Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 28.10.1999, Blaðsíða 76
Fyrir 65 ára og eldri t?- TrausL íslenska, murvorui Síðan 1972 i: Leitíð tílboða! ■■ StBÍfipi MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKSIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER 1999 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK Umfangsmikil leit að þremur mönnum við erfíðar aðstæður á Ytriflóa Mývatns fZ-Jf ■ Tveggja manna/6 Einn fundinn og tveir Leitinni haldið áfram í dag EINN maður fannst látinn á Mývatni í fyrrinótt og tveir aðrir sem með honum voru eru taldir af. Leit að mönnunum hófst í fyrrakvöld og stóð óslitið fram yfir myrkur í gærkvöldi. I upphafi voru leitarskilyrði afar erf- ið og veður slæmt á svæðinu. Björgunarsveitir og tæki komu víða að frá Norðausturlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði við leitina þeg- ar veður fór skánandi í gærmorgun. Leit hefst að nýju í dag í birtingu og mun þá fjöldi kafara taka þátt í leitinni. Morgunblaðið/Kristján Þyrla Landhelgisgæslunnar fann bát mannanna í gærmorgun og tókst að draga hann til lands fyrir hádegi. Var ekki að sjá að báturinn hefði orðið fyrir skemmdum. Á myndinni má sjá hóp björgunarsveitarmanna draga bátinn upp úr vatninu. látinn taldir af Mennirnir þrír voru að vinna við að leggja nýjan ljósleiðara yfir Mývatn og lögðu af stað á litlum trébáti um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld. Um svipað leyti fór veður versnandi og um kvöldið var orðinn hvass austan vindur og snjókoma. Björgunarsveitir hófu leitina við afar erfið skilyrði í myrkrinu undir miðnætti og fram á nótt. í fyrstu var óttast að fjórir menn hefðu verið í bátnum. Vatn- ið var mjög gruggugt og krapi í fjörum og áttu kafarar því mjög erfitt um vik. Undir morgun var síðan komið ágætis veður og hélst það bjart og stillt í allan gærdag. Að sögn Smára Sigurðssonar björgunarsveitarmanns tóku alls um 80 manns þátt í leitinni í gær- dag. Þegar mest var voru um 50 manns við leit í einu og 8 hundar. Notaðir voru 7 slöngubátar björg- unarsveita, auk báta heima- manna, bæði smábátar og önnur fley í eigu Kísiliðjunnar. Heldur færri tóku þátt í leitinni í fyrr- inótt en í morgunsárið jókst um- fangið til muna og þyrla Land- helgisgæslunnar hóf leit skömmu fyrir kl. 7. Þegar dimma tók í gærkvöldi var dregið úr umfangi leitarinnar og voru fjórir bátar látnir halda áfram að slæða í myrkrinu fram til miðnættis, en dregið var úr leit á landi. Björgunarmenn höfðu vonast eftir að birtu nyti af tungli, en um kvöldmatarleytið var kom- ið þreifandi myrkur. Gert er ráð fyrir að björgunar- sveitarmenn hefji leit kl. 9 í dag þegar fullbjart verður orðið. Þá munu um 20 kafarar taka þátt í leitinni. Búið er að ákveða að kaf- ararnir einbeiti sér að því svæði sem ekki var hægt að fínkemba á bátum. Reykjahlið Kisiliðjan Batunnn fannst um 300 metra frá Syðrihöfða r r Lega Ijosleiðarans yfir Ytriflóa og líkleg leið bátsins Syðriflói MÝVATN 2km Lýsi hf. flytur hluta starfsemi sinnar Davíð Oddsson um mögulega fjölgun ríkja sem taka upp evrana Lifrar- bræðslu hætt íReykjavík BRÆÐSLU á lifur hefur verið hætt í verksmiðju Lýsis hf. á Grandavegi 42 og fer bræðslan nú fram í Þor- lákshöfn. Einnig verður vinnslu lifr- armjöls hætt á Grandaveginum þeg- ar unnið hefur verið úr því hráefni sem þar er tii. Stefnt er að því að í lok janúar á næsta ári fari öll lifrar- mjölsframleiðsla einnig fram í Þor- lákshöfn. Þessi flutningur var samþykktur á , j^tjómarfundi Lýsis hf. fyrr í mánuð- "^num og að sögn Katrínar Péturs- dóttur hjá Lýsi hf. er flutningurinn liður í samruna Lýsis hf., Fiskafurða og Lýsisfélagsins. Starfsleyfið fyrir bræðslu og vinnslu mjöls á Grandaveginum var að renna út og segir Katrín að þar sem vinnsla af þessu tagi gefi frá sér , ^yktmengun sé augljóslega slæmt að vera með hana í miðju íbúðarhverfi. Gætum þurft að breyta stefnu stjórnvalda í peningamálum DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra vék m.a. að Evrópumálefnum í ræðu sinni á hádegisverðar- fundi Bresk-íslenska verslunarráðsins í London í gær, og sagði að engin knýjandi þörf væri á því að Island sækti um aðild að Evrópusambandinu. Ekki væri þó hægt að útiloka aðild í eitt skipti fyrir öll. Hann sagði að íslensk stjómvöld myndu fylgjast grannt með þróun gjaldmiðils- samstarfsins í Evrópu. Ljóst væri að ef reynsl- an af hinni sameiginlegu mynt, evrunni, yrði góð myndi það líka hafa jákvæð áhrif á íslandi, vegna þeirrar einföldunar sem fækkun gjald- miðla hefði í för með sér í viðskiptum við önnur Evrópulönd. „A þessu stigi væri hins vegar útilokað fyrir okkur að taka upp hinn nýja gjaldmiðil vegna þess að ástandið í efnahagsmálum okkar er gjörólíkt því sem er í flestum þeim löndum sem tekið hafa upp evruna. Við höfum um nokkurt skeið unnið að því að ná stjórn á of- hitnun í hagkerfi okkar, til dæmis með vaxta- hækkunum á sama tíma og flestar ríkisstjórnir í „evrulandi“ hafa reynt að stuðla að frekari hagvexti og þar hafa vextir farið lækkandi á þessu ári. Ef hins vegar Bretar taka upp evr- una, og jafnvel líka Danmörk og Svíþjóð, þyrftum við hugsanlega að gera einhverjar breytingar á stefnu okkar í peningamálum. Á þessari stundu er hins vegar efnahagslegum hagsmunum okkar vel borgið við núverandi aðstæður. Af þessari ástæðu og mörgum öðr- um er það staðreynd að enginn mælanlegur kostnaður fylgir því fyrir okkur um þessar mundir að standa fyrir utan ESB en aðild að sambandinu hefði í för með sér mikla ókosti,“ sagði forsætisráðherra. Áhugi á fjárfestingu á íslandi Fundurinn var vel sóttur, en á honum voru m.a. menn víða að úr bresku viðskiptalífi. Meðal fundargesta var Elliot Morley, sjávarútvegsráð- herra Bretlands. Urðu miklar umræður að lok- inni ræðu Davíðs og komu fram fjölmargar fyr- irspurnir úr sal. Davíð sagði í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn að bersýnilega væri áhugi á aukinni er- lendri fjárfestingu á Islandi enda hefðu skilyrði til fjárfestingar á íslandi batnað verulega og landið þætti í auknum mæli áhugaverður kostur fyrir erlenda fjárfesta. ísland í þriðja sæti skv. tímaritinu Economist „Menn höfðu líka áhuga á að heyra með hvaða hætti við erum að taka á „reglugerðafarganinu" heima, því það er vandamál fyrir fyrirtæki og rekstur víða. Ég vakti athygli á því í ræðunni að í næstsíð- asta hefti Economist kemur fram að ísland sé í þriðja sæti á lista yfir lönd í heiminum þar sem auðvelt sé að stofna ný fyrirtæki, næst á eftir Bandaríkjunum og Nýja-Sjálandi,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.