Morgunblaðið - 28.10.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 5 7
UMRÆÐAN
ÉG má til með að
taka þátt í þeirri um-
ræðu sem undanfarið
hefur birst hér á síð-
um Mbl. um samkyn-
hneigð. Sr. Ragnar
Fjalar leyfði sér að tjá
sína skoðun og líkti
samkynhneigð við
sjúkdóm eða einhvers
konar brenglun. Ég
skil vel hvað hann á
við. Ef Guð hefur ekki
skapað fólk með slíkar
kenndir og það hefur
ekki valið það sjálft
hlýtur eitthvað annað
að koma til. Biblían
kallar það synd. Það
er syndin sem hefur afbakað svo
margt sem Guð hefur skapað.
Margir hafa valið að kalla hana
eitthvað annað en hljóta samt að
vita hvað ég er að tala um. Það er
óhagganleg staðreynd að til eru
margir fyrrum samkynhneigðir
sem hafa fengið lausn og lækningu
fyrir kraft Jesú Krists. Þótt ég trúi
að samkynhneigð sé ekki eðlileg er
hitt allt eins satt að við erum öll
syndarar. Ef ekki væri fyrir náð og
miskunn Guðs myndum við öll vera
skilin eftir í syndum okkar. En
góðu fréttirnar eru þær að fyrir-
gefningu og lausn fá allir sem til
Jesú Krists leita. Jesús sagðist
hafa komið í heiminn til þess að
frelsa hann, en frá hverju ef allt er
skapað af Guði og engin synd er
til? Með þessum orðum vil ég svara
Ragnari Ragnarssyni, framkv.stj.
Samtakanna ’78, og fleirum sem
vilja taka vers úr Biblíunni úr sam-
hengi og vitna í þau sér til fram-
dráttar. Vissulega eru allir menn
skapaðir af Guði. En hvað svo, seg-
ir Biblían ekki líka frá falli manns-
ins - syndinni sem kom inn í heim-
inn og að við megnum ekki að
frelsa okkur sjálf. Jesús kom til að
sætta okkur við Guð (ekki að sætta
Guð við okkur) með því að taka á
sig syndir okkar og deyja á krossi.
Með því vill Hann leysa okkur und-
an syndinni, ekki samþykkja hana.
M.ö.o. Hann hefur í kærleika sín-
um náðað okkur en við verðum að
meðtaka náðargjöf-
ina. Laun syndarinnar
eru dauði, en náðar-
gjöf Guðs er eilíft líf í
Kristi Jesú. Róm.
6:23.
Biblían er mjög
skýr á því að samkyn-
hneigð sé synd. En ég
vil taka það fram að
hún er jafn skýr á því
að margt annað er
synd og er samkyn-
hneigð ekkert flokkuð
sem meiri eða minni
synd en önnur. Synd
er bara synd og þess
vegna þurfum við öll á
Frelsara að halda. Ég
veit að sum ritningarvers eru
óþægilegri en önnur en það væri
ekki sanngjarnt í allri þessari um-
ræðu um samkynhneigð og kristna
trú að vitna ekki í hvað Biblían
segir raunverulega um þá hluti.
Hér eru aðeins nokkrir ritningar-
staðir til að styðja mál mitt: Eigi
skalt þú leggjast með karlmanni
sem kona væri. 3. Mós. 18:22 og
20:13. (Gamla testam.) Bæði hafa
konur breytt eðlilegum mökum í
óeðlileg, og eins hafa líka karlar
hætt eðlilegum mökum við konur
og brunnið í losta hver til annars,
Samkynhneigð
Ef kirkjan vill starfa í
kærleika, segir Edda Sif
Sigurðardóttir, verður
hún að boða fólki sann-
leikann eins og hann
kemur fyrir í orði Guðs.
karlmenn frömdu skömm með
karlmönnum... Róm. 1:26-27.
(Nýja testam.) Villist ekki! Hvorki
munu saurlífismenn né skurðgoða-
dýrkendur, hórkarlar né kynvill-
ingar... Guðs ríki erfa. Og þetta
VORUÐ þér sumir yðar. En þér
létuð laugast, þér eruð helgaðir,
þér eruð réttlættir fyrir nafn
Drottins Jesú Krists. 1. Kor. 6:9-
11. (Nýja testam.) Þessir ritning-
arstaðir segja okkur að samkyn-
hneigð er synd og að sannarlega er
til lausn frá henni. Kirkjan rænir
fólk lausninni ef hún ætlar að sam-
þykkja syndina. Ef Þjóðkirkjan
leggur blessun sína yfir hjónabönd
fólks af sama kyni er hún um leið
að segja að slíkt sé eðlilegt og heil-
brigt, og það það sem verra er; að
Biblían sé ekki orð Guðs. Sönn
kristin trú er byggð alfarið á orð-
um Biblíunnar og sönn kristin
kirkja ætti auðvitað að vera það
líka. Því miður er fólk innan Þjóðk-
irkjunnar sem setur sínar skoðanir
ofar orðum Guðs í baráttu sinni
fyrir „réttindamálum" samkyn-
hneigðra í nafni kærleikans. Fyrir-
gefið, en á þetta fólk meiri kær-
leika en Guð sjálfur og hefur það
betri lausn en Hann? Raunveru-
legur kærleikur helst alltaf í hend-
ur við sannleikann. Veist þú ekki,
að gæska (kærleikur) Guðs vill
leiða þig til iðrunar. Róm. 2:4.
Að lokum vil ég benda á að þetta
mál er ekki einkamál samkyn-
hneigðra því þeir eru ekki ein-
göngu að fara fram á rétt til að lifa
sínu einkalífi, heldur vilja þeir
sannfæra hvem og einn um að
samkynhneigð sé jafn eðlileg og
náttúruleg og gagnkynhneigð. Og
ef Þjóðkirkjan ákveður að blessa
hjónabönd þeirra hefur það for-
dæmisgildi út í allt samfélagið. Því
miður eru til ótal rök fyrir því að
áróður geti hvatt fólk til samkyn-
hneigðs atferlis í skemmri eða
lengri tíma. Ef kirkjan vill starfa í
kærleika verður hún að boða fólki
sannleikann eins og hann kemur
fyrir í orði Guðs.
Höfundur hefur lokið námi frá
Impact Bible School íFlorida.
Heimaskrifstofan frd H
SAUDER
I®
Teg. 3776 lokaður.
Hæð 185,2 cm.
Breidd 105,4 cm.
Dýpt 52,4 cm.
Það þarf ekki mikið pláss fyrir heimaskrifstofuna frá
SAUDER. Frábær lausn fyrir þá sem vilja vinna heima
við fyrsta flokks aðstæður. Til í fleiri útfærslum og litum.
Húsgagnahöllin gefur möguleikunum rými.
C
HUSGAGNAHOLLIN
Bíldshöfði 20 - 112 Reykjavík Slmi 510 8000
Biblían og samkynhneigð
Edda Sif
Sigurðardóttir
7 1
yafsláttur
AFSLATTURAF
TRIUMPH UNDiRFATNAÐI
4=!,
Ivrnpi5
Kringlunni 8-12 sími 553 3600
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvaii landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
Öflug hlaupabraut með
stillanlegum æfingabekk
Rafdrifin hlaupabraut
Hraði 0-16 km/klst. Hæðarstilling,
neyðarstopp, fullkomið tölvumælaborð auk
stillanlegs æfingabekks með handlóðum,
2-4-6 pund.
Hægt að leggja saman.
Stgr. 215.257,
kr. 226.586.
Stærðir:
L 173 x br. 83 x h. 134 cm.
«. Reiðhjólaverslunin_
ORNINNP'
STOFNAÐ1925
hntusncftisi ijh
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890
<