Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 29
Bann við „kvótahoppi“ ólöglegt
Spánverjar fá bætur
London. Daily Telegraph.
SPÆNSKIR útgerðarmenn geta
farið í mál við bresku stjórnina og
ki’afist meira en níu milljarða ísl.
kr. í bætur fyrir að vera bannað að
veiða úr breskum kvóta. Komst lá-
varðadeildin, æðsti dómstóll Bret-
lands, að þessari niðurstöðu í
fyi-radag.
Afrýjunarréttur í Bretlandi
komst að þessari sömu niðurstöðu
í fyrra og úrskurðaði, að breska
stjórnin hefði gerst sek um alvar-
legt brot á lögum Evrópusam-
bandsins er hún bannaði svokallað
„kvótahopp". Áður eða 1991 hafði
Evrópudómstóllinn dæmt með
sama hætti og í áliti hans sagði, að
bresku kaupskipalögin frá 1988
gengju þvert á lög Evrópusam-
bandsins. Það var með tilvísan til
kaupskipalaganna, sem breska
stjórnin bannaði spænskum skip-
um, sem skráð voru í Bretlandi, að
veiða úr breska kvótanum.
Búist er við, að allt að 100
spænskh- togaraeigendur muni
krefjast bóta vegna dómsins, sem
margir breskir þingmenn og tals-
menn sjómanna hafa tekið illa.
Kenna sumir um íhaldsflokknum,
sem bannaði kvótahoppið, og
segja, að hann hafi klúðrað málinu
á sínum tíma en aðrir segja, að
stjórn íhaldsflokksins hafi gert
rétt, jafnvel þótt það hafi verið
dæmt rangt nú.
El LYFJ A
Lyf á lágmarksverði
r* k • ■ ii *
Frumkvooull i
lækkun
lyfjaverðs á íslandi
Lyfja Lágmúla i Reykjavík - Lyfja Setbergi i Hafnarfirði - Lyfja Hamraborg i Kópavogi
Bilun í jafnþrýsti-
búnaði
Hafa
fjorar
Learþot-
ur farist?
Washington. Daily Telegraph.
EINS og kunnugt er fórst hinn
kunni golfleikari Payne Stewart
fyrir nokkrum dögum er einkaþota
hans af gerðinni Lear hrapaði til
jarðar í Suður-Dakota í Bandaríkj-
unum. Er það haft eftir þeim, sem
rannsaka slysið, að á síðustu 19 ár-
um hafi farist þrjár aðrar Lear-
þotur og minni þau slys mjög á
það, sem nú gerðist.
Learþota Stewarts flaug meira'
en 2.000 km á sjálfstýringunni
einni en hrapaði síðan er hún var
orðin eldsneytislaus. Fórust með
henni sex manns. Líklegast þykir,
að jafnþrýstibúnaðurinn hafi bilað í
um 40.000 feta hæð og við það hafi
allir um borð misst meðvitund
næstum samstundis.
Hrapaði fyrir sunnan ísland
Hin slysin urðu í Michigan í
Bandaríkjunum 1980 og í Mexíkó
1993 en það, sem minnir mest á
slysið nú, varð í Þýskalandi 1983.
Þá fór Learþota frá Vín og ætlaði
til Hamborgar en lenti þar ekki,
heldur hélt beint áfram. Voru
breskar herþotur sendar á eftir
henni og þegar þær náðu henni yfir
Skotlandi var ekki unnt að koma
auga á neinn mann í flugstjórnar-
klefanum. Er Learþotan var elds-
neytislaus hrapaði hún í sjóinn um
200 mílur fyrir sunnan Island.
Líklegt þykir, að slysið í Michig-
an hafi einnig stafað af bilun í
þrýstibúnaði en hugsanlegt er, að
aðrar ástæður hafí valdið er Lear-
þotan hrapaði í Mexíkó.
Rannsóknarmenn hafa fundið
tækið, sem tók upp samtöl flug-
mannanna um borð í Learþotunni,
en líklega mun það ekki koma að
neinu haldi. Tók það aðeins upp
hálftíma í einu og tók síðan yfir
það, sem fyrir var.
---------------
OPIÐ HÚS í DAG
ÞETTA E R
SPURNING
UM FRELSI
• Átt þú eftir að ganga frá þínum lífeyrismálum fyrir 1998?
• Vilt þú fræðast um þín lifeyrisréttindi?
• Ættir þú að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað?
• Hvernig getur þú uppfyllt lögbundna skyldu þína?
• Kemst Þú aldrei til að ræða við ráðgjafa á vinnutíma?
Svörin færð þú í dag 30. október því milli
kl. 12 og 16 verður opið hús hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum
að Laugavegi 170. Ráðgjafarsjóðsins veita upplýsingar
um lífeyrisréttindi og möguleika í lífeyrissparnaði. Þú
getur fengið útreikning sem sýnir hvernig lífeyrisréttindi
þín verða við starfslok. Sérfræðingar okkar fjalla um
lífeyrismál og boðið verður upp á veitingar. Einnig
gefst kostur á að ganga frá lífeyrisgreiðslum fyrir árið
1998 til þess að uppfylla skilyrði ríkisskattstjóra.
Láttu sjá þig í dag!
Barist gegn
spillingu
Jakarta. AP, Reuters.
RÁÐHERRAR í nýrri stjórn í
Indónesíu sóru í gær embættiseið.
Varaforsetinn, Megawati
Sukarnoputri, las þeim eiðinn
vegna þess að Abdurrahman Wa-
hid forseti er nær blindur. Wahid
lagði mikla áherslu á að unninn
yrði bugur á spillingu og sagði að
stjórnarinnar biði erfitt verkefni,
að efla lýðræðið og tryggja sam-
stöðu en byggja um leið upp traust
erlendis á stjórnarfari í landinu.
Fyririestrar
Kl.13:00
Af hverju 2% viðbótarsparnaður?
Brynhildur Sverrisdóttir
Kl.14:30
Hvernig tryggi ég mér góðan lífeyri?
Guðlaugur Þór Þórðarson
FRJÁLSI
LfFEYRISSJÓÐURINN
- eisti og stærsti séreignar-
tifeyrissióður landsins
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er í vörslu Fjárvangs hf., Laugavegi 170, sími 540 50 60, fax 540 50 61.