvert það verkefni sem hann tók sér fyrir hendur. Svo var hann líka listrænn. Vatnslitamyndirnar hans báru næmu auga og drátthagri hönd fag- urt vitni. Síðast en ekki síst var afi Óli skemmtilegur, sneri oft spaugi- lega út úr hlutunum við mikla ká- tínu. Þegar öllu er til skila haldið var afi einhver besti maður sem ég hef kynnst. Farfuglarnir munu snúa aftur í vor. Afi, sem alltaf var væntanleg- ur, er það ekki lengur. Eftir standa áhrif hans, í hugum okkar sem elsk- uðum hann og virtum, mann fram af manni. Halldór Friðrik Þorsteinsson. Mágur minn, Ólafur H. Bjarna- son, fæddist í Reykjavík en ólst frá sex ára aldri upp á Reyðarfirði þar sem hann var tekinn í fóstur af hjónunum Þorsteini Jónssyni kaup- félagsstjóra og Sigríði Þorvarðar- dóttur Kjerúlf sem var stjúpsystir Ragnheiðar móður hans. Ólafur átti stóran frændgarð, fimm systk- ini og fjögur fóstursystkini. A heimilinu í Hermes naut hann góðs atlætis, kynntist atvinnulífi staðar- ins og hlaut allgóða menntun á þeirrar tíðar mælikvarða. í kaupfé- laginu á Reyðarfírði kynntist hann Bergljótu Guttormsdóttur frá Hall- ormsstað, sem þar var þá við versl- unarstörf. Gengu þau í hjónaband árið 1938 er Ólafur hafði lokið námi í Samvinnuskólanum. Til Reykja- víkur fluttust ungu hjónin árið eftir og þar áttu þau síðan heimili í full 60 ár, fyrst á Leifsgötu 4, síðan á Þórsgötu 5 og frá árinu 1955 á Lynghaga 8. Ólafur vann í 43 ár hjá Toll- stjóraembættinu, lengst af sem fuEtrúi en síðasta skeiðið sem yfir- maður endurskoðunardeildar. Hann þótti traustur embættismað- ur, reglusamur og stundvís og kom sér vel meðal starfsfélaga. Launa- kjör opinberra starfsmanna voru um miðja öldina langtum lýrari en síðar varð. Til af bæta fjárhaginn hafði Ólafur um tíma rekstur með höndum, stóð meðal annars að prjónastofu. Var vinnudagur hans lengst af mjög langur og frístundir takmarkaðar. Heimili þeirra hjóna var íburðar- laust en vel búið og notalegt. Ólafur og Bergljót voru samhent í flestu þótt skapgerð þeirra væri ólík, hús- freyja létt í lund, nokkuð ör og gat látið gamminn geisa er svo bar und- ir, húsbóndinn rólyndur og hlé- drægur en þó glettinn og kíminn við kunnuga. Úr lyndiseinkunnum þeirra varð góð og þægileg blanda sem setti svip á heimilislífið og ætíð var eftirminnilegt að sækja þau heim. Nú eftir á að hyggja urðu þær samverustundir alltof fáar. Gestkvæmt var á heimili þeirra, ekki síst seinni árin eftir því sem af- komendunum fjölgaði. Leið fjölskyldunnar lá að vonum oft til Austurlands og þar dvöldust börn þeirra iðulega á unglingsár- um. Eg minnist úr æsku ljúfra stunda er fjölskyldan af Þórsgöt- unni kom í Hallormsstað, oftast um hásumar, og bar með sér andblæ af framandi borg. Það ríkti eftirvænt- ing með tilheyrandi spennu áður en þau renndu í hlað og þeim fylgdi ungviði sem að lokum varð fjögurra barna hópur, fyrst Sigríður Helga, alltaf kölluð Sirrý, og síðar bræð- urnir Guttormur, Þorsteinn og Eggert. Börnin fæddust á tímabil- inu 1939-1952. Enginn er á ber- angri sem á slíkan hóp og smám saman fjölgaði niðjunum sem ég veit enga tölu á. Ólafur átti sér mörg hugðarefni sem hann ræktaði flest í kyrrþey í naumum frístundum. Hann var list- hneigður eins og fleiri í hans ætt, málaði sér til ánægju, tók ljós- myndir og hafði yndi af söng og bóklestri. Um tíma var hann í Karlakór Reykjavíkur. Ólafur íylgdist vel með þjóðmálum en var ekki virkur þátttakandi á þeim vettvangi. Hann hafði ríka réttlæt- iskennd og sjálfstæði landsins var honum hjartans mál eins og fyrir flesta af hans kynslóð. Það er ljúft að minnast Ólafs H. Bjarnasonar nú að leiðarlokum. Með honum er genginn traustur og heilsteyptur eljumaður og ljúfur fjölskyldufaðir og afi. Við Kristín sendum Bergljótu, börnum þeirra og frændgarðinum öllum samúðar- kveðjur. Hjörleifur Guttormsson. Ólafur H. Bjarnason mágur minn, Lynghaga 8 í Reykjavík, er farinn á vit feðra sinna eftir langa ævi sem markaðist af farsæld og hagsæld. Fyrirhyggja, ráðdeild og trúmennska voru þeir eðliskostir sem koma fyrstir í hugann þegar þessa manns er minnst, svo og um- hyggja fyrir þeim sem að honum stóðu. Þeim fækkar ört fornvinunum og söknuðurinn verður sárari eftir hvern genginn guma, og í hugleið- ingum, þrungnum trega og eftirsjá, bregður fyrir fyrstu kynnum. Gam- an þótti sveitapilti austan af landi að koma á Þórsgötu 5 haustið 1946, slengjast inn í fjörugt heimilislíf systur og mágs þar sem undurfríð dóttir og ærslafullir synir, tveir að tölu, léku um gólf. Hinn þriðji átti síðan eftir að líta dagsins ljós. Fyrsta kvöldið þótti Ólafi við hæfi að sýna fáráðlingnum nánasta um- hverfi og gengum við niður Skóla- vörðustíginn fram hjá „head quar- ters“ (aðalstöðvum) KRON eins og hann orðaði það og lá leiðin síðan niður á Grundarstíg þar sem hann lauk upp stærðar prjónastofu sem hann starfrækti um skeið. Þannig fékk sveitamaðurinn dálitla nasa- sjón af því sem iðjað var í höfuð- staðnum. Eftirminnilegar eru ánægjustundir á Þórsgötunni við gnægtaborð í hópi heimilisfólks, kostgangara, lundfagrar vistar- meyjar frá Hvammi á Völlum og gesta sem að garði bar. Ólafur og Bergljót systir mín kynntust á Reyðarfirði á fjórða ára- tugnum þar sem hann ólst upp á menningarheimilinu Hermes hjá þeim Þorsteini Jónssyni kaupfé- lagsstjóra og Sigríði Þorvarðar- dóttur. Til þess lágu þau tengsl að móðir Sigríðar var seinni kona Magnúsar Blöndals Jónssonar, hins þjóðkunna prests í Vallanesi, móðurafa Ólafs. Hermes-heimilið var rómað austanlands. Þar var tíð- um margt um manninn. Fjölmar- gir, sem áttu leið til Reyðarfjarðar, komu í hús kaupfélagsstjórans og stórrar fjölskyldu hans og nutu þar gestrisni og höfðingslundar. Þar var glatt á hjalla, söngur, gleði og gaman og því var ekki að undra að fóstursonurinn drægi nokkurn dám af uppeldinu. Eftir nám í Sam- vinnuskólanum giftust þau Begga og Óli og hlutskipti þeirra varð hið sama og sagt er frá ýLandi og son- um, að fara suður. Attu þau fyrst heima á Vesturgötu, síðan á Vífils- götu 2, Þórsgötu og síðast á Lyng- haga frá 1955, kyrrlátum stað það- an sem spölkom er út á Ægissíðu. Þar þótti keikum öldungi, fráum á fæti, gaman að spóka sig í útsun- nanblænum. Ólafur Bjarnason var traustur maður og trúr og mátti ekki vamm sitt vita. Hann var svívökull heimil- isfaðir og bar líka hag ættmenna sinna og tengdafólks mjög fyrir brjósti. Þegar vanda bar að hönd- um var gott til hans að leita og vin- ar í þörf neyta. Hversu tryggur hann var vinum sínum sýndi sig í gestrisni, greiðasemi og höfðing- legu viðmóti. Hann var smekkvíst snyrtimenni, bæði í heimilishaldi, húsbúnaði og klæðaburði og heimili þeirra Bergljótar ber því vitni. Þar em veggir skreyttir myndum, þó nokkram sem húsbóndinn hafði málað. Hann var í hvívetna vel verki farinn og er óhætt að segja að flest léki honum í hendi. Fyrr á ár- um, að minnsta kosti, hafði Ólafur yndi af ljóðum, einkum þeirra skálda sem vildu veg íslands sem mestan. Einar Benediktsson var honum næsta hugstæður. Ólafur var íhugull maður og gagnrýninn á málefni líðandi stundar en umtals- góður var hann og lastaði ekki nokkurn mann fjarstaddan. Með glöðu yfirbragði, þar sem stutt var í hláturinn, naut hann þess að heyra sagt frá skringilegum atvikum og var fundvís á broslegar hliðar mála og það sem kyndugt var í fari manna. A honum sannaðist ekki orðskviðurinn að svo ergist hver sem hann eldist því að sjaldan skipti hann skapi og hreytti ekki í menn ónotum né óvildarorðum. Rólyndur var hann, hógvær og hóf- samur í hvívetna. Ólafur átti kyn sitt að rekja til mikilhæfra manna. Séra Magnús í Vallanesi þekktu allir Austfirðing- ar og sjálfsævisaga hans er prýðis- verk. Bjarni frá Vogi, bróðir Magn- úsar, var háskólakennari og mikilvirkur rithöfundur. Langafi Ólafs, Pétur Eggerz kaupstjóri á Norðeyri, var mikill framfaramað- ur í verslun og til hans átti Ólafur að sækja áhugann á verslun og við- skiptum. I móðurætt Ólafs var margt fríðleiksfólk og kippti honum þar í kynið. Illvígan hjartasjúkdóm, sem þjáði Ölaf alllengi og dró hann til dauða, bar hann af æðruleysi. Eg þakka mági mínum kærlega fyrir samveruna og óska honum góðrar ferðar til annarra heim- kynna. Þórhallur Guttormsson. Við hjónin sendum vináttu- og minningarkveðjur vegna, fráfalls vinar okkar, öðlingsins Ólafs H. Bjarnasonar fyrrverandi deildar- stjóra, sem lengst af bjó á Lyng- haga 8 hér í borg. Jafnframt send- um við eftirlifandi eiginkonu hans, Bergljótu Guttormsdóttur, bömum þeirra og öðrum afkomendum hug- heilar samúðarkveðjur. Kynni fjölskyldna okkar Ólafs hófust fyrir þremur og hálfum ára- tug á þann skemmtilega og ljúfa hátt að dóttir okkar Ásthildur og sonur þeirra Þorsteinn felldu hugi saman. Síðan gengu þau í heilagt hjónaband og eignuðust þrjú mannvænleg börn. Ólafur var traustur maður og mikið prúðmenni og stoltur af því að vera Austfirðingur. Hann var vel af guði gerður bæði til líkama og sálar. Vel lesinn og fylgdist ávallt vel með. Kynni fjölskyldnanna byggðist á því að þær hittust jafnan á stórum stundum og hátíðum. Fyrir nokkram árum fóru þau Asthildur og Þorsteinn ásamt börn- um sínum og foreldrum beggja og systur Þorsteins í hálfs mánaðar ökuferð um Danmörku og hluta af Þýskalandi. Þarna kynntumst við Ólafi mjög vel og eru minningar frá þessari ferð okkur öllum ógleyman- legar. Síðustu tvö skiptin sem við hitt- um Ólaf var í lok ágústmánaðar sl. við brúðkaup Bergljótar Þorsteins- dóttur sonardóttur Ólafs og daginn eftir við skírn Magnúsar Friðriks Halldórssonar langafabarns okkar Ólafs beggja. Þar lék Ólafur við hvern sinn fingur og var að vanda bráðskemmtilegur. Um leið og við þökkum Ólafi fyr- ir traust og góð kynni viljum við minna á að minningin um góðan dreng mun ætíð lifa. Guð blessi ykkur öll sem vorað Ólafi kær og hann mun lifa í minn- ingunni. Þorbjörg og Halldór Rafnar. Árið 1942 réðst Ólafur Bjarnason til starfa hjá tollstjóraembættinu í Reykjavík. Hann var þá aðeins 27 ára að aldri og starfslok hans hjá embættinu urðu ekki fyrr en við aldursmarkaskil hjá opinberam starfsmönnum árið 1985, er hann náði 70 ára aldri. Hafði hann þá starfað þar í 43 ár eða nær allan sinn starfsaldur. Ólafur starfaði fyrstu árin við skrifstofustörf við innheimtu al- mennra gjalda en síðar við tollút- reikning og endurskoðun. Á áranum kringum 1960 og þar á eftir var vinnutilhögun við tollaf- greiðslu aðfluttra vara á þann hátt að innflytjendur lögðu innkaupa- reikning sinn yfir erlendis keypta vöru inn hjá embættinu sem þá toll- merkti vöruna og reiknaði út gjöld þau er greiða skyldi af viðkomandi innflutningi. Að þvi búnu gekk þessi útreikningur til endurskoðun- ardeildar fjármálaráðuneytisins, sem var undanfari ríkisendurskoð- unar, þar sem endurskoðun fór fram áður en varan fékkst leyst út. Var þetta ferli þungt í vöfum og taf- samt fyrir innflytjendur og oft þrautin þyngri að koma vöru sinni í gegnum toll. Á árunum eftir 1963 varð mikil þróun á sviði tollamála og samstarf þjóða á milli jókst mjög. Fljótlega þar á eftir tók embættið sjálft við endurskoðuninni og var Ólafur þá annar af tveim starfsmönnum við embættið sem því starfi gegndi. Hélst svo um sinn uns núverandi háttur var upptekinn, að innflytj- endur sjálfir skyldu tollmerkja vör- una og reikna út lögboðin gjöld af henni. Endurskoðunin var eftir sem áður hjá embættinu og fram- kvæmd fyrirfram og áður en tollaf- greiðsla var leyfð. Á árunum kringum 1970 og þar á eftir urðu talsverðar mannabreyt- ingar hjá embættinu og upp úr þvr' vai’ð Ólafur deildarstjóri við toll- endurskoðunardeildina, sem hann gegndi þar til hann lét af starfi. Allir sem til þekkja vita að hér er um mikið starf og fjölþætt að ræða sem reyndar liggur í augum uppi þegar til þess er horft að um eða yf- ir 70% af innflutningi til landsins hlýtur tollafgreiðslu í Reykjavík. Oft vildi við brenna að rekið væri á eftir að varan fengist tollafgreidd og beindist kvabbið þá ekki síst að endurskoðendunum. Starf sitt rækti Ólafur af kost- gæfni og nákvæmni. Má jafnvel segja að hann hafi rækt það af nær- færni, því athugasemdir eru misvel þegnar af þeim, sem þær beinastr gegn. Hann átti sér ekki óvildar- menn svo ég viti og segir það nokk- uð um samskipti hans við innflytj- endur. Ólafur var fríður maður sýnum, meðalmaður á hæð, hvikur í hreyf- ingum, glaðlyndur en enginn mál- ski-afsmaður. Hann hafði sig því ekki mjög í frammi, dags daglega, en var góður viðskiptis og hlaut al- mannaorð bæði af samstarfsfólki og viðskiptavinum. Slíkra manna er gott að minnast að löngu samstarfi loknu. f * Ekki kynntist ég Ólafi mikið utan vinnu og mannamóta í tengslum við hana. Ég átti þó því láni að fagna að kynnast þremur af börnum hans í starfi. Sömu sögu er af því að segja, að þar fór mannkosta- og hæfileika- fólk, sem gott var að eiga að sam- starfsfólki. Era konu Ólafs, börnum þeirra og öðram aðstandendum færðar samúðarkveðjur við fráfall hans. Bjöm Hermannsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, JÚLÍUS SIGURÐSSON, Hvassabergi 14, Hafnarfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans mánu- daginn 25. október. Lilja Jónsdóttir, Elísabet Guðbjörnsdóttir, Sigríður Gísladóttir, Ingi Rafnar Júlíusson, Brynhildur Sigurðardóttir, Jón Páil Júlíusson, Gísli Sigurðsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNAR GUÐMUNDSSON, Kjalariandi 28, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 26. október. Jarðarförin auglýst síðar. Ólöf Sigríður Gísiadóttir, Gíslína Gunnarsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Magnús I. Þorgeirsson, Kristín Gunnarsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Gunnar Gunnarsson, Brynja Þórarinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. «r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.