Morgunblaðið - 30.10.1999, Blaðsíða 35
QJCMJttmíðíIÖM
MORGUNBLAÐIÐ
■!!! t ji /iiio r#to :0@ jt> is)á(i?l aí) i/u i t('
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 35
LISTIR
Aðrir tónleikar Norðurljósa í Listasafni Islands annað kvöld
„Gamla flauta,
hvað viltu mér?u
Morgunblaðið/Sverrir
Elín Guðmundsdóttir leikur á sembal, Guðrún S. Birgisdóttir á
barokkflautu og Ótöf Sesselja Óskarsdóttir á gömbu á öðrum tónteik-
um Norðurljósa, tónlistarhátíðar Musica Antiqua, í Listasafni Islands
annað kvöld.
Verk eftir Bryndísi Kondrup
í Galleríi Reykjavík.
Stuttsýning
í Galleríi
Reykjavík
STUTTSÝNING Bryndísar
Kondrup verður opnuð í Galleríi
Reykjavík í dag, laugardag, kl. 15.
Bryndís sýnir litlar myndir, unnar
með olíu á striga, allar gerðar á
þessu ári.
Bryndís lauk námi við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands og
stundaði framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn. Hún hefur haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum.
Gallerí Reykjavík, Skólavörðu-
stíg 16, er opið mánudaga til föstu-
dag kl. 10-18, laugardaga kl. 11-14.
Sýningunni lýkur 7. nóvember.
-----♦ ♦♦-----
Eggert Laxdal
sýnir
í Hveragerði
EGGERT Laxdal opnar mynd-
listarsýningu í Galleríi E. Laxdal,
Frumskógum 6, Hveragerði, í dag,
laugardag, kl. 13.
A sýningunni er gömul og ný
verk; olíu- og vatnslitamyndir,
tússteikningar í litum, svart/hvítar
pennateikningar og klippimyndir.
Galleríið er opið alla daga nema
miðvikudaga frá kl. 13-20. Sýning-
in stendur til 7. nóvember.
ÁTJÁNDU aldar tónlist fyrir
barokkflautu og fylgiraddir er á efn-
isskrá annarra tónleika Norðurljósa,
tónlistarhátíðar Musica Antiqua í
Listasafni Islands annað kvöld kl.
20. Þar leikur Guðrún S. Birgisdóttir
á barokkflautu, Elín Guðmundsdótt-
ir á sembal og Ólöf Sesselja Óskar-
sdóttir á gömbu.
Yfirskrift tónleikanna er „Gamla
flauta, hvað viltu mér?“ Guðrún seg-
ir að sér hafi fyrst orðið um og ó þeg-
ar Camilla Söderberg bað hana um
að setja saman efnisskrá með verk-
um fyrir barokkflautu en svo hafi
hún álcveðið að taka áskoruninni.
Hún telur það mildlvægt að hér fái
að þróast sú hefð að leika barokk-
tónlist á upprunaleg hljóðfæri, en
enn sem komið er hafi varla nokkur
hljóðfæraleikari hér á landi haft
tækifæri til að sérhæfa sig í því ein-
göngu. Hún segir þó að árlegir jóla-
og páskabarokktónleikar í Kópavogi
séu orðnir mildl lyftistöng fýrir iðk-
un baroldrtónlistar á höfuðborgar-
svæðinu og kveðst vona að í næstu
kynslóð tónlistarmanna verði ein-
hverjir sem geti helgað sig barokk-
inu alfarið. Sjálf hefur Guðrún um
árabil gripið í að leika á barokk-
flautu, en aðallega þó í samleik með
öðrum.
Fjórar sónötur
Guðrún kveðst hafa valið fjögur
ólík verk til flutnings á tónieikunum.
Fyrst á efnisskránni er Sónata í D-
dúr eftir ítalska tónskáldið Leonar-
do Vinci, sem þrátt íyrir nafnið mun
vera alls óskyldur myndlistar- og
hugvitsmanninum fræga Leonardo
da Vinci. Sónötu í h-moll eftir Georg
Friedrich Hándel má einnig heyra á
tónleikunum.
Sónata í e-moll iyrir flautu eftir
Johann Sebastian Bach er að sögn
Guðrúnar meðal ástælustu verka
sem tónskáldið skiifaði íyrir flautu.
Á þeim tíma gerðu engin önnur tón-
skáld í Evrópu viðlíka kröfur til
flautuleikara, nema ef vera skyldi
Jean-Marie Leclair í Fralddandi.
Eftir hann munu þær stöllur einmitt
leilca Sónötu í G-dúr, sem hann skrif-
aði raunar fyrir fiðlu og fylgirödd
„en má einnig leika á flautu“ eins og
segir í yfirskrift útgáfunnar frá
1738. Guðrún segir að Leclair hafi
orðið fýrir ítölskum áhrifum og hafi
verið einn þeirra sem voguðu sér að
koma sónötuforminu á framfæri í
Frakklandi á tímum þegar svítan
var þar allsráðandi. Þótti ýmsum
KVIKMYNDASJÓÐUR íslands
hefur úthlutað tveimur framhalds-
styrkjum til handritsgerðar. Styrk-
þegarnir eru, ásamt vinnuheitum á
handritum þeirra: Halldór E. Lax-
ness, fyrir Vefarann mikla frá Kas-
mír og Hallgrímur Helgason, fyrir
Ég á eftir að kyssa 37 stelpur áður
en ég finn þá einu réttu.
Þetta er þriðji og síðasti áfangi í
handritaþróun og -samkeppni
Kvikmyndasjóðs árið 1999. Verk-
efnið hófst í upphafi ársins þegar
tíu höfundar hlutu styrki til að
vinna fyrstu útgáfu handrits. Fimm
þeirra voru valdir til að halda áfram
það ganga guðlastí næst að storka
þannig hefðinni og deildu menn
ákaft um ágætí þessa nýja forms.
Meðal þeirra sem tóku þátt í þeim
skoðanasldptum var rithöfundurinn
Fontanelle, sem skrifaði grein undir
yfirskriftinni „Sonate, que me veux-
tu“ eða „Sónata, hvað viltu mér?“
í verkefninu í öðrum áfanga í júní
sl. og nú hafa tveir af þeim hlotið
lokastyrki.
Hvor höfundur hlýtur nú 350.000
kr. til að fullbúa handritið undir
framleiðslu í samvinnu við fram-
leiðanda.
Valnefnd í handritaverkefni
Kvikmyndasjóðs skipa þau Guðni
Elísson, Salvör Nordal og Steinunn
Sigurðardóttir.
Næsti umsóknarfrestur um
styi’ki eða framlög úr Kvikmynda-
sjóði Islands rennur út 18. nóvem-
ber nk.
Einleikstón-
leikar við
sýningarlok
SÝNINGUNNI Árþúsunda arki-
tektúr á neðri hæð Gerðarsafns
lýkur degi fyrr en auglýst hafði
verið.
Þetta er samsýning þar sem
Steina Vasulka varpar skjálist
sinni á insetningu Sissú Pálsdóttur
og Anita Hardy Kaslo sýnir ljós-
myndaverk. Á lokdegi sýningar, lí
dag kl. 16:15, verður Guðlaugur
Kristinn Óttarsson, hljóðgerving-
ur, rafgítarleikari og tónskáld,
með einleikstónleika í tengslum við
sýninguna. Á þeim mun hann
flytja verk eftir GKÓ, Bach, Kukl,
Mingus og They. Tónverkin eru í
útsetningu Guðlaugs fyrir lifandi
einleik á sex rafsegulstrengi, blás-
arasveit, strengjasveit og slag-
hörpu.
Kveikt á
verki
í galleri-
@hlemm-
ur.is
ALBA ALBA-dúettinn kveik-
ir á ALBA ALBA-verkinu í
galleri@hlemmur.is kl. 16 í
dag, laugardag.
ALBA ALBA-dúettinn
skipa listamennirnir Baldur J.
Baldursson og Kristinn
Pálmason.
I fréttatilkynningu segir:
„Árið 1927 komst Angus
Somhairle Macleoid að því að
hvítt væri ekki hluti af þeirri
heild sem oft hafði verið haldið
fram. ALBA ALBA-dúettinn
hefur borið saman niðurstöður
Macleoid’s og sínar og komist
að því að hann hafði rangt fyr-
ir sér. Hvítt, sem slíkt, er ein-
mitt hluti af þeirri heild sem
oft hefur verið haldið fram.“
Sýningin stendur til 21. nó-
vember og er opin frá kl. 14-
18 alla daga nema mánudaga.
Tveir framhalds-
styrkir til
handritsgerðar
Skálholtskórinn ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu, Þorkatli Jóelssyni hornleikara, Kára
Þormar orgelleikara og stjórnandanum Hilmari Erni Agnarssyni.
Skálholtskórinn á tónleikum
í Fríkirkiunni
KIRKJULEG jafnt sem veratdleg
tónlist er á efnisskrá tónleika
Skálholtskórsins í Fríkirkjunni í
Reykjavík á morgun, sunnudag,
kl. 20. Með kórnum koma fram
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran-
söngkona, Þorkell Jóelsson horn-
leikari og Kári Þormar orgelleik-
ari. Stjórnandi kórsins er Hilmar
Orn Agnarsson.
Kórinn er nýkominn heim úr
söngferðalagi um Frakkland og
Italíu. Aðdragandi fararinnar var
á þá leið að á síðasta ári var kór-
inn á söngferðalagi í Evrópu, þar
sem hann hélt m.a. tónteika í Barr
í Frakklandi. Borgarstjórinn í
Barr ásamt fulltrúum Evrópu-
þingsins í Strassborg hlýddu á
sönginn og höfðu milligöngu um
að Skálholtskórnum og Sigrúnu
var boðið að koma að ári og
syngja á alþjóðlegri ráðstefnu í
Rouffach í Frakklandi, sem þau og
gerðu á dögunum. Kórinn kom
víðar fram á ferðalagi sínu um
Frakkland og Italíu, m.a. var
sungið fyrir Islendinga í bænda-
ferð við Gardavatnið.
Á tónleikunum í Fríkirkjunni á
morgun verður fluttur hluti efnis-
skrár ferðarinnar. Má þar m.a.
nefna Hallelújakórinn úr Messíasi,
Hear my prayer eftir Mendets-
sohn og dúett sem hjónin Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Þorkell Jóels-
son flytja. Miðar verða seldir við
innganginn.
H lífðar-
yfirbreiðsliir
• Yfirbreiðsla með
áföstu límbandi
• Fljótlegt og
einfalt í notkun
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is