Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ 80 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 -f t. ifeS smse36k aaaflÍBli .*wiveMa -UM&Æa -swa^fa mtá'f _____~m æl______■ _ NÝTT 0G BETRA^a ^ HASKOLABIO STEVE MARTIN EDDIE MURPHY Miskunnarlausir Blygðunariausir Kiækjóttir ..Þegar 4 4,4 1 Eddie er í m Jf Ír \ stuði er alitaf f, ” f”.;, ÓHT Rás2 gaman" . .if SétJE.' Loksins, loksins hafa Richard Gere og Juiia Roberts snúið saman bökumáný. JULIAROBERTS RJCHARDGERE RUNAWAYBRIDE Öborganleg mynd eftir leikstjóra Pretty Woman sem sló rækilega í gegn vestra. Sýnd kl. 5, 6.40, 9 og 11.20. muöedigital TTXX1/2 Kvikmyndír.is MATTANUM BÖRNIN Sýnd kl. 7. B. i. 12. WITHER! iERICAI DÓTOR HERFORINGIANS Kl. 9 og 11.15. B.i. 16. : Hún er staðráðin í að komast á toppinn Hann er staðráinn í að koma í veg fyrir það I ■ Ihobfehouiv FORSYND SUNNUDAG KL. 9. Hagatorgi, símí 530 1919 Álfnbakka 8, simi 587 8900 og 587 8905 Stórmvnd bvaaó á sönu llallrtóis Larness HK OV VC*Ni£WfNN..sA l'NGI RUIN GÓÐA 0GHÚSIÐ EYES WIDE Sl CRUISE ***».„j KIDMAN ★** ov | KU8RICK *** Mni www.haskolabio.is www.samfilm.is Rausn og einlægni TONLIST íslenska 6peran EMILÍANA TORRINI Tónleikar Emilíönu Torrini í Islensku óperunni sl. fimnitudagskvöld, fyrri tónleikar hennar af tvennum sem hún hélt hér á landi til að kynna breiðskífu sfna Love in the Time of Science. Seinni tónleikarnir voru í gærkvöldi. Með Emilíönu lóku erlendir tónlistarmenn og einn íslenskur, Sigtryggur Baldursson. FYRIR tæpum þremur árum hélt Emilíana Torrini tónleika í Is- lensku óperunni og flutti lög af þá nýútkominni hljómplötu sinni, sem á var safn gamalla erlendra laga í bland við frumsamin lög eftir hana og Jón Olafsson. Þá var Emilíana á hátindi frægðar sinnar hér á landi sem söngkona, en minna fór fyrir lagasmíðum hennar og eigin sköpun. Ekki löngu síðar hélt Emilíana til Lundúna, settist þar að og hefur smám saman mótað “ Ý sér stíl og markað stefnu. Birting- armynd hennar er breiðskífan Lo- ve in the Time of Science. Líklega hefur tónlistin sem Emilíana bauð upp á í Óperunni að þessu sinni komið einhverjum á óvart því hún er allfrábrugðin því sem hún hefur áður gert, meira í hana spunnið og lagt, meiri dýpt og þungi. Tónleikarnir voru ekki bara fyrstu tónleikar Emilíönu hér á landi í langan tíma, heldur og fyrstu eiginlegu tónleikar hennar með nýrri hljómsveit sem. skipuð •jter auk hennar Sigtryggi Baldurs- .syni og erlendum bassa-, gítar- og hljómborðsleikurum og mátti víða heyra að sveitin á eftir að ná betur saman. Þannig voru upphafslögin tvö, Easy og Wednesday’s Child, ekki vel mótuð og rödd Emilíönu eins og bátsskel sem velkist um í stórsjó. í þriðja lagi, To Be Free, *i'ór mesti taugatitringurinn úr fólki og í fjórða lagi, Baby Blue, small allt vel saman. Það lag, sem ber sterk höfundareinkenni Rol- ands Orzabals, er með bestu lög- um á breiðskífu Emilíönu og sér- lega gott tónleikalag, vel útsett með skemmtilegri stígandi. Fingertips fylgdi á eftir, líka bráðvel heppnað og greinilegt að sveitinni óx ásmegin og sjálfs- traust með hverju lagi. Næst komu Summerbreeze, rólegt lag og smekklega flutt, og Tunafísh, en síðan lag sem ekki er á plöt- unni, 10-20. Það er reyndar bráð- gott en var líkast til sleppt af plöt- unni vegna þess að það féll ekki að þeim lögum sem komin voru og ekki féll það betur inn í stemmn- inguna á tónleikunum. Eftir tónleikana óskaði Nanna Jónsdóttir, markaðsfulltrúi Morg- unblaðsins, Emflíöriu til hamingju með útgáfutónleikana og af- henti henni blómvönd og innrammaða ljósmynd sem Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók. Gífurleg þátttaka var í netleik á mbl.is þar sem vinningar voru miðar á tónleika Emilíönu og nýja platan hennar. Morgunblaðið/Jim Smart Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti sem nær fylltu Islensku óperuna. Eftir stfíbrjótinn kom annað bráðgott lag, Unemployed in the Summertime, lag sem lætur lítið yfír sér en er snoturt með skemmtilegum texta. Dead Things er eitt af „erfíðu“ lögunum á plöt- unni, lag sem verður að hlusta á nokkrum sinnum, en það var sér- deilis vel heppnað í Óperunni, söngurinn fékk að njóta sín og öll framvinda virkaði mun rökréttari en á skífunni títtnefndu. Hljómsveitin á eftir að bræða sig betur saman, en lofar góðu. Hljómborðsleikarinn gerði sitt vel en vakti enga sérstaka athygli, enda ekki í hans verkahring, gít- arleikarinn átti góða spretti og bassaleikarinn var traustur. Einn hljóðfæraleikari á heimsmæli- kvarða var í sveitinni. Sigtryggur Baldursson fór á kostum, hvort sem það var í nostursamlegu klappi eða þróttmiklum barsmíð- um. Flest laganna á plötunni eru sungin nokkuð eintóna, lág- stemmd og hægfara, og eins var á óperutónleikunum, en í lokalaginu, Telepathy, lét Emilíana loks vaða með þróttmiklum söng. Hún tók síðan eitt uppklappslag. Áður er getið tónleika Emilíönu í Óperunni fyrir tæpum þremur ái*um þegar hún kom fram sem söngkona. Að þessu sinni hafði hún meira að gefa af sjálfri sér og gerði það af rausn og einlægni sem tónlistarmaður. Arni Matthíasson Poppí Reykjavík vex að vin- sældum KVIKMYNDINNI Popp í Reykjavík er nú sýndur mjög vaxandi áhugi víðs vegar í heimin- um. Nýl- ega var gerður samning- ur við sjónvar- psstöðina Canal+ á Norður- löndum, um að sýna myndina einu sinni á niánuði í eitt ár, auk þess sem hún verður sýnd á fjórum kvikmyndahá- tiðum á næstunni; í New York, Sao Paulo, Stokkhólmi og Tallin. Þá er ekki talið ól- íklegt að myndin verði sýnd í Þýskalandi, þar sem Páll Oskar Hjálmtýsson hefur náð vinsældum þar í landi. Þorfinnur Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvik- niyndasjóðs Islands, seglr skýringuna á þessum aukna áhuga vera velgengni nokk- urra hljómsveita erlendis, en flestar íslenskar sveitir komu fram í myndinni. „Það er mjög gaman að vita til þess að þrátt fyrir að myndin sé orðin ársgömul er enn mikill áhugi fyrir henni erlendis. f kjölfar kvikmyndahátíðanna má jafnvel búast við því að frekari sala fari fram, til sjónvarpsstöðva nær og Qær,“ segir hann. Hann segir að á hátíðinni í New York verði myndin sýnd ásamt „forvera“ sinum, Rokki í Reykjavík. Mjög langt er síð- an Rokk í Reykjavík var sýnd síðast og er nú verið að gera nýtt sýningareintak af henni í tilefni sýningarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.