Morgunblaðið - 30.10.1999, Side 28
28 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Tsjetsjneskir flóttamenn við matseld skammt frá
landamærum Ingúsetíu.
50 flóttamenn lát-
ast í árásum Rússa
Grosní. AP. AFP.
FIMMTÍU tsjetsjneskir flóttamenn
létust í eldflaugaárás Rússa á flutn-
ingalest sem var á leið frá Tsjetsjníu
til nágrannalýðveldisins Ingúshetíu í
gær, samkvæmt upplýsingum skrif-
stofu Tsjetsjníuforseta, Aslans
Maskhadovs. Rússar höfðu áður lýst
því yfír að landamæri Tsjetsjníu og
Ingúshetíu væm opin á ný, en rúss-
neskir hermenn hafa komið í veg
fyrir ferðir flóttamanna yfír landa-
mærin síðustu daga. Yfírvöld í
Moskvu hafa neitað ásökunum um
að herinn hafi vegið óbreytta borg-
ara.
Rússneskar herþotur héldu uppi
látlausum loftárásum á Grosní, höf-
uðborg Tsjetsjníu í gær. Flugvélam-
ar gerðu árásir á flugvöli borgarinn-
ar og hverfí í norðvesturhluta henn-
ar. A sama tíma geisuðu bardagar
milli rússneskra og tsjetsjneskra
hermanna í úthverfum borgarinnar.
Sameinuðu þjóðirnar
gera út leiðangur
Sameinuðu fljóðirnai' í New York
ákváðu í gær að senn yrði gerður út
leiðangur á vegum þeirra til að
meta ástand um 190.000 flótta-
manna sem flúið hafa átökin síðustu
vikur. Hvatti aðalritari SÞ Kofí
Annan, stríðsaðila til að forðast að
valda mannfalli meðal óbreyttra
borgara.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hvatti í gær rússnesk stjóm-
völd til að hefja samningaviðræður
við forystumenn Tsjetsjena en
Rússar virðast staðráðnir í því að
halda áfram hernaði í landinu.
Markmið þeirra er að uppræta
hryðjuverkamenn sem þeir segja að
beri ábyrgð á sprengjutilræðum í
fjölbýlishúsum Moskvuborgar í síð-
asta mánuði.
ERLENT
Sendinefnd Samveldisríkja þrýstir á herstjórn-
ina í Pakistan að endurreisa lýðræði
Musharraf hafnar
tímamörkum
Islamabad. AFP, Reuters.
PERVEZ Musharraf,
formælandi herstjórn-
arinnar í Pakistan,
hafnaði því í gær að
setja því ákveðin tíma-
mörk hvenær lýðræði
yrði endurreist í land-
inu og meinaði ráð-
herrasendinefnd Sam-
veldisríkja að ná fund-
um Nawaz Sharifs,
hins fallna forsætisráð-
herra.
Musharraf tók í gær
á móti utanríkisráð-
hermm fjögurra aðild-
arríkja Samveldisins
(áður Brezka samveld-
isins), á öðram degi
heimsóknar þeirra til Pakistans.
Aðaltilgangur heimsóknar ráðherr-
anna var að kynna sér fyrirætlanir
herstjómarinnar sem hrifsaði til
sín völdin fyrir þremur vikum.
Þrýsti sendinefndin, sem Lloyd
Axworthy, utanríkisráðherra
Kanada, fór fyrir, á Musharraf og
aðra ráðamenn sem þeir hittu í
Islamabad að herstjórnin legði
fram ákveðna áætlun um endur-
reisn lýðræðis í landinu, sem komið
er út af sporinu eftir 14 ára storma-
samt reynslutímabil.
Heimsókn ráðhemanna á sér
stað í kjölfar þess að fulltrúum
Pakistana var vísað úr öllum nefnd-
um á vegum Samveldisins eftir
valdatöku hersins. „Þótt Musharraf
hershöfðingi vildi ekki gangast inn
á fastmótaða tímaáætl-
un, voram við af hans
hálfu fullvissaðir um að
hann væri staðráðinn í
að stíga viss framfara-
skref,“ hefur AFP eftir
Axworthy. I sendi-
nefndinni með honum
vora utanríkisráðherr-
ar Malasíu, Ghana og
Barbados. Slík skref
fælu í sér umbætur á
kosningakerfinu og að
sett skuli á fót sannan-
lega óháð kjörstjórn,
og „forgangangsverk-
efni“ væri að koma á
kjörnum héraðastjórn-
um.
Musharraf fór þess aftur á mót á
leit við ráðherrana, að aðildarríki
Samveldisins veittu Pakistan að-
stoð á tvíhliðagrundvelli, eða í gegn
um framkvæmdastjóra samtak-
anna.
Axworthy tjáði blaðamönnum að
loknum viðræðunum við Musharraf
að sendinefndin hefði ekki getað
náð símasambandi við Nawaz
Sharif. Nefndarliðum hefði verið
tjáð að forsætisráðherrann fyrrver-
andi hefði ekki kært sig um að tala
við þá í síma. Sharif hefur ekki sést
opinberlega síðan herinn tók völdin
12. október
„Þrátt fyrir að Musharraf hers-
höfðingi hefði fullyrt að við gætum
talað við Sharif í síma, gerðist það
ekki,“ sagði Axworthy. Engin ótví-
ræð staðfesting fékkst því á því
hvaða astæðum Sharif sætti eða
hver líðan hans væri.
Herstjórnin hefur ekki gefíð upp
hve marga af ráðamönnum stjórnar
Sharifs hún hefði enn í haldi.
Þónokkrir ráðherranna 40 vora
látnii' lausir fljótlega eftir valdai'án-
ið, en sumir aðrir, þar á meðal
Shahbaz Sharif, bróðir forsætisráð-
herrans, era enn í varðhaldi hers-
ins.
Brottvísun úr Samveldinu?
För utanríkisráðherranna er
fyrsta heimsókn háttsettra er-
lendra sendimanna til Pakistans
eftir valdatöku hersins. Meti ráð-
herrarnir það svo að þeir hafi ekki
fengið nægilegar tryggingar fyrir
því að lýðræðislegir stjórnarhættir
verði aftur teknir upp í landinu,
gætu þeir mælt með því að leiðtog-
ar Samveldisríkjanna vísi Pakistan
formlega úr samtökunum á fundi
sínum í nóvember.
Axworthy sagði í gær að sendi-
nefndin færi frá Pakistan með
„dýpri skilning" á nýjustu atburð-
um í farteskinu. „Við höfum ekki
orðið varir við að þess sé óskað að
tímabil herstjórnar í landinu teyg-
ist á langinn. Ollu heldur höfum við
fundið fyrir því að hér hafl menn
sannarlega einsett sér að leggja
grunninn að sönnu lýðræði, sem all-
ir íbúar og hvert landshorn Pakist-
ans tæki þátt í,“ sagði sendinefnd-
ai'formaðurinn.
Musharraf
Niðurstöður nýjustu fomleifarannsókiia í ísrael vekja miklar deilur
Enginn flótti frá Eg-
yptalandi og Jósúa
braut ekki múrana
Lúðrarnir þeyttir við Jeríkó. Herzog segir, að múrarnir hafi verið
eyðilagðir í áföngum og á löngum tíma.
Jerúsalem. AP.
ÞAÐ var ekki um að ræða neinn
flótta frá Egyptalandi, Jósúa braut
ekki niður múra Jeríkóborgar og
konungsríki Salómons var pínulítið
yfírráðasvæði eins ættbálks. Kemur
þetta fram í grein eftir ísraelskan
fornleifafræðing, sem birtist í fyrra-
dag.
Höfundurinn heitir Zeev Herzog
og óhætt er að segja, að niðurstöðum
hans hafí verið misjafnlega tekið
þótt þær hafí raunar verið á margra
vitorði lengi. Sumir óttast, einkum
þeir bókstafstrúuðu, að verði þær
viðurkenndar sem sögulegur sann-
leikur, muni þær gera að engu kröf-
ur um, að ísraelar fái allt það land,
sem tilheyrði Stór-Israel til forna, en
aðrir, þar á meðal margir veraldlega
sinnaðir menn, hafa áhyggjur af því,
að hin nýju fræði eyðileggi þjóðarvit-
undina, þann skilning, sem Israelar
hafl á sjálfum sér og uppruna sínum.
Styðja ekki frásagnir Gamla
testamentisins
Herzog, sem starfar við háskólann
í Tel Aviv, bendir á í greininni, sem *
birtist í dagblaðinu Haaretz, að forn-
ieifarnar styðji ekki og afsanni raun-
ar oft frásagnir Biblíunnar eða
Gamla testamentisins um upprana
ísraela. Rekur hann það, sem forn-
leifafræðingar viðurkenna almennt
sem staðreyndir, og segir, að ekki
hafí verið um að ræða neinn flótta
frá Egyptalandi á þeim tíma, sem Bi-
blían segir, og einnig, að múrar
Jeríkóborgar hafi verið eyðilagðir í
áföngum á löngum tíma en ekki í
einni árás undir forystu Jósúa.
Eldfimasta efnið er skoðanir
Herzogs á uppruna Israelsríkis en
hann segir, að hans sé að leita á 9.
öld f.Kr. Þá hafi hópar hirðingja sest
að í hæðunum og komið á fót tveim-
ur ríkjum, Júdeu og Israel, sem áttu
í útistöðum sín í milli.
Herzog segir, að uppgröftur á
þeim svæðum, sem tilheyrðu Davíð
konungi og Salómon þar áður, sýni,
að „borgirnar“ vora húsaþyrpingar
og konungdæmin lítil ættbálkasam-
félög, sem héldu í raun ekki uppi
neinum kröfum til landsins. Segir
hann, að Jerúsalem, hin dýrðlega
borg Davíðs, sem á að hafa ríkt yfir
heimsveldi og náði yfír mestöll Mið-
austurlönd, hafi í besta falli verið lít-
ið lénsdæmi.
Fornleifafræðingurinn Amnon
Ben-Tor, sem er mjög ósáttur við
skoðanir Herzogs, sakar hann um að
nota fornleifafræðina í pólitísku
skyni, það er að segja til að eyði-
leggja goðsagnirnar, sem séu grund-
völlur Israelsríkis. Segir hann, að
vissulega fegri Biblían fortíðina en
hins vegar staðfesti áletranir og upp-
gröftur, að ríki Davíðs og Salómons
hafí verið stórt, ef ekki stórkostlegt.
Lögfræðingurinn Tommy Lapid,
sem hefur barist fyrir réttindum
veraldlega sinnaðs fólks og telur, að
Biblían sé bara mannanna verk, sak-
ar þó Herzog um að reyna að grafa
undan menningarlegum og hug-
myndafræðilegum grandvelli ríkis-
ins. Segir hann, að Herzog sé að
færa óvinum Israela vopn í hendur,
þeim, sem telji, að tilvera ísraela sé
samningsatriði. Lapid segir, að þótt
Biblían sé uppfull af goðsögum, þá
réttlæti þær sögulegu staðreyndir,
sem hún greinir frá, kröfu Israela til
landsins og séu um leið grandvöllur
sögu þeirra, menningar, tungu og
bókmennta.
ísraelar ekki tilbúnir
I greininni í Haaretz fjallar
Herzog um það, sem komið hafí fram
við rannsóknir fornleifafræðinga á
allra síðustu áratugum, en hér áður
var það verkefni ísraelskra fornleifa-
fræðinga fyrst og fremst að fínna
sannanir fyrir frásögnum Biblíunnar.
Fornleifafræðingurinn Moshe
Kochavi við háskólann í Tel Aviv
segir, að það, sem komið hafi í ljós á
síðustu áratugum, hafí ekki komist
inn í þjóðarvitundina vegna þess, að
ísraelar séu ekki tilbúnir til að gefa
gömlu goðsagnirnar upp á bátinn.
Bækur, sem hafi verið gefnar út um
þessar niðurstöður, hafí enda verið
fordæmdar harðlega af þeim, sem
telji sig trúaða og taki Biblíunni sem
heilögum sannleik.
Athyglisverðar skoðanir
Algengt er, að skólabörnum í ísra-
el og raunar fullorðnum líka séu
sýndar gamlar minjar, sem eiga að
sanna það, sem segir í Biblíunni, og
ísraelska ríkið er óspai't á fé til forn-
leifarannsókna ef talið er, að þær
geti stutt frásagnir Gamla testa-
mentisins. Yossi Sarid, menntamála-
ráðherra Israels, segir þó, að skoð-
anir Herzogs séu athyglisverðar og
hugsanlega rétt að gefa nemendum
kost á að kynnast þeim. Sjálfur vakti
Sarid miklar deilur nýlega er hann
lét taka út úr skólabókum ýmislegt,
sem hann kallaði tilbúning eða þjóð-
sögur, sem orðið hefðu til á okkar
dögum.