Morgunblaðið - 28.10.1999, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
unnið störf sín af vandvirkni og elju-
semi. Sem margur annar fór Jón þó
ekki varhluta af mótlæti í lífinu en
hann sigraðist á hverri raun og svo
. mikið er víst að þar naut hann
dyggrar aðstoðar eiginkonu sinnar
Yalgerðar Báru Guðmundsdóttur.
Á því langa og erfiða ári sem Jón
þjáðist af sjúkdómi sínum átti hann
og marga aðra hauka í homi, sem
litu til með honum og hjálpuðu og
þ.á m. var okkar sameiginlegi vinur
Valur Sigurbergsson sem sýndi í
verki einstakan góðvilja og sanna
vináttu.
Eg og eiginkona mín sendum
Völu Báru, börnum Jóns og barna-
bömum og systmm hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja þau og
styðja.
Ólafur Stefánsson.
Pittskíraljós
erskyggtumstund
ogmyrkvuðsýn.
Paðlifnarsenn
hjá leið hvers manns
ogskærarskín.
Ólafur Thóroddsen.
Fallinn er frá góður drengur og
að honum er mikil eftirsjá.
Svo lengi sem ég man eftir mér,
man ég eftir Jóni Oddssyni, en hann
var heimagangur á bemskuheimili
mínu. Við áttum Vesturbæinn að
umgjörð æsku okkar. Stuttur spöl-
ur var milli heimila okkar. Við á
Hagamel og hann á Grenimel. Einu
sinni var honum falið það verðuga
verkefni að sækja mig fótgangandi í
hinn víðfræga leikskóla Laufásborg
og hafði ég þá lifað um hálfan ára-
tug. Á þessum árum mátti næstum
telja bflaeign bæjarbúa á tám og
fingram. Þótt úti væri kuldi og
hörkufrost varð heimferðin að eftir-
~2 minnilegri skemmtun vegna líflegra
frásagna hans. Talsverður aldurs-
munur var milli okkar og vissulega
leit Jón á mig í þá daga sem litla
bamið í fjölskyldunni sem var lauk-
rétt. Svo liðu árin, þótt milli okkar
væri tíðindalaust í einhvem tíma,
skárast leiðir jafnan aftur og vinátt-
an var alltaf söm.
Þessi ágæti vinur minn verður
mér lengi minnisstæður fyrir
margra hluta sakir: Drengslund var
honum í blóð borin, brennandi rétt-
lætiskennd og trygglyndi. Háttvísi
var honum eiginleg í samskiptum
við aðra menn. Fjölfróður menning-
armaður, skarpgreindur og fram-
úrskarandi skemmtilegur. Gæddur
frjóu ímyndunarafli og gat komið
með hárfmar athugasemdir um
menn og málefni ef því var að
skipta. Og þótt Jón yljaði stundum
andstæðingum sínum undir uggum
var hann bæði vinsæll og vinmarg-
ur._
Á síðasta ári greindist Jón Odds-
son með þann sjúkdóm, sem dró
hann til dauða. Þeim tíðindum tók
hann af fágætri stillingu. Hann
hafði satt að segja ekki undan að
hugga alla þá sem áttu um sárt að
binda vegna veikinda hans. Hann
snéri dæminu við, það var hann sem
veitti uppörvun, miðlaði af lífs-
reynslu sinni og fróðleik. Og þá var
Jón í essinu sínu, því hann kunni
flestum mönnum betur að segja
sögur. Fáir atburðir vora svo
ómerkflegir og hversdagslegir að
honum tækist ekki að gera þá
áhugaverða og skemmtilega, þegar
hann sagði frá þeim. Eins og allir
góðir sögumenn leyfði Jón yfirleitt
sögunni að taka völdin og fara sínu
fram, lúta sínum eigin lögmálum.
Annars hefði heldur aldrei orðið
nein saga. Eg hygg að einn höfuð-
kostur Jóns sem lögmanns hafi ver-
ið sá, að hann beitti því sem hann
átti til og fundið gat til að gæta
hagsmuna skjólstæðings síns.
Skipti þá engu, hvort fyrir urðu háir
sem lágir. Jón vissi, að einatt á skjó-
stæðingurinn sér aðeins eina hlíf,
þar sem er lögmaður hans. Hann
vissi einnig sem var, að það var ekki
ein hlið á hverju máli heldur marg-
ar. En það vita ekki allir, því miður.
Menn sem áttu torsótt mál að
sækja, en vora sjálfir trúaðir á
málstað sinn, leituðu gjarna til Jóns,
stundum eftir að þeir höfðu gengið
bónleiðir til annarra lögmanna. Jón
sá þá gjama leið þar sem öðram
höfðu virst sundin lokuð. Skarp-
skyggni hans og baráttugleði stuðl-
aði þannig að því, að fleiri en ella
fengu leiðréttingu á sínum málum
sem löggjöf gerir ráð fyrir.
Og nú þegar Jón Oddsson flytur
mál sitt fyrir þeim dómara, sem
æðstur er, veit ég að honum mælist
vel sem endranær. En ég veit einn-
ig, að hann getur leitt margt vitnið
og ekki aðeins mig, til að votta, að
hann lagði sitt á vogarskálarnar um
ævina til að skilja við heiminn betri
en þegar hann sá hann í fyrsta sinn.
Á kveðjustund er þökkuð af heil-
um hug samfylgdin og Guð beðinn
um að blessa góðan dreng. Eigin-
konu Jóns, Valgerði Bára, og fjöi-
skyldu hans votta ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Sigríður Ingvarsdóttir.
Góður drengur er frá fallinn eftir
glímu við sjúkdóm sem allt í senn er
þögull, ásækinn og ógnvekjandi. Sá
illvígi vekur ávallt upp óteljandi
spumingar um leið okkar í mann-
legri vist, um dauðann og tilverana.
Jón Oddsson tók því sem verða vildi
af einstakri ró og æðraleysi og hug-
hreysti okkur sem skynjuðum
manninn með ljáinn með gáska og
kímni. Á sjúkrabeði var hann við-
ræðugóður sem aldrei fyrr og leiddi
gamla vini um ný lönd sem venju-
legur maður sér ekki í amstri dags-
ins.
Mannþekking Jóns var með af-
brigðum og frásagnarsnilld hans
gerði persónur hans og mannlegt líf
fyrri ára ljóslifandi eins og á leik-
sviði væri. Jón var ótæmandi sagna-
brannur á síðustu áram ævi sinnar
og þreyttist aldrei á að draga fram
persónur, mannlega eiginleika og
setja fram í nýju ljósi atburði og
menn. Fáranleikinn var ekki síst
Jóni umhugsunarefni þegar hann
sýndi okkur svart á hvítu hve mann-
leg barátta er léttvæg þegar barist
er um völd, peninga eða virðingu og
dauðinn nálægður. Lögmaðurinn
hrærist öðram fremur í átakaheimi
þar sem menn standa oft berskjald-
aðir eftir að verjendur eða sækjend-
ur hafa tínt af þeim spjarirnar og
allt vald er lagt í hendur dómara.
Hispursleysi Jóns vakti oft undrun
mína og þegar ég spurði hann hví
oft væri svo hart barist sagði Jón að
málfylgni og yfirgripsmikil útlistun
væri nauðsynlegt í hörðum heimi
réttarsala. I gegnum lögmanns-
störfin var Jón vanur að skyggnast
undir yfirborðið og draga fram nýj-
ar hliðar sem öðrum virtist erfitt að
koma auga á.
Á yngri áram rak Jón lögmanns-
stofu í Garðastræti þar sem hann
vann oft langan vinnudag. Honum
var umhugað um skjólstæðinga sína
og fylgdi málstað þeirra oft betur
eftir ef þeir vora fátækir og um-
komulausir. Á þeim áram var Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið í upp-
siglingu og upprennandi,
framsæknir lögmenn tóku að sér að
verja ungmenni sem vora hneppt í
gæsluvarðhald í einhverju dular-
fyllsta máli sem upphefur komið í
íslenskri réttarfarssögu. Jón tók að
sér að verja Sævar Ciesielski, þann
sakboming sem átti eftir að sýna
mestan baráttukjark við að verja
sakleysi sitt. Undirritaður var þá
sannfærður um að óhreint mjöl
væri í pokanum. Fór ég alloft á fund
Jóns til að frétta af málflutningi og
sá ég að hér var hinn smái og knái
að berjast við Golíat. En í engum
vafa er ég um að barátta og inn-
blástur Jóns hefur gefið Sævari
aukið þrek og áræði til að berjast
við málatilbúning sem lagður var
fram í svartasta skammdegi ís-
lenskrar réttarfarssögu.
Jón átti á fyrri áram í baráttu við
slæman augnsjúkdóm og hafði bet-
ur. Nú lýtur hann guðlegu valdi sem
enginn mannlegur máttur hefur
áhrif á og minnir okkur hin á að lífið
er stutt. Jón er af grandvöra heið-
ursfólki kominn. Fólki er taldi sína
höfuðprýði að ganga beint í baki
mót nýjum degi með bros á vör. Jón
brást aldrei þeim lífsstfl. Innileg-
ustu samúðarkveðjur era sendar
eiginkonu, Valgerði, sem studdi
hann við hvert fótmál svo og böm-
um og systram.
Sigurður Antonsson.
Látinn er í Reykjavík langt um
aldur fram, vinur minn og kollega,
Jón Oddsson, hæstaréttarlögmað-
ur, eftir alllanga og að síðustu
snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm.
Jón var fæddur 5. janúar 1941 og
því aðeins 58 ára gamall, þegar
hann lést. Eftir stúdentspróf frá
Verslunarskóla Islands 1961 settist
Jón í lagadeild Háskóla Islands og
lauk þaðan prófi með afburðaeink-
unn, 226 stigum 1968. Snemma varð
ljóst að Jón stefndi markvisst að
lögmannsstarfi; hann varð héraðs-
dómslögmaður sama ár og hann út-
skrifaðist úr lagadeild eftir flutning
fjögurra prófmála og hæstaréttar-
lögmaður 15. maí 1972, aðeins 32
ára gamall.
Jón gegndi lögmannsstarfi alla
ævi og átti starfið og lögfræðin al-
mennt ríkan þátt í lífi hans. Jón var
afburðagreindur og hæfur lögmað-
ur eins og einkunnir hans í lagadeild
gáfu vísbendingu um. Jón gat verið
harður í hom að taka og höfðingja-
djarfur, en allra manna lítillátastur
við þá sem síður máttu sín eða áttu
undir högg að sækja.
Sá sem þetta ritar minnist Jóns
Oddssonar fyrst,_ ef minnir svíkur
ekki, árið 1975. Eg sat þá í varast-
jóm Lögmannafélags Islands og
vora vikulegir fundir félagsins
haldnir síðdegis á miðvikudögum í
húsnæði félagsins á Óðinsgötu 5.
Páll S. Pálsson, hrl. var á þessum
áram formaður félagsins og stýrði
félaginu af röggsemi eins og hans
var von og vísa. Jón Oddsson hafði
verið boðaður á fund stjómarinnar
til þess að gera nánari grein fyrir
þeim áformum sínum að opna útibú
víðs vegar um land og ferðast á milli
og geta þannig sinnt viðskipta-
mönnum á landsbyggðinni, enda
vora eingöngu lögmenn á Akureyri,
í Keflavík og Vestmannaeyjum þá,
ef rétt er munað. Eitthvað munu
þessar fyrirætlanir Jóns heitins
hafa farið fyrir brjóst stjómar-
manna L.M.F.I., og stóð styrinn um
hvort útibúaáætlun Jóns væri í
samræmi við lög félagsins. Mér er
mjög minnisstætt hve hart Jón
brástvið aðfínnslum stjórnarmanna
við útibúaáætlun sinni, enda taldi
Jón um réttlætismál að ræða fyrir
landsbyggðina. Stór orð féllu á
fundinum, en þau era löngu gleymd;
eftii' lifir aðeins minningin um tvo
snjalla málflutningsmenn þar sem
annar var ungur ofurhugi, en hinn
reyndur og roskinn, báðir góðir fé-
lagar og vinir til áratuga.
Kynni okkar Jóns Oddssonar
urðu svo meiri eftir að ég kynntist
einum afburðamanninum enn í lög-
mannastétt, Jóni E. Ragnarssyni,
hrl., sem eins og nafni hans Odds-
son, lést langt um aldur fram, að-
eins 46 ára gamall. Vinátta Jónanna
var djúp og rík og birtist ef til vill
best í einni fegurstu minningingar-
grein sem ég hef lesið í seinni tíð, en
svo skrifaði Jón Oddsson um nafna
sinn, Jón E. Ragnarsson, 21. júní
1983: „Með djúpum söknuði og
trega er mætur vinur, Jón E. Ragn-
arsson, hæstaréttarlögmaður,
kvaddur hinstu kveðju. Vordagai'
lífs hans voru bjartir og fagrir og
stórmerki á lofti og fyrirheit, en
sumarið leið alltof fljótt. Áður en
varir er ævinnar dagur að kveldi.
Þeim dómi verður ekki áfrýjað. Á
sorgarstund við dánarbeð æskuvin-
ar er hollt að hugleiða ljóðlínur
frænda hans, Einars Benediktsson-
ar, skálds.
Og því er svo erfitt að dæma þann dóm,
að dauðinn sé hryggðarefni,
þó ljósin slokkni og blikni blóm.
Er ei bjartara land fyrir stafni?“
Um kynni okkar þriggja get ég
ntað langt mál, en mun ekki gera.
Eg var ávallt þiggjandi í viðskiptum
við Jónana ekki síst í juridiskri um-
fjöllun, enda þeirra yngstur og af
þeim báðum þá ég góð ráð varðandi
lögmennsku, ráð sem ég tel mig búa
að æ síðan.
Hin síðari ár vora samskipti okk-
ar Jóns Oddssonar einkum fólgin í
reglulegum símtölum þar sem víða
var komið við og eru það nánast
einu skiptin í mínu lífi eftir að Jón
E. dó, að ég tala í síma uppundir
klukkutíma í einu og jafnvel ein-
staka sinnum lengur.
Við andlát Jóns Oddssonar er
mér efst í huga þakklæti fyrir að
hafa átt hann sem vin og félaga og
söknuður að missa góðan dreng svo
fljótt. Hugheilar samúðarkveðjur
sendum við Heiðrún Valgerði Bára,
eftirlifandi eiginkonu Jóns, svo og
börnum hans og öðram ættmennum
sem eiga um sárt að binda. Manna
eins og Jóns Oddssonar er gott að
minnast.
Sigurður Georgsson.
• Fleiri minningargreinar um Jón
Oddsson bíða birtingar ogmunu
birtast í blaðinu næstu daga.
t
-4
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR GÍSLASON
framkvæmdastjóri,
Nóatúni 15,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 29. október kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Þórunn Guðmundsdóttir,
Eygló Helga Haraldsdóttir, Eiður Guðnason,
Guðmundur Haraldsson, Ástbjörg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR S. MATTHÍASSON,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum laugardaginn 30. október kl. 14.00.
Kolbrún Ingólfsdóttir,
Ægir Rafn Ingólfsson, Ragna Margrét Norðdahl,
Inga Dís Ingólfsdóttir, Pétur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað frá hádegi föstudaginn 29. október vegna útfarar PÁLMA
GUÐMUNDSSONAR. Bjöm Arnórsson, umboðs- og heildverslun, Laugarnesvegi114.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁSTA RAGNHEIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vatnsholti 9c,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 29. október kl. 14.00
Margeir Jónsson
Jóna Margeirsdóttir,
Margrét Margeirsdóttir,
Ásta Ragnheiður Margeirsdóttir,
Margeir Margeirsson,
Valur Margeirsson,
Haukur Margeirsson,
Guðmundur Margeirsson,
Arnþór Margeirsson,
Guðjón Stefánsson,
Ingibjörg Reykdal,
Birna Sigurðardóttir,
Halldóra Ingimarsdóttir,
Ingibjörg A. Frederiksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
GUNNAR HAFSTEINN MAGNASON,
er lést miðvikudaginn 20. október sl. verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 29.
október kl. 14:00.
Sigríður Elíasdóttir, Eiríkur Valdimarsson,
Salome Eiríksdóttir, Hólmsteinn Brekkan,
Tinna Brekkan, Sara Brekkan, Ólöf Eir Brekkan.