Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Betur horfír í fiskeldi á Islandi en oft áður „Fiskeldi hérlendis á mörg sóknarfæri“ VERÐMÆTI fískeldisafurða hér- lendis er um 1 milljarður króna á ári og betur horfir í gi'eininni en oft áður. Þetta kom fram í ávarpi Guðna Agústssonar, landbúnaðar- ráðherra, við setningu ráðstefnu um framtíðarsýn og stefnumótun í ís- lensku fískeldi sem hófst í dag. Ráðherrann sagði erfíðleika og fjárhagsvanda hafa verið áberandi í umræðunni um fískeldi hér á landi á undanfömum árum. Fiskeldis- stöðvar hafi ekki skilað þeirri fram- leiðslu sem að var stefnt og fyrir- tæki hafí mörg orðið gjaldþrota. „Nú kveður sem betur fer við nokk- uð annan tón og fréttir berast af góðum árangri fiskeldisstöðva. Landbúnaðarráðuneytið hefur á undanfömum árum veitt fiskeldinu mikilvægan stuðning. Ráðuneytið hefur haft forgöngu um uppbygg- ingu kynbóta fyrir fiskeldi, Stofn- fiskur hf. hefur stundað kynbætur á laxi og regnbogasOungi, Hólaskóli hefur séð um kynbætur fyrir bleikjueldi og emm við í dag for- ystuþjóð á sviði bleikjueldis. Það er löngu ljóst að fiskeldi verður ekki stundað hér á landi án þessa kyn- bótastarfs. Samkeppnin er hörð, fiskeldið sækir þekkingu sína í miklum mæli til landbúnaðarins og á ég þar við fóðurfræði og erfða- fræði sem að grunni til eru land- búnaðarvísindi. Fiskeldið er land- búnaðinum einnig mikilvægt og má í því sambandi nefna að árleg fram- leiðsla er um 4.000 tonn og útflutn- ingsverðmæti eldisfisks er í dag um einn milljarður króna á ári. Land- búnaðarráðuneytið hefur veitt nokkram fiskeldisfyrirtækjum sér- stök rekstrarlán og standa vonir til að frekara framhald geti orðið á slíkri fyrirgreiðslu. Forsendan fyrir slíkum lánveitingum er svo háð því að eldri lán endurgreiðist í ein- hverjum mæli,“ sagði Guðni. Guðni sagðist ennfremur vera þeirrar skoðunar að fiskeldi á Is- landi væri komið til að vera. Það mætti meðal annars sjá á þeim sóknarhug sem ríkti hjá mörgu ungu fólki og á fjárfestum. „Fisk- eldið á mörg sóknarfæri. Við fóram of hratt í upphafi eins og Islending- um er títt en í staðinn grandvallast atvinnugreinin á góðri þekkingu og dýrmætri reynslu," sagði ráðherr- ann. Ráðstefnunni verður fram haldið í dag. Þá verða m.a. til umræðu sölu- og markaðsmál, menntunar- mál í fiskeldi og sjúkdómar og sjúk- dómavarnir. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, ávarpar ráðstefnu um framtíð fískeldis á Islandi. Nicotinell Njóttu lífsins reyklaus! Nicotinell tyggigúmmf er lyf sem er notað sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótfn sem losnar úr þvf þegar tuggið er, frásogast f munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt Tyggja skal eitt stykki f einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en 1 ár. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Lyfið er ekki ætlað börnum. ~ ~' ...................^ ......."" .......... Morgunblaðið/Grímur Gíslason Ingunn AK 150 í Asmar-skipasmíðastöðinni fyrir sjósetningu. Nýtt skip HB hf. sjósett í Chile NÝTT skip Haraldar Böðvarssonar hf. var sjósett í Asmar-skipasmíða- stöðinni í Chile nú í vikunni. Við sjó- setningu var skipinu gefið nafn og heitir það Ingunn AK 150 eftir Ing- unni Sveinsdóttur, eiginkonu Harald- ar Böðvarssonar, eins stofnenda fyr- irtækisins. Það var Jóhanna Halls- dóttir, eiginkona Sturlaugs Stur- laugssonar, aðstoðaríramkvæmda- stjóra HB, sem gaf skipinu nafn. Við athöfnina fluttu ávörp, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og eiginkona Haraldar Sturlaugssonai', framkvæmdastjóra HB, og Sergio Martines, framkvæmdastjóri Asmar, skipasmíðastöðvarinnar. Skipið verður afhent í febrúar eða marz og tekur um mánuð að sigla því heim. Þegar heim kemur heldur skipið tl kolmunnaveiða, en það er búið til veiða í nót og flottroll. Skipið er 65,7 metra langt og 12,6 metra breitt og getur borið um 1.400 tonn af fiski í sjókælitönk- um. Auk Ingunnar er verið að smíða tvö skip fyrir Islendinga í skipa- smíðastöðinni, nýtt hafrannsókna- skip og skip fyrir útgerð Hugins í Vestmannaeyjum. Afhenda á haf- rannsóknaskipið á næstu vikum, en Huginn verður sjósettur í febr- úar. Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir Óli Bjarni Ólason, sonur Óla H. Ólasonar, með góðan afla í bát þeirra feðga, Óla Bjarna frá Grímsey. Mikil seiðagengd á grunnslóðinni fyrir Norðurlandi Þorskurinn víða fullur af seiðum Mikil seiðagengd er fyiir Norður- landi. Þannig er höfnin í Grímsey full af seiðum og upp úr þorski veiddum á grunnslóð koma þorsk-, ýsu- og ufsaseiði. Ólí H. Ólason sem gerir út Óla Bjarna frá Grímsey hefur aflað 100 tonna á árinu, en hann rær einvörð- ungu með línu. Hann segir að tíðar- far hafí verið gott í haust og afli góður, um og yfir 200 kg á bjóð. Uppistaðan í afla hefur verið þorsk- ur, blandaður ýsu og steinbít. Óli segir að óvanalega mikið sé af seið- um og virðist svo vera á grunnslóð fyrir Norðurlandi. Þannig sé höfnin í Grímsey full af seiðum og upp úr þorski komi mikið af seiðum, jafnt þorsk-, ýsu- og ufsaseiðum. Óli seg- ir að reynt hafi verið að fara með net en það hafi ekki borið árangur. Loðna út af Langanesi og sfld á Borgarfirði eystri í samtali við skipstjórann á Sól- rúnu EA 351, Ásgeir Kristjánsson, sem var á línuveiðum djúpt út af Langanesi, kom fram að í þorski væri allmikið af loðnu, en skipið hafði áður verið að veiðum á grunnslóð út af Eyjafirði og var þar sömu sögu að segja og frá Grímsey. I samtali við Karl Sveinsson á Borgarfirði eystri kom fram að afla- brögð hefðu verið góð og hefðu bát- ar verið að fiska 100 til 150 kg á bjóð, aðallega þorsk. Auk þess hefði einn bátur róið með færi og aflað vel. Vart hefur orðið við sfld í þorsk- inum, enda hafa sfldarskip verið við veiðar á Borgarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.