Morgunblaðið - 28.10.1999, Síða 48

Morgunblaðið - 28.10.1999, Síða 48
a(t8 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Jirí Pelíkan var fæddur árið 1923 í Olomuc á Mæri í Tékklandi, sonur myndhöggv- ara. Hann var aðai- ritari og síðar for- seti Alþjóðasam- bands stúdenta 1953-63 og sjón- varpsstjóri í Prag 1963-68. Eftir það var hann ritstjóri '*■ tímarits landflótta Tékka. Hann lést í Rómarborg 26. júní 1999. f dag, 28. október, er þjóðhátíðardagur Tékklands. Jirí Pelíkan lifði tímana tvenna og þrenna. Þegar hann var sextán ára skólastrákur settu Þjóðverjar hann í fangelsi fyrir að dreifa flug- ritum gegn hernámi þeirra. Eftir hálft ár var hann látinn laus til reynslu, en gerðist þá bæjarritari í þorpinu Koronec undir fölsku nafni og skilríkjum sem gerðu hann sex árum eldri. Þar starfaði hann af ■VCiiklum krafti í andspyrnuhreyfing- unni. Þegar stríðinu lauk varð hann brátt virkur í stúdentahreyfingunni og formaður Stúdentasambands Tékkóslóvakíu 1948. Sama ár varð hann þingmaður en jafnframt til 1951 formaður sérstakrar háskóla- nefndar á vegum kommúnistaflokksins sem meðal annars átti að dæma um hæfni kennara og nemenda í háskólum. Ætlunin var í upphafi að mismuna þeim sem höfðu átt samstarf við þýska hemámsliðið og fjölga stúdentum úr alþýðu- stétt, en sú skilgrein- ing var ósjaldan teygð og toguð. Jirí segir í endurminningum sín- um, að í þeirri stöðu hafi hann gert sig með- sekan um marga óhæfu. Allan síðara hluta þessarar aldar var Pelíkan alþekktur í stjórnmála- og menningarlífi Tékkóslóvakíu og einnig á alþjóðavettvangi. Árið 1953 verður hann framkvæmdastjóri Al- þjóðasambands stúdenta (IUS), sem hafði aðsetur í Prag frá stofn- un þess 1946. Árið 1956 varð hann forseti sambandsins og gegndi því embætti til 1963. Þá var hann gerð- ur að sjónvarpsstjóra í Prag. I því hlutverki varð hann einn áhrifa- mesti forystumaður þeirra breyt- ingartilrauna sem síðar voru kenndar við „Vorið í Prag“ 1968. Hann varð það ár formaður utan- ríkismálanefndar sambandsþings- ins í Prag. Eftir innrás Sovétríkjanna í ágúst 1968 var hann sviptur emb- ættum sínum og í fyrstu ýtt til hlið- ar í sendiráð Tékkóslóvakíu í Rómarborg. Hann varð brátt einn helsti forystumaður landflótta Tékka og var sviptur ríkisborgara- rétti heimalandsins. Hann sat síðar á Evrópuþinginu á vegum ítalska sósíalistaflokksins. Eftir „flauels- byltinguna" í Prag 1989 og skipt- inguna í Tékkland og Slóvakíu gerðist hann liðsmaður tékkneskra sósíaldemókrata en vorboðarnir frá 1968 áttu reyndar ekki mikinn hljómgrunn lengur heima fyrir. Ég sá Pelíkan fyrst í Sofíu sum- arið 1955 þegar við Ingvar Gíslason og Þórir Éinarsson fórum þangað á ráðsfund Alþjóðasambandsins. Árið 1956-57 var ég síðan áheyrnarfull- trúi Stúdentaráðs Háskóla Islands á skrifstofu sambandsins í Prag. Þá fyrst tók ég að kynnast honum í daglegri umgengni. Pelíkan var einkar líflegur maður og þægilegur í viðmóti og hafði mikla útgeislun. Hann var ólíkur flestum kerfismönnum austantjalds sem ýmist voru fullir af þumbara- skap eða svo fleðulegir að manni of- bauð. Hann var mikill gleðimaður, elskaði vín, víf og söng og dansaði czardas af hjartans lyst. Hann var og einn þeirra sem vildi leysa hvers manns vanda, hversu smávægileg- ur sem öðrum þótti. Hann var í eðli sínu einskonar fyrirgreiðslupóli- tíkus og kom það fram með ýmsum hætti. Grátbroslegt smádæmi um þetta má nefna frá heimsmóti æsk- unnar í Moskvu 1957. Babak kunningi okkar frá Teher- an hafði kynnst rússneskri stúlku, en fékk ekki að bjóða henni upp til sín, því hún hafði ekki passa til að komast inn í háskólabygginguna þar sem Babak hélt til. Babak sneri sér til Bugrofs kunningja síns, aðal- fulltrúa sovétstúdenta, en hann var ekkert nema reglufestan. Loks tókst honum að fá nokkurra klukkutíma leyfi fyrir stúlkuna eitt kvöld. Þá kom í ljós að sama kvöld átti Babak að sitja skyldufund með stúdentum frá Túnis. í öngum sín- um hringdi Babak í sjálfan Pelíkan, útskýrði málavexti og spurði hvort einhver annar gæti ekki farið fyrir sig á fundinn. „Taktu bara á móti stúlkunni," sagði Pelíkan „ég skal fara, ég þarf hvorteðer einhvern- tíma að hitta formann Túnis-stúd- enta.“ Einnig er minnisstætt þegar Bjarni Beinteinsson formaður Stúdentaráðs kom á fund fram- kvæmdanefndar IUS veturinn 1957 og gagnrýndi hálfvolga afstöðu sambandsins til uppreisnarinnar í Ungverjalandi haustið áður. Hann fékk í staðinn harða gagnrýni frá Alsírstúdentum fyrir fjandsamlega afstöðu íslenskra stúdenta til ný- lendustúdenta á öðrum fundi sama haust. Bjarni var óviðbúinn þessari árás, en þá kom Pelíkan til nokk- urrar hjálpar úr forsetastóli og út- skýrði málið á þann veg að hlutur Islendinga varð heldur skárri. Eftir að Pelíkan var orðinn sjón- varpsstjóri tók hann brátt ein- dregna afstöðu með frjálslyndisöfl- um. Segja má að hann hafi smám saman opnað sjónvarpið sem fjöl- miðil þrátt fyrir mikla andstöðu innan Flokksins, enda var hann oft- ar en einu sinni hætt kominn í þeim átökum. Þetta kom ýmsum þeim samlöndum hans á óvart, sem JIRI PELÍKAN + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÞORBERGSDÓTTIR frá Sléttu í Fljótum, Dalbraut 27, Reykjavík, lést að morgni þriðjudagsins 26. október. Jarðsett verður frá Áskirkju mánudaginn 1. nóvember kl. 10.30. Ásta Sveinsdóttir, Páll Sveinsson, Bragi Sveinsson, Karl Sveinsson og fjölskyldur. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EGILL ÓLAFSSON safnvörður, Hnjóti, Örlygshöfn, Rauðasandshreppi, lést á heimili sínu mánudaginn 25. október. Minningarathöfn fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 3. nóvem- ber kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afbeðnir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á sjóð til styrktar flugminjasafni og minjasafni Egils Ólafs- sonar og er í vörslu Eyrarsparisjóðs, Patreksfirði. Jarðað verðurfrá Sauðlauksdalskirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00. Ragnheiður Magnúsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. HAFSTEINN SVEINSSON Hafsteinn Sveinsson fædd- ist í Reykjavík 19. júlí 1917. Hann lést á Landspítalanum 17. október síðast- Iiðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sveinn Teitsson og Sigríður Sigurðar- dóttir og áttu þau tvo syni. Eftirlif- andi bróðir Haf- steins er Pétur Sveinsson, f. 26. febrúar 1914. Pétur er kvæntur Kristínu Sveinbjörnsdóttur og eiga þau þrjú börn, Sigurð, Droplaugu og Þóru. Hafsteinn kvæntist Jensínu Steini frændi. Það er erfitt að sjá á eftir þér og sárt mun ég sakna þín. Ég þekki ekkert annað en að hafa þig í nágrenninu. Mín fyrstu ár naut ég þeirra forréttinda að búa undir sama þaki og þú. Ég á hæð- inni og þú í risinu. Auðvitað komumst við ekki hjá því að kynn- ast hvor öðrum. Ég var eina bamið í húsinu á þessum tíma og óhjá- kvæmilega hef ég heimtað hjá þér athygli. Það er frábært að eiga góð- an frænda sem hægt er að líta upp til og það máttu vita að þú varst Guðrúnu Sigurðar- dóttur, f. 1. nóvem- ber 1913 að Hlíð í Garðahreppi í Gull- bringusýslu, d. 1. september 1988. Þeim varð ekki barna auðið. Hafsteinn lauk barnaskólaprófi og fór snemma að vinna. Hann vann sem sjómaður til margra ára. Einnig vann hann við bif- reiðaakstur og fleiri störf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur í áratugi. Útför Hafsteins fór fram frá Fossvogskapellu 27. október. enginn venjulegur frændi. Þér auðnaðist ekki að eignast böm og þ.a.l. vissir þú kannski ekki alveg hvernig ætti að gantast í þeim. Þú fórst þínar eigin leiðir við að ná athygli okkar krakkanna, lést okkur bregða, þóttist ætla að elta okkur uppi, loka okkur inni í skápum, frystikistum eða það versta af öllu, að keyra okkur upp á heiði og skilja þar eftir. Svo þegar krakkarnir mku í burtu sem fætur toguðu stóðst þú eftir og skellihlóst. Oft rakstu upp stór augu yfir því hversu hratt þau + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, ömmu og systur, SIGRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR, Dverghömrum 32. Þorbjörn Guðmundsson, Katrín Björk Svavarsdóttir, Bryndís ísfold Hlöðversdóttir, Árni Rúnar Hlöðversson. Símon Konráðsson, Doris Konráðsson og systkini. + Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug, minning- argjafir, kort, skeyti og blómasendingar vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SÖLVA PÁLSJÓNSSONAR frá Stakkadal í Aðalvík, Réttarholtsvegi 67, Reykjavík. Laufey J. Guðmundsdóttir, Halldóra J. Sölvadóttir, Sveinbjörn Guðjónsson, Hermann T. Sölvason, Marianne Person, Margrét S. Sölvadóttir, Axel H. Sölvason, Björk Geirdal, Magnús Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. mundu hann aðallega sem hinn harðvítuga unga línumann frá ár- unum kringum 1950. Þeim sem höfðu kynnst honum síðar, var þetta á hinn bóginn ekkert undrun- arefni. Hann hafði greinilega lært mikið af hremmingum fyrri ára ekki síður en kynnum sínum af um- heiminum. í tvo áratugi var Pelíkan einn helsti talsmaður þeirra sem hrökkl- ast höfðu frá Tékkóslóvakíu eftir hernám Sovétríkjanna. Allan þann tíma var hann aðalritstjóri tímarits þeirra, Listí. Seinast hitti ég hann á gömlum veitingastað okkar á kosn- ingadaginn í Prag vorið 1996. Hann sagðist þá nýlega hafa hitt og borið saman þækurnar við nokkra gamla kunningja frá Kína, Japan, Italíu, Búlgaríu, Indlandi og víðar sem voru í forystu IUS á okkar dögum. Þá hefði verið gaman að vera fluga á vegg. Pelíkan kom einu sinni til Is- lands, haustið 1988, og hélt erindi á vegum Samtaka um vestræna sam- vinnu. Auk þess hitti hann gamla og nýja kunningja og nokkra ráð- herra, átti blaðaviðtöl og kom fram í sjónvarpinu. Sendifulltrúi Tékkóslóvakíu bað um að fá að hitta hann með leynd. Hann reynd- ist í hjarta sínu stuðningsmaður Pelíkans og sjónarmiða hans. Sein- asta kvöldið snæddi hann með nokkrum kunningjum á Óðinsvéum og eftir það fóru sum okkar með honum upp á Hótel Sögu. Að skiln- aði veltum við því fyrir okkur hvar og hvenær ætti að hittast næst. „Því ekki í Prag?“ spurði Pelíkan. Ári seinna varð flauelsbyltingin. Árni Björnsson. gátu hlaupið þessi litlu kríli. Þannig nálgaðist þú okkur krakkana. Þetta var ekki nýtt fyrir mér því ég vissi hverslags gæðablóð þú varst. Öðru máli gegndi um bömin í hverfínu. Sum þeirra læddust á tánum til að spyrja eftir mér ef þau vissu af þér heima fyrir. Þær eru sætar þessar æskuminningar og þar markaðir þú djúp spor sem ekki verða frá mér tekin. Frá því ég man eftir mér vannst þú alltaf hjá Strætó á þvottastöðinni á Kirkjusandi. Þegar unglingsárin gengu í garð bjó ég í Laugamesinu. Á þeim ámm kynntumst við mjög vel. Oft stoppaði ég hjá þér á kvöldin þegar þú varst á útopnu við að skrúbba vagnana. Svo kom það varla fyrir að ég færi í Laugardals- laugina án þess að hitta þig þar. Það er mér minnisstætt þegar ég kom einu sinni heim til þín og þú varst á leið til vinnu. Þú náðir þér í Martíní-flösku og lítið glas og svo skelitir þú einum í þig. Því næst bauðstu mér, óhörnuðum unglingn- um, en ég þorði ekki að þiggja veit- ingamar. Þú skildir ekkert í þessari vitleysu minni, „þetta gerir þér bara gott“, sagðir þú og fussaðir. Kannski var þetta það sem laðaði mig að þér, þessi einlægni sem frá þér skein. Þótt ég væri enn þá krakki komstu fram við mig sem jafningja, flokkun- arkerfi eins og manngreinarálit, ald- ur og önnur tölfræði vom hlutir sem þú lést lönd og leið. Það má segja að þú hafir lifað í tímaleysi, enda varstu ungur í anda og hress fram í rauðan dauðann. Á námsámm mínum í Mennta- skólanum við Sund, sem var í næsta nágrenni við þig, var gott að eiga þig að. Það var ávallt hægt að stoppa við hjá þér ef mér datt það í hug eða missti af strætó. Þá fékk ég oft að fljóta með þér heim ef þú varst að fara á vakt. Ég vil svo þakka þér kærlega fyrir alla strætómiðana sem þú gaukaðir að mér meðan á menntaskólaárunum stóð. Það var þín leið til að styrkja mig til náms og kom það sér vel. Sá arfur sem eftir þig liggur er mikill og það má draga margan lær- dóm af því hvernig þú lifðir. Þú varst ávallt kóngur í þínu litla ríki. Síðast en ekki síst vil ég þakka þér af einhug þann kærleik og þá hlýju sem þú barst til mín meðan þú lifðir. Veganestið frá þér er mér ómetan- legt. Hlynur Áskelsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.