Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
247. TBL.87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Margir kjósendur í Ástralíu óákveðnir
Howard andvígur
lýðveldisstofnun
Sydney, Darwin. Daily Telegraph, Reuters.
FORSÆTISRAÐHERRA Astral-
íu, John Howard, hefur lýst yfir
stuðningi við að Elísabet Breta-
drottning verði áfram þjóðhöfðingi
Astrala. Þjóðaratkvæðagreiðsla um
lýðveldisstofnun verður haldin 6.
nóvember og spá veðmangarar nú
að konungssinnar sigri.
Howard hefur fram til þessa ekki
viljað tjá hug sinn en í átta blað-
síðna bréfi til kjósenda sinna rauf
hann þögnina. „Eg mun greiða at-
kvæði gegn því að Astralía verði
lýðveldi vegna þess að ég er ósáttur
við að breyta stjómskipun sem
virkar vel og hefur átt þátt í að
færa þjóðinni stöðugleika," sagði
hann.
Tillagan um stofnun lýðveldis í
Astralíu þarf að fá meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslunni og meiri-
hluta í minnst fjórum af sex fylkj-
um ríkisins til að ná fram að ganga.
Stuðningsmenn konungdæmisins
hafa að undanfömu farið fram úr
lýðveldissinnum í skoðanakönnun-
um, staðan er orðin tvísýn og er
bréf ráðherrans sagt geta haft mik-
il áhrif vegna þess að margir eru
enn óákveðnir.
Lagt er til að forseti lýðveldisins
verði kosinn af þinginu en ekki
beint af þjóðinni. Segja lýðveldis-
sinnar að Howard og menn hans
hafi af ásettu ráði verið á móti þjóð-
kjöri til að draga úr stuðningi við
lýðveldisstofnun. Forsætisráðherr-
ann hefur einnig verið sakaður um
að beita tiifinningarökum og
hræðsluáróðri.
Niðurstaða sérfræðinganefndar Evrópusambandsins um breskt nautakjöt
Ekki rök fynr fram-
lengdu innflutning'sbanni
London, París, Bnissel. AFP, Daily Telegraph.
SEXTAN manna sérfræðinganefnd á vegum
framkvæmdastjómar Evrópusambandsins komst
í gær einróma að þeirri niðurstöðu að rök Frakka
fyrir áframhaldandi innflutningsbanni á bresku
nautakjöti væm ógild. Nefndin hafnaði 600 blað-
síðna greinargerð franska matvælaeftirlitsins
þar sem færð vom vísindaleg rök fyrir því að enn
væri hætta á því að neysla á bresku nautakjöti
gæti valdið heilarýmunarsjúkdómnum Creutz-
feldt-Jakob. Eftir að tilkynnt var um niðurstöð-
una sagði David Byrne, sem fer með heilbrigðis-
og neytendamál í framkvæmdastjóm ESB, að
hann myndi fara fram á það við Frakka og Þjóð-
verja að þeir afléttu innflutningsbanninu hið
fyrsta. Frakkland og Þýskaland em einu aðildar-
ríki ESB sem hafa enn ekki tekið til greina
ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá því í
ágúst, sem aflétti útflutningsbanni á bresku
nautakjöti.
Signr fyrir Blair
Breskir stjórnmálamenn fögnuðu í gær niður-
stöðu sérfræðinganefndarinnar. „Við höfum frá
upphafi sagt að lögin og vísindin væm á okkar
bandi í þessu máli,“ sagði Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands. Talið er að niðurstaða nefnd-
arinnar sé persónulegur sigur fyrir Blair sem
berst fyrir aukinni þátttöku Breta í Evrópusam-
starfinu.
Breski landbúnaðarráðherrann, Nick Brown,
sagðist ætla að óska fundar með frönskum
starfsbróður sínum þegar í næstu viku tO að
þrýsta á um afnám innflutningsbannsins. Hann
kvaðst einnig binda vonir við að takast mætti að
leysa málið án þess að höfða þyrfti mái fyrir
Evrópudómstólnum. Fullvíst er að lausn máls-
ins mun dragast mjög á langinn ef fram-
kvæmdastjórnin neyðist til að fara þá leið og
slíkt gæti að auki haft ófyrirséðar pólitískar af-
leiðingar.
Ekki er að vænta viðbragða franskra stjórn-
valda fyrr en í næstu viku, að því er talsmaður í
franska landbúnaðarráðuneytinu sagði í gær.
Hins vegar lýsti formaður frönsku bændasam-
takanna, Luc Guyau, því yfir í gær að hann væri
samþykkur niðurstöðu sérfræðinganna og að
frönskum stjórnvöldum bæri nú að aflétta inn-
flutningsbanninu án tafar.
Málstaður Frakka byggðist
á úreltum upplýsingum
Getgátur voru uppi um að sérfræðinganefndin
væri klofin í afstöðu sinni tO málsins vegna þess
hve langur tími leið áður en niðurstaðan var til-
kynnt. Búist hafði verið við ákvörðun nefndarinn-
ar á fimmtudag.
Dr. Gerard Pascal, sem veitti nefndinni for-
stöðu, sagði í gær að getgátur þessar væru ekki á
rökum reistar. Hann sagði á fréttamannafundi í
Brussel að það væri samdóma álit nefndarinnar
að enda þótt frönsk yfirvöld hefðu lagt fram nýj-
ar upplýsingar í málinu væri þar ekki að finna
neitt sem kallaði á framlengt innflutningsbann.
Franska matvælaeftirlitið reyndi í skýrslu
sinni að sýna fram á að tilfellum Creutzfeldt-Jak-
ob sjúkdómsins hefði ekki fækkað í Bretlandi og
væru þau mun fleiri þar en í öðrum ESB-ríkjum.
Sérfræðinganefndin komst aftur á móti að þeirri
niðurstöðu að franska skýrslan hefði byggst á
gömlum tölum og að nýrri upplýsingar bentu
ljóslega tO þess að tilfellum hefði fækkað í Bret-
landi.
Forseti Armeníu hvetur þingmenn til að sýna stillingu
Hyggst ekki segja af sér
Jerevan. AP, AFP.
FORSETI Armeníu, Robert
Kocharian, hvatti í gær þingmenn
landsins tO að halda stillingu sinni
þrátt fyrir það óvissuástand sem
skapast hefði í landinu vegna árásar
hryðjuverkamanna á þinghúsið í
höfuðborginni Jerevan á miðviku-
dag. I ávarpi í þinghúsinu harmaði
forsetinn árásina og fráfall forsætis-
ráðherrans, Vazgens Sarkissians,
sem ódæðismenn myrtu. Lýst hefur
verið yfir þriggja daga þjóðarsorg í
Armeníu vegna atburðanna.
„Það hafði tekist að skapa stöðug-
leika í landinu og allir trúðu á fram-
tíðina. En ástandið breyttist á að-
eins örfáum sekúndum og nú þarf
þjóðin að vera búin undir að takast
á við nýjan vanda," sagði forsetinn
við þingmennina. Ávarpi hans var
sjónvarpað út um landið.
Allt var með kyirum kjörum í
Jerevan í gær en lögreglan hefur
haft aukinn viðbúnað í borginni eftir
að árásin var gerð. Hermt er að for-
setinn hyggist ekki segja af sér
vegna atburðanna en þingmaður
hvatti í gær þá ráðherra í ríkisstjórn
landsins sem fara með öryggismál
að fara frá. Innanríkisráðherra
landsins hefur þegar beðist lausnar
en forsetinn hefur neitað að taka
beiðni ráðherrans tO greina. Forset-
inn sagði við þingmennina að hann
mundi útnefna nýjan forsætisráð-
herra eftir að útför Sarkissians hefði
farið fram. Forsætisráðherrann
verður jarðsettur á morgun.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Strobe Talbott,
kom tO Jerevan í gær tO að votta
Armenum samúð vegna ódæðanna.
Hann kvaðst vongóður um að at-
burðimir kæmu ekki í veg fyrir að
áfram yrði unnið að því að skapa
varanlegan frið á svæðinu. Mikil
spenna hefur ríkt í Armeníu vegna
deOu Armena og Asera um héraðið
Nagorno-Karabak. Undanfarið hef-
ur miðað nokkuð í átt til samkomu-
lags mOli þjóðanna um stöðu og
framtíð héraðsins sem er aðallega
byggt Armenum þótt það tilheyri
Áserbaídsjan. Talið er hugsanlegt
forstetanum í gær.
að árásin á þinghúsið tengist and-
stöðu við samningaumleitanir ríkis-
stjómarínnar.
Plægt fyrir
kosningar
DRÁTTARKLÁR dregur plóg á
akri skammt utan við Kænugarð,
höfuðborg Úkraínu, í gær. At-
vinnuhættir til sveita bera efn-
hag þjóðarinnar glöggt vitni en í
landinu fara fram forsetakosn-
ingar á morgun. Þetta er í þriðja
sinn sem Úkraínumenn kjósa sér
forseta frá því að Sovétríkin liðu
undir lok.
------»♦♦-----
Ráðherra
grunaður
um Qársvik
París. AFP.
RÁÐHERRA efnahagsmála í frönsku
ríkisstjóminni, Dominique Strauss-
Kahn, liggur undir gran um að hafa
árið 1997 svikið fé
út úr opinberum
tryggingasamtök-
um námsmanna í
Frakklandi,
MNEF. Skrifstofa
ríkissaksóknara í
París hefur hafið
rannsókn á ásök-
unum um að
Strauss-Kahn hafi
fengið jafnvirði
90.000 evra, um 6,7 milljóna íslenskra
króna, úr sjóði samtakanna fyrir verk-
efni sem hann hafi í raun aldrei unnið.
Ráðherrann neitaði þessum ásökun-
um staðfastlega í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér í gær. Hann hefur
verið á ferð í Víetnam en hefui- ákveð-
ið að flýta heimferð sinni vegna máls-
ins.
Málið hefur vakið mikla athygli í
fjölmiðlum í Frakklandi og er annað
hneykslismálið sem upp kemur tengt
frönskum stjórnmálamönnum á
skömmum tíma. Eiginkona borgar-
stjórans í París, Xaviere Tiberi, fékk
nýlega skilorðsbundinn fangelsis-
dóm fyrir að hafa dregið sér fé úr
opinberum sjóðum árið 1994.
Fjárreiður MNEF hafa verið tO
rannsóknar hjá lögreglu í Frakk-
landi í um ár en rannsóknin er talin
hafa tekið nýja stefnu í gær eftir að
fyrrverandi framkvæmdastjóri sam-
takanna var handtekinn og ákærður
fyrir fjársvik.