Morgunblaðið - 28.10.1999, Síða 47

Morgunblaðið - 28.10.1999, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 HAUKURSKAG- FJÖRÐ JÓSEFSSON + Haukur Skag- fjörð Jósefsson fæddist á Sauðár- króki 6. janúar 1937. Hann lést á Sólvangi í Hafnarfirði 21. október siðastliðinn. Foreldrar hans voru Elín Aðalbjörg Jó- hannesdóttir frá Sauðárkróki, f. 29. september 1905, d. 4. maí 1995 og Jósef Stefánsson, f. 4. nó- vember 1905 á Sauð- árkróki. Hann býr nú á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. Haukur átti níu systkini og var næs- tyngstur sex eftirlifandi systk- ina. Hin eru: Jóhannes Stefán, f. 11. október 1927, Erla Skag- íjörð, f. 21. mars 1930, Hjalti Skagfjörð, f. 3. október 1933, Þorbergur Skagfjörð, f. 1. des- ember 1935 og Svavar Skag- fjörð, f. 27 nóvember 1940. Haukur lærði húsgagnasmíði hjá Helga Einarssyni í Reylgavík og húsasmíði hjá föður sínum sem rak Trésmiðjuna Björk á Sauðárkróki. Árið 1959 kvænt- ist Haukur eftirlif- andi konu sinni, Guðrúnu Stefáns- dóttur Hjalfalin, skrifstofukonu í Reykjavík, sem bús- ett er í Garðabæ. Dætur þeirra eru: Sigríður Dúna, f. 21. mars 1957; Elín Aðalbjörg, f. 22. nó- vember 1960. Eigin- maður hennar er Alfreð V. Sigurjóns- son og eiga þau tvo syni: Hauk Viðar og Brynjar Smára; Helga Kristín, f. 29. des- ember 1961. Sambýlismaður hennar er Reynir Krisfjánsson og eiga þau tvo syni: Andra Má og Birgi Rafn; Erla Björk, f. 18. september 1965. Eiginmaður hennar er Gunnlaugur Reynis- son. Börn Erlu eru: Ingi Þór og Þórdís. títför Hauks fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar í nokkrum orðum að minnast tengdaföður míns, Hauks Jósefssonar. Það lá ekki í eðli Hauks að gefast upp þótt á móti blési og er hetjuleg barátta hans við erfið veikindi til margra ára til marks um þá miklu þrautseigju og viljastyrk sem hann hafði til að ná settum markmiðum. Þegar ég fyrst kynntist Hauki, fyr- ir meira enn tuttugu árum, var hann að koma fótunum undir sig eftir að hafa yfirgefið æskustöðvar sínar, Skagafjörðinn, nokkrum ár- um áður. Það var ekki auðvelt þá, frekar en í dag, að koma suður og hefja nýtt líf næstum frá grunni. Fyi-stu kynni mín af Hauki voru þegar ég sem ungur maður kom í Nökkvavoginn þar sem fjöldskyld- an bjó. Allt frá fyrstu tíð fór vel á með okkur og um nóg að spjalla, enda báðir iðnaðarmenn að at- vinnu. Haukur hafði sem ungur maður lært húsa- og húsgagna- smíði sem nýttist honum vel í sínu starfi. Hann var mikill fagmaður og lagði metnað sinn í að skila vand- aðri vinnu í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Enda var það svo að margir viðskiptavinir hans héldu tryggð við hann og leituðu til hans aftur og aftur með verkefni sem þurfti að leysa. Hann var maður fullur ákefðar og lét drauma sína rætast. Eitt af því fyrsta sem hann gerði eftir að hafa flutt í Nökkvavoginn var að byggja sér bílskúr. Þegar hann flutti í Garðabæinn unni hann sér ekki hvíldar fyrr en hann hafði stækkað skúrinn þar um meira en helming. Kom hann sér upp að- stöðu þar sem hann gat sinnt öllum verkum bæði stórum og smáum. Þegar frá leið og hann hafði kom- ið sér vel fyrir fóru að koma nýjar hliðar í ljós á Hauki sem hann hafði ekki sýnt áður. Hann fór að stunda ýmis áhugamál. Meðal annars var trjárækt og skíðamennska honum hugleikin. Ekki er mér kunnugt um hvort hann hafi stundað skíði á sín- um yngri árum á Sauðárkróki, en eftir að hann fékk áhugann hér fyr- ir sunnan leið ekki á löngu þar til hann var orðinn liðtækur skíða- maður. Eftir að veikindi hans mein- uðu honum að fást við skíðin beindi hann áhuga sínum að öðrum hugð- arefnum. Fullur áhuga eignaðist hann rennibekk þar sem til urðu ýmsar skálar og skrautmunir sem skreyttu heimili hans og ættingja. Þrátt fyrir að vera vel að sér í viðar- fræðum leitaði hann sér upplýsinga víða um hvernig best væri að standa að þessu áhugamáli sínu til að ná sem bestum árangri. Það var ekkert öðruvísi með þetta áhuga- mál en annað sem hann tók sér fyr- ir hendur, hlutirnir áttu að vera í lagi og fagmannlega unnir. I gegnum öil sín veikindi heyrði ég Hauk aldrei kvarta. Hann var barn þess tíma þar sem fólk flíkaði ekki tilfinningum sínum. Hann var ákveðinn í skoðunum og sagði þær á tæpitungulausan hátt og kraft- mikilli íslensku ef svo bar við. Að sama skapi var hann bóngóður maður og gott að leita til hans með verkefni sem þurfti að leysa. Kæri Haukur, ég bið guð að geyma þig og votta fjölskyldu þinni samúð mína. Reynir Kristjánsson. + Óskar Jacobsen fæddist í Reykja- vík 29. janúar 1923. Hann lést í Reykja- vík 20. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru þau Frið- semd Jónsdóttir og Karl Anton Jacobs- en. Voru þau sjö, Óskar og systkini hans. Óskar kvæntist eft- irlifandi eiginkonu sinni, Guði-únu Á. Magnúsdóttur, f. 6.1. 1956, og áttu þau 11 börn, sem eru: Karl Sig- urgeir, f. 23.5. 1942, Þórarinn Kolbeinn, f. 9.7. 1944, Magnús Friðrik, f. 17.9. 1948, d. 16.2. 1990, Sigrún Svanfríður, f. 3.2. 1950, Esther Rut, f. 22.4. 1951, Óskar Helgi, f. 20.6. 1953, Gunn- Okkar langar að kveðja föður okkar með nokki-um orðum. Elsku pabbi, okkar hugur leitar til þín aftur og aftur. Við hugsum um þær stundir í gamla daga þegar þú sýndir okkur alltaf stuðning og varst okkur góður pabbi. Þú varst okkur góð fyrirmynd og alltaf gam- an að horfa á þig koma heim frá vinnu, hvernig þú gekkst alltaf svo virðulegur og reistur heim að hús- inu. Vinnan var þér mikils virði, og Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fyigi útprentuninni. Auðveldust er nióttaka svokallaðra ASCIl-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld 1 úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5C9 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nónari upplýsingar má lesa á heimasíðum. ar Þór, f. 23.5. 1955, Fríða, f. 6.2. 1957, Elsa Inga, f. 3.8. 1960, Hjörtur, f. 2.10. 1961, og Helga, f. 18.12. 1962. Óskar ólst upp í Reykjavík. Eftir stutta skólagöngu fór hann að vinna og vann hann hin ýmsu störf framan af, en 1953 hóf hann störf við Áburðar- verksmiðju rikisins þar sem hann sá um mæladeild verksmiðjunnar, þar til 1993 að hann lét að störfum vegna aldurs. títför Óskar fer fram frá Fríkir- kjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. einnig vinnufélagarnir sem þú tal- aðir svo oft um. Eins er okkur minnisstætt þegar við fengum að fara með upp í „verksmiðju" eins og þú kallaðir það, því þar voru jú græjurnar. En það starf skapaðir þú sjálfur með dugnaði og fórnfýsi. Sá gífurlegi áhugi þinn á að kynna þér og lesa þér til um alla hluti hef- ur eflaust átt sinn þátt í því að þú varst vel metinn og fróður um þína vinnu, því þær eru ekki fáar fræði- bækurnar sem þú hefur lesið um ævina. Okkur verður líka hugsað til sumarsins með miklu þakklæti, þegar þú og mamma fóruð til Norð- ur-Ameríku í langa og vel heppn- aða ferð. Þetta var eins og dýrmæt gjöf að fá að eyða yndislegum sum- ardögum með ykkur, og ekkert okkar vissi hversu dýrmætar mín- úturnar voru. Við höfðum öll tölu- verðar áhyggjur af því í upphafi ferðar, hvernig þér myndi heilsast að vera á ferðalagi í heilan mánuð. En þökk sé Guði, þú varst manna hressastur og dróst ekki af þegar allir vildu fara að versla eða fara á flakk. Og þegar billjardborðið var annars vegar varstu léttur á fæti og stóðst yfirleitt uppi sem siguivega- rinn. Þetta voru góðar stundir, gefnar af Guði sem rissi að ævidagar þínir voru ákveðnir og allir skráðir í hans bók. Börnin. Í Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, AXEL THORARENSEN, Stuðlaseli 32, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 26. október. Jóhanna Thorarensen, Hannes Thorarensen, Guðrún Gunnarsdóttir, Kristín Thorarensen, Víglundur Þorsteinsson, barnabörn og barnabamabörn. OSKAR JACOBSEN + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR PÁLL JÓNASSON, Hrauntungu 38, Kópavogi, lést á Landspítaianum þriðjudaginn 26. október. Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir, Jónas Haukur Einarsson, Hrafnhildur Einarsdóttir, Helgi Einarsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HELGASON, Garðvangi, Garði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kvöldi þriðjudagsins 26. október. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Elísabet Þórhallsdóttir. + Ástrík eiginkona min, ÁSTRÚN J. SÍVERTSEN, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 27. október. Marteinn Sívertsen. + Ástkær systir mín, vinkona og amma okkar, VILBORG SÆMUNDSDÓTTIR, Háaleitisbraut 48, Reykjavík, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugar- daginn 30. október kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Jóna Sæmundsdóttir, Sæmundur Eiðsson, Elva Björk Sigurðardóttir, Hafsteinn Sæmundsson, Sigrún Sæmundsdóttir, Arnar Steinn Sæmundsson. Á- + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur- faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR G. HALLDÓRSSON fyrrv. fasteignasali, Selvogsgrunni 22, Reykjavík, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 26. október. Jarðsungið verður frá Þjóðkirkjunni í Hafnar- firði þriðjudaginn 2. nóvember kl. 15.00. Stella Sæberg, Margrét Þórðardóttir, Sigríður Þórðardóttir, Sjöfn Þórðardóttir, Svala Þórðardóttir, Jóhanna S. Guðbjörnsdóttir, Kristján Kristjánsson, Árni Sæberg Kristjánsson, Guðmundur J. Hallbergsson, Björgvin Vilmundarson, Árni J. Sigurðsson, Gísli Sveinsson, Skúli Guðmundsson, Valgerður S. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir mín, MARÍA HAFLIÐADÓTTIR, Bjarkargötu 12, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 29. október kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Félag nýrnasjúkra. Áslaug Hafliðadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.