Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 39
Ebolaveir-
an rakin til
nagdýra
The Daily Telegraph.
UMTALSVERÐUR árangur
hefur náðst í baráttunni við
einn alvarlegasta sjúkdóm
sem hrjáir mannkynið, Ebóla-
veikina, að því er franskir vís-
indamenn greina frá. Hafa
þeir komist að því, að hingað
til hefur orsaka veikinnar ver-
ið leitað á röngum stað.
Vegna þess að Ebólaveikin
getur brotist út skyndilega og
er banvæn í 90% tilvika hefur
leitin að upptökum hennar
haft forgang, ef það mætti
verða til þess að lækning fínn-
ist. Erfðalykill Ebólaveirunn-
ar hefur nú í fyrsta sinn fund-
ist í músum og snjáldrum í
Miðafríkulýðveldinu, að því er
fram kemur í ritgerð sem
birtist í nóvemberhefti tíma-
ritsins Microbes and Infect-
ions.
Talið hafði verið, að upp-
taka veikinnar væri að leita í
prímata eða leðurblöku sem
lifír djúpt inni í regnskógi,
hátt uppi í trjánum. Svo virð-
ist sem veikin hrjái dýr, sem
lifa á jörðu niðri í votlendi
sem skógur hefur vaxið yfir
að hluta.
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 39
Músaafbri
ónæmt fyrir
krabbameini
Los Angeles Times.
VISINDAMENN við Memorial
Sloan-Kettering krabbameinsmið-
stöðina í Bandaríkjunum hafa
ræktað músaafbrigði sem er án
arfbera, sem nauðsynlegir eru fyr-
ir æxlisvöxt. Þessar mýs eru því
ónæmar fyrir mörgum gerðum
krabbameins.
Þeir arfberar, sem um ræðir, eru
meðal þeirra fyrstu sem vísinda-
menn hafa uppgötvað að eiga þátt í
myndun æða, sem æxli þurfa á að
halda til að geta nærst og vaxið.
Dr. Robert Benezra, og sam-
starfsmenn hans, greindu frá rann-
sóknum sínum í vísindaritinu Nat-
ure. Rannsókn þeirra hefur beinst
að arfberunum IDl og ID3 síðan
1990. Þessir arfberar gegna lykil-
hlutverki í fósturvexti allra spen-
dýra, frá músum til manna og
hvala, þar sem þeir örva myndun
heilafruma og eiga einnig þátt í
vexti og kvíslun æða.
Að sögn Benezra erfa öll spen-
dýr tvö afrit af IDl og tvö afrit af
ID3 frá foreldrum sínum við getn-
að. Þegar ræktaðar voru mýs sem í
vantaði alla fjóra arfberana kom í
Ijós að vöxtur heilafruma og æða
stöðvaðist fyrr en eðlilegt er, og
allar mýsnar dóu á fósturstigi.
I ljós kom, að ekki þurfti að gera
nema eitt afrit af arberunum
óvirkt til þess að gera mýsnar
ónæmar fyrir mörgum gerðum
krabbameins. Þegar brjósta-
krabbameinsfrumum var sprautað
í mýsnar gerðist ekkert, ekki held-
ur þegar eitilkrabbafrumum var
sprautað í þær.
En þegar lungnukrabbafrunium
var sprautað í mýsnar mynduðust
æxli, en þau voru samsett úr deyj-
andi frumum sem breiddu ekki úr
sér. Ástæðan var sú, að æxlin gátu
ekki myndað æðar. Næsta verkefni
Benezras er að raimsaka IDl og
ID3 í fólki. Markmiðið er að stöðva
vöxt krabbameins áður en það get-
ur dreift úr sér.
H JARTAAÐG E RÐ hefur í
fyrsta sinn verið framkvæmd án
þess að skera sjúklinginn upp og
án þess að stöðva hjartað. Við að-
gerðina var notað vélmenni. Að-
gerðin var gerð á Háskólasjúkra-
húsinu í London í Kanada fyrir
skömmu. „Þetta er ekki einungis
auðveldara og sársaukaminna
fyrir sjúklinginn, heldur er þetta
ennfremur ódýrara fyrir heil-
brigðiskerfið,“ hafði blaðið Globe
and Mail eftir yfirmanni sjúkra-
hússins.
Sjúklingurinn, John Penner, er
sextugur kúabóndi. Hann sagði
eftir aðgerðina að sér hefði aldrei
liðið betur. Hann fékk að fara
heim af sjúkrahúsinu fjórum dög-
um eftir aðgerðina en um var að
ræða hjáveituaðgerð á kransæð-
um. Eftir hefðbundna hjartaað-
gerð þurfa sjúklingar að dvelja að
minnta kosti viku á sjúkrahúsi.
Dr. Doug Boyd framkvæmdi að-
gerðina sitjandi um tvo metra frá
sjúklingnum við tölvustjórnborð
vélmennis.
Raddstýrð myndavél
Verkfærum, sem eru aðeins
nokkrir millimetrar að stærð, var
komið að hjarta sjúklingsins í
gegnum lítil göt sem skorin voru
á milli rifja. Við stjórnborðið not-
aði læknirinn handföng sem svip-
ar til skurðtækja og stýrðu verk-
færunum í brjóstkassa sjúklings-
ins. Agnarsmá; raddstýrð mynda-
vél auðveldaði lækninum örlitlar
hreyfíngar sem mannlegt auga
hefði ekki greint. Að gera aðgerð-
ina án þess að stöðva slátt hjart-
ans dregur úr hættu á áfalli og
öðrum fylgikvillum.
Dr. Boyd sagði að þessi nýja
tækni yrði smám saman notuð í
auknum mæli, en fyrst um sinn
einungis í um fimm prósentum
þeirra 1700 hjartaaðgerða sem
gerðar eru á Háskólasjúkrahús-
inu í London árlega. Einnig væri
ætlunin að nota þessa aðferð við
aðgerðir á bömum.
Hér er ekki sofið á verðinum.
Presslink
án uppskurðar
Lítill mun-
ur á hjálp-
artólum
The Washington Post.
HVAÐA hjálpartól virka best til
að auðvelda fólki að hætta að
reykja, nikótíntyggjó, nikótín-
plástur, nýr nefúði eða stútur sem
á að fá fólk til að líkja eftir hreyf-
ingum munns og handa þegar
maður reykir?
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar á 504 reykingamönn-
um er lítill munur á því hversu
gagnlegar þessar nikótínvörur
eru. Breskir vísindamenn við
Konunglega lækna- og tann-
læknaskólann í London gerðu
rannsóknina. Niðurstöðurnar
birtust í tímaritinu Archives of
Internal Medicine.
I rannsókninni tók einungis
þátt reykingafólk sem var eldra
en 18 ára, hafði reykt að meðaltali
hálfan pakka á dag, var við góða
heilsu og hafði ekki reynt að
hætta að reykja undanfarna þrjá
mánuði.
Rannsóknin stóð í fjóra mánuði.
Að þeim loknum hafði einum af
hverjum fimm, í hópunum fjórum,
tekist að venja sig af sígarettum.
Þátttakendurnir þurftu að kaupa
nikótínvörurnar fyrir hálfvirði, og
var það gert til að líkja eftir raun-
verulegum aðstæðum. I fyrri
rannsóknum af þessu tagi hafa
Pressiink þátttakendur fengið vörurnar án
Einum af hverjum fimm tókst að hætta að reykja. endurgjalds.
Gerirþú kröfurtil þeirra bœtiefna, sem þú kaupir?
Auðvitað gerir þú það! Þess vegna viljum viö benda þér á
BlO-bætiefnin frá danska lyfjafyrirtækinu Pharma Nord.
■ BlO-baetiefnin eru framleidd samkvæmt ströngustu kröfum um lyfja-
framleiðslu.
■ BlO-bætiefnin eru hrein náttúruleg bætiefni.
■ Á bak við hvert bætiefni liggja margra ára rannsóknir og þróunarvinna,
sem tryggir hámarksvirkni.
■ Hvert hylki og tafla eru sérpökkuð i þynnupakkningum. Það auðveldar
alla meðhöndlun og tryggir hreinlæti.
BIO-QUINON Q10
BIO-BILOBA
BIO-SELEN+ZINK
BIO-CHROM
eykur úthald og orku.
skerpir athygli og einbeitingu. Dregur úr hand- og fótkulda.
er áhrifaríkt andoxunarefni.
stuðlar að bættu sykurjafnvægi likamans, dregur úr þreytu
og tilefnislausu hungri.
BIO-CALCIIJM • BIO-CAROTEN • BIO-E-VITAMIN • BIO-FIBER • BIO-GLANDIN
BIO-HVÍTLAUKUR • BIO-MAGNESIUM • BIO-MARIN • BI0-2INK
BlO-bætiefnin - fyrir þá, sem gera kröfur!
Thorarensen Lyf
Vatnagörðum 18 • Sfmi 530 7100