Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskólinn verður á dvalarheimil-
inu Hlíð kl. 11 á morgun. Guðsþjón-
usta kl. 14. Hjón sérstaklega boðuð
til kirkjunnar. Beðið fyrir hjóna-
bandinu. Fyrirlestur fyrir hjón í
safnaðarheimilinu eftir guðsþjón-
ustuna. Sr. Þórhallur Heimisson
prestur í Hafnarfjarðarkirkju fjall-
ar um hjónabandið við aldaskil.
Fundur æskulýðsfélagsins kl. 17 á
morgun í kapellu. Biblíulestur í
safnaðarheimili kl. 20 á mánudags-
kvöld í umsjá sr. Guðmundar Guð-
mundssonar. Morgunsöngvar í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudag.
Mömmumorgunn í safnaðarheimili
kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 á morg-
un, Barnakór Glerái'kirkju sjmgur
undir stjóm Björns Þórarinssonar.
Foreldrar, afar og ömmur eru hvött
til að mæta með börnunum. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 18 sama dag.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10
á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12
til 13 á miðvikudag, orgelleikur, fyr-
irbænir, altarissakramenti og léttur
málsverður í safnaðarsal á eftir. Op-
ið hús fyrir mæður og börn kl. 10 til
12 á fímmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, bæna-
stund kl. 16.30, almenn samkoma kl.
17 og unglingasamkoma kl. 20.
Heimilasamband kl. 15 á mánudag.
Krakkaklúbbur fyrir 6-10 ára börn
kl. 17.30 á miðvikudag, 11 plús mín-
us kl. 17.30 á föstudag fyrir 11 til 12
ára. Flóamarkaður á föstudögum
frá 10 til 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna-
stund kl. 20 í kvöld, laugardag.
Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl.
11.30 á morgun, sunnudag. Kennsla
fyrir alla aldurshópa, Snorri Bergs-
son kennir. Vakningasamkoma
sama dag ki. 16.30, G. Theodór
Birgisson safnaðarhirðir predikar.
Fyrirbænaþjónusta og bamapöss-
un. Skrefíð og Krakkaskrefið á
þriðjudag kl. 17 fyrir 8-12 ára.
Krakkaklúbbur fyrir 3 til 7 ára böm
á miðvikudag kl. 17. Gospelkvöld
unga fólksins á föstudagskvöld.
Bænastundir eru alla morgna kl.
6.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyr-
arlandsveg 26. Herra Johannes Gij-
sen biskup syngur messu.
KFUM og K: Almenn samkoma kl.
17 á morgun, sunnudag, ræðumaður
sr. Sigfús Ingvason. Fundur í yngri
deild KFUM og K kl. 17.30 á mánu-
dag, fyrir drengi og stúlkur 8-12
ára.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Fjölskyldumessa með sunnudaga-
skólaívafi verður í Munkaþverár-
kirkju kl. 11 á morgun, sunnudag.
Skúli Torfason aðstoðar sóknar-
prest og verða fleiri slíkar fjöl-
skyldumessur í hinum ýmsu kirkj-
um á næstunni ef Guð lofar. Hvern-
ig væri að slökkva á sjónvarpinu
augnablik og koma til kirkju?
SJONARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn sámkoma á
Sjónarhæð kl. 17. Barnafundur kl.
18 á mánudag, allir krakkar vel-
komnir, sérstaklega Ástimingar.
Nýtt hlutafélag í meirihlutaeigu KEA á sviði upplýsingatækni
Umsvif aukast og ný
hátæknistörf skapast
Morgunblaðið/Kristján
Stefán Jóhannesson, forstöðumaður Þekkingar-upplýsingatæki, Ei-
ríkur Jóhannsson kaupfélagsstjóri og Sigurður Smári Gylfason, sem
sæti á í stjórn félagsins.
ÞEKKING-upplýsingatækni er
nýtt fyrirtæki á sviði upplýsinga-
tækni og er það að þremur fjórðu
hlutum í eigu Kaupfélags Eyfirð-
inga, en 25% eru í eigu Islenska
hugbúnaðarsjóðsins, fjárfestingar-
sjóðs í eigu banka og ýmissa fag-
fjárfesta. Fyrirtækið tekur til starfa
nú um mánaðamótin. Náið samstarf
er við hugbúnaðarfyrirtækið Þróun
hf. sem KEA hefur keypt 5% hlut í.
Upplýsingadeild KEA er burða-
rás í hinu nýja félagi og þjónusta við
KEA verður stór þáttur í starfsem-
inni auk þess sem gert er ráð fyrir
auknum umsvifum og fjölgun
starfsfólks frá því sem nú er í upp-
lýsingadeild KEA, en þeir era nú
um 10 talsins.
Reynsla og þekking í vöggugjöf
Eiríkur Jóhannsson kaupfélags-
stjóri sagði að sú þekking sem til
væri innan fyrirtækisins á sviði
upplýsingatækni nýttist vel og með
stofnun hins nýja fyrirtækis yrði
styrkari stoðum skotið undir þann
þátt. Hann sagði fyrirhugað að
fjárfesta frekar í þekkingariðnaði,
en þegar hefur verið gengið frá
kaupum á 5% hlut í Þróun. Eiríkur
sagði að KEA myndi í framhaldi
þessa skipta á hlutabréfum við
Þróun hf. þannig að fyrirtækið
UNNIÐ er að því að koma á fót
skóla á Akureyri sem byði upp á
þriggja anna nám fyrir fatlaða og er
fyrirmyndin að því sótt til Hring-
sjár, starfsþjálfunar fatlaðra í
Reykjavík sem starfrækt hefur ver-
ið í tólf ár með góðum árangri.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi þessa máls frá því í september
síðastliðnum og er þess vænst að
ákvörðun liggi fyrir fljótlega. Gert
er ráð fyrir að kennsla geti hafist
haustið 2000 og að 8-10 nemendur
yrðu teknir inn fyrsta kastið. Um er
að ræða þriggja anna nám.
Helgi Seljan, framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags Islands, Guðrún
Hannesdóttir, skólastjóri Hringsjár
í Reykjavík, og Helgi Jósefsson,
skólastjóri Fullorðinsfræðslu fatl-
aðra á Akureyri, eiga sæti í undir-
búningsnefnd vegna þessa máls.
Helgi Jósefsson sagði að sótt
hefði verið um húsnæði Iðjulundar
þar sem áður var vinnustaður fatl-
aðra undir starfsemi skólans. Hvort
af verður ræðst á fundi fulltrúa fé-
lagsmála- og menntamálaráðuneyt-
Til leigu
á Akureyri
verslunar-, iðnaðar-
eða geymsluhúsnæði
390-600 m2
við Dalsbraut
- Margir möguleikar
- Heitasta svæðið í bænum
Upplýsingar:
Sími 894 4292
Boðtæki 846 2620
myndi verða einn eigenda Þekking-
ar.
Stefán Jóhannesson forstöðumað-
ur Þekkingar-upplýsingatækni
sagði að tölvu- og upplýsingadeild
KEA hefði verið stofnuð árið 1974
þannig að löng hefð væri fyrir
rekstri upplýsingakerfa innan fyrir-
tækisins. „Við fáum mikla reynslu
og þekkingu í vöggugjöf," sagði
hann. Mikil verðmæti fælust í
starfsfólki fyrirtækisins sem byggi
yfir víðtækri reynslu, en þjónusta
við atvinnuvegina, verslunarrekst-
ur, mjólkurframleiðslu, kjötiðnað og
sjávarútveg hefði verið fyrirferða-
mikil í starfsemi upplýsingadeildar
KEA.
Fyrirtækið mun sérhæfa sig í
rekstri tölvu- og upplýsingakerfa
hjá fyrirtækjum, en starfsemi af því
tagi hefur mjög ratt sér rúms í út-
löndum. Sama þróun er þegar hafin
hér á landi, enda sagði Stefán fylgja
því marga kosti. Viðskiptin byggð-
ust á fastverðssamningum, þannig
að viðskiptavinir munu vita fyrir-
fram hvað rekstur tölvukerfisins
kostar. Rekstur tölvukerfa hefur
fai'ið stighækkandi sem hlutfall af
heildarkostnaði fyrirtækja og erfitt
hefur reynst að áætla hann fyrir-
fram. Þá nefndi hann að sífellt erfið-
ara væri að fá fólk til starfa í minni
is á mánudag, en þar verður tekin
ákvörðun um hvað gera á við hús-
næði Iðjulundar. Helgi sagði að
þetta húsnæði hentaði einkar vel
undir þessa starfsemi.
Brýn þörf fyrir starfsemi
af þessu tagi
„Það er brýn þörf fyrir starfsemi
af þessu tagi hér á Akureyri," sagði
Helgi, en þótt endanleg ákvörðun
um starfsemina liggi ekki fyrir og
hún hafi ekkert verið auglýst hafa
þegar skráð sig 11 manns í forkönn-
un sem gerð var.
NEMENDUR á þriðja ári í Mennta-
skólanum á Akureyri tóku þátt í
lestrarmaraþoni í skóianum, sem
hófst kl. 8 í gærmorgun og átti að
standa í einn sólarhring. Tilgang-
urinn er að safna peningum í
ferðasjóð fyrir útskriftarferð sem
farin verður næsta haust. Nemend-
ur gengu í fyrirtæki í bænum og
einingum. Eins gæti starfsfólk fyr-
irtækjanna þá einbeitt sér að sínum
störfum, en aðrir sæju um tölvu-
kerfið.
Starfsfólki fjölgar um
a.m.k. helming
Sigurður Smári Gylfason sem
sæti á í stjóm Þekkingar-upplýs-
ingatækni fyrir hönd Islenska hug-
búnaðarsjóðsins kvaðst binda mikl-
ar vonir við starfsemi hins nýja fyr-
Hringsjá er ætluð þeim sem eldri
eru en 18 ára og hafa vegna sjúk-
dóma, slysa eða annarra áfalla þurft
að endurmeta og styrkja stöðu sína.
Markmiðið er að þeir sem útskrifast
frá Hringsjá séu færir um að takast
á við almennt nám í almennum
framhaldsskóla eða ftnna störf við
hæfi á vinnumarkaðnum. Hringsjá
hefur starfað í Reykjavík um 12 ára
skeið og hefur árangurinn af starf-
seminni verið einkar góður, en um
70% þeirra sem sótt hafa námið hafa
ýmist haldið áfram námi annars
staðar eða fengið atvinnu við hæfi.
fengu þar nokkuð misjafnar mót-
tökur. Þá stefna krakkarmr á að
standa fyrir ruslatínslumaraþoni
eftir áramót. Eftir að hefðbundinni
kennslu lauk um miðjan dag í gær
tók við bóklestur nemenda fram á
morgun. Á myndinni liggja stúlkur
í 3. U á náttúrufræðibraut skólans
yfir skólabókum sínum.
irtækis. „Það eru ekki mörg fyrir-
tæki sem búa yftr jafnlangri reynslu
í rekstri tölvukerfa," sagði hann.
„Fyrirtæki era í auknum mæli að
stíga þetta skref, að láta sérhæfð fé-
lög sjá um rekstur tölvukerfa sinna
og við teljum að þeim muni fjölga í
framtíðinni.“
Alls starfa um 10 manns hjá fyr-
irtækinu nú, en gert er ráð fyrir að í
lok næsta árs muni skapast að
minnsta kosti jafnmörg störf.
BT opnar
verslun á
Akureyri
BT opnar fimmtu verslunina í
dag laugardaginn 30. október
og nú á Furuvöllum 5 á Akur-
eyri. Norðlendingurinn Sævar
Freyr Sigurðsson tekur þar við
starfi verslunarstjóra.
BT á Akureyri mun bjóða
upp á gott vöraúrval á hinu
landskunna BT-verði, eins og
segir í fréttatilkynningu fyrir-
tækisins. Einnig kemur fram
að full þörf sé á verslun af
þessu tagi á staðnum, því aukin
samkeppni muni eins og alltaf
skila sér í vasa neytenda.
Á opnunardaginn í dag,
laugardag, kl. 10.00 verða ótrú-
leg opnunartilboð á boðstólum;
símar, sjónvörp, tölvur, leikir,
myndbönd og íleira, allt á nið-
ursettu verði. Bubbi og Omar
Ragnarsson munu mæta í
verslunina og reyna með sér í
hringnum í box-tölvuleik. Af
þessu tilefni vill BT-músin
bjóða alla íbúa Norðurlands
hjartanlega velkomna.
Sýningu lýkur
SÝNINGU á tillögum í
samkeppni um útilistaverk á
Akureyri sem verið hefur í
Deiglunni í Kaupvangsstræti
lýkur nú um helgina. Hún
verður opin laugardag og
sunnudag frá kl. 14 til 18.
Um er að ræða
verðlaunaverkið,
Islandsklukkuna, eftir Kristin
E. Hrafnsson og fjórar tillögur
að auki.
Undirbúningur vegna
náms fyrir fatlaða
Morgunblaðið/Kristján
Helgi Jósefsson, skólastjóri Fullorðinsfræðslu fatlaðra á Akureyri,
Guðrún Hannesdóttir, skólastjóri Hringsjár í Reykjavík, og Helgi Selj-
an, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands, skipa undirbúnings-
nefnd vegna stofnunar Hringsjár á Akureyri.
Legið yfír skólabókum
í sólarhring